Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1989, Side 25
FÖSTUDAGUR 3. MARS 1989. 33 Heimilisaðstæður á tímamótum LífsstOl Fermingarveisla eða framtíðaráform Senn gengur í garö tími ferminga og alls þess tilstands sem þeim fylgir. Mömmur og pabbar eru farin aö huga að því hvernig híbýli þeirra muni líta út þegar ættingjar og vinir knýja dyra og líta heimilið augum. 30, 40, 50 og jafnvel upp í 100 manns koma og óska fermigarbarninu, for- eldrum og systkinum til hamingju meö áfangann. Allt kostar þetta peninga - ógrynni fiár að flestra mati. Fyrst og fremst þarf að gefa fermingarbarninu gjöf við hæfi. Tíðarandinn í dag er orðinn þannig að gerðar eru miklar kröfur. Stereogræjur fyrir hátt í hundrað þúsund krónur, skíðaferð til útlanda, geislaspilari, tölva og jafnvel hestur heyrist nefnt þegar verið er að tala um að gera ungviðinu á 14. aldursári til hæfis. Margra daga vinna að halda veislu Svo kemur til kostnaður við að gefa gestunum eitthvað gott í munn í veislunni og skipta fjárhæðir vegna þess tugum þúsunda. Auk þess vill fólk að heimilið líti sem best út og er því „tekið í gegn“ með ýmsum hætti. Sett ný gólfefni, málað, skipt um húsgögn, gardínur og fieira í þeim dúr. Ef það vantar peninga er bara að taka lán. Þegar haldin er fermingarveisla fer mikil vinna í allar framkvæmdir. Kunnugir segja að margra daga vinna fari í slíkt hjá heimavinnandi húsmóður. Það verður jafnvel að fá lánaða stóla, borðbúnað, þrífa heim- ilið, baka og útbúa mat. Að veislu lokinni þarf að skila öllu, ganga frá og þrífa aftur. Þegar hér er komið skyldi maður ætla að fólk staðnæmd- ist og hugsaði sinn gang. Er þetta hægt með góðu móti - hefur fólk efni á þessu á þeim tíma þegar landsmenn hrósa happi að halda vinnu sinni? Ofangreind atriði eru fjarri lagi í huga fólks sem einfaldlega telur sig ekki hafa efni á að halda upp á ferm- ingu með þessum hætti. Krakkamir ráða því jú sjálf hvort þau fermast eða ekki. Síðan er það fjölskyldunnar að ákvarða hvernig tilhögun verður. Gólfefni: Heimilið undirbúið fyrir fermingu Margir nota tækifærið til að standsetja íbúðir sínar fyrir ferm- ingar. Þá er algengt að fólk setji ný gólfefni t.d. parket eða flísar, það er málað og þriíið og þar fram eftir götunum. Nokkur atriði ætti að hafa í huga þegar ráðist er í slík- ar framkvæmdir. Parket- og flísalagning krefst nokkuð mikillar kunnáttu. Því er nauðsynlegt að hafa kunnuga með í ráðum þegar menn ætla að leggja sjálfir. Verslanir, sem hafa gólfefni á boðstólum, geta bent á fagmenn sem taka verkin að sér. Haft er eft- irlit með þeim og reynt að tryggja að þjónusta þeirra sé áreiðanleg. Hins vegar þarf það ekki að þýða að verslanir beri ábyrgð á vinn- unni. Það er eins og gefur að skilja umtalsvert dýrara að fá fágmann og er þá betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Þannig er best að láta fagmenn ráðleggja sér um val á efni. Einnig er sjálfsagt að láta þessa aöila gera grein fyrir vænt- anlegum kostnaði. Oft eru gerð til- boð og mun það vera auðveldast þegar um einfalda fleti er að ræða (þegar ekki þarf aö skera mikið og sniða). Varhugaverðar teg- undir fyrir veislur Parket getur verið varhugavert að því leyti að sumar tegundir t.d. úr furu og birki geta látið verulega á sjá eftir eina veislu. Þannig geta myndast skófór og það hreinlega eyðilagt parketið. Þegar gólfefni er valið er sjálfsagt að styðjast við þá reglu að hafa sterk efni í eldhúsi og forstofu. Þeg- ar flísar eru lagðar í eldhús er mælt með