Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989.
3
Fréttir
Haraldur Eggertsson skipstjóri. Sifin var að landa átta tonnum, þegar mynd-
in var tekin. DV-mynd Reynir
Flateyri:
Góð veiði þegar gefur
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Góð línuveiði hefur verið hjá Flat-
eyrarbátum að undanfórnu þegar
gefið hefur á sjó en fádæma ógæftir
hafa verið frá áramótum.
Haraldur Eggertsson, skipstjóri á
SIF 225, sagði í samtali við DV að
þeir á Sifinni hefðu aðeins komist í
átta róðra á sjó í febrúar. Þokkaleg
veiöi hefði verið en fiskverð væri
allt of lágt og varla hægt að lifa af
þeim launum, sem sjómennskan gef-
ur af sér að mati Haralds. Eins og
kunnugt er búa Vestfirðingar við lág-
marksverð verðlagsráðs á fiski á
meðan markaðsverð og yfirborganir
tíðkast víðast hvar annars staðar.
Símaskák fyrir norðan
Guömundur Davíðsson, DV, Siglufirði:
Símaskák stendur nú yfir milli
Dalvíkur og Siglufjarðar. Hún hófst
miðvikudaginn 22. febrúar og er leik-
inn einn leikur á dag. Fyrir Dalvík
tefla Hjörleifur Halldórsson og
Rúnar Búason en fyrir Siglufjörð
þeir Baldur Fjölnisson og Bogi Sigur-
bjömsson.
Bæjarstjórarnir á stöðunum,
Kristján Þór Júlíusson, Dalvík, og
ísak Ólafsson, Siglufiröi, drógu um
liti og léku fyrstu leikina. Dalvík
hefur hvítt og lék e4 en svar Siglu-
fjarðar var c5 - Sikileyjarvöm. Á
Siglufirði hangir skákskýringartafla
uppi á knattborðsstofunni en á Dal-
vík í kaupfélagsglugganum. Þar get-
ur fólk fylgst með þróun taflsins.
Siglfirðingar, sem mættir voru til keppni á Dalvík. DV-mynd Geir
Skíðafólk veður-
teppt á Dalvík
Geir Guðsteinsson, DV, Dalvik:
Bikarmót í alpagreinum í 13-14 ára
flokki átti að fara fram á Dalvík um
helgina en á fostudag brast á hið
versta veður svo ekkert varð af móts-
haldi. Fjöldi keppenda var kominn á
staðinn og í fyrstu gistu þeir í Dalvík-
urskóla en á sunnudag í ferðamið-
stöðinni og Kiwanishúsinu. Bömin
vom frá Seyðisfirði, Neskaupstað,
Siglufirði, Reykjavík og Ólafsfirði.
Börnin frá Ólafsfirði voru þrjá tíma
með rútu á leiðinni og tókst að bijót-
ast til Dalvíkur með aðstoð slysa-
varnardeildarinnar.
Ólafur Ragnar Grlmsson, flármálaráðherra:
Hétt síðbúna veislu
Lúðvík til heiðurs
„Þessi veisla var haldin til heiðurs
Lúðvík Jósepssyni og vegna 30 ára
afmælis útfærslu landhelginnar en
hann átti sem kunnugt er mikinn
þátt í þeim málum. Ég hef ætlað að
gera þetta dálítiö lengi en vegna
ýmissa ástæðna hefur þetta dregist.
Það var að vísu óvenjulegt að ég kaus
að halda þessa veislu í ráðherrabú-
staðnum en mér þótti það nú bara
vera við hæfi því fáir menn hafa gert
jafnmikið fyrir efnahagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar," sagði Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
þegar hann var spurður um tilefni
veislu sem hann hélt í Ráðherrabú-
staðnum fyrir nokkru.
Veislur á vegum hins opinbera eru
margar í hveijum mánuði og sagði
ráðherra að þessi hefði verið með
þeim minni og sú eina sem hann
hefði haldið í Ráðherrabústaðnum.
Þarna hefðu 24 gestir mætt og kostn-
aður hefði aðeins numið á milli 40
og 50 þúsund krónum. Þá er að vísu
reiknað á kostnaðarverði en Ólafur
sagðist ekki hafa handbært hvernig
reikningurinn hefði litið út ef hann
hefði verið á almennu útsöluverði.
í veisluna mættu aðeins alþýðu-
bandalagsmenn og sagði Olafur
Ragnar að ástæða þess væri sú að
nánustu samstarfsmönnum Lúðvíks
hefði verið boðið.
DV kannaði hvað veisla af þessu
tagi hefði kostað á veitingastað. Sam-
kvæmt upplýsingum sem fengust hjá
veislustjóra hjá Hótel Holti má gera
ráð fyrir því að veisla af þessu tagi
kosti um 5000 krónur á hvem gest.
Þessi veisla fjármálaráðhera hefði
því kostað 120.000 krónur þar.
Flármálaráðherra var spurður að
þvi hve mikill veislukostnaður ráð-
herra og ráðuneyta væri. Ólafur
Ragnar sagði að ákaflega erfitt væri
að taka saman reikninga yfir það því
þessar tölur væru hluti af risnu-
kostnaði.
-SMJ
GyJfi Knstjánsson, DV, Akureyii:
Eftir mikið snjóleysi í Hlíðaifjalli
viö Akureyri era nú loksins allar
brekku orðnar fullar þar af snjó
eftir hina miklu ofankomu um síð-
ustu helgi.
Reksturinn í Hlíðarfjalli hefur
gengið mjög erfiðlega í vetur, bæði
vegna snjóleysis og eins vegna þess
að veður hefur verið mjög óhag-
stætt. T.d. hefur enn ekki komið
heigi þar sem hægt hefur verið aö
hafa opið báða dagana til fuUs.
Þá heftir aðsókn á kvöldin verið
mjög slök, en reynt hefur verið að
hafa opið þijú kvöld í viku, á
þriðjudögum, miðvikudögum og
fimmtudögum. Gera á lokatílraun
með þessa kvöldopnun í næstu
viku, og glæðist aðsókn ekki veru-
lega mun verða lokað kl. 19 þá daga
eins og aðra daga.
9 DAGAR:
PÁSKAFERÐ
TEL SVISS
18.-27. mars
Glampandi sól, meiri háttar
skíðaaðstaða, ægifagurt um-
hverfi og fyrsta flokks hótel
í Sviss.
Axenfels í Sviss.
Hótel Axenfels i Sviss, vel staðsett við Lucem-vatn í bænum Morschach á Vier-
waldstáttcr-hásléttunni. Aðbúnaðurinn þar er fyrsta flokks: Öll herbergi em
með síma, sjónvarpi og útvarpi, minibar, svölum og baði. Auk þess er þar frá-
bær aðstaða til heilsuræktar, æfingasalur, sundlaug og gufubað.
Veðrið þarna er sérstaklega gott um páskana, oftast hciðskír himinn og hlýtt
yfir daginn en frost um nætur og þá snjóar gjarna i fjöllin. Skíðabrekkur eru
við allra hæfi, fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna, og fjölmargar skíðalyftur.
Verð frá kr. 50.500,- miðað við 2 fullorðna, 2 börn 12
ára og yngri. Innifalið í verði flug, gisting, hálft fæði
og íslensk fararstjórn.
23. mars-5. apríl
Verðfrákr. 36.550,-
miðað við 2 fullorðna og 2
börn undir 11 ára aldri.
IKMlfMC
FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHUSINU
HAULVEIG ARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580
14 DAGAR:
PÁSKAFERÐ
TIL
MALL0RCA