Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1989, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989.
Fréttir
Samvinnubankinn
vill sameinast
Á aöalfundi Samvinnubankans
var samþykkt tillaga frá fulltrúum
Kaupfélags Reykjavíkur og nágrenn-
is um aö beina þeim tilmælum til
bankaráös að þegar í stað veröi hafn-
ar viðræður viö Alþýðubankann um
hugsanlegan samruná með kaup á
hlut ríkisins í Útvegsbankanum sem
markmið.
í ræðu sinni á fundinum lýsti Guð-
jón B. Ólafsson, forstjóri Sambands-
ins og stjómarformaður bankans,
því yfir að viðræður hefðu átt sér
stað um sölu á hlut Sambandsins í
bankanum til Landsbankans. Einnig
aö bankaráðið hefði átt viðræður við
Alþýðubankann en þær viðræður
hefðu lognast út af.
Samvinnubankinn skilaði um 72
milljóna króna hagnaði í fyrra. Inn-
lán bankans jukust um 3,3 prósent
að raungildi en útlán um 17 prósent
sé miðað við hækkun lánskjaravísi-
tölunnar. Bankinn afskrifaði töpuð
útlán fyrir rúmar 6 milljónir króna
og lagði auk þess 26 milljónir inn á
sérstakan afskriftareikning til að
mæta frekari skakkafóllum.
-gse
Herkules nauðlenti á
Keflavíkurflugvelli
Arleg þingveisla Alþingis var haldin í gærkvöldi. Samkvæmt venju var
bannað að mynda í veislunni en þar má heldur ekki flytja ræður nema í
bundnu máli. Hér sjást nokkrir þingmenn koma þangaö. Það eru Eyjólfur
Konráð Jónsson og kona hans, Guðbjörg Benediktsdóttir, varaþingmaöur
Sjálfstæðisflokksins, Sólveig Pétursdóttir, og eiginmaður hennar, Kristinn
Björnsson, Jón Bragi Bjárnason, varaþingmaður Alþýðuflokksins, og eigin-
kona hans, Guðrún Stefánsdóttir. DV-mynd GVA
Herkulesvél í eigu bandaríska
hersins nauðlenti á Keflavíkurflug-
velli um hádegi í gær. Þegar vélin
var stödd um 500 kílómetra suður af
íslandi kom gat á skrokk hennar.
Lendingin í Keflavík tókst með ágæt-
um. 22 hermenn og sjö manna áhöfn
voru um borð í vélinni og sakaði
engan.
Vélin var á leið frá Mildenhall í
Englandi til Bandaríkjanna. Vélin
átti ekki að lenda hér á landi.
Tvær þyrlur og Herkulesvél fór á
móti vélinni og eins var mikill við-
búnaður á Keflavíkurflugvelli en þar
voru slökkvilið, lögregla og læknar í
viðbragðsstöðu.
-sme
Myndln er tekin skömmu eftir að vélin lenti. Ekki reyndi á hinn mikla öryggi-
sviðbúnaö sem var til staöar. DV-mynd Æglr Már
Þessa dagana eru starfsmenn Sambandsins að flytja sitt hafurtask frá Sölf-
hólsgötunni og í ný húsakynni fyrirtækisins á Kirkjusandi. Eins og sjá má
fylgir starfsmönnunum ógrynni af pappír. Gert er ráð fyrir að í flutningunum
þurfi að pakka pappírsmöppum niður í 1.500 til 2.000 kassa. Þegar starfs-
menn Sambandsins hafa síðan haft sig á brott koma starfsmenn stjórnar-
ráðsins á vettvang með sínar möppur. DV-mynd KAE
Danska skipið:
Björgun reynd
aftur í dag
'Tilraun til að draga danska
skipið Mariane Danielsen á flot
við Grindavík var gerð á flóðinu
snemma í gærkvöldi. Tilraunin
mistókst þrátt fyrir þjálp dráttar-
bátsins Goöans, ýtu í landi og loft-
dælingar í vélarrúm skipsins.
Virtist loftdæling í vélarrúmið
hafa misstekist algjörlega þar
sem skipið lyfti sér ekkert aö aft-
an. Þó mun það hafa færst um
eina þrjá metra.
