Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1989.. íþróttir • ítalir höfðu æma ástæðu til að (agna um síðustu helgi en þá unnu þeir Evrópumótið í blaki i (yrsta sinn í 40 ára sögu þess. Simamynd Reuter Pyrsti tttlll Itala - unnu Evrópumótið í blaM í fyrsta sinn ítalir unnu sinn fyrsta Evróputit- il í blaki á dögunum. Lögöu þeir þá iiö Svía aö velli í úrslitum í Stokkhólmi. Leikur þjóðanna var mjög skemmtilegur en lyktir urðu 3-1 (14-16, 15-7, 15-13 og 15-7). Það var snjallasti leikmaður ít- ala, Andrea Zorsi, sem átti síðasta skellinn í leiknum. Viðureignin hafði þá staðið yfir í eina klukku- stund og fimmtíu mínútur. Fram til þessa hefur Austur- Evrópuþjóð ávallt tekið krúnuna í keppninni en hún hefur nú veriö haldin í 40 ár. Að þessu sinni komst hins vegar engiim fulltrúi Austur- Evrópu á verðlaunapall. Sovétmenn voru álitnir sigur- stranglegastir áður en keppni hófst en þeir töpuðu fyrir Svíum í undan- úrslitum og máttu síðan lúta í lægra haldi fyrir Hollendingum í viöureign um bronsið. Leikar fóru 3-0, Holiendingum í vil (15-11,15-6 og 15-7). -JÖG • Ólafur Unnsteinsson og Jóhann Jónsson hafa verið mjög atkvæðamiklir á öldungamótum, innanlands sem utan, á þessu ári. Tvö sundmet sett í Hafnarfjarðarlaug Eins og DV hefur sagt frá, voru sett tvö íslandsmet á unghngasund- móti Grundarkjörs sem haldið var í Sundhöll Hafnarfjaröar laugardag- inn 30. september. Boösundssveit pilta úr Aftureldihgu synti 8x50 metra skriðsund á 3:47,19 mínútum og Lilja María Snorradóttir, SH, synti 100 metra baksund stúlkna í flokki fatlaðra á 1:26,06 mín. Önnur úrslit á mótinu urðu sem hér segir: 100 m bringusund stúlkna: 1. Bima Bjömsdóttir, SH.....1:18,12 2. Hugrúní. Jónsdóttir, UMSB.1:24,87 3. Elín Sigurðardóttir, SH..1:25,15 100 m skriðsund pilta: 1. Geir Birgisson, UMFA.....0:59,15 2. Alfreð Harðarson, SH.....1:00,00 3. Kristján Sigurðsson, UMFA .1:002,9 100 m bringusund telpna: 1. Kristianna Jessen, USVH..1:24,25 2. Erla Sigurðardóttir, SH..1:26,74 3. Hólmfríður Guðmd., UMSB..1:26,85 100 m skriösund drengja: 1. Valtýr Sævarsson, SH.....1:05,20 2. Örvar Þorsteinsson, SH...1:08,67 3. Ólafur Hannesson, UMFA....1:10,00 100 m baksund stúlkna: 1. Elín Sigurðardóttir, SH..1:13,98 2. Birna Björnsdóttir, SH...1:16,50 3. Hugrún í. Jónsdóttir, UMSB.1:24,52 100 m bringusund pilta: 1. Kristján Sigurðsson, UMFA.1:15,52 2. Sölvi Már Sveinsson, SH..1:16,16 3. Geir Birgisson, UMFA.....1:20,30 100 m skriðsund telpna: 1. Kristianna Jessen, USVH..1:06,46 2. Jóhanna B. Gíslad., Árm..1:06,62 3. Dagný Kristjánsdóttir, Arm. 1:06,66 100 m bnngusund drengja: 1. Þorvaldur Árnason, UMFA..1:23,31 2. Valtýr Sævarsson, SH.....1:23,33 3. Jón Oskar Jónsson, SFS...1:27,91 4x50 m fjórsund stúlkna: 1. A-stúlknasveit SH.......2:17,82 2. A-telpnasveit SFS.......2:22,17 4x50 m fjórsund pilta: 1. A-piltasveitUMFA........2:06,38 2. A-piltasveit SH.........2:11,21 • Sigurjón Hákonarson með viðurkenningar sínar. Til vinstri er Kristján Bernburg, stjórnadi skólans, og til hægri Wlodek Lubanski, aðalþjálfari. Sigurjón bestur á öðru námskeiðinu - í knattspymuskóla KB í Lokeren Sigurjón Hákonarson úr Val var valinn besti leikmaðurinn á öðru námskeiðinu í Knattspyrnuskóla KB sem fram fór í Lokeren í Belgíu dag- ana 28. ágúst tii 5. september. Eins og fyrsta námskeiðið, sem fram fór í maíbyrjun, tókst þetta