Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Side 13
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989.
13
Lesendur
Erlendis koma sumarleyfisbæklingar út strax upp úr áramótum - segir hér m.a.
Sumarleyfisferðir:
Óvenjumikil samkeppni
H.J. skrifar:
Þaö er óvenjulegt að ferðaskrifstof-
ur skuli vera komnar í gang með
auglýsingar á fullu um miðjan febrú-
ar, eins og nú gerðist. Svona snemma
hafa þær ekki birst áður. Þetta er í
átt við þaö sem gerist erlendis, þar
koma sumarleyfisbæklingar fram
strax upp úr áramótum. Þetta er því
í sjálfu sér til bóta.
En það er ekki allt sem sýnist í
þessum efnum. Mín skoðun er sú að
nú sé samkeppnin orðin hörð milli
ferðaskrifstofanna um að ná við-
skiptavinum og svo geti farið að und-
irboð verði aUveruleg þegar kemur
fram á vorið, að ekki sé talað um
mitt sumar.
Það hlýtur eitthvað að verða undan
að láta í þessum hamagangi og sam-
keppni. Ferðalangar héðan taka nú
sífellt sjálfstæðari ákvarðanir varð-
andi sumarleyfi sín og fara mikið á
eigin vegum. Það er flug og bfil eða
bara með bíl og fjölskyldu með Nor-
rænu eða eitthvað annað sem ekki
krefst viðskipta við ferðaskrifstofu
sérstaklega.
Ég er hræddur um að ferðaskrif-
stofur verði að bjóða eitthvað lægra
verð en það sem nú er í sviðsljósinu
ef fólk á almennt að geta keypt sér
ferðir með þeim. Og sennfiega er
aðalástæðan fyrir því hve skrifstof-
urnar eru snemma á ferðinni sú að
þær eru að þreifa fyrir sér, ef svo
má segja, athuga hvort almennar
undirtektir eru fyrir hendi og hve
sterkar. Komi síðan aftur fram með
nýtt verð undir vorið þegar ljóst er
að fólk gleypir ekki við ferðum á því
verði sem auglýst er nú.
Stjórnmál og
Páll Ólafsson skrifá'r:
Ég var að enda við að lesa DV og
m.a. með afbrigðum vel skrifaða
Kjafiaragrein eftir Jón Magnússon
lögmann. Nú þekki ég ekki þennan
greinarhöfund en ég er meira en
sammála honum um þau atriöi sem
hann tekur fyrir í greininni. - Það
er t.d. yfirleitt álit fólks aö ekkert
hafi rýrt jafiimitóð almennt íjár-
málasiðferði í landinu og fram-
koma bankastofnana og þó eihkum
stjómmálanianna hvað varöar
peninga.
Einnig held ég að flestir geti verið
sammála greinarhöfúndi um að
fáir þjóni betur hinum svokölluöu
„pappírsbarónum“ hér á landi en
stjómmálamennirnir því sjálfir
séu þeir stærstu og mestu pappírs-
barónamir í þjóðfélaginu.
En hvað er að ske í þessu þjóð-
félagi núna, þegar ný ríkisstjórn
hefur tekiö viö taumunum? Ætlaöi
hún ektó aö láta þaö verða sitt
fyrsta verk að koma hjólum at-
vinnulífsins af stað? Hefúr hún gert
það? Aldefiis ektó. - Sem kannstó
er ekki hægt að ætlast til eins og
hún leggur upp spilin. Atvinnu-
leysi fer ört vaxandi, verðbólgan
er á hraðri leið upp á við, eyðslan
úr ríkissjóöi hefur aldrei verið
meiri og erlend lán hafa ektó verið
stöðvuö og ráðherrar og embætt-
ismenn em á flakki allt til Japans
í austri og Kyrrahafsstrandar Am-
eríku í vestri.
