Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. 9 Utlönd Fjöldamorda minnst Armenar i Jerevan minntust þess i gær aö ár er liðiö frá fjöldamorðun- um i Sumgait i Azerbajdzhan. Þá voru tuttugu og sex Armenar myrtir í óeirðum. í tilefni minningarathafnarinnar í gær báru Armenar blóm- sveiga að minnismerkinu um útrýminguna á Armenum árið 1915. Mótmæli í Panama Tugir þúsunda mótmælenda söfnuðust saman i Panama i gær. Kröfö- ust þeir réttlætis og lýöræðis. Símamynd Reuter Þúsundir Panamabúa gengu um götur Panama City í gær til aö leggja áherslu á kröfur sinar um frjálsar kosnignar og útgáfu þeirra dagblaöá sem hætt hefur veriö. Voru þetta víötækustu mótmælaaögeröirnar í landinu síðan í ágúst síöastliönum. Göngumenn báru skilti og borða og hrópuðu slagorð aö Noriega hers- höfðinga. Stiómin í Panama lokaði öllum fjölmiölum stjórnarandstöðunnar og bannaði mótmæli á götum úti fyrir ári í sfjómarkreppunni sem varö þegar Delvalle forseti reyndi að reka Noriega. Hann neyddist sjálfur til að halda úr landi. í gær urðu menn ekki varir viö öryggissveitir á meöan á mótmælunum stóö. Stjómmálamenn segja aö stjómarandstæðingar hafi greinilega not- aö tækifærið á meðan á heimsókn bandarískrar mannréttindahreyfingar stendur til aö efna til mótmæla. Concorde tvítug Svona mun næsta kynslóö af Concorde þotunni lita út. Hún mun taka um tvö hundruð farþega og geta flogið tólf þúsund kilómetra leið án þess að taka eldsneyti. Simamynd Reuter Hfjóðfráa Concorde þotan átti í gær tuttugu ára flugafmæli. Þaö var 2. mars 1969 að Concorde fór í jómfrúflug sitt yfir borginni Toulouse í Suður-Frakklandi. Milljónir manna horföu á vélina taka sig á loft í beinni sjónvarpsútsendingu. Þar á meðal var Charles De Gaulle, forseti Frakk- lands, sem hafði stutt smiði þotunnar frá upphafi. í upphafi höfðu sextán flugfélög pantað sjötiu og fjórar þotur en þegar Bandaríkin bönnuðu hijóðfráum þotum aö fljúga yfir fækkaði pöntunum og svo fór aö einungis sextán Concorde þotur voru smíðaðar. Concorde kostaði bresku og frönsku ríkisstjómimar meira en þijá milijarða dollara. Gagnrýnendur sögðu aö þeir peningar hefðu fariö í það eitt aö sjá til þess aö örfáar þúsundir auðkýfmga gætu fengið sér þriggja klukkustunda morgunverð með kampavíni yfir Atlantshafi. Habsburgarveldið endurreist? Otto von Habsburg, siðasti krónprins Habsburgarkeisaraveldisins, sem nú er í heimsókn í Ungverjalandi, segist gera sér góðar vonir um að Ungverjaland verði hlutlaust land og sameinist aftur Austurríki. Krónprinsinn er nú sjötíu og sex ára gamall og er þetta önnur heim- sókn hans til Ungveijalands síðan keisaraveldið leið undir lok fyrir sjö- tíu árum. Keuter Ásakanir gegn Tow- er rey nast lygar Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings hófu í gær gagn- árásir gegn nýjum ásökunum sem hafa verið birtar gegn John Tower, varnarmálaráðherraefni Bush. Tower er sakaður um að hafa káfað á tveimur konum, dmkkinn, í heim- sókn á herflugvöll fyrir meira en tíu árrnn. Öldungadeildin byrjaði í gær að fjalla um útnefningu Towers. Stuðn- ingsmenn hans sögðu að árásirnar gegn honum Væru lygi og áróður og tilraun til mannorðsmorðs. Sögðu þeir að ef sömu kröfur væru gerðar til allra annarra og gerðar eru til Towers yrði enginn háttsettur emb- ættismaður eftir í Washington. Einnig kom fram að hermaðurinn, sem sagðist hafa orðið vitni að káfi Towers, var ekki á herflugvellinum þegar hann segir að káfið hafi átt sér stað. Dagblaðiö The Washington Post skýrði frá því í gær að fyrrum liðs- foringi úr flughernum heföi tjáö al- ríkislögreglunni að Tower hefði ver- ið lyktandi af áfengi, þvoglumæltur og