Munu menn Lyngholts sf., sem
keyptu skipið á 7 þúsund krónur
gegn því að koma því af strand-
stað, ætla að reyna björgun á ný
í dag. Á að byija að draga strax
á aðfallinu í dag og reyna að dæla
lofti í vélarrúmið svo skipið lyfti
sér. -hlh
Herra ísland valinn í gærkvöld:
Eiður Eysteinsson
krýndur silfur-
slegnum pípuhatti
Eiður Eysteinsson, 18 ára Reykvík-
ingur, var valinn herra ísland 1989 á
Hótel íslandi í gærkvöldi. Eiður var
meðal ellefu ungsveina er kepptu um
titilinn og stóð hann uppi sem sigur-
vegari í lok keppninnar, krýndur
silfurslegnum pípuhatti. Af við-
brögðum áhorfenda að dæma var
hann vel aö titlinum kominn.
Eiður starfar á skemmtistaðnum
Broadway og mun vera á leið inn í
tískubransann þar sem fyrirsætu-
störf eru eitt aðaláhugamálið. Til að
verðaherraísland þýðir víst Utiö að
stunda tómt hóglífi. Hefur Eiður
stundað líkamsrækt, verið í hand-
bolta og blaki og slappar af í snóker
þegar færi gefst.
Keppnin í gærkvöld hófst með
borðhaldi. Á eftir komu keppendur
fram í sportfatnaði, sundskýlum og
loks herrafótum fyrir krýninguna.
Milli þess voru dansátriði og fleira
til skemmtunar.
í verðlaun fékk herra ísland fataút-
tektir, snyrtivörur, skó og fleira.
Aðstandendur keppninnar voru
Herraíslandhf.ogSamúel. -hlh
Kjartan P. Kjartansson, flárhagsstjóri Sambandsins:
Vill selja eignir
fyrir 500 milljónir
tilbúinn að selja hlut Sambandsins 1 flestum dótturíyrirtækjunum
„Ég er tilbúinn aö selja hlut Sam-
bandsins í flestöllum þeim fyrir-
tækjum sem þaö á hlut í ef ég fæ
gott verð fyrir. Viö erum hér í við-
skiptum en ekki góðgeröarstarf-
semi,“ sagði Kjartan P. Kjartans-
son, framkvæmdastjóri fjárhags-
deildar Sambandsins, sem séð hef-
ur um eignasölu Sambandsins á
undanfómum árum.
Að undanfómu hefur Sambandið
selt töluvert af fasteignum. Á árinu
1987 seldi Sambandið þau hús sem
aðalstöðvar þess voru í viö Sölv-
hólsgötu og Lindargötu. í fyrra
seldi þaö Suðurlandsbraut 32. Þá
hefur Sambandið einnig selt hlut
sinn í tölvufyrirtækinu Marel.
Sambandiö hefur tilkynnt með-
eigendum sínum í Osta- og smjör-
sölunni aö hlutur þess í fyrirtæk-
inu sé til sölu. í viöræðum viö
Landsbankann hefur komið til tals
að bankinn kaupi hlut þess í Sam-
vinnubankanum. Þá hefur og
heyrst að hlutur Sambandsins í
fleiri fyrirtækjum sé til sölu.
- Hvað þarf Sambandið að losa
mikla fjármuni með eignasölu?
„Ég tel aö gott væri ef viö gætum
selt eignir fyrir um 400 til 500 millj-
ónir. Þar af tel ég mig geta selt fast-
eignir fyrir um 200 eða 300 milijón-
ir,“ sagöi Kjartan.
Meöal þeirra fasteigna, sem Sam-
bandiö vill selja, er Snoirabraut 56
þar sem áfengisútsala ÁTVR er til
húsa.
-gse
Bankakort
ófáanleg
- bót um miðjan mánuð
„Það er verið að framleiða í Bret-
landi birgðir sem eiga að endast til
næstu tveggja ára og er von á send-
ingunni um miðjan mánuðinn,"
sagði Bjami Ólafsson hjá Reiknistofu
bankanna í samtali við DV.
Bankakort hafa verið ófáanleg um
nokkurra vikna skeiö og er nú svo
komið að bankar eru famir að af-
henda viðskiptavinum sínum sér-
stakt skjal sem staðfestingu á kort-
númeri í stað korts.
í september í haust tóku nokkrir
bankanna þá ákvörðun að endur-
meta notkun bankakorta og ein-
hveijir ákváðu að breyta kortunum.
Það er einnig ástæðan fyrir þessari
töf því bjóða þurfti gerö kortanna út
upp á nýtt.
-Pá