Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989. 15 Fjölmiðla- sjóður er Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. - „Nú vill hann hærri laun fyrir sitt fólk, til að það geti m.a. borgað hækkun afnotagjaldanna," segir greinarhöfundur m.a. Útvarpslaganefnd leggur til að stofnaður verði sérstakur fjöl- miðlasjóður. í hann á að leggja 12% af auglýsingatekjum allra fjölmiðla - ljósvakamiðla jafnt sem prent- miðla. þessi sjóðshugmynd er út í hött. Fjölmiðlar eru ekki á framfæri eða vegum hins opinbera (nema ríkis- útvarpið). Óþarft er að stofna opin- beran sjóð um rekstur sem kemur ríkinu ekki við. Þar að auki stenst slíkur sjóður ekki gagnvart stjórnarskránni. Hún tryggir prentfrelsi og leggur bann við lögum sem tálma það á einhvern hátt. Eintóm sjóðsskrípi Undanfari fjölmiðlasjóðs er menningarsjóður útvarpsstöðva. Menningarsjóðurinn var tóm vit- leysa frá upphafi. Þriggja manna stjóm hans gerði ekkert annað en úthluta útvarpsstöðvum nokkurn veginn því sama og þær greiddu í sjóðinn. Þar var fært úr einum vasa í annan. Fjölmiðlasjóður er nýtt sjóðs- skrípi. Þar á þó að ganga enn lengra en með hinu fyrra sjóðsskrípi. Þar á að færa fé úr vasa einkafyrir- tækja til að standa undir ýmiss konar framtaki sem verða má til að efla tungu og menningu. Sumt af framlagi sínu eiga fjöl- KjáUarinn Ólafur Hauksson fyrrv. útvarpsstjóri Stjörnunnar miðlar að fá til baka, annað á að leggja í útréttar hendur menning- arfrömuða, málspekinga og at- vinnustyrkþega. rugl Tungan og menningin Sagt er að fjölmiðlasjóðurinn eigi að styrkja viðleitni til að efla tungu og menningu. Þvílíkt rugl. Það að hér skuli vera til fjölmiðl- ar er einn af hornsteinum tung- unnar. Fréttaflutningur og kynn- ing í fjölmiðlum styður menningar- viðleitni. Fjölmiölar gera meira fyrir tungu og menningu þessarar þjóðar en önnur fyrirtæki. Þeir sem hafa áhyggjur af niður- lægingu tungunnar ættu ekki að láta sér detta í hug að iþyngja þeim fyrirtækjum sem gera hvað mest fyrir hana. Til er fávíst fólk sem endurtekur þá tuggu að hnignun íslenskunnar sé útvarpsstöðvum í einkaeign að kenna. Þá mega þessar útvarps- stöðvar heldur betur teljast áhrifa- ríkar. Sú fyrsta tók fyrst til starfa fyrir tveimur og hálfu ári. Hvaða áhrif urðu þess þá vald- andi að hinir ungu starfsmenn út- varpsstöðvanna kunna ekki betri íslensku en raun ber vitni? Röng skattlagning Hugmyndin um flölmiðlasjóð er ekkert annað en dulbúin leið til að stýra efni fjölmiðla með opinberu valdboði. Slíkt brýtur í bága við stjórnarskrána. Það er andstætt grundvallar- hugmyndum skattlagningar að velja ákveðna tegund atvinnu- rekstrar til að standa undir af- mörkuðum opinberum verkefnum. Menningarsjóður útvarpsstöðva er gott dæmi. Þar eru örfá fyrir- tæki í landinu skattlögð um 30 til 40 milljónir á ári til að standa und- ir hluta af rekstri Sinfóníunnar. Þessi fyrirtæki hafa ekkert um Sin- fóníuna að segja. Uppruni hugmyndanna Hugmyndin um flölmiðlasjóð verður til í nefnd sem upphaflega bar viðurnefnið „Hjálpum þeim“ og gerði tillögur um lausn á fiár- hagsvanda ríkisútvarpsins. For- maður nefndarinnar, Ögmundur Jónasson, sem jafnframt er for- maður samtaka launþega hjá því opinbera, fann þá lausn helsta fyrir ríkisútvarpið að hækka álögur á launþegana með því að hækka af- notagjöld ríkisútvarpsins um 28%. Nú vill hann hærri laun fyrir sitt fólk, til að það