Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1989, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1989.
9
Utlönd
Jákvæð viðbrögð við
stefnuræðu forsetans
Steinunn Böðvarsdóttir, DV, Washingtan:
George Bush Bandaríkjaforseti
kynnti í gærkvöldi báðum deildum
Bandaríkjaþings fjárlagatiilögur
sínar og gaf tóninn í innan- og utan-
ríkisstefnu hinnar nýju stjómar
sinnar. Ræðan í gærkvöldi var
fyrsta eiginlega stefnuræða forset-
ans síðan hann tók við stjórnar-
taumunum af Ronald Reagan fyrir
þremur vikum.
Forsetinn kom víða við í ræðu
sinni í gær með megináherslu á
fjármál ríkisins. Sem fyrr hvatti
hann til samvinnu þingheims og
Hvíta hússins til að leysa þau
vandamál sem blasa við þjóðinni.
Fjárlagatillögur forsetans leggja
grunninn að hinni eiginlegu íjár-
lagagerð og í dag hefjast samninga-
viðræður þingmanna og ríkis-
stiórnarinnar um einstök atriði,
niðurskurð og aukningu.
í tillögum forsetans er kveðið á
um 1160 milljarða dollara útgjöld
fyrir flárhagsárið 1990 sem hefst 1.
október næstkomandi. í tillögun-
um er gert ráð fyrir 91 milljarðs
dollara flárlagahalla sem er vel
innan þess 100 milljarða dollara
hámarks sem lög gera ráð fyrir.
Breytingar
Helstu breytingar forsetans við
frumvarp forvera síns varða fram-
lög til varnarmála og félagsmála.
Bush leggur til að flárveitingar til
vamarmála verði frystar næsta ár
eftir að tekið hefur verið tillit til
verðbólgu. í raun þýðir það að
framlög til hersins verða skorin
niður um rúmlega tvo milljarða
dollara miðað við frumvarp Reag-
ans. En Bush fór fram á aukningu
til vamarmála flárhagsárin 1991 til
1993.
Samkvæmt kosningaloforðum
sínum fór Bush fram á aukningu í
flárveitingum til ýmissa félags-
mála. Hann fór fram á aukin fram-
lög til menntamála, þar með talið
250 milljónir dollara til nýrra verk-
efna í skólakerfinu. Hann fór einn-
ig fram á aukna flárveitingu til
umhverfismála, þar með tahð varð-
veitingu gróðurlífs og andrúms-
lofts.
Unga kynslóðin var ofarlega í
huga forsetans í gærkvöldi. Hann
fór fram á 250 milljóna dollara
aukningu í uppfræðslu yngstu kyn-
slóðarinnar, flárhagsaðstoð í formi
skattaívilnana til fátækra foreldra
með ung böm og þrjú þúsund doll-
ara skattafrádrátt fyrir flölskyldur
sem ættleiða ungböm.
Dauðarefsing
Bush fór einnig fram á hertari
aðgerðir og aukin flárframlög í bar-
áttunni gegn eituriyflum. Hann fór
fram á 1 milljónar dollara aukn-
ingu til bættrar menntunar um
áhrif eiturlyfla og aukinnar lög-
gæslu. Hann lagði til að eituriyfla-
barónar yrðu dæmdir til dauða og
fíkniefnasalar og -neytendur yrðu
dæmdir í fangelsi.
Þá fór Bush fram á rúmlega 700
milljóna dollara aukningu til að-
stoðar heimilislausum og rúmlega
1 milljarðs dollara aukningu í
heilsugæslu fátækra.
í utanríkismálum kvaðst forset-
inn hlynntur bættum samskiptum
stórveldanna en hvatti til var-
kámi. Hann lagði til allsherjar-
bann á efnavopn og endurtók
stuðning Bandaríkjanna við
kontraskæruliðana í Nicaragua.
Skattahækkun bitbein
Eins og búist hafði verið við er
skattahækkun ekki meðal tillagna
forsetans. Það verður án efa helsta
bitbein samninganna, skattahækk-
anir og hvar beita skuli niður-
skurðarhnífnum.
Fyrstu viðbrögð við ræðu forset-
ans vom jákvæð. Demókratar
kváðust reiðubúnir til að starfa
með forsetanum til að hamra sam-
an flárlagafrumvarp en margir
kváðust efins um að hægt væri að
rétta við flárlagahalla ríkissjóðs án
þess að grípa til skattahækkana.
Samkvæmt lögum skal flárlaga-
frumvarp fyrir flárhagsárið 1990
vera tilbúið 15. apríl næstkomandi.
Armensk börn
til Bandaríkjanna
Þrjátíu og sjö böm, sem meiddust
í jarðskjálftunum í Armeníu, komu
til Bandaríkjanna í gær þar sem þeim
verður veitt læknishjálp. Barbara
Bush, eiginkona Bandaríkjaforseta,
tók á móti börnunum og gaf þeim
Mikka mús dúkkur. Sovéski sendi-
herrann tók einnig á móti bömun-
um.
Þau munu dvelja á sjúkrahúsum
víðsvegar um Bandaríkin. Fljótlega
eftir jarðskjálftana vom þau flutt frá
Armeníu til hersjúkrahúss Banda-
ríkjamanna í V-Þýskalandi. Búist er
við að bömin verði í Bandaríkjunum
í hálft til eitt ár.
Foreldrar og forráðamenn bam-
anna vom í fylgd með þeim.
Við komuna til Bandaríkjanna voru armensku börnunum gefnar bruður.
Simamynd Reiiter