Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Page 25
FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989. 33 Lífsstíll Raflagnir í eldri húsum: Dulin brunahætta Misjafn endingartími Endingartími á raflögnum fer eftir aðstæöum, að sögn Bergs Jónssonar, rafmagnseftirlitsstjóra ríkisins. Úr hverju þær eru, hversu vandað er til uppsetningar þeirra svo og umhirða hefur áhrif á endinguna. „Fólk verður strax vart við ef ofnar bila eða niðurföll stíflast og lætur lagfæra það,“ sagði Bergur. „Á sama hátt á að hugsa um raflagnirnar í húsinu því slys af völdum rafmagns gera ekki boð á undan sér. Hita- myndun getur orðið í raflögn þar sem fólk sér ekki til og eldur brotist út“ Samkvæmt reglugerð um raforku- virki eiga rafveitur að skoða raflagn- ir í húsum á ákveðnum fresti. Sá frestur fer eftir húsnæðinu en er á milli 12 og 24 ár fyrir íbúðarhús- næði. Þessi reglugerð miðar við nýrri raflagnir en að sjálfsögðu hefur raf- magn verið lagt í hús frá fyrstu ára- tugum þessarar aldar. í eldri húsum getur því verið um töluverða hættu að ræða hafi raflögn ekki veriö end- urnýjuð á síðustu árum. Veruleg slysahætta Þó að rafveitum sé skylt að skoða raflagnir húsa reglubundið er ábyrgðin á viðhaldi og úrbótum á þeim í höndum eigenda eignarinnar. Því borgar það sig að leita til fag- manna ef fólk grunar að eitthvað sé varhugavert við raflagnir húss síns. „Oft á tíðum er augljóst ef eldri raflagnir og greinitöflur eru í slæmu ástandi og þarfnast viðgerða,11 sagði Baldur Hannesson rafverktaki í sam- tali við DV. „í gömlum töflum geta postulínshausarnir utan um öryggin brotnað og vírar trosnað. Slíkt skap- ar verulega slysahættu, ekki síst þar sem börn eru á ferð því þau eru gjörn á að pota fmgrunum í bera varhausa. í sumum gömlum húsum er farið að hitna mikið í tenglum og sé ekk- ert að gert getur eldur brotist út. Þá skapa loftljós einnig nokkra eld- hættu en mörg eldri húsa eru með pappaklæðningu í lofti. Það myndast oft mikifl hiti í loftdósum þvi perur hita frá sér. Það veldur því að vírinn þornar smátt og smátt, einangrunin um hann molnar og eldur getur brot- ist út.“ Mikilvægt er að fólk noti rétta perustærð í ljós og lampa. Á lömpum er perustærð skýrt tekin fram. Rafveitur skoða raflagnir húsa fólki að endurgjaldslausu. „Hafi fólk grun um að raflagnimar í húsinu séu famar að gefa sig á það hiklaust að leita til fagmanna, rafveitna eða raf- verkfyrirtækja um aðstoð. Síðastlið- in ár hefur verið mikið um nýbygg- ingar á íslandi og því erfitt að fá raf- verktaka til viðhaldsverka af slíku tagi. En nú hefur orðið vart sam- dráttar í nýbyggingum og því ætti að vera auðveldara um vik,“ sagði Baldur. Fimmtíu þúsund króna verk í verstu tilfellunum, þar sem bæði tafla og raflagnir eru illa farnar, þarf að skipta um allt, að sögn Baldurs. Slíkt getur reynst fólki kostnaðar- Gömlu rafmagnstöflurnar geta reynst varhugaverðar og í raun stórhættulegar. Baldur Hannes- son rafverktaki vill brýna fyrir fólki að leita ráða hjá fagmönnum áður en ráðist er í umfangs- miklar viðgerðir. DV-mynd Brynjar Gauti samt. Sé miðað við þriggja herbergja, 75 fermetra gamia íbúð þar sem skipta þarf um bæði lagnir og töflu er efniskostnaður um 17 þúsund krónur. Stærsti kostnaðarliðurinn er