Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989. Andlát Valdemar S. P. Ágústsson skipstjóri, Vesturgötu 105, Akranesi, lést í sjúkrahúsi Akraness miövikudaginn Fréttir i>v Söngvakeppni Sjónvarpsins: Eigendaskipti á snyrtistofu Nínu Nýverið urðu eigendaskipti á Snyrtistofu Nínu, Hraunbergi 4 í Reykjavík. Ágústa Svansdóttir keypti helmingshlut í stof- unni af Aðalheiöi Guðj ónsdóttm- og rekur nú stofuna með stofnanda hennar, Nínu Breiðfjörð. Þær eru báðar snyrtifræðing- ar. Um svipað leyti og eigendabreytingin varð fagnaði stofan 3 ára afmæli. A Snyrtistofu Nínu er boðið upp á fjöl- breytta snyrtiþjónustu, s.s. nýja og fljót- legri vaxmeðferð en áður, litun og plokk- un, andlitsfórðun, andlitsnudd, húð- hreinsun og hand- og fótsnyrtingu. Þar eru lika seldar úrvalssnyrtivörur frá Frakklandi og víðar, m.a. hinar viður- kenndu snyrtivörur frá Monteil. Merming Nýsköpun með aðskotahlutum Sólveig Aöalsteinsdóttir ásamt einum skúlptúrhluta sinna. DV-mynd GVA Það fer lítið fyrir skúlptúrum Sólveigar Aðalsteinsdóttur sem sýnir í Nýlistasafninu fram á sunnudagskvöld (2. apríl) en til þess er leikurinn sennilega gerður. Markmið hennar er augsýnilega ekki að kanna formrænar eða efn- islegar eigindir þeirra hluta/forma sem hún hefur undir höndum held- ur að athafna sig á landamærunum milli „venjulegra" þríviðra fyrir- bæra og skúlptúra. Til þess notar Sólveig bæði að- skotahluti, segjum gamlan fót £if kommóöu, blýkapal og spýtukubba, og aðskiljanlega lag- aða hluti sem hún hefur sjálf steypt úr gifsi og frauðplasti eða mótað í leir. Það sem framar öðru virðist vaka fyrir henni er að skoða hvenær hin ýmsu fyrirbæri fara yfir mörkin, hætta að vera „hlutir" og breytast í skúlptúra og þar með „menning- arfyrirbæri“. Stundum nægir að setja hlut á stall, eins og Duchamp gerði forð- um daga við flöskugrind sína, til þess að viö forum að líta þá öðrum augum, nýsast fyrir um sérstaka formræna og heimspekilega merk- ingu þeirra, ég tala nú ekki um ef stallurinn er á réttum stað, þaö er innan vébanda viðurkennds sýn- ingarstaðar. Stofnanakenningin Einn ágætur bandarískur fagur- fræðingur, Artúr Danto, hefur meira að segja sett saman „stofn- anakenningu" þar sem því er hald- ið fram að fyrirbærið „list“ sé ein- faldlega það sem liststofnanir (söfn, gallerí, tímarit o.fl.) hampa hverju sinni. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson Önnur leið er að brjóta upp heil- legt yfirbragð hlutar eða fyrirbæris með ófyrirsjáanlegum hætti. Þannig þekur Sólveig lágmynd úr timbri og svampi með hálf- glannalegum koparlitum eða þá að hún tálgar utan af gifssteypum sín- um eða ristir í þær, að því er virðist á mjög tilviljanakenndan hátt. En þaö er einmitt vegna þess hve meðferðin er handahófskennd og órökræn sem við tökum þessi verk til endurmats og leitum að sérstök- um myndrænum rökum fyrir út- litsbreytingum á þeim, búum þá til slík rök ef við finnum þau ekki. Notalegir Þannig erum við hálft í hvoru plötuð til að taka þessa skúlptúr- hluti alvarlegar en þeir verðskulda, en við þaö að ýta við okkur með þessum hætti hafa þeir samt sem áður öðlast merkingu sem hæglega mætti heimfæra til fagurfræði. Alveg burtséð frá því hlutverki sem þeir leika í rannsóknaráætlun Sólveigar, eru þessir hlutir