Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1989, Side 27
FÖSTUDAGUR 31. MARS 1989.
35
Ólafur Skúlason
Ólafur Skúlason vígslubiskup
hefur veriö kosinn biskup íslands.
Ólafur er fæddur 29. desember 1929
í Birtingaholti í Hrunamannahreppi
og lauk guðfræöiprófi frá HÍ1955.
Hann var í guöfræðinámi í háskó-
lanum í St. Peter í Minnesota 1955
og í skóla alkirkjuráðsins í Bossey
í Sviss 1960. Ólafur var prestur ís-
lenska safnaöarins í Montain í
Norður-Dakota 1955-1959 og í Kefla-
vík 1959-1960. Ólafur varö fyrsti
æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar
1960-1964 og hefur verið prestur í
Bústaðaprestakalli í Rvík frá 1964.
Hann var í stjórn Hins íslenska
kirkjufélags í Ameríku 1956-1959 og
Prestafélags íslands 1970-1979, for-
maður 1974-1979. Ólafur var for-
maður æskulýðsnefndar þjóökirkj-
unnar 1964-1967 og í bamaverndar-
ráði íslands 1975-1978. Hann hefur
verið dómprófastur frá 1976 og
vigslubiskup frá 1983. Ólafur kvænt-
ist 18. júní 1955 Ebbu Guðrúnu
Brynhildi Sigurðardóttur, f. 5. des-
ember 1935. Foreldrar hennar eru
Sigurður Þ. Tómasson, forstjóri í
Rvík, og kona hans, Maggý Fló-
ventsdóttir. Börn Ólafs og Ebbu eru
Guðrún Ebba, f. 1. febrúar 1956,
kennari í Rvík, gift Stefáni Halli
Ellertssyni skipstjóra, Sigríður, f. 9.
ágúst 1958, gift Höskuldi Hrafni Ól-
afssyni, viðskiptafræðingi í Rvík, og
Skúh Sigurður, f. 20. ágúst 1968,
nemi. Systkini Ólafs eru Helgi,
fæddur 4. september 1933, leikari,
kvæntur Helgu Bachmann leik-
konu, Móeiður, f. 10. febrúar 1938,
ökukennari, gift Birni Bjömssyni,
lögregluþjóni í Keflavik, og Ragn-
heiður, f. 12. mars 1943, píanókenn-
ari, gift Sævari Helgasyni, málara í
Keflavík. Systir Ólafs, samfeðra, er
Kristrún, f. 9. febrúar 1927, gift Þóri
Geirmundssyni, verkamanni í Rvík.
Foreldrar Ölafs em Skúli Odd-
leifsson, umsjónarmaður í Keflavík,
og kona hans, Sigríður Ágústsdóttir.
Faðir Skúla var Oddleifur, b. í Lang-
holtskoti í Hrunamannahreppi,
Jónsson, b. á HelUshólum, Jónsson-
ar, b. og dbrm. á Kópsvatni, Einars-
sonar, b. í Berghyl, Jónssonar, b. í
Skipholti, Jónssonar, bróður Fjalla-
Eyvindar. Móðir Skúia var Helga,
systir Önnu, ömmu Jóns Skúlason-
ar, póst- og símamálastjóra. Anna
var dóttir Skúla, alþingismanns í
Berghyl, bróður Jósefs, langafa Ól-
afs Isleifssonar, fyrrv. efnahagsráð-
gjafa ríkisstjórnarinnar. SkúU var
bróðir Þorvarðar, afa Sigurgeirs
Jónssonar ráðuneytisstjóra. Annar
bróðir Skúla var Hannes, langafi
Ástu, móður Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar. Hannes var einnig
langafiÁstu, móður Hólmfríðar
Karlsdóttur. Þriðji bróðir Skúla var
Jón, langafi Önnu, móður Hjartar
Torfasonar hrl. Systir Skúla var
Margrét, langamma Björgvins Vil-
mundarsonar bankastjóra og Gunn-
ars Arnar Ustmálara og Þórðar
Steinars hrl. Gunnarssona. Önnur
systir Skúla var Helga, amma Ólafs
HaUdórssonar handritafræðings.
Sigríður var dóttir Ágústs, al-
þingismanns i Birtingaholti í
Hrunamannahreppi, bróður Guö-
mundar, föður Ásmundar biskups.
Ágúst var sonur Helga, b. í Birtinga-
holti, Magnússonar, alþingismanns
í Syöra-Langholti, Andréssonar.