skipting á víralögnum, um fjögur þúsund krónur, og skipting rofa, um þrjú þúsund. Ofan á það bætist síðan vinnukostnaður, tæplega 33 þúsund. Verkið í heild myndi því kosta um 50 þúsund. Verndun mannslífa „Tjón af völdum rafmagns eru of tíð,“ sagði Bergur. „Ekki þarf meira til en að skrúfa losni einhvers stað- ar, við það verður hitamyndun í tenglum og eldur brýst út. Því er full ástæða til að brýna fyrir eigend- um eldri húsa að láta skoða raflagnir hafi þeir minnsta grun um að eitt- hvað sé varhugavert við þær, láta laga það sem ekki er í lagi og setja lekastraumsrofa í eldri töflur. Brun- um af völdum rafmagns hefur fækk- að síðan lekastraumsrofar voru teknir í notkun á íslandi um 1970 og því brýnt að fólk láti setja þá í. Það veitir bæði mönnum og eignum vernd." _StB A síðustu árum hefur æ oftar orðið tjón af vöidum rafbúnaðar eins og sést á þessu súluriti. Upplýsingarnar eru fengnar úr ársskýrslu Rafmagnseftir- lits ríkisins. Vamaraðgerðir í hláku Nú þegar hlýnar í veðri er mikil Lágpunktar neðst í brekkum og upp og getur hindrað framgang hætta á vatnsflóðum. Snjór hefur hjá kjöllurum húsa eru varhuga- vatns. legiö yflr mestöllu landinu síðustu verðirþvíþarerhættaáuppsöfnun Garðslangan og heitt vatn geta mánuði og þykkt íslag á mörgum vatns. Því er ástæöa til að moka komið aö góðum notum þegar svæðum. En fólk getur tekið til allan snjó frá Kíallaratröppunum bræða þarf ís í kringum niðurfóll. ýmissa ráða til að varna flóðum við og annars staðar þar sem jarðlög Nauðsynlegt er að veita vatninu hús sín og á lóðum. halla að húsi. greiða leið að niðurfóllunum og er Brýnt er að húseigendur moki frá Til að varna því að niðurfóll stifl- auðvelt að búa til vatnsrás í ísinn. öllum niðurfóllum á eignarlóðinni ist er þjóðráð að setja matarsalt í Ef fólk lendir í vandræðum er til að veita vatnselgnura greiðari þau og á svæðið í kring. Ristum er neyðarvakt Reykjavíkurborgar op- leið. Flestir vita hvar niðurfóll eru hægt að halda hreinum með því að in allan sólarhringinn í síma 27311. á lóðum sínum en því núður vill skara ísinn en þó er er ekki talið -StB þaðoftmisfarastaðfólkhaldiþeim ráðlegt að taka ristarnar upp. hreinum, Snjókrap í niðurfóllum hleðst oft Endurnýjun og viðhald á raflögnum í gömlum húsum Við komum og metum ástand raf/agnarinnar þér að kostnaðarlausu Eingöngu vanir fagmenn Vönduð vinnubrögð Sím i 35600 lOggiltur rafverktakI 30 25 20 15 10 5 0 DVJfíJ Tjón af völdum rafbúnaðar 1976-86 I Háspenna □ Lágspenna Brunar af völdum rafmagns eru of tíðir á íslandi. Samkvæmt upplýsing- um Rafmagnseftirhts ríkisins urðu tjón frá rafbúnaði tæplega 30 talsins árið 1986 og er það um helmings aukning frá árinu 1976. Mörg eldri húsa á landinu eru brunagildrur vegna lélegra raflagna. Hús byggð á fyrri hluta aldarinnar eru mörg hver með úreltar, var- hugaverðar raflagnir sem geta reynst fólki og eignum dýrkeyptar. Raflagnir, eins og aðrir húshlutar, eldast og bila en þrátt fyrir hættuna, sem stafar af iila útleiknum raflögn- um, er fólk gjarnt á að láta viðhald og endurbætur sitja á hakanum. Það hugsar með sér að nægur tími sé til að huga að þessu seinna. En það er of seint að huga að raflögnum eftir að kviknar í. Heimilið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.