Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1989, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989.
25
Sviðsljós
Þarna situr nýrikasti maðurinn á Selfossi, Viðar Bjarnason heildsali, ásamt konu sinni,
Eygló Gránz. Þau hjónin drifu sig bara með sófasettið í Galtalækjarskóg, svona til að
hafa þetta dálítið heimilislegt.
Þorvaldur Guðmundsson, kennari frá Selfossi, grillar ofan í fjölskylduna i góðviðrinu i
Galtalækjarskógi. Fyrir aftan hann er sonur hans að teyga ferskt fjallavatn úr rauðvínsflösku.
DV-mynd K.E. Selfossi
Ekki bara fyllirí og
biðraðir á kamra
Það var geysilegur fjöldi fólks
semlagði land undir fót um helgina
og skellti sér á útihátíðir. Nóg höf-
um við frétt af þeim sem skvettu
kannski of ærlega úr klaufunum
er í sveitasæluna var komið. Af
öllum hinum, sem fóru í ósköp
venjulega útilegu með gítarinn,
tjaldið og grilhð, hefur htið frést.
Hér koma nokkrar svipmyndir af
hressum ferðalöngum sem fengu
hið ágætasta yfirlit yfir íslenska
veðráttu um helgina. Sem sagt sól-
skin, rigningu, rok, þoku og súld.
-gh
„Allt sem við viljum er friður á jörð.“ Þau minna óneitanlega á blómabörnin fyrir tuttugu árum, þessi ung-
menni sem tóku lagið í brekkunni í Húnaveri. DV-mynd KAE
Þessar stelpur, sem voru á þjóðhátíð í Eyjum, voru vel gallaðar og fundu
því lítið fyrir rokinu og rigningunni þegar verst lét. DV-mynd Ragnar S.
Sunnlenska
sumarveðrið
lætur ekki
að sér hæða
Þau voru afslöppuð við veiðarnar,
þessi tvö, þar sem þau sátu við ósa
Ólfusár síðastliðinn föstudag. Hafði
veiðin verið nokkuð góð fyrir há-
degi. En nú voru fiskarnir sjálfsagt
að hvíla lúin bein rétt eins og veiði-
garparnir.
Segja sumir að þeim opnist nýr
heimur við það eitt að aka nýju
brúna yfir ósana, shk er náttúrufeg-
urðin á þessu svæði. Þarna er ágætis
aðstaða til veiða, svo ekki sé talað
um hina víðáttumiklu fjöru en þang-
að getur verið tílvahð að fara í
sunnudagsbíltúmum.
Hin nýja leið er kærkomin tilbreyt-
ing frá hinum hefðbundna Þingvaha-
hring sem íbúar suðvesturhornsins
eru sjálfsagt sumir hveijir orðnir
nokkuð leiðir á.
Náttúrufegurð er mikil við ölfusárósa
DV-mynd Ragnar S.