Móðir Magnúsar var Margrét Ólafs-
dóttir, b. í Efri-Seli, Magnússonar,
og konu hans, Malínar Guðmunds-
dóttur, b. á Kópsvatni, Þorsteins-
sonar, ættföður Kópsvatnsvatns-
ættarinnar. Móðir Helga var Katrín
Eiríksdóttir, b. og dbrm. á Reykjum,
Vigfússonar, ættfóður Reykjaættar-
innar, langafa Sigurgeirs Sigurðs-
sonar biskups, fóður Péturs bisk-
ups. Móðir Sigríðar var Móeiður
Skúladóttir Thorarensen, læknis og
alþingismanns á MóeiðarhvoU,
bróður Bjarna amtmanns og skálds.
Skúli var sonur Vigfúsar, sýslu-
manns á Hlíðarenda í Fljótshlíð,
Þórarinssonar, sýslumanns á
Grund í Eyjafiröi, Jónssonar, ætt-
föður Thorarensenættarinnar.
Fólk í fréttum
Ólafur Skúlason.
Móðir Skúla var Steinunn Bjarna-
dóttir, landlæknis Pálssonar, og
konu hans, Rannveigar Skúladótt-
ur, landfógeta Magnússonar. Móðir
Móeiðar var Sigríður Helgadóttir,
konrektors í Skálholti, Sigurðsson-
ar, og konu hans, Ragnheiðar Jóns-
dóttur, systur Valgerðar, konu
biskupanna Hannesar Finnssonar
og Steingríms Jónssonar, ömmu
Steingríms Thorsteinssonar skálds
og langamma Níelsar Finsen, nób-
elsverðlaunahafa i læknisfræði.
Afmæli
Ragnhildur Dagbjört Jónsdóttir
Ragnhildur Dagbjört Jónsdóttir,
Miklubraut 42, Reykjavík, er áttatíu
og fimm ára í dag. Ragnhildur Dag-
björt er fædd á Rein í Innri-Akranes-
hreppi og ólst upp á Akranesi, Hafn-
arfirði og i Rvík. Hún söng í kórum,
kirkjukórum og Tónhstarkór
Reykjavíkur undir stjórn Victors
Urbancic.Ragnhildur var virk í
kvenfélögum og góðtemplararegl-
unni. Hún starfaði síðustu árin sem
heilsa hennar leyfði sem sjálfboða-
liði fyrir aldraða á Norðurbrún og
víðar í Rvík. Ragnhildur hefur dval-
ið á Hrafnistu sl. fjögur ár. Ragn-
hildur giftist 3. nóvember 1928 Böð-
vari Sth. Bjarnasyni, f. 1. október
1904, d. 23. október 1986, trésmíða-
meistara í Rvík. Foreldrar Böövars
voru Bjami Jónsson, b. á Gerði í
Innri-Akraneshreppi, og kona hans,
Sigríður Jónsdóttir. Börn Ragnhild-
ar og Böðvars eru Jón, f. 2. maí 1930,
cand. mag., fyrrv. skólameistari í
Ytri-Njarðvík, ritstjóra Iðnsögu ís-
lands, kvæntur Guðrúnu Björgvins-
dóttrn- fóstru og á hann þrjú börn
ogstjúpson, Vilhelmína, f. 13. júní
1932, gíft Ingólfi S. Ingólfssyni, vél-
stjóra í Rvík, og eiga þau fimm börn,
Valborg Soffía, f. 18. ágúst 1933,
fóstra, gift Magnúsi Jósefssyni jám-
smið og eiga þau þijá syni, Bjami,
f. 13. nóvember 1934, trésmíðameist-
ari í Rvík, giftur Þórhildi Guöna-
dóttur og eiga þau fjögur börn, Böð-
var, f. 23. júní 1936, trésmíðameist-
ari í Rvík, og á hann þijú böm, og
Sigmundur, f. 29. september 1937,
lögfræöingur í Rvík, og á hann tvær
dætur. Systir Ragnhildar, sam-
mæðra, er Jóna Kristín Magnús-
dóttir, f. 14. nóvember 1917, gift
Magnúsi G. Jónssyni, fyrrv.
frönskukennara í MR og HÍ og eiga
þautvo syni.