að hafa svokallaðar 4ra punkta (brotþolsstyrkleiki) flísar á gólfi þar því þær eru sterkastar og kvarnast ekki upp úr þeim. Á bað og gang má notast viö 2-3ja punkta flísar. Verð fyrir góðar flísar nú er á bilinu 1.600- 2.600 kr. fermetrinn. Líka veröur að reikna með hmi og má þá gera ráð fyrir 250-350 króna kostnaði í það á fermetra. Fúgu- sement, sem dugar fyrir 20 fer- metra, kostar svo um 1.000 krónur. Algengt verð fyrir vinnu við lagn- ingu er á bilinu tvö til tvö þúsund og fimm hundruð krónur á fer- metra. Eins og gefur að skilja vilja sölu- menn ávallt tíunda gæði þeirra vara sem þeir selja. Þetta geta ver- ið prýðis ábendingar en rétt er að hafa í huga hvað heildarpakkinn kemur til með að kosta þegar upp er staðið. Má í því sambandi nefna fljótandi og niðurlímt parket og þar felst mikiU munur í verði. Það tekur lengri tíma að leggja límt parket. Það þarf að slípa það og lakka og þetta getur orðiö til þess að mikil röskun verður á heimilinu um all- langan tíma - þó þetta virðist ein- falt við fyrstu sýn. Heildarkostnað- ur við niðurlímt parket er miklu hærri en vegna fljótandi parkets. -ÓTT Verður haldin fermingar- veisla með öllu tilheyrandi eða verður f jármunum var- ið í að gera híbýli unga fólksins áhugaverð með til- liti til næstu ára? Fæstir hafa efni á öllu saman með góðu móti Síðasti áfanginn áður en flutt er að heiman Burtséð frá sjálfri fermingunni eru krakkar á þessum aldri að ná vissum áfanga í lífi sínu. Þau eru að komast til þroska og eru ekki börn lengur, a.m.k. að eigin mati. Þess vegna telja hugulsamir foreldrar ráðlegt að undirbúa táningana sem best undir síðasta áfangann sem þau búa heima, þ.e.a.s. áður en þau flytja í burtu. Þetta er gert með því að gera hi- býli þeirra sem hagstæðust og hjálpa til með áhugamál - til að þau hafi í eitthvað áhugavert að sækja í heima- við. Vissuiega skyldi ætla að það sé fyrst og fremst andrúmsloftið á heimilinu sem á að vera áhugavert fyrir táningana svo þeir virkilega'" vilji vera heima - að þeir þurfi ekki að sækja annað tii að þroskast eða ræða sín vandamál. Með því að gera ráö fyrir því að krakkarnir fái svigrúm og möguleika til að láta sér líða vel á heimilinu er margt unnið. Þannig myndast meira traust á milli foreldra og barna - samvinna um tilhögun heimkomu- tíma og lífsstíl unga fólksins ætti aö vera án tortryggni og árekstra. Það ætti því ekki að þurfa að horfa með tárin í augunum í þá peninga sem fara í aö gera upp vistarverur krakka á þessum aldri. Fólki er í sjálfsvald sett hvort það eyðir peningum sínum í eina stórveislu eða hugar meira að framtíð barna sinna inni á heimilinu. . _ -ÓTT Verð á innanhussmálningu hækkaði um áramótin og mun væntanlega hald- ast óbreytt á næstunni. Hvað kostar inn- anhússmálning? - ekki væntanlegar hækkanir á næstunni Um áramótin hækkaði málning um 14% vegna vörugjalds sem lagt var á byggingavörur. Þó verðstöðvun sé lokið er ekki útlit fyrir að málning muni hækka á næstunni, þó vilji kaupmanna fyrir því sé fyrir hendi - þeir telja álagningu á málningar- vörum vera of lága. Verð fyrir venjulega vatnsmáln- ingu með 5% gljástigi er nú sam- kvæmt verðskrám 446 kr. lítrinn og 418 kr. séu keyptar tíu lítra dósir. Málning með 10% gljástigi og inn- byggðum herði kostar 486 kr. og verð lítrans í tíu lítra dósum er 455 kr. Málning með 25% gljástigi kostar 665 kr. lítrinn. Verð á málningu eftir teg- undum, Kópal, Harpa eða Sjöfn, er mjög svipað. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.