geti m.a. borgað hækkun afnotagjaldanna. Svo fékk nefndin það hlutverk að endurskoða útvarpslögin. Þó var önnur nefnd búin aö því. En í tillög- ur fyrri nefndarinnar vantaði for- sjá hins opinbera. „Hjálpum þeim“ nefndin víkkaði starfssvið sitt út, og tók alla flölmiðla í fangið. Það er faðmlag sem enginn kærir sig um. Það eru forsjárhyggjumenn sem nú kalla á öölmiðlasjóð. Frjálsir íjölmiðlar eru til vandræða fyrir slíka menn og þeir vilja gjarna koma á þá beisli. Ríkið á að láta fjölmiðla í friði. Það hefur engan rétt til að ráðskast með fjármuni þeirra eöa skikka þá til að sækja um notkun á eigin fé. Ólafur Hauksson „Þaö eru forsjárhyggjumenn sem nú kalla á fjölmiðlasjóð. Frjálsir íjölmiðlar eru til vandræða fyrir slíka menn og þeir vilja gjarna koma á þá beisli.“ Hvalamál og hryðjuverk Grænfriðungar handteknir við komu til Islands. Margt hefur verið rætt og ritað um hvalamálið svokallaða síðan vísindaveiðar íslendinga hófust fyrir þremur árum. Erlendir öfgahópar hafa haldið uppi stöðugum mótmælaaðgerðum gegn þessum vísindarannsóknum sem stundaðar eru til að ná sem fullkomnustum upplýsingum um hvalastofninn og vistkerfi hafsins hér á norðurslóðum og er liður í allsherjar úttekt á ástandi hvala- stofnsins sem vísindanefnd Al- þjóðahvalveiðiráðsins er að vinna að og mun áformað að ljúka við á þessu ári. Þessar rannsóknir segja vísinda- mennirnir óframkvæmanlegar án þess að deyða dýrin og ef veiðarnar verði stöðvaðar nú séu rannsókn- irnar alls ófuUnægjandi. Hins veg- ar halda þessir þekkingarsnauðu öfgahópar því fram að þeir viti bet- ur og hægt sé að framkvæma rann- sóknirnar án þess að granda dýr- unum. Skemmdarverkamenn Þessir ófyrirleitnu hópar, sem kenna sig við umhverfísvernd, hafa víða unnið óbætanlegt tjón - lagt í rúst atvinnuvegi heilla byggðar- laga í Grænlandi, Alaska og víðar. Síðan þeir luku þessu ætlunar- verki hafa þeir ráðist gegn grind- hvaladrápi í Færeyjum og vísinda- veiðum íslendinga. Færeyingar afgreiddu þessa hryðjuverkamenn á mjög svo skemmtilegan og eftirminnilegan hátt. Hröktu þá út úr færeyskri lögsögu, svo þeir máttu sneypast heim við lítinn orðstír. - Færeying- ar munu líka hafa staðið þétt sam- an. Ekki heyrðist talað um að með- al þeirra fyndust svikarar sem æptu ókvæðisorð að löndum sínum fyrir að veita viðnám. Hver vísaði veginn? íslendingar fengu líka heimsókn hryðjuverkamanna sem hins vegar voru afgreiddir á allt annan hátt. KjaUarinn Aðalheiður Jónsdóttir verslunarmaður Hér tókst þeim að framkvæma alls konar skemmdarverk - sökkva skipum og vinna að sama skapi gífurlegt tjón í landi. Hvernig útlendingum, ókunnug- um aðstæðum hér, gat tekist að koma öllu þessu til leiðar, ferðast að næturlagi, leita uppi hvalstöð- ina og rústa þar öllu er lítt skiljan- legt. En þeir eru reyndar ekki vina- lausir á íslandi. Og víst er um það að hvalavinir eða græningjar hér hafa lýst yflr fullum stuðningi við þessa skemmdarverkamenn. Það verð ég að segja að heldur snautleg fannst mér frammistaða íslenskra yfirvalda að láta þessa óbótamenn fara úr landi sem sigur- vegara. Áróðursstríð Greenpeace og græningja Þessir ófyrirleitnu hópar, sem telja sig eiga að stjórna því hvernig þjóðir nýta auðhndir sínar, hafa náð svo sterkum tökum víða um heim að ótrúlegt má kalla. Margar milljónir styðja Greenpeace sam- tökin, segja hvalavinir hér, og sýni- lega skortir þá hvorki fjármuni til blekkingaáróðurs né hryðjuverka. Enda fjáröflunarleiðir margvísleg- ar, svo sem að láta auðugt fólk arf- leiða eða ættleiða hvali. Þetta er vesturheimska og miðevrópska hámenningin, sem græningjar eða hvalavinir hér lýsa samstöðu með og ganga um froðufellandi af lotn- ingu. Þrátt fyrir öll þeirra skemmd- arverk og allar tilraunir þeirra til að koma íslensku efnahagshfi í rúst. Það er ekkert undarlegt þó að Greenpeace hafi tekist að þjarma að íslendingum. Er ekki mest af því sem heyrst hefur héðan „óp“ hvalavina sem halda uppi áróðri með Greenpeace og segja að vís- indaveiðarnar séu aðeins blekk- ing? Meira að segja hafa sumir Al- þingismenn gengið hart fram í þeim siðlausa áróðri. Merkilegt framtak En nú hefir reyndar merkilegur atburður gerst sem mér virðist að sé ómetanlegt framlag í baráttunni gegn skemmdarverkamönnunum. Kvikmyndin Lífsbjörg í norður- höfum hlýtur að vekja þá til um- hugsunar sem á hana horfa um það sem er að gerast í þessum málum þó að þeir hafi ef til vill ekkert hugleitt það áður. Ég vil hér með taka undir það þakklæti sem Magnús Guðmunds- son hefur fengið fyrir sitt mikla framtak og ánægjulegt er hve já- kvæða dóma myndin hefur fengið hér. Þessi mynd kemur mér fyrir sjónir sem merkileg heimildar- kvikmynd. Og væri þess virði fyrir ríkisvaldið að láta eitthvað af hendi rakna. Ég er viss um að því mundu margir íslendingar fagna. Og ein- hverja styrki og gjafir hefur ríkið veitt þar sem ólíkara var - og er ekki langt að minnast. Þáttur aldarinnar Viðræðuþátturinn að lokinni sýningu myndarinnar var fyrir neðan allar hellur og verður trú- lega lengi í minnum hafður. Hvers vegna þuldi sjónvarpsmaðurinn upp allar svívirðingarnar sem Gre- enpeace hafði soðið saman um höf- und myndarinnar? Er slíkt afsak- anlegt? Var þetta eigin ákvörðun Helga H. Jónssonar eða æðstu máttarvalda þar á bæ? Var þörf á slíku þar sem þeim stóð til boða að mæta í þáttinn en þorðu það ekki? Og átti Greenpeace ekki þrjá full- trúa eða stuðningsmenn í þættin- um? Þar á meðal forseta Sameinaðs Alþingis? Stjórnun þáttarins var svo furðu- leg að engu líktist sem áður hefur sést. Greinilega var stjórnandinn mjög hlutdrægur og haldinn þeirri meinloku -að hann þyrfti sjálfur alltaf að hafa orðið ef forsvarsmenn Greenpeace þögnuðu. Þau Guðrún Helgadóttir og Þorleifur Einarsson, maðurinn með trektina, komu strax fram eins og öskureið. Hlust- uðu ekki á rök en reyndu að kæfa það allt niður með ómerkilegu bulli. Athyghsverðast var þó kannski aö forseti Sameinaðs Alþingis skyldi kalla ríkisstjórn íslands skemmdarverkamenn. Er svona framkoma til að auka virðingu Al- þingis? Eftir að hafa horft á þennan þátt skil ég alveg hvers vegna þess- ar manneskjur styðja Greenpeace. En eitt er athyghsvert við allt þetta, að einmitt í viðræðuþættin- um tókst þessum unga manni að vinna annað þrekvirki. Svo frábær var hegðun hans og háttvísi, hvað sem yfir hann dundi frá andstæð- ingunum. Upp frá því öhu stóð hann sem glæstur sigurvegari. Þrátt fyrir það hve sjaldan hann fékk að hafa orðið. Vonandi verður Helgi H. Jónsson ekki framar látinn stjórna við- ræðuþáttum í sjónvarpi. Að minnsta kosti ekki nema hann valdi verkefninu. Aðalheiður Jónsdóttir „Athyglisverðast var þó kannski að forseti sameinaðs Alþingis skyldi kalla ríkisstjórn íslands skemmdarverka- menn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.