Hitt er svo annað mál að það var
talað um að atvinnuleysi væri ein
skynsamlegasta ráöstöfunin sem
framkvæma mætti til að stööva
þenslu 1 sérhveiju þjóðfélagi. Ef
það er ætlun rítósstjórnarinnar að
nota þá aöferð til að fá fólk hér
niður á jörðina þá er vel skiljanlegt
að hveiju stefnir. - En þá eiga ráða-
menn líka að viðurkenna stefnu
sína svo aö fólk þurfi þá ekki að
velkjast í vafa um hvað ér á döfinni
stefna
og geti leitað sér að vinnu og at-
h\ arfi annars staðar.
Auðvitað ber þetta þjóðfélag ektó
það kerfi sem hér hefur verið sett
upp. Velferðarkerfi okkar er á viö
það sem best gerist á Noröurlönd-
um og í mörgum tilfellum víö-
tækara. Samt bera ekki nema um
helmingur landsmanna byröarnar
til sameiginlegra þarfa með skatt-
greiðslum. Þetta kerfi er spmngiö
og það verða stjórnmálamenn að
viöurkenna.
Það er þvi þörf stefnubreytingar
hjá þessu ráöamannaliði. Það er
hægt að byija á því að segja þjóö-
inni satt og vera ektó með látalæti
og uppgerð. Það er ekkert fram-
undan annaö en samdráttur og að-
hald og þaö gildir því aö taka hlut-
unum með réttu hugarfari og heið-
arleika - ekki sýndarmennsku og
umslætti.
Gönguskíðap
m SPORTBUÐIN
BÁrmúla 40, Reykjavík, sími 83555
Eiðistorgi 11, 2. hæð, Seltj., sími 611055
Nauðungaruppboð
á lausafjármunum
Eftir kröfu skattheimtu rikissjóðs í Kópavogi, bæjarsjóðs Kópa-
vogs, skiptaréttar Kópavogs, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, ýmissa
lögmanna og stofnana fer fram opinbert uppboð á bifreiðum og
ýmsum lausafjármunum að Hamraborg 3, norðan við hús, laugar-
daginn 4. mars I989 og hefst það kl. 13:30.
I. Seldar verða væntanlega eftirtaldar bifreiðir:
Y-809, Cadillac de Ville árg. I983
Y-913, Dodge Aspen árg. I977
G-1642, Chevrolet Monza árg. I987
G-23926, Peugeot 205 árg. I988
Y-16506, Colt árg. I987
Y-3596, Nissan árg. I985
Y-18332, Opel Ascona árg, I984
Y-11954, Datsun Pickup
Y-17071, Lada station 1500 árg. I988
R-56911, Mazda 626 árg. 1981
Y-5770, Toyota Landcrusier árg. I982
Þ-2309, Mercedes Benz árg. I983
Þ-2559, Man árg. 1981
Y-17667, Link Belt Speeder bílkrani árg. I974.
II. Jafnframt verða eftirgreindar bifreiðar seldar á uppboðinu:
Mercedes Benz 309 dísel árg. I982
Alfa Romeo station 4x4 árg. I987
Daihatsu skutla 4x4 árg. I987
III. Einnig verða seldir ýmsir aðrir lausafjármunir þ.á m. peninga-
kassar af gerðinni Omron, rafmagnsritvélar, verslunarvarningur
úr versluninni Búðarkoti, tölva af gerðinni Arc AT, húsgögn,
hljómflutningstæki, videótæki og litasjónvörp, Laser Writer
tölvuprentari, Fini loftpressa og Aakerman beltagrafa, sem stað-
sett er við Marbakka.
IV. Samkvæmt beiðni Jóns Egilssonar hdl. verða og seldir ýmsir
munir úr Sólbaðsstofu Ástu B. Vilhjálmsdóttur þ.á m. 13 sól-
bekkir, 24ra pera ásamt andlitsljósum af Benco gerð, General
Electric þvottavél og þurrkari, sófasett og Aiwa hljómflutnings-
tæki.
Greiðsla við hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi.
FERMINGARGJAFA-
HANDBÓK DV
Auglýsendur!
Hin margfræga fermingargj afahandbók DV kemur út
miövikudaginn 15. mars.
Auglýsingum þarf að skila inn í síðasta lagi fyrir 6. mars.
Hringið og fáið nánari upplýsingar
Þverholti 11 Sími 27022