Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. 3 Fréttir Haraldur Eggertsson skipstjóri. Sifin var að landa átta tonnum, þegar mynd- in var tekin. DV-mynd Reynir Flateyri: Góð veiði þegar gefur Reynir Traustason, DV, Flateyri: Góð línuveiði hefur verið hjá Flat- eyrarbátum að undanfórnu þegar gefið hefur á sjó en fádæma ógæftir hafa verið frá áramótum. Haraldur Eggertsson, skipstjóri á SIF 225, sagði í samtali við DV að þeir á Sifinni hefðu aðeins komist í átta róðra á sjó í febrúar. Þokkaleg veiöi hefði verið en fiskverð væri allt of lágt og varla hægt að lifa af þeim launum, sem sjómennskan gef- ur af sér að mati Haralds. Eins og kunnugt er búa Vestfirðingar við lág- marksverð verðlagsráðs á fiski á meðan markaðsverð og yfirborganir tíðkast víðast hvar annars staðar. Símaskák fyrir norðan Guömundur Davíðsson, DV, Siglufirði: Símaskák stendur nú yfir milli Dalvíkur og Siglufjarðar. Hún hófst miðvikudaginn 22. febrúar og er leik- inn einn leikur á dag. Fyrir Dalvík tefla Hjörleifur Halldórsson og Rúnar Búason en fyrir Siglufjörð þeir Baldur Fjölnisson og Bogi Sigur- bjömsson. Bæjarstjórarnir á stöðunum, Kristján Þór Júlíusson, Dalvík, og ísak Ólafsson, Siglufiröi, drógu um liti og léku fyrstu leikina. Dalvík hefur hvítt og lék e4 en svar Siglu- fjarðar var c5 - Sikileyjarvöm. Á Siglufirði hangir skákskýringartafla uppi á knattborðsstofunni en á Dal- vík í kaupfélagsglugganum. Þar get- ur fólk fylgst með þróun taflsins. Siglfirðingar, sem mættir voru til keppni á Dalvík. DV-mynd Geir Skíðafólk veður- teppt á Dalvík Geir Guðsteinsson, DV, Dalvik: Bikarmót í alpagreinum í 13-14 ára flokki átti að fara fram á Dalvík um helgina en á fostudag brast á hið versta veður svo ekkert varð af móts- haldi. Fjöldi keppenda var kominn á staðinn og í fyrstu gistu þeir í Dalvík- urskóla en á sunnudag í ferðamið- stöðinni og Kiwanishúsinu. Bömin vom frá Seyðisfirði, Neskaupstað, Siglufirði, Reykjavík og Ólafsfirði. Börnin frá Ólafsfirði voru þrjá tíma með rútu á leiðinni og tókst að bijót- ast til Dalvíkur með aðstoð slysa- varnardeildarinnar. Ólafur Ragnar Grlmsson, flármálaráðherra: Hétt síðbúna veislu Lúðvík til heiðurs „Þessi veisla var haldin til heiðurs Lúðvík Jósepssyni og vegna 30 ára afmælis útfærslu landhelginnar en hann átti sem kunnugt er mikinn þátt í þeim málum. Ég hef ætlað að gera þetta dálítiö lengi en vegna ýmissa ástæðna hefur þetta dregist. Það var að vísu óvenjulegt að ég kaus að halda þessa veislu í ráðherrabú- staðnum en mér þótti það nú bara vera við hæfi því fáir menn hafa gert jafnmikið fyrir efnahagslegt sjálf- stæði þjóðarinnar," sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra þegar hann var spurður um tilefni veislu sem hann hélt í Ráðherrabú- staðnum fyrir nokkru. Veislur á vegum hins opinbera eru margar í hveijum mánuði og sagði ráðherra að þessi hefði verið með þeim minni og sú eina sem hann hefði haldið í Ráðherrabústaðnum. Þarna hefðu 24 gestir mætt og kostn- aður hefði aðeins numið á milli 40 og 50 þúsund krónum. Þá er að vísu reiknað á kostnaðarverði en Ólafur sagðist ekki hafa handbært hvernig reikningurinn hefði litið út ef hann hefði verið á almennu útsöluverði. í veisluna mættu aðeins alþýðu- bandalagsmenn og sagði Olafur Ragnar að ástæða þess væri sú að nánustu samstarfsmönnum Lúðvíks hefði verið boðið. DV kannaði hvað veisla af þessu tagi hefði kostað á veitingastað. Sam- kvæmt upplýsingum sem fengust hjá veislustjóra hjá Hótel Holti má gera ráð fyrir því að veisla af þessu tagi kosti um 5000 krónur á hvem gest. Þessi veisla fjármálaráðhera hefði því kostað 120.000 krónur þar. Flármálaráðherra var spurður að þvi hve mikill veislukostnaður ráð- herra og ráðuneyta væri. Ólafur Ragnar sagði að ákaflega erfitt væri að taka saman reikninga yfir það því þessar tölur væru hluti af risnu- kostnaði. -SMJ GyJfi Knstjánsson, DV, Akureyii: Eftir mikið snjóleysi í Hlíðaifjalli viö Akureyri era nú loksins allar brekku orðnar fullar þar af snjó eftir hina miklu ofankomu um síð- ustu helgi. Reksturinn í Hlíðarfjalli hefur gengið mjög erfiðlega í vetur, bæði vegna snjóleysis og eins vegna þess að veður hefur verið mjög óhag- stætt. T.d. hefur enn ekki komið heigi þar sem hægt hefur verið aö hafa opið báða dagana til fuUs. Þá heftir aðsókn á kvöldin verið mjög slök, en reynt hefur verið að hafa opið þijú kvöld í viku, á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Gera á lokatílraun með þessa kvöldopnun í næstu viku, og glæðist aðsókn ekki veru- lega mun verða lokað kl. 19 þá daga eins og aðra daga. 9 DAGAR: PÁSKAFERÐ TEL SVISS 18.-27. mars Glampandi sól, meiri háttar skíðaaðstaða, ægifagurt um- hverfi og fyrsta flokks hótel í Sviss. Axenfels í Sviss. Hótel Axenfels i Sviss, vel staðsett við Lucem-vatn í bænum Morschach á Vier- waldstáttcr-hásléttunni. Aðbúnaðurinn þar er fyrsta flokks: Öll herbergi em með síma, sjónvarpi og útvarpi, minibar, svölum og baði. Auk þess er þar frá- bær aðstaða til heilsuræktar, æfingasalur, sundlaug og gufubað. Veðrið þarna er sérstaklega gott um páskana, oftast hciðskír himinn og hlýtt yfir daginn en frost um nætur og þá snjóar gjarna i fjöllin. Skíðabrekkur eru við allra hæfi, fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna, og fjölmargar skíðalyftur. Verð frá kr. 50.500,- miðað við 2 fullorðna, 2 börn 12 ára og yngri. Innifalið í verði flug, gisting, hálft fæði og íslensk fararstjórn. 23. mars-5. apríl Verðfrákr. 36.550,- miðað við 2 fullorðna og 2 börn undir 11 ára aldri. IKMlfMC FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHUSINU HAULVEIG ARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580 14 DAGAR: PÁSKAFERÐ TIL MALL0RCA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.