Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1989, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1989. Útlönd Ráöhúslö I Usti Nad Labem f Tékkóslóvakíu er flla fariö efUr aprenging- una f fyrradag. Einnig brotnuðu rúöur i næriiggjandi byggingum. Sfmemynd Reuter Sprengja olli mlklum skemmdum á ráðhúsinu í bænum Usti Nad Labem í Tékkóslóvakíu, nálægt austur-þýsku landamærunum, aö því er Rude Pravo, hiö opinbera málgagn tékkneska Kommmúnistaflokksins sagði í gær. Ekki var skýrt frá því hvort manntjón helöi oröiö í sprengingunni, sem varð á miðvikudag. Við sprenginguna brotnuöu einnig rúður í nærliggj- andi byggingum. Blaðið segir að sprengingin hafi verið hryðjuverk og að hún hafi komið i kjölfar nokkurra nafnlausra hótana um að opinberar byggingar, stór- verslanir og skólabyggingar i noröurhluta Bæheims veröi sprengdar i loft upp. Blaðið nefhdi ekki hverjir væru taldir bera ábyrgð á sprengingunni. Þaö sagöi hins vegar í fréttinni: „Viö skulum ekki ieyna þeirri stað- reynd að það eru öfl í Tékkóslóvakíu sem munu aldrei sætta sig við félags- lega kerfið okkar." Dómstóll hafnar kröfum Bandaríkjasfjómar Afrýjunardómstóll í Bandaríkjunum haíhaði í gær kröfu Bushstjómar- innar um að réttarhöld gegn Oliver North skyldu ekki fara fram vegna þess að líkur væru á að rfkisleyndarmál yrðu gerð opinber við slík réttar- höld. Dómaramir þrír staðfestu úrskurð undirdómarans, sem hefur máUð gegn North á smni könnu, en hann hafði áöur hafnað kröfttm stjómarinn- ar. Úrskurður áfrýjunardómstólsins verður öl þess að nú er mjög líklegt að fyrstu réttarhöldin vegna íransmálsins fari fram. Ríkisstjómin getur hins vegar barist áfram í réttarkerfinu til að fá málinu kastað ut og áfrýj- að til enn æöri áfrýjunardómstóls eöa jafnvel til Hæstaréttar Bandaríkj- anna. Líklegt þykir aö stjóravöld reyni að leggja stein i götu þessara réttar- halda og era margir sem telja aö þau geti flækt hlutina svo verulega að nauðsynlegt reynist aö vísa málinu frá. Enga smokka um borð Danir, ásamt nokkrum öðrum löndum í Evrópubandalaginu, hafa lýst sig andvíga því aö skylda fiskiskip til að hafa að minnsta kosti eitt hundr- aö smokka í sjúkrakössum um borð. Dönum finnst það mjög píniegt að skylda menn til þess aö bafa smokka með eins og hvert annað lækningatæki. Segjast þeir raunar vera á móti því að vera aö troöa of mörgum biutura í sjúkrakassann. Danir eru hins vegar ekki á móti því að hafa smokka um borð í skipum sinum heldur líst þeim vel á þá hugraynd að skipstjórar veröi skyldaðir til að bjóða smokka til sölu um borð. Svarti kassinn fumfinn á Azoreyjum I fyrradag, en ekki eru Ifk atlra fundln. Svarff kaaalnn fannat I gær og eru vonlr bundnar viö aö hann geti gefið vfabendlngu um það hvað olll þeeel elyal. Simamynd Rauter Sovésk MI-24 árásarþyrla á eftirlitsflugi f nágrenni flugvallarins í Kabúl. Um þrjú hundruð sovéskir hermenn eru nú eftir til að verja flugvöllinn. Simamynd Reuter Klof ningur með- al skæruliða Sovéskir skriödrekaforingjar klifra upp úr bryndrekum sínum er stoppað er á Salang-þjóðveginum á leið til Sovétríkjanna. Þeim er ekki óhætt að slaka á fyrr en komiö er yfir Salang-skarð. Simamynd Reuter bókstafstrúarflokkar í bandalaginu hefðu komið með mótmæli á síðustu stundu gegn samningi hans við hóp- ana, sem hafa bæitistöðvar í íran, en samkvæmt því fá íranshópamir átta- tíu af fimm hundruð tuttugu og sex sætum á þinginu, Shura. Hann sagði að æðsta ráð banda- lagsins hefði hist í morgun til aö leysa þetta vandamál en að óvíst væri hvort lausn fyndist. „Þaö er líklegt að fulltrúar hóp- anna í íran muni yfirgefa fundinn og snúa aftur til írans," sagði tals- maöurinn. Einnig var ekki ljóst hvort Mojaddidi væri enn formaöur banda- lagsins eftir að fréttastofa skæruliöa skýrði frá því aö æösta ráöið hefði haldið fund í gærkvöldi og ákveöið að láta Mojaddidi víkja fyrir Mo- hammad Nabi Mohammadi, sem einnig er hófsamur. Alsmaður Mojaddidis sagði aö fréttirnar væra ruglingslegar og að sannleikurinn væri sá að Mo- hammadi heíði verið skipaður forseti þingsins, ekki bandalagsins. Talsmaöur Gulbuddin Hekmatyar, sem er harölínuleiðtogi sagði hins vegar aö þaö væri rangt og að Mojaddidi hefði verið vikið frá. Fréttastofan tilkynnti í síðustu viku að ráðið hefði framlengt kjör- tímabil Mojaddidis um þrjá mánuði. Reuter Nú virðist sem afganskir skærulið- ar séu komnir í hár saman um fram- tíðarskipan mála í Afganistan og út- lagastjóm þeirra. í dag átti að verða fundur í útlagaþingi þeirra en eijur og deilur milli skæruliöa innbyrðis leiddu til þess að í morgun var óvist hvort af honum yröi. FuUtrúar frá átta skæruliðahóp- um, sem hafa aðsetur í íran, voru að því komnir að fara heim áður en fundurinn hæfist. Einnig bar ekki saman fréttum um það hvort formað- ur sjö flokka bandaiagsins, sem stað- sett er í norðvestur hiuta Pakistan, hefði verið settur af. Talsmaður SibghatuUah Mojaddidi, leiðtoga bandalagsins, sagði Reuters fréttastofunni að fjórir Á svarta markaðinum er nóg af kav- iar sem fæst fyrir tæpar fjögur þús- und krónur, dósin. Þrátt fyrir að matarskortur sé f Kabúl eru gnægtir af lúxusfæöi sem Sovétmenn skildu eftir sig eftir niu ára hersetu. Símamynd Reuter Bjartsýni í Póllandi Samstaða og kommúnistastjórnin í Póllandi heíja í dag viðræður um póUtískt frelsi í vissu þess að leit þeirra að samkomulagi, sem felur í sér aukinn stööugleika fyrir landið, er á réttri leið og að Samstaða, sem nú er bönnuö, verði leyfð á nýjan leik. Samningamenn beggja aðUa voru bjartsýnir eftir viöræður rnn endur- reisn samtakanna í gær, í þriðju umferð hringborðsumræðnanna sem hófust síðastiiðinn mánudag. Þær snúast um kreppuna sem ríkir í pólskum stjómmálum, félagsmál- um og efnahagsmálum. „Þaö er enginn vafi á því að frjáls verkalýðsfélög verða að staöreynd í PóUandi. Við verðum að skapa réttan jarðveg fyrir sUkt,“ sagði Alexander Kwasniewski, aðalsamningamaður stjómarinnar um verkaiýðsfélög, á fréttamannafundi. „Ég held að við höfum ástæðu tU að vera bjartsýn," sagði Tadeusz Mazowiecki, einn af samningamönn: um Samstöðu. Samstaða var brotin á bak aftur í desember 1981 og bönn- uð með lögum árið eftir. Lech Walesa, sem nú ætlar að ferð- ast um suðurhluta PóUands tU aö hlera afstöðu fólks til samninga við stjórnvöld, hefur einnig lýst yfir því að hann hafi trú á þessum viðræðum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.