hennar ósköp notalegir, jafnvel „heimil- islegir“ ef þaö lýsingarorö er þá ekki orðið að skammaryrði. Athyglisvert er að við virðumst á góðri leið með að eignast skúlptúr- hefö sem grundvallast ekki síst á nýsköpun með aðskotahlutum, sjá einnig skúlptúra Kristins G. Harð- arsonar. -ai. eftir að fá það sent geta snúiö sér til Iðn- tæknistofnunnar íslands í síma 687000. Fyrsta fréttablað íslenska bókaklúbbsins Út er komið fyrsta fréttablað íslenska bókaklúbbsins, en eins og fram hefur komið í fjölmiðlum voru Bókaklúbbur- inn Veröld og Bókaklúbbur Amar og Örlygs sameinaðir 27. janúar sl. undir nafhinu íslenski bókaklúbburinn. Bóka- klúbbsblaðið, eins og það heitir nú eftir sameininguna, mun koma út mánaðar- lega. Eins og fyrsta tölublaðið ber með sér geta félagsmenn eignast úrvals bæk- ur af öllum toga fyrir mun lægra verð en á almennum markaði. En aðalmark- mið sameiningarinnar var einmitt að gera almenningi kleift að eignast sem fjölbreyttast úrval bóka á sem lægstu verði. Þar sem sex bókaforlög, sem gefa út verulegan hluta þeirra bóka sem koma á markað árlega, standa á bak við ís- lenska bókaklúbbinn er hann betur í stakk búinn en aðrir bókaklúbbar til þess að ná ofangreindu markmiði. „Drög að kvöldi“ nýtt Ijóðakver Út er komið ljóðakverið „Drög að kvöldi" eftir Guðbrand Siglaugsson. Kverið hefur 21 kvæði að geyma og er fyrsti hluti fjór- leiksins „ljóðahandrit númer 5 og 6“. Höfundur hefur áður sent frá sér bæk- umar: „Eitraður orðum“ (1977), „Tæki- færisvísur" (1979), „Kvæði" (1982) og „Þvert á rennibrautina" (1985). Þess skal geta að „Drög að kvöldi" kemur út í mjög takmörkuðu upplagi. 29. mars. Ragnheiður M. Jónsdóttir, Skúla- götu 60, lést þann 28. mars. Sigurður Rúnar Guðmundsson efna- verkfræðingur lést á heimili sínu, Breiðási 9, Garðabæ, miðvikudaginn 29. mars. Hulda Karlotta Kristjánsdóttir, Hrauntungu 58, Kópavogi, andaðist í Borgarspítalanum að morgni 29. mars. Jarðarfarir Snjólaug Lúðvíksdóttir, Dalbraut 20, Reykjavík, lést fóstudaginn 24. mars. Útfor hennar fer fram frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 5. apríl kl. 15. Ingólfur Fr. Hallgrimsson frá Eski- firði, sem lést í Landspítalanum aö- faranótt 24. mars sl„ verður jarðsett- ur frá Eskifjarðarkirkju laugardag- inn 1. apríl kl. 14. Jóhann Pétur Guðmundsson hús- gagnasmíðameistari, Norðurbrún 1, andaðist í Landspítalanum 19. mars sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hólmfríður Skúladóttir, sem andað- ist að morgni 24. mars á St. Fran- ciskussjúkrahúsinu í Stykkishólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólms- kirkju laugardaginn 1. aprfl kl. 14. Héðinn Maríusson, Túngötu 12, Húsavík, veröur jarðsunginn kl. 10.30 frá Húsavikurkirkju laugardag- inn 1. apríl. Ekkert brambolt í þetta sinn - segir Valgeir Guðjónsson, sigurvegari keppninnar Valgeir Guðjónsson og Daníel Agúst Haraldsson höfðu ástæðu til að faðmast er úrslit lágu fyrir í söngvakeppn- inni. Þeir ætla báðir að standa á sviðinu í Sviss 6. maí. DV-mynd GVA „Eg hef þessa stundina mestar áhyggjur af því hvernig fer með stúd- entsprófin hjá mér en þau verða um svipað leyti og Eurovision keppnin," sagði Daníel Ágúst Haraldsson, nítj- án ára nemandi í Menntaskólanum í Reykjavik, er úrslit lágu fyrir í söngvakeppni