óstöðugur á fótunum í tveimur heimsóknum á Bergstrom herflug- völlinn í Texas. Blaðið segir að Uðsforinginn, Bob Jackson, hafi sagt alríkislögreglunni að í þessum heimsóknum haifi Tower sett hönd sína einu sinni á brjóst konu, sem starfaði sem ritari, og einu sinni klappað á afturendann á konu sem var flugmaður. John McCain, repúblikani frá Ariz- ona sagði öldungadeildinni í gær að Jackson hefði ekki verið á herflug- vellinum þegar atvikin eiga að hafa átt sér stað. McCain sagði að Jackson hefði Slegið á útrétta hönd Breta íran hefur hafnað því sem virðist hafa verið tilraun af hálfu bresku stjórnarinnar til að binda enda á deil- urnar sem hafa skapast vegna bókar- innar Söngvar Satans. Mir-Hossein Mousavi, forsætisráðherra írans, sagði í gær að íran myndi með glöðu geði slíta stjórnmálasambandi við Bretland. IRNA, hin opinbera íranska frétta- stofa, sagði að Geoffrey Howe, utan- rikisráðherra Bretlands, hefði verið aö leika sér að orðum þegar hann í gær lýsti því yfir að Söngvar Satans eftir Salman Rushdie væri jafn- móðgandi fyrir Breta og hún væri fyrir múhameðstrúarmenn. Mousavi sagði í blaðaviðtah að þingið hefði ekki þorað að slíta öll tengsl við Bretland ef landið væri á kafi í erlendum skuldum. Mousavi sagði að stríðið við írak hefði skihð Irak eftir með áttatíu mhljarða dollara skuldahala en að íran væri skuldlaust. „Þess vegna samþykktí þingið að rjúfa samband við Bretland," sagði hann. Hvort landið um sig hefur kallað heim alla sína stjórnarerindreka og siðastliðinn þriðjudag samþykkti ír- anska þingið að shta stjórnmálasam- bandi við Bretland innan einnar viku ef Bretar ekki fordæmdu bók Rush- dies fyrir þann tíma. Breska stjórnin hefur beðið stjórn- völd í Teheran að aflétta dauðadóm- inum yfir Rushdie. Howe hefur sagt í viðtah við BBC að stjórnvöld séu ekki sammála bók- inni né heldur styðji þau hana. Howe segir að í bókinni séu niðrandi um- mæli um bresku stjómina og Bret- landi hkt viö Þýskaland Hitlers. Sovétmenn lýstu í gær miklum áhyggjum sínum yfir því hvernig samskipti írans og Vesturlanda hafa þróast að undanfomu, eftir að Kho- Lurie sér Salman Rushdie svo fyrir sér að bókin SÖngvar Satans hafi gert meini kom með morðhótun sína. Repúblikanar í öldungadeildinni hafa nú tekið upp varnir fyrir John Tower, varnarmálaráðherraefni Bush. Tower hefur líka sjálfur látið andstæðinga sína fá það óþvegið. Ljóst er að Tower mun ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Simamynd Reuter gegnt herskyldu við flugvöllinn frá febrúar 1976 til mars 1977. JaCkson var látinn hætta í apríl 1978 vegna geðrænna vandamála. Að auki skýrði McCain frá því að Tower hefði aðeins einu sinni komið til flugvallarins, í ágúst 1975. Varnarmálanefnd öldungadehdar- innar hafnaði Tower í síðustu viku með ellefu atkvæöum gegn níu. Ef öldungadeildin sjálf fer að dæmi nefndarinnar mun þetta veröa í níunda skipti sem ráöherraefni er hafnað. Bush forseti þarf að tryggja sér at- kvæði fimm demókrata auk allra repúblikana til að Tower verði sam- þykktur. Ef það tekst faha atkvæði jöfn í deildinni og Dan Quayle vara- forseti hefur oddaatkvæðið. Barry Goldwater, fyrrum öldunga- deildarþingmaður og forsetafram- bjóðandi, sagði í heimsókn í Hvita húsinu í gær aö ef farið væri aö rann- saka þá eitt hundrað einstakhnga, sem eiga sæti í öldungadehd banda- ríska þingsins, myndi fólk skemmta sér konunglega. „Ef John Tower missir starf sitt væri ég mjög hrifinn af því að rann- saka líf allra þeirra sem sitja á þingi,“ sagði Goldwater, sem nú er orðinn áttræður. Reuter hann aö einu stóru skotmarki. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.