Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1989, Blaðsíða 7
7
(H-I .1 H/ HI /> U 'T ’
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1989.
Hægir á starf-
seminni
en stöðvast
þóekki
„Við tökum við öllu sem kemur
inn en við höfum ekki nema einn
mann í þinglýsingunum sjálfum
en venjulega eru þeir 6. Þetta
skipöst í tvennt. Þegar fólk kem-
ur með skjalið er það tekiö inn í
svonefnda dagbók og ákveöin
réttindi miðast viö að þaö hafi
verið skráð inn þennan ákveöna
dag. Síðan er þetta fært inn í þing-
málabækur.' Við það hafa unnið
sex lögfræðingar og af þeim eru
fimm komnir í verkfall og því
aðeins einn að störfum. Alls fara
níu lögfræðingar hjá embættinu
í verkfall og þvi er óhjákvæmilegt
að allt mun ganga mun hægar en
áður vegna þessa,“ sagði Jón
Skaftason yfirborgarfógeti í sam-
tali við DV. Hann bætti því við
aö reynt yrði eftir mætti að af-
greiða veðbókarvottorðin.
Jón sagöi að tveir menn yröu
starfandi í skiptarétti, í fógeta-
rétti munu starfa borgarfógeti og
aðalfuJltrúi og í uppboðsréttinum
munu tveir menn starfa. Jóntaldi
að engin trufiun yrði á afgreiðslu
i firmaskrá.
„Það á ekki neitt að stöðvast
hjá okkur en það verður ekki
komist hjá því að það hægi á allri
starfsemi meöan á verkfalli
stendur. Og ef verkfallið stendur
lengi aukast erfiðleikamir hjá
okkur að sjálfsögðu," sagði Jón
Skaftason. -S.dór
Skilagjald á bif-
reiðar á leiðinni
- segíör iðnaðarráðherra
Aö sögn Jóns Sigurðssonar iön-
aöarráöherra þá er ætlunin að
koma sem fyrst á skilagjaldi á
bifreiðar. Sagði ráðherra að drög
að slíku friimvarpi væru nú í
meðferð þjá þingflokkum.
Þetta kom fram þegar ráðherra
svaraði fyrirspum frá Hreggviði
Jónssyni. Ráöherra sagði að gíf-
urlegt vandamál væri samfara
því að koma ónýtum bifreiöum í
lóg. Árið 1986 voru 16.000 ökutæki
afskráö hér á landi og má gera
ráð fyrir að þeim tjölgi.
Að sögn iðnaðarráðherra er er-
fitt að fá landsvæöi undir bílana
ef á að grafa þá en hann sagðist
reyndar vera andsnúinn því að
grafa þennan úrgang sem sjálf-
sagt ætti að vera að nýta. -SMJ
Fréttir
Meðalhiti en landið
í jaðri úrkomusvæðis
Samkvæmt langtímaspá banda- aprílmánuð mega íslendingar eiga iiij úrkomu þennan mánuð. Stór
rísku veöurstofunnar, NOAA, fyrir von á hita í meðallagi og frekar lít- hitasvæði liggja austan og vestan við
Prósentutölurnar gefa til kynna hverjar líkurnar eru á ákveðnu veðri á tilteknu svæði i apríl. Sem dæmi má nefna
að 30 prósent líkur þykja á úrkomuveðri sunnan- og austanlands í apríl. Meira en 40 prósent líkur eru á mikilli
urkomu við Bretlandseyjar. DV-mynd JRJ
Langtímaspá yfir veður á N.- Atlantshafi í apríl
Byggt á gögnum NOAA(National Oceanic and Atmospheric Adminstration)
► Ríkjandi vindátt viö sjávaryfirborö
Hiff
^lo
landið og um 30 prósent líkur þykja
á að hiti verði um og yfir meöallagi,
sem er 3,3 gráður á celsíus. Sam-
kvæmt spánni mun úrkoman aðal-
lega verða á sunnan- og austanverðu
landinu en ísland er 1 útjaðri úrko-
musvæðis sem mun aðallega gera
vart við sig við Bretlandseyjar. Hin
alræmda lægðaruna virðist þannig
ætla suður fyrir landið á leið austur.
Spá bandarisku veðurstofunnar frá
miðjum mars til miðs apríl gerði ráð
fyrir frekar köldu veðri á íslandi og
töluverðri úrkomu. Virðist hún ætla
að standast hvað það varðar.
Á spákortinu eru prósentutölur
sem gefa til kynna hveijar líkumar
eru á að ákveðiö veðurlag verði ríkj -
andi. ísland liggur milli tveggja hita-
svæða og eru því líkur á að hiti verði
í meðallagi. Á skástrikuðu hitasvæð-
unum þykja líkurnar á hlýindum
vera meiri en 40 prósent. Sama gildir
um úrkomuna en þar er ísland í jaðri
úrkomusvæðis. Þykja 30 prósent lík-
ur á úrkomuveðri í apríl á þeim hluta
landsins sem svæðið nær yfir.
Pílumar tákna meginvindstrauma
við yfirborð sjávar, en samkvæmt
bandarísku veðurfræðingunum eru
vindstraumar í 10 þúsund feta hæð
ráðandi fyrir megintilhneigingar í
veðrinu.
-hlh
Verkfall náttúrufræðinga:
Starfsemi blóðbankans
verður í algeru lágmarki
- segir Ólafur Jensson yfirlæknir
„Það verður strax að takmarka
þjónustuna til sjúkrahúsanna við
það sem er bráðaðkallandi. Blóð-
bankinn er sem kunnugt er bakhjarl
allra bráðadeilda sjúkrahúsa lands-
ins vegna skurðaðgerða og slysa. Sá
niðurskurður sem óhjákvæmilega
hlýst af verkfallinu kemur þannig
út að starfsemi blóðbankans tak-
markast við tiltölulega fáa starfs-
menn í rannsóknaliðinu. Venjulega
starfa hér 16 náttúrufræðingar og
þar af 10 sérstaklega tengdir blóð-
bankanum. Allt þetta fólk er í verk-
falli nema hvað leyfi er fyrir þvi að
einn þeirra sé að störfum. Þá er og
hægt að kalla út einn til tvo til við-
bótar ef brýna nauðsyn ber til,“ sagði
Olafur Jensson, yfirlæknir blóð-
bankans, í gær.
Hann sagði að vegna nauðsynlegra
rannsóknastarfa, sem ekki væri
hægt að framkvæma vegna verk-
fallsins, drægi strax á fyrsta degi úr
allri starfsemi blóðbankans. Ekki
væri hægt að bæta við blóðbirgðim-
ar sem fyrir em, nema framkvæma
smitvamarpróf. Slíkt væri ekki hægt
nema kafla út neyðarvakt og væri
ekki gert nema í algerum neyðartil-
fellum.
Samkvæmt þessu er ljós að á
sjúkrahúsunum verða ekki fram-
kvæmdar aðrar skurðaðgerðir en
þær sem falla undir bráðatilfelli.
S.dór
Skoðaðu Renault bílana um helgina,
Þeir eru á tílboðsverði.
Um helgina synum við Renault
bíla af árgerð 1988 og
1989, sem nú eru fáanlegir á
tilboðsverði.
Við bjóðum þér allt að 18
mánaða greiðslukjör.
Lágmarksútborgun í Renault 5
er aðeins 100 þúsund krónur.
Leggðu dæmið fyrir þig!
Það er einfalt mál að semja
við okkur!
RENAULT
18 mánaða greiðslukjör
OPID LAUGARDAG FRA
13—17.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 686633
!