Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1989, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989.
Mannréttinda-
brot í Rúmeníu
gagnrýnd
- fulltrúar Islands gagnrýnir
Fulltrúar íslands ásamt fulltrúum
Kanada, Frakklands, Sviss og Spánar
gagnrýndu harðlega meint mann-
réttindabrot yfirvalda í Rúmeníu á
ráðstefnu um mannréttindi er hófst
í París í gær.
Gagnrýnin kom í kjölfar frétta um
að einri helsti andófsmaður Rúme-
níu, Doina Comea, hefði orðið fyrir
alvarlegum barsmíðum af völdum
öryggislögreglu á meðan hún var í
stofufangelsi.
Talsmaður mannréttindasamtaka
Rúmeníu skýrði frá því að Cornea
hefði þurft að leita sér læknishjálpar
eftir barsmíðamar. Comea hefur
verið mjög gagnrýnin á stjórnar-
stefnu Ceausescu, forseta Rúme-
níu,m og hefur hvatt Vesturlönd til
að samþykkja efnahagslegar þving-
anir á Rúmeníu.
Rúmensk yfirvöld voru einnig
gagnrýnd á ráðstefnunni í gær fyrir
þá ákvörðun að jafna við jörðu þús-
undir ungverskra þorpa.
Fulltrúi Rúmeníu munu ávarpa
ráðstefnugesti í dag, miðvikudag.
Hans er að réttlæta þá ákvörðun
rúmenskra yfirvalda að skrifa undir
samþykktir ráðstefnu um öryggi og
samvinnu í Evrópu, en sú ráðstefna
var haldin í janúar síðasthðnum,
með þeim fyrirvara að yfirvöld þar
í landi væru ekki háð ákvæðum um
mannréttindi.
í ráðstefnu þessari taka þátt 35
þjóðir en hún er sú fyrsta af þremur
sem haldnar verða næstu þijú ár.
Munu þær fjalla um mannréttindi í
ljósi samskipta austurs og vesturs.
Næsta ráðstefna mun fara fram í
Kaupmannahöfn að ári en árið 1991
munu Sovétmenn verða gestgjafar.
Reuter
Hætta framkvæmdiim
V-þýsk orkufyrirtæki tilkynntu í
gær að framkvæmdir við byggingu
endurvinnslustöðvar fyrir kjam-
orkuúrgang yrðu stöðvaðar tíma-
bimdið. Fyrirtækin sögðu að fram-
kvæmdir yrðu ekki stöðvaðar að
fullu. Margir telja þó, þrátt fyrir yfir-
lýsingar fyrirtækjanna, að þessi
ákvörðun þýði í raun að fram-
kvæmdir við hina 4 milljarða dollara
stöð, sem staðsett er í Wackersdorf í
Bæjaralandi, stöðvast. Wackers-
dorf-stööin hefði verið. sú fyrsta
sinnír tegun<far í V-Þýskalandi.
Umhverfisvemdarsamtök fógnuðu
ákvörðun fyrirtækjanna. Mikil átök
hafa oft brotist út á byggingarstað
vegna mótmæla umhverfisvemdar-
sinna.
Rúmlega milljarði dollara hefur
þegar verið varið til framkvæmda
stöðvarinnar.
Ákvörðun fýrirtækjanna mun
leiða til þess að Frakkar og Bretar
muni þurfa að aðstoða V-Þjóðverja
við endurvinnslu kjarnorkuúrgangs.
Reuter
Fleiri ásakanir um misferli
Birgir Þórissan, DV, New York:
Enn einn forystumanna demó-
krata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings
situr nú undir ásökunum um fjár-
málamisferh. Fiölmiðlar bám í gær
ónafngreindar heimildir í dóms-
málaráðuneytinu fyrir því að rann-
sókn standi yfir á launagreiðslum á
skrifstofu Wilhams Grey sem er
tjórði maður í virðingarröð þing-
flokks demókrata.
Grey brást hinn versti við og kall-
aði þetta svívirðilegar lygar. Hann
krafðist þess að dómsmálaráðuneyt-
ið gerði hreint fyrir sínum dyrum og
kæmist til botns í því hver stæði fyr-
ir söguburðinum sem hann vill
meina aö tengist framboði hans til
stöðu þriðja æðsta manns þing-
flokksins sem losnaði er Tony Coelho
sagði af sér fyrir helgi vegna vafa-
sams fjármálavafsturs. Grey hefur
verið mest áberandi svartra þing-
manna og einkum látið fjármál tíl sín
taka.
Ekkert lát virðist á hneykshsmál-
um að sinni. Gingrich, varaleiðtogi
þingflokks repúblikana, sem mest
hefur borið sakir á demókrata, segist
vita af um um það bil tug þingmanna
sem ekki hafi hreint mjöl í pokahom-
inu. Demókratar hafa svarað fyrir
sig með ásökunum á hendur
Gingrich.
Á meðan þessu fer fram bíða menn
spenntir eftir því hvað Wright þing-
forseti tekur til bragðs. Enginn veit
fyrir víst hvað hann ætiast fyrir.
Wright sagði í gær að hann myndi
gera það sem væri sér og þinginu
fyrir bestu og túlkuðu flestir það sem
merki um að hann myndi segja af
sér. En aðrar sögur hermá að Wright,
sem er maður sauðþrár, hyggist beij-
ast til þrautar.
Utlönd
í gær hófst f Parfs ráöstefna um mannréttindi. íslendingar eru meðal þátttökuþjóða. Símamynd Reuter
HEMLÁHLUTIR í VÖRUBÍLA
• Hemlaborðar í alla
vörubíla.
• Hagstætt verð.
• Betri ending.
®]Stilling
Skeifunni 11,108 Reykjavík
Símar 31340 & 689340
Væntanlegir keppendur geta fengið allar upplýs-
ingar í síma 652743 nk. fimmtudagskvöld milli kl.
21 og 23. Keppendur mæti fyrir kl. 12 á keppnis-
dag.
Keppnin er háð þurru veðri.
Dalshrauni 1 - Hafnarfirði
Fundir mánudags- og fimmtudagskvöld
M. 21-23, sími 652743.
FERÐATILBOÐ SUMAFSINS!
AMSTERDAM
1-3 víkna Evrópuferðír
frá kr.
Nánari upplýsingar hjá söluskrif-
stofum Arnarflugs,
umboðsmönnum og ferðaskrif-
stofum.
Síðastí söludagur
Símar 84477
623060
* Staðgreiðsluverð fyrir
2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára, og bíl í A-flokki í viku.