Foreldrar Ragnhildar voru Jón
Kristjánsson Velding, b. á Rein, og
kona hans, Soffía Jónsdóttir. Jón
Velding var sonur Kristjáns Veld-
ing, sjómanns í Hafnarfirði, Frið-
rikssonar Velding, sjómanns í Hafn-
arfirði, Friðrikssonar Velding, sjó-
manns í Hafnarfirði, Kristjánssonar
Welding, steinsmiðs og beykis í
Hafnarfirði, ættfóður Veldingættar-
innar, fóður Önnu, langömmu
Árna, fóður Matthíasar Á. Mathies-
en alþingismanns. Móðir Jóns var
Kristín Þórðardóttir, vinnumanns á
Vorsabæ á Skeiðum, Jónssonar, og
konu hans Þórdísar, systur Aldísar,
langömmu Manfreðs Vilhjálmsson-
ar arkitekts. Bróðir Þórdísar var
Þorsteinn, langafi Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur söngstjóra. Þórdís var
dóttir Þorsteins b. á Brúnavallakoti,
Jörundssonar, b. og smiðs á Laug,
Illugasonar, Skálholtssmiðs, Jóns-
sonar.
Soffía var dóttir Jóns, útvb. í Vík
á Akranesi, bróður Sigurðar, afa
Sigurdórs Sigurdórssonar blaða-
manns. Systir Jóns var Margrét,
langamma Gunnars, fóður Hauks,
gullverðlaunahafa á ólympíuleik-
unum í Seoul og heimsmeistara fatl-
aðra í hundrað metra hlaupi. Jón
var sonur Sigurðar, b. á Bakka á
Kjalarnesi, Pálssonar. Móðir Sig-
urðar var Solveig Sigurðardóttir,
systir Magnúsar, langafa Guðrúnar,
móður Bjarna Benediktssonar for-
sætisráðherra. Bróðir Solveigar var
Árni, langafi Sæmundar, afa Sig-
hvats Björgvinssonar alþingis-
manns. Móðir Soffíu var Sigríður,
systir Jóns, langafa Matthíasar Ingi-
bergssonar, lyfsala í Kópavogi. Sig-
ríður var dóttir Ólafs b. á Litlu-
Fellsöxl í Skilamannahreppi, Magn-
ússonar, b. í Dagverðarnesi í
Skorradal, Björnssonar, b. og smiðs
á Hóli í Lundarreykjadal, Sæ-
mundssonar. Móðir Ólafs var Sig-
ríður Ólafsdóttir, b. á Snartarstöð-
um, Hermannssonar, bróður Bjarna
á Vatnshorni, langafa Guðbjarna,
fóður Sigmundar háskólarektors.
Móðir Sigríðar var Þóra Kaprasíus-
dóttir, b. á Snartarstöðum, Gísla-
sonar. Móðir Kaprasíusar var Þóra
Ragnhildur Dagbjört Jónsdóttir.
Kaprasíusdóttir, systir Ingibjargar,
langömmu Kaprasíusar, langafa
Áslaugar, móður Geirs Hallgríms-
sonar. Móðir Sigríðar Ólafsdóttur
var Halldóra Jónsdóttir, b. í Tungu-
felli, Sigurössonar, og konu hans,
Sesselju Gunnlaugsdóttur, lista-
smiðs í Vogatungu, Einarssonar.
Móðir Sesselju var Guðlaug Þórðar-
dóttir, dóttir systur Sveinbjörns á
Hvítárvöllum, fóður Þórðar dóms-
stjóra, fóður Sveinbjarnar Svein-
björnssonar tónskálds. Ragnhildur
tekur á móti gestum á fimmtu hæð
Hrafnistu í Hafnarfirði kl. 16-19 í
dag.
Tilmæli
til afmælis-
bama
Blaðið hvetur af-
mælisbörn og að-
standendur þeirra
til að senda því
myndirogupplýs-
ingar um frændgarð
og starfssögu
þeirra.
Þessar upplýsingar
þurfa að berast 1 síð-
astalagi
þremur dögum
fyrir afmælið.
Munið að senda
okkur myndir
Bjami I. Karlsson
Bjarni I. Karlsson forstjóri, Ysta-
seli 1, Reykjavík, oft nefndur Radíó-
Bjarni, er fimmtugur í dag.
Bjarni fæddist á Seltjarnarnesi en
ólst upp í Kópavogi þar til hann
varð ellefu ára, er hann flutti með
foreldrum sínum til Reykjavikur.
Hann hóf nám í útvarpsvirkjun hjá
Eggert Benónýssyni 1956 og fékk
meistararéttindi 1963.
Bjarni stofnaði fyrirtæki sitt,
Radíóþjónustu Bjarna, 1964, þá tutt-
ugu og fimm ára, og hefur hann
starfrækt fyrirtækið síðan. Við sam-
einingu iðngreina hlaut hann einnig
meistarabréf í rafeindavirkjun.
Bjarni sat í stjórn Félags íslenskra
útvarpsvirkja og síðan 1970 í stjórn
Félags rafeindavirkjameistara.
Hann hefur setið í prófnefnd út-
varpsvirkja frá 1962 og veriö for-
maður prófnefndar í útvarpsvirkj-
un og síðar rafeindavirkjun frá 1966.
Þá hefur hann setið iðnþing frá 1984.
Bjarni kvæntist 3.9.1966, Þórunni
Öddu Eggertsdóttur, f. 4.12.1942, en
hún er ættuð frá Ólafsvík, dóttir
Vilborgar Jónsdóttur og Eggerts
Guðmundssonarfyrrv. verslunar-
manns.
Börn Bjama og Þórunnar Öddu
eru Anna Ástveig, f. 23.2.1967, kaup-
kona, en sambýlismaður hennar er
Högni Guömundsson, nemi í raf-
eindavirkjun; Arnar, f. 12.6.1970,
nemi í húsasmíði, ogtvíburarnir
Bragi Þór og Bjarni Freyr, f. 9.6.
1974.
Systkini Bjarna: Sveina Karls-
dóttir símavörður, gift ísleifi Giss-
urarsyni leigubílstjóra; Páll Karls-
son, vélstjóri og verkstjóri hjá
Björgun hf, kvæntur Ragnhildi Jós-
efsdóttur fulltr'úa; Ingibjörg Karls-
dóttir bakari, gift Rafni Ámasyni
prentara; Ómar Örn Karlsson stýri-
maður. kvæntur Jónheiði Haralds
sjúkraliða.
Foreldrar Bjarna eru Karl Sveins-
son, fyrrv. leigubílstjóri í Reykjavík,
og kona hans Anna Ástveig Bjarna-
dóttir húsmóðir.
Foreldrar Karls vora Sveinn Ey-
jólfsson frá Bakkakoti á Seltjarnar-
nesi og Anna Guðmundsdóttir, syst-
ir Páls skálds á Hjálmsstöðum í
Bjarni I. Karlsson.
Laugardal.
Foreldrar Önnu Ástveigar voru
Bjarni Tjörvason, b. í Mýrhúsum í
Grundarfirði, og kona hans Ingi-
björg María Jónsdóttir.
Bjarni og Þórunn Adda taka á
móti gestum á afmælisdaginn mfili
klukkan 17 og 20 í Hreyfilssalnum
að Fellsmúla 26, III hæð.
Til
hamingju
með
daginn
90 ára
Sigurður Guðjónsson,
Urriðaá, Álftaneshreppi.
85 ára
Margrét Tómasdóttir,
Liltu-Heiði, Mýrdalshreppi.
80 ára
Ágústa Hróbjartsdóttir,
Skúlagötu 72, Reykjavík. Hún
verður aö heiman á afmælisdag-
inn.
Vilhelm Steinsson,
Fögmbrekku, Bæjarhreppi.
75 ára
Ingibjörg Jónsdóttir,
Álflieiraum 3, Reykjavík.
Grcipur Kristjánsson,
Byggöarholti 29, Mosfellsbæ.
70 ára
Kristján H. Guðmundsson,
Minna-Núpi, Gnúpverjahreppi.
60 ára
Gróa Sigurðardóttir,
Skólavegi 89, Búðahreppi.
Anna Hjörleifsdóttir,
Langagerði 86, Reykjavík.
Gréta Finnbogadóttir,
Háaleitisbraut 16, Reykjavik.
40 ára
Guðmundur Hjaltason,
Silfurbraut 39, Höfn í Homafirði.
Haukur Tryggvason,
Skálabrekku 9, Húsavík.
Magnús Tryggvason,
Skipholti 47, Reykjavík.
Gisli S. Reimarsson,
Njarðargötu 12, Keflavík.
Elsa Benjaminsdóttir,
Stóru-Klöpp, Mosfellsbæ.
Maria Kristín Lund Jörgensen,
Granaskjóh 16, Reykjavík.