Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1989, Síða 5
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989.
5
dv________________________________________Fréttir
Magnús Guðmundsson í kostnaðarsömu stríði við Greenpeace:
Verð að fara í jólatréssöluna
- segir Greenpeacemenn vera fama að læra kurteisisreglur
„Myndin hefur þegar verið sýnd í
heilu lagi eða að hluta til í Dan-
mörku, Finnlandi og Hollandi og
verður bráðlega sýnd í Noregi og
Svíþjóð. Við höfum fyrir reglu að
gefa ekki til kynna hverjir hafa hug
á að sýna myndina svo viðkomandi
sjónvarpsstöð fái frið fyrir Green-
peace. í þessum mánuði verður
myndin sýnd á kvikmyndahátíðinni
í Cannes í Frakklandi. Það verður
stór stund og við gerum okkur tölu-
verðar vonir í samhandi við þá há-
tíð,“ sagði Magnús Guðmundsson,
annar höfunda myndarinnar Lífs-
björg í norðurhöfum, í samtah við
DV.
Magnús hefur verið á ferð og flugi
síðan myndin var sýnd í íslenska
sjónvarpinu þar sem hann hefur tek-
ið þátt í umræðuþáttum og blaða-
mannafundum í tengslum við sýn-
ingu hennar erlendis. í Danmörku
tók hann þátt í kappræðufundi með
fulltrúa Greenpeace í Danmörku.
- Hvernig fór sá fundur?
„Afleiðingar fundarins voru þær
að fólk hóf að segja sig úr Green-
peacesamtökunum í nokkrum mæh.
Því má segja að fundurinn hafl kom-
ið vel út fyrir okkur. Ég hélt ró minni
allan tímann þar sem myndin stend-
ur fyrir sínu hvað sem talsmenn
Greenpeace segja. Greenpeace hefur
verið stiht upp við vegg í mun öflugri
aðgerð gegn þeim en hingað til hefur
þekkst.“
Læra kurteisisreglur
- Nú vhja Greenpeacemenn í Sví-
þjóð ekki taka þátt í umræðum eftir
sýningu myndarinnar þar 18. apríl.
Þeir bera því við að svo mikil vit-
leysa sé í myndinni að umræða um
hana sé gagnslaus. Sé nóg að benda
á að myndin sé full af vitleysum.
„Þá eru Greenpeacemenn farnir að
beita nýrri tækni sem er öllu skyn-
samlegri en að vera með hótanir og
læti. Talsmenn Greenpeace eru
smám saman að læra almennar kurt-
eisisreglur. Þeir hafa loksins upp-
götvað að öll þessi læti skaða þá
sjálfa þar sem þeir fletta hreinlega
upp um sig. Annars eru yfirlýsingar
Greenpeace í Svíþjóð gengdarlaus
vitleysa og í engu samræmi við það
sem sagt hefur verið í Danmörku.
Samtökin leggja út af myndinni á
mismunandi hátt í hverju landi."
- Hefur eitthvað áþreifanlegt komið
út úr málshótunum Greenpeace?
„Ekki svo ég viti. Þeir hættu við
málssókn á hendur TV-2 í Dan-
mörku. Hótanir þeirra eru eins og
hróp í myrkri. Það væru mistök hjá
Greenpeace að höfða mál gegn mér
en ef þeir fara út í það verður máls-
sóknin að eiga sér stað 1 varnarþingi
mínu sem er Kópavogur. Málssókn
og dómur að mér fjarverandi í Tim-
búktú eða annars staðar er ekki ann-
að en dauður bókstafur."
Kostnaðarsamt stríð
- En hvað með fjárhagslegu hliðina?
„Það er langt í land áður en við
getum farið að greiða okkur sjálfum
einhver laun. Við reynum að taka
eitthvað af þeim peningum sem
koma af sýningu myndarinnar til að
eiga fyrir nauðsynjum. En stríðið við
Greenpeace er kostnaðarsamt.
Ferðalög eru kostnaðarsöm og tíma-
frek. Við höfum verið eins konar far-
andsendiherrar á engum launum.
Hvar sem umræða um myndina á sér
stað fer hún út í vandamál þau sem
Greenpeace hafa valdið hjá þessum
norrænu þjóðum. Þá vaknar samúð
gagnvart þeim þjóðum er verða fyrir
árás að ósekju.“
- Þú ferð þá í jólatréssöluna í des-
ember?
„Ég verð örugglega að fara í jóla-
tréssöluna í desember. Ég hætti ekki
jólatréssölu nema mikið liggi við.
Það er líka'skemmtileg tilbreyting
frá skrifstofubaslinu." -hlh
Oft er fært fyrir litlar flugvélar þó Fokkerinn geti ekki lent.
Egilsstaöaflugvöllur lokast oft vegna aurbieytu. DV-myndir Sigrún
Egilsstaöaflugvöllur:
Tvö ár enn í aurbleytu
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum;
Um páska var flugvöllurinn á Eg-
ilsstöðum lokaður í þrjá heila daga
og hluta’úr þremur öðrum vegna
aurbleytu og kom það iUa við marga
vegna mikillar umferðar. Allmikinn
bleytusnjó setti niður þessa daga og
það var nógu hlýtt til þess að frost
fór úr efsta lagi flugbrautar.
Þá er ekki að sökum að spyrja.
Fokkerinn getur ekki notað brautina
þó oft sé fært fyrir htlu vélarnar.
Eftir að þíða hefur náð niður um
10-15 sm fer brautin að þoma ef veð-
ur er þurrt. í rigningartíð er völlur-
inn ófær meðan frost er í jörð.
í sumar verður lokið við að grafa
upp úr og aka burðarefni í flugbraut
nýja vallarins. Síðan þarf hún að síga
og jafna sig minnst í eitt ár. Það er
þvi ekki fyrr en sumarið 1991 sem
hægt verður að yfirkeyra völlinn og
leggja bundið slitlag. Enn má því búa
við lokun vallarins vegna aurbleytu
næstu tvö vorin. í hlýindaköflum á
vetrum verður líka oft truflun á flugi
af sömu ástæðu.
Afinælisrevía 1 Keflavík:
Kitlar hláturtaugarnar rækilega
Ægir Már Kárason, DV, Sudunœsjum;
„Revían fjallar um bæjarlífið í
Keflavík og er flutt í tilefni 40 ára
afmælisins sem Keflvíkingar halda
upp á um þessar mundir,“ sagði
Hilmar Jónsson, formaður Leikfé-
lags Keflavíkur, þegar við htum inn
á æfingu í Félagsbíóinu en þar verð-
ur revían frumsýnd í dag, fóstudag-
inn 7. mars. „Við komum aðeins við
kýlin í ýmsum.efnum hjá Suður-
nesjamönnum í léttum dúr með gam-
anmálum og söngvum án þess að
stinga beint á þeim.“
Ómar Jóhannsson er höfundur
verksins. Það ber nafnið „Við kynnt-
umst fyrst í Keflavík". Ómar er ekki
með öhu reynslulaus í leiklist. Hann
starfaði talsvert í Litla leikfélaginu í
Garðinum áður en hann flutti til
Keflavíkur. Þetta er hans fyrsta revía
en áður hefur hann samið einstaka
gamanþætti og gamanvísur fyrir
ýmis félög og félagasamtök.
Flytjendur eru 30 og leikstjóri er
Hulda Ólafsdóttir. Þetta er þriðja
verk hennar hjá LK, þar af tvö á
þessu leikári. „Þegar miðað er við
aðsóknina í haust að leikritinu Svona
erum við, þar sem nánast aUtaf var
fuUt hús, þá er ég bjartsýnn á að
Suðurnesjamenn láti sig ekki vanta
í Félagsbíóið á þær fimm sýningar
sem fyrirhugaðar eru,“ sagði Hihnar.
Miðað við það sem við sáum og
heyrðum af revíunni er víst að hún
verður hin besta skemmtun og kitlar
hláturtaugamar rækilega.
Vegaáætlun lögð fram á Alþingi:
205 milljónir í bundið slitlag
í vegaáætlun fyrir árin 1989 til
1992, sem lögð hefur verið fram á
Alþingi, er ætlunin að veija 205 miUj-
ónum króna í bundiö shtlag á þjóð-
vegi. Það er töluvert minni upphæð
en varið er í viðhald þessara vega en
í það eiga að fara 264 miUjónir.
Vegaáætlun fyrir 1989 hljóðar sam-
tals upp á 3.895 miUjónir en af því á
að taka 682 miUjónir í ríkissjóð af
sérmerktum tekjustofnum vegagerð-
ar. Útgjöld til vegamála eru því áætl-
uð 3.213 milljónir.
Nú sem endranær er vegaáætlun
langt frá því markmiði að varið sé
til vegamála 2,08% þjóðartekna. Það
markmið átti að nást 1985 en fram-
lagið hefur í raun lækkað frá 1983. í
ár fer því 1,16% þjóðartekna í vega-
mál en í fyrra var þetta hlutfaU
1,18%.
Enn sem komið er hefur þessi fjár-
vöntun ekki komið niður á bundnu
shtlagi en þess í stað á uppbyggingu
vega og dýrari verkéfnum.
-SMJ
SAMTOK
UM
VESTRÆNA
SAMVINNU
OG
VARÐBERG
minna félagsmenna á ráðstefnu vegna 40 ára afmælis Atl-
antshafsbandalagsins á Hótel Sögu laugardaginn 8. apríl
kl. 10.30.
Ræðumenn: Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra,
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra,
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
og Amór Siguijónsson vamarmálafulltrúi.
Pallborðsumræður undir
stjóm Bjöms Bjamasonar
aðstoðarritstjóra með þátt-
töku ræðumanna ásamt Al-
berti Jónssyni, starfsmanni
öryggismálanefndar.