Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1989, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1989. 35 Afmæli Vilhjálmur Hjálmarsson Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrv. ráðherra, Brekku í Mjóafirði, varð sjötíu og fimm ára í gær. Vilhjálmur fæddist að Brekku og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni 1935 og var bóndi á Brekku 1936-67. Þá var hann kennari í Mjóafirði 1936-47 og skólastjóri 195&-67. Auk starfa sinna við landbúnaðar- og skólamál haíði Vilhjálmur verk- stjórn við vegavinnu, stundaði síld- arsöltun í Mióafiröi og var oddvití Mjóafja^öarhrepps 1950-78. Vilhjálmur sat í hreppsnefnd Mjóaíjarðarhrepps frá 1946, var sýslunefndarmaður frá 1962-88, í stjóm Sambands sveitarfélaga á Austurlandi frá 1980-83 og formaður þar frá 1981-83, formaður og gjald- keri Sjúkrasamlags Mjóafjarðar frá stofnun 1945 og til loka, bókavörður Lestrarfélags Mjófirðinga frá 1928 og lengi formaður, í stjórn Ung- mennafélagsins um hríð, í stjóm Búnaðarfélags Mjóaflarðar frá 1948 og Ræktunarfélagsins meðan það starfaði, í stjórn Stéttarsambands bænda 1963-74 og fúlltrúi Suim- mýlinga á aðalfundum frá stofnun og lengst af til 1967, í Framleiðslu- ráði 1963-84 og í verðlagsnefnd land- búnaðarvara 1965-72. Hann sat í stjóm Framsóknarfélags Mjóaíjarð- ar og var um hríð formaður Kj ör- dæmissambands framsóknar- manna á Austurlandi. Þá var hann formaður skólanefndar Húsmæðra- skólans á Hallormsstað 1953-74, for- maður Menningarsjóðs félagsheim- ila frá 1980-87, var formaður Út- varpsráðs 1980-83 og sat í Kirkjuráði frá 1976-82. Vilhjálmur hefur setið í fjölda stjómskipaðra nefnda sem fjallað hafa um iún ýmsu málefhi landbúnaöarins. Hann var alþingis- maður 1949-56, sat sumarþing 1959, var varaþingmaður Austurlands- kjördæmis 1959-67 og alþingismað- ur þess l%7-79. Þá var hann menntamálaráðherra 1974-78. Vilhjálmur kvæntíst 12.12.1936 Önnu Margréti Þorkelsdóttur hús- móður, f. 15.2.1914, dóttur Þorkels Bjömssonar, verkamanns á Seyðis- firði, og Helgu Ólafsdóttur. Böm Vilhjálms og Önnu Margrét- ar eru Hjálmar, f. 1937, fiskifræðing- ur í Reykjavík, á fjögur börn, kvænturKolbrúnuSigurðardóttur ' kennara; Páll, f. 1940, skipstjóri á Seyðisfirði, á fimm böm, kvæntur Kristínu Gissurrardóttur húsmóð- ur; Sigfús, f. 1944, h. á Brekku, á íjög- ur böm, kvæntur Jóhönnu Láras- dóttur húsfreyju; Stefán, f. 1949, matvælafræðingur á Akureyri, á tvö böm, kvæntur Helgu Frímanns- dóttur kennara, og Anna, f. 1954, handavinnukennari og húsmóöir á Selfossi, á þrjú böm, gift Garðari Eiríkssyni bankaútíbússtjóra. Þá eru langafabörn Vilhjálms orðin áttatalsins. Foreldrar Vilhjálms vom Hjálmar Vilhjálmssonar, útvegsbóndi á Brekku, og kona hans, Stefanía Sig- urðardóttír frá Hánefsstöðum í Seyðisfirði. Stefanía var systir Bjargar, móður Árna, útvegsb. á Hánefsstöðum, fóð- ur Tómasar seðlabankastjóra, Vil- hjálms hrl. og Margrétar, móður Valgeirs Guðjónssonar tónhstar- manns. Björg var einnig móðir Hjálmars, fyrrv. ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu, foður arki- tektanna, Helga og Vilhjálms. Þá var Björg móðir Þórhalls, afa Snorra Sigfúsar Birgissonar tón- skálds, Hermanns, afa Lilju Þóris- dóttur leikkonu, og Sigríðar, móður Vilhjálms Einarssonar skólastjóra, fóður Einars spjótkastara. Loks var Björg móðir Sigurðar kaupfélags- stjóra og Stefaníu sem lengi starfaði hjá Olíufélagi íslands. Stefanía var dóttir Sigurðar, b. á Hánefsstöðum, Stefánssonar, b. í Stakkahlíð, bróður Gunnars, afa Gunnars Gunnarssonar skálds. Stefán var sonur Gunnars, b. á Hallgilsstöðum á Langanesi, Skíða- Gunnarssonar, b. í Ási í Keldu- hverfi, Þorsteinssonar, ættfoður Skíða-Gunnarsættarinnar. Móðir Sigurðar var Þorbjörg Þórðard,óttir, b. í Kjama í Eyjafirði, Pálssonar, ættfoður Kjamaættarinnar, langafa Friðriks Friðrikssonar æskulýðs- leiðtoga. Móöir Stefaníu var Sigríður Vil- hjálmsdóttir, b. á Brekku, Vil- hjálmssonar, og konu hans, Guð- rúnar, systur Ragnhildar, konu Sveins Hermannssonar á Krossi. Guðrún var dóttir Konráðs Salóm- onssonar úr Lóni suður og Sigríðar Einarsdóttur. Hjálmar var sonur Vilhjálms, b. á Vilhjálmur Hjálmarsson. Brekku, Hjálmarssonar, b. og hreppstjóra á Brekku, Hermanns- sonar í Firði Jónssonar „pamfíls“. Móðir Hjálmars hreppstjóra var Sigríður Salómonsdóttir frá Vík í Lóni. Móðir Vilhjálms var María frá Jórvík í Breiðdal, dóttir Jóns Jóns- sonar í Flögu í Breiðdal og konu hans, Margrétar Jónsdóttur frá Krossi, Jenssonar. Móðir Hjálmars var Helga Halldórsdóttir Hermanns íFirði. Hólmfríður Guðjónsdóttir Hólmfríður Guðjónsdóttir frá Ármúla í Önundarfirði, Frostafold 59 í Reykjavík, er nítíu og fimm ára ídag. Hólmfríður fæddist á Þorfinnstöð- um í Önundarfirði og ólst upp þar vestra. Á fystu búskaparárum sín- um var hún í húsmennsku á ýmsum bæjum vestra, t.d. í Búö í Hnifsdal. Hún bjó í Ármúla í Önundarfirði til ársins 1947. Þá flutti hún suöur og settíst að hjá syni sínum í Nesi við Seltjörn. Síðar flutti hún til dótt- ur sinnar og býr nú hjá henni að Frostafold57. Foreldrar Hólmfríðar vora Guð- jón Sigurðsson, bóndi á Neðrihús- um í Önundarfirði, fæddur 5..nóv- ember 1865, lést 31. desember 1937, og Helga Einarsdóttir, fædd 31. des- ember 1866, látin 23. október 1938. Hún var frá Selabóli í Önundarfirði en Guðjón var ættaður úr Amar- firði. Foreldrar Helgu, móður Hólm- fríöar, voru Einar Guðmundsson og Ingibjörg Hallgrímsdóttir, búendur á Selabóh. Einar var bróðir Bern- harðs Guðmundssonar, afa Bem- harðs Guömundssonar, blaðafuh- trúa Þjóðkirkjunnar. Ingibjörg var dóttir Hahgríms Guðmundssonar og Guðrúnar Jóns- dótturThorberg. GuðrúnThorberg var dóttir Jóns Thorberg, verslun- arstjóra á Patreksfirði, og Sigríöar Þóroddsdóttur en hún var systir Þóröar, föður Jóns Thoroddsen skálds og sýslumanns, ættföður flestra Thoroddsena. Jón Thorberg var sonur Guðrúnar Hjaltadóttur og séra Þorbergs Ein- arssonar á Eyri í Skutulsfirði. Bróð- ir Jóns var séra Hjalti, faðir séra Ólafs Thorberg. Séra Ölafur var fað- ir Hjalta, föður Sigríöar, konu Jóns Jenssonar yfirdómara. Dóttir Sig- ríðar og Jóns var Ólöf Jónsdóttir Nordal, kona Sigurðar Nordal, en synir þeirra em Jóhannes Nordal seðlabankastjóri og Jón Nordal tón- skáld. Systkini Hólmfríðar voru níu en þijú þeirra dóu í frumbernsku. Þau sem upp komust em: Guðjón, fæddur 28. október 1897 og dáinn 29. mars 1980; María, fædd 19. desember 1899 og dáin 9. júní 1932; Guðbjartur, fæddur 2. febrúar 1904; Ágústa, fædd 12. ágúst 1905; Jóna, fædd 6. janúar 1907. Hólmfríður giftist 25. desember 1914 Þorgeir Eyjólfssyni, bónda, sjó- manni og síðast vaktmanni í Amár- holti. Þorgeir fæddist 24. september 1884 og lést 22. október 1879. Faðir Þorgeirs var Eyjólfur Ey- jólfsson Víum, Sigurðssonar, ættað- ur af Austurlandi. Móðir Þorgeirs var Kristín Bjömsdóttir. Móðir Ey- jólfs Eyjólfssonar var Guðný Gísla- dóttir frá Goðdal í Strandasýslu. Hún var dóttir Gísla Bjamasonar, sonar Bjarna Bjarnasonar og Guð- Hólmfriður Guðjónsdóttlr. / rúnar Egilsdóttur frá Sjöundá í Rauðasandshreppi. Hólmfríður og Þorgreir áttu fjögur böm en elsti sonur þeira er látinn. Bömin eru: Aðalsteinn, fæddur 19. janúar 1916, dáinn 26. febrúar 1987. Hann var átta bama faðir. Kristján, fæddur 21. febrúar 1918. Böm hans em fjögur. Guðmundur.fæddur 17. maí 1924. Böm hans em fimm. Þórunn, fædd 10. febrúar 1930. Böm hennar em fjögur. Ahs em afkomendur Hólmfríðar ogÞorgeirs 107. Hólmfríöur tekur á móti gestum í Sóknarsalnum, Skipholti 50A, á af- mæhsdaginn frá kl. 16 til 22. Til hamingju með aímælið 21. september 90 ára 50 ára Hermann Jónsson, Amtmannsstíg 4A, Reykjavík. Sigrún Pétursdóttir, Blómvangi 15, Hafnarfirði. Sólveig H. Ágústsdóttir, Hjahavegi 18, Reykjavík. Guðlaug Bjömsdóttir, 80 ára Guðný Bjarnadóttir, Hátúni 10B, Reykjavík. Valdemar Andrésson, Víðimýri 10, Neskaupstað. Klara Vémundsdóttir, Háaleitisbraut 103, Reykjavík. Hvassaleiti 26, Reykjavík. 40 ára Páll Eðvarð Sigurvinsson, Barónsstíg 33, Reykjavík. Ingigerður Magnúsdóttir, Ásholti 6, Mosfellsbæ. Ingunn Sigurbjömsdóttir, 70 ára Þorvaldur Þorlóksson, Húnabraut 19, Blönduósi. Bessahrauni 2, Vestmannaeyjum. Reynir K. Guðmundsson, Viðimel 21, Reykjavík. 60 ára Lárus Einarsson, Dalatanga 4, Mosfehsbæ. Kristín Magnúsdóttir, Vesturgötu 78B, Akranesi. Matthías G. Gilsson, Melgeröi, Mosfellsbæ. Jón Börkur Ákason, Fellsbraut 1, Skagaströnd. Sigurjón HaUdórsson, Sæbóh 28, Grandarfirði. Eygló Einarsdóttir, Breiðvangi 41, Hafnarfirði. Magnús Magnússon, Hagaflöt 8, Garðabæ. Þórdis Guðjónsdóttir, Lindarbrekku l, Beruneshreppi. Ingibjörg Pálsdóttir, Sævangi 37, Hafharfirði. Guðbjörg Karlsdóttir, Ölduslóð 26, Hafiiarfirði. Hún verður heima eftir kl. I4ídag. Guðrún Jóhannesdóttir Guðrún Jóhannesdóttir hús- freyja, Gránufélagsgötu 5 á Akur- eyri, er áttatíu og fimm ára í dag. Guðrún er fædd í Litla-Laugardal í Tálknafirði, dóttir Guðbjargar Vagnsdóttur og Jóhannesar Bjarna Friðrikssonar, smiðs og hónda þar. Guörún átti níu systkini en fimm þeirra eru nú látin. Þau eru: Vagn var fæddur 1903 en hann er nú látinn; Þorbjörg er fædd 2. nóv- ember 1905; Matthildur en hún er nú látin; Guðmundur sem einnig er látinn; Guðjón, faðir Hermanns Guðjónssonar vitamálastjóra og Friðriks Vagns læknis; Kristján sem nú er látinn; Páh smiður á Patreks- firði; Guðbjörg Jóhaxma lést í bemsku; Friðrika, móðir læknanna Þorkels og Friðriks Kristjáns Guð- brandssona. Eiginmaður Guðrúnar er Pálmi Friðriksson, útgerðarmaður frá Naustum á Akureyri, fæddur 29. október 1900. Hann er sonur Önnu Guðmundsdóttur og Friðriks Daní- els Guðmundssonar af Randversætt úrEyjafirði. Guðrún og Pálmi áttu fjögur börn en ein dóttir þeirra er látin. Bömin em: Jóhanna María, fædd 28. ágúst 1927. Maður hennar er Matthías Einarsson lögregluvarðstjóri. Synir þeirra era: Pálmi, sóknarprestur r Bústaðasókn, kvæntur Unni Ólafs- dóttur kennara og eiga þau eina dóttur; Stefán Einar, læknir, kvænt- ur Jónínu Benediktsdóttur íþrótta- fræðingi og eiga þau þrjú böm; Gunnar Rúnar, prestur í Bandaríkj- unum, kvæntur Arnfríði Guð- mundsdóttur presti. Andrea, fædd 10. desember 1930. Hún lést árið 1979. Maöur hennar var Bjarni Jónsson bifreiðastjóri. Börn þeirra eru: Guðrún gift Jó- hanni Hahdórssyni, Sigurðssonar ríkisendurskoðanda og eiga þau tvo syni; Rósa. Guðný Bjarna- dóttir GuðnýBjarnadóttir, Hátúni 10B; Reykjavík, er áttræð í dag. Hún tekur á móti gestum laugar- daginn 23.9. að Álfhólsvegi 88, Kópa- vogi, eftir klukkan 15.00. Guðný Bjarnadóttir. Guðrún Jóhannesdóttir. Guðbjörg, fædd 20. október 1933. Maður hennar er Gunnar Magnús Guðmundsson hæstaréttarlögmað- ur. Böm þeirra em: Hörður smiður; Bragi laganemi; Anna Guðnin hjúkrunarfræðinemi. Jóhannes, fæddur 12. júh 1944, framkvæmdastjóri Borgarspítalans. Kona hans er Jóhanna Ámadóttir skrifstofustjóri. Börnþeirraera Magný, gift Ólafi Guðgeirssyni; Guðrún; Auður. Brúðkaups- og starfsafmaeli Ákveðið hefur verið að birta á afmælis- og ættfræðisíðu DV greinar um einstaklinga sem eiga merkis brúðkaups- eða starfsafmæli. Greinarnar verða með áþekku sniði og byggja á sambærileg- um upplýsingum og fram koma í afmælisgreinum blaðsins en eyðublöð fyrir upplýsingar afmælisbarna liggja frammi á afgreiðslu DV. Upplýsingar varðandi brúðkaups- eða starfsafmæli verða að berast ættfræðideild DV með minnst þriggja daga fyrirvara. Það er einkar mikilvægt að skýrar, nýlegar andlitsmyndirfylgi upplýsingunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.