Sjónvarpsins í gær- kvöldi. Daníel syngur lag Valgeirs Guðjónssonar, Það sem enginn sér, sem hlaut 66 atkvæði í mjög tvísýnni keppni. Lög Geirmundar Valtýsson- ar og Magnúsar Eiríkssonar hlutu hvort 58 stig og komust bæði í fyrsta sæti á meðan á talningu atkvæða stóð. Valgeir er sigurvegari keppninnar í annað sinn og sagðist hann ætla að fara hægt og hljótt í sakimar í þetta skiptið. „Það er alltaf ósköp notalegt að sigra en ég hafði lítiö hugsað um úrslitin fyrirfram," sagði Valgeir. „Mér brá að vissu leyti því það er mikið umstang sem fylgir því að vera með í Eurovision." Valgeir samdi lagið ekki sérstak- lega fyrir þessa keppni en hann hefur í huga að breyta útsetningunni lítil- lega. „Ég býst við að fá inn bakradd- ir í lagiö en það var tekið upp í kjall- aranum heima hjá mér án mikils kostnaðar,“ sagði Valgeir. Hann sagði að ekki væri ólíklegt að fleiri en Daníel stæðu á sviðinu í Sviss þann 6. maí, t.d. væri vel hugs- anlegt að hann yrði sjálfur með hon- um asamt söngkonum. Daníel Agúst, sem skaust upp á stjörnuhimininn fyrir jóhn sl. með hljómsveitinni Nýdönsk, hefur Utla reynslu í að koma fram að eigin sögn. Hann sagðist ekki hafa velt því mikið fyrir sér, er hann tók boði Valgeirs að syngja lagið, aö hugsanlega gæti hann sigrað. „Síðustu daga hefur þó hvarflað að mér hvað ég ætti að gera varöandi prófin ef við ynnum sigur. Svariö hef ég ekki fundið. Ég hef allt- af trú á að hlutirnir bjargist og ég hef þá trú núna,“ sagði Daníel. „Ég hef fundið fyrir jákvæðum við- brögðum undanfarið gagnvart þessu lagi en þó ekkert í Ukingu við þaö þegar Gleðibankinn opnaði. Ég er mjög kvíðinn að taka þátt í þessari keppni. Ég hef aldrei stigið á sviss- neska grund og veit ekkert hvernig ég á að haga mér - ekki einu sinni hvernig fötum ég á að vera í. Mér skflst að fötin séu aðalmálið," sagði Daníel. Það vakti athygU í salnum eftir að úrslitin lágu fyrir að eiginkona Val- geirs, Ásta Ragnarsdóttir, stundi há- stöfum. Valgeir sagði að það væri eðUlegt, keppnin væri mikið fyrir- tæki. „Ég hef þó ákveðið að vera ekki með mikið brambolt í kringum þetta. Þegar ég tók þátt í Eurovision í fyrra skiptið fórum við aUa leiðina, ef svo má segja, en ég hugsa að við verðum rólegir núna. Maður verður að taka því sem að höndum ber. Þetta er eins og að spila fótbolta, það er meira gaman að vinna,“ sagði Val- geir Guðjónsson. -ELA Tilkynningar Upplýsingarit Iðntæknistofnunnar Teknar hafa verið saman, í 28 síðna rit, upplýsingar um þá þjónustu sem Iðn- tæknistofnun íslands býður fyrirtækjum og öðrum sem tengjast iðnaði. Efni ritsins er raðað upp þannig að aðgengflegt er fyrir lesandann að átta sig á hvernig þjónusta stofnunarinnar getur komið honum til góða. Ritið er sent til fjöl- margra fyrirtækja og opinberra aðila. Þeir sem ekki hafa fengið ritið en óska Sjöfn A. Ólafsson lést 23. mars sl. Hún fæddist í ValhöU á Patreksfirði 4. nóvember 1929. Foreldrar hennar voru Aðalsteinn P. Ólafsson og Ste- fanía Erlendsdóttir. Árið 1975 giftist Sjöfn Guðjóni Hannessyni. Hún eign- aðist eina dóttur fyrir hjónaband. Sjöfn starfaði sem ritari á skrifstofu sýslumanns Barðastrandarsýslu í 25 ár. Útfór hennarverður gerö frá Pat- reksfjarðarkirkju í dag kl. 14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.