Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1989. Fréttir Þorsteinn og Davíö fengu örugga kosningu: Ekki ólíklegt að Davíð taki við formennsku - segir Þorsteinn Pálsson sem var endurkjörinn formaöur „Á þessum fundi hefur ríkt mjög góður andi og mikill vilji til sam- stöðu. Það hafa verið teknar mikil- vægar ákvarðanir og hér liggur fyrir skýr stefnumörkun. Val forystu- manna hefur farið vel fram og þeir hafa fengið ótvírætt umboð og ótví- rætt traust. Ég lít svo á að við komum miklu sterkari út úr þessum fundi heldur en við vorum fyrir hann þannig að þetta er mikill sigur fyrir okkar baráttu," sagði Þorsteinn Páls- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar hann var beðinn um að skýra mikilvægi 28. landsfundar flokksins sem lauk í gær. - En finnst Þorsteini að innkoma Davíðs hafi verið það eina rétta í stöðunni, svona eftir á að hyggja? „Fundurinn hefur tekið ákvörðun og veitt okkur traust. Eg veit að það verður tii góðs. Ég veit líka að Frið- rik Sophusson verður áfram í for- ystusveit flokksins og við munum alhr þrír saman, ásamt öðrum for- ystumönnum flokksins, takast af heOindum á við þau verkefni sem við blasa.“ - En sér Þorsteinn fyrir sér að Davíð eigi eftir að taka viö formennsku í flokknum? „Það er ekkert ólíklegt en aðalat- riði er að hér hefur verið kosin for- ysta til næstu tveggja ára.“ - Friðrik Sophusson hefur haft á orði að hann sjái Davíð fyrir sé'r sem framtíðarforystumann í flokknum. Hvað segir þú um það? „Það sé ég líka.“ Þorsteinn fékk 80% atkvæða Þorsteinn Pálsson fékk 754 atkvæði eða um 80% atkvæða við formanns- kjörið í gær. Davíð Oddsson fékk 64 atkvæöi og Friðrik Sophusson fékk 63 atkvæði. Þrír aðrir fengu atkvæði en það voru þeir Einar Oddur Kristj- ánsson, sem fékk 6 atkvæði, og Jónas Friðrik Jónsson og Matthías Bjarna- son fengu 2 atkvæði. Þorsteinn fékk 947 atkvæði þegar hann var kosinn á síöasta landsfundi. í kjöri til varaformanns fékk Davíð Oddsson 727 atkvæði eða 81,6%. Frið- rik Sophusson fékk 91 atkvæði. Davíð hinn sterki maður Frammámaður í Sjálfstæðiflokkn- um sagði að það hlyti að vekja at- hygli hve óumdeilanlega Davíö Oddssyni tókst að skipa sér í forystu- sveit flokksins á þessum fundi - svo óumdeilanlega að sitjandi varafor- maður vék úr embætti sínu til að koma Davíð aö. Það var greinilegt að landsfundur- inn varð komu Davíðs feginn enda þótti mönnum nauðsynlegt að gera einhverjar breytingar á forystusveit flokksins. Það leyndi sér hins vegar ekki að menn voru þegar famir að velta fyrir sér næsta landsfundi og stöðu formannsins þá. Bæði Davíð og Þorsteinn véku sér undan að svara spumingum um það. Eftir að kosning Davíðs lá fyrir hélt hann ræðu sem vakti mikla hrifningu landsfundargesta. Eftir að hafa rekið samskiptasögu sína og Þorsteins, sem hann sagðist hafa þekkt frá „rennblautu bamsbeini", vék hann að landsmálapólitíkinni en á því sviði var hann nánast að halda sína fyrstu ræðu: „Núverandi ríkisstjóm er óyndis- stjóm sem á fáa að. Hún hefur of- boðið þjóðinni í flestu. Á meðan öðr- um þjóðum miðar fram gengur hér allt á afturfótum. Meðan lífskjör ann- arra batna er afturfor hér. A meðan aðrir flýja miðstýringu og ofstjóm styrkjast menn í stefánskunni hér. Stiómin drepur allt í dróma og dreg- ur kjark úr þjóðinni. Við þessar að- stæður koma sjálfstæðismenn af landsfundi öflugri en nokkru sinni Miöstjómarkosning: Bnar K. efstur Síðasta verk landsfundarins var að kjósa þá 11 fulltrúa sem lands- fundurinn velur í miðstjórn. Það var Einar K. Guðfmnsson, varaþingmað- ur flokksins á Vestfiörðum, sem fékk flest atkvæði en kosningin fór þann- ig: Einar K. Guðfinnsson 670, Hreinn Loftsson 658, Sigurður Einarsson 635, Gunnar Ragnars 621, Þuríður Páls- dóttir 617, Theódór Blöndal 614, Magnús L. Sveinsson 511, Lilja Hall- grímsdóttir 493, Björn Jónasson 481, Davíð Scheving Thorsteinsson 451, Hildigunnur Högnadóttir 442. Þar næst á eftir komu þau Lára Magnúsdóttir, Guðjón Stefánsson og Jóna Gróa Sigurðardóttir. Á síöasta landsfundi fékk Davíð Oddsson flest atkvæði í miðstjóm en hann situr þar nú sem varaformað- ur, Þeir sem hætta nú í miðstjóm em Katrín Fjeldsted, Erlendur G. Ey- steinsson og Sigurður M. Magnús- son. -SMJ Þrjár konur í miðstjórn „Þó að hlutdeild okkar aukist ekki hratt þá viljum við sjá að það séu tekin einhver skref. Því er þó ekki að leyna að við hefðum viljað sjá meiri árangur á þessum lands- fundi,“ sagði Sigríður A. Þórðardótt- ir, formaður Landssambands sjálf- stæðiskvenna, en þrjár konur voru kosnar í miðstjórn á landsfundinum. Sjálfstæðiskonur höfðu sett sér það markmið aö fá fimm konur kosnar í miðstjórn. Á síðasta landsfundi vom kosnar tvær konur í miðstjórn þann- ig að það fjölgar aöeins um eina konu. - En er Sigríður ánægð með þessa niðurstöðu? • „Mér finnst þetta vera nokkuð þungur róður og það gengur óneitan- lega hægt að fá fólk til að sýna það í verki að það vilji fá konur til trún- aðarstarfa í flokknum. Það á ekki bara við um kosningu til miðstjómar heldur einnig í framboðsmálum flokksins." -SMJ Glasi var lyft að loknum landsfundi á Hótel íslandi í gærkvöldi. Hér gleðjast forystumenn Sjálfstæöisflokksins en frá vinstri má þekkja Friðrik Sophusson, Þorstein Pálsson, Ástríði Thorarensen sem situr á móti eiginmanni sín- um, Davíð Oddssyni, Ingibjörgu Rafnar, eiginkonu Þorsteins, og Sonju Backman, eiginkonu Birgis ísleifs Gunnars- sonar. DV-mynd GVA Var settur í óþægilega stöðu - segir Friörik Sophusson um framboð Davíðs Oddssonar „Ég held að staða mín sé ákaflega sterk. Ég er engan veginn hættur í pólitík, þvert á móti ætla ég herða róðurinn og það er engan bilbug að flnna í þeim efnum,“ sagði Friðrik Sophusson sem um helgina lét af embætti varaformanns Sjálfstæðis- flokkins þegar hann var spurður að því hver staða hans væri nú í Sjálf- stæðisflokknum. „Það hefur orðið gjörbreyting á flokkunum á síðustu átta ámm. Þeg- ar ég kem inn sem varaformaður 1981 var þáverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins forsætisráð- herra í ríkisstjóm sem formaðurinn var í andstöðu yiö og stjómaði flokknum þannig. Á þeim tíma hafa allir samstarfshættir forystumanna í Sjálfstæðisflokknum gjörbreyst. Ég tók þá stefnu strax í upphafi að starfa fast við hlið þeirra formanna sem ég hef starfað með, þeirra Geirs Hall- grímssonar og Þorsteins Pálssonar. Eg held að það hafi breytt hugmynd- um manna um forystu flokksins sem auövitað kallar fram kosti og galla." - Finnst þér að þessi störf þín hafi skilað sér nóg til þín persónulega? „Mitt starf hefur að stómm hluta legiö í félags- og flokksstarfinu. Það er mörgum utanaðkomandi ósýni- legt. Hins vegar hefur þaö veitt mér gífurlega reynslu og ég hef kynnst því fólki sem dregur vagninn í flokksstarfseminni um allt land. Ég hef fundið fyrir þvi á þessum fundi að þetta fólk vill styðja mig og gerir það hvenær sem er. Það er hins veg- ar rétt að það skilar sér kannski ekki eins úti í þjóðlífmu þetta innra starf.“ - Finnst þér þú hafa gert persónu- leika þinn og málstað nógu áberandi í starfi flokksins? „Ég hef reynt að gera það en þeir sem em forystumenn svokallaðir, formaður eða varaformaður, finna ávallt fyrir því að hvað sem þeir segja verður talin vera stefna flokksins. Því má segja að þeir hafi ekki sama tækifæri og frelsi og aðrir til að segja sínar einkaskoðanir." - Ákvörðun Davíðs um að sækjast eftir framboði - kom hún þér á óvart? „Mér varð ljóst á fimmtudags- kvöldiö hvert stefndi og þá átti ég ágætar viðræöur við Davíð Oddsson og síöan tilkynnti hann framboð sitt daginn eftir. Það er alveg rétt að þetta var óþægilega seint - ekki síst þegar það er haft í huga að ég hef Utið á Davíð Oddsson sem foringjaefni í þessum flokki og vil á engan hátt standa í vegi fyrir því að hann fái brautargengi í flokknum. Þess vegna var ég settur í óþægilega stöðu og lá yfir málinu í einn sólarhring þar til ákvörðun mín lá fyrir." Heföi gert liðskönnun - Nú hefur því verið haldið fram að þú hafir lent í svipaðri aðstöðu við formannskjörið 1983. Hefðir þú bar- ist harðar fyrir endurkjöri ef þú hefð- ir vitað af mótframboði fyrr? „Ef þetta heíði gerst nokkrum mánuðum fyrr hefði ég ugglaust látið fara fram verulega liðskönnun áður en ég tók ákvörðun mína en auðvitað gefst ekkert tækifæri til þess þegar þessi staða kemur upp á sjálfum fundinum. Ég skal ekkert um það segja hver niðurstaðan hefði orðið ef þetta hefði legið fyrir á þeim tíma.“ - Hver verður þín staða í Sjálfstæð- isflokknum núna? „Ég minni á að Þorsteinn Pálsson sagði hér í ræðu að hann vildi að ég yrði áfram í æðstu forystusveit flokksins og Davíð Oddsson talaði við mig eftir ákvörðun mína og sagði þá að hann vildi aö við gætum staðiö saman áfram. Ég veit að þaö verður tekið verulegt tillit til sjónarmiða minna.“ - Voru samningar gerðir? „Það hafa engir samningar verið gerðir enda eru samningar um slík atriði í póhtík einskis virði. - Er þínum pólitíska metnaði full- nægt? „Mér finnst ég rétt að byija. Ég er í nýju hlutverki og þar er ég fijáls og ég er ákveðinn í að berjast fyrir mínum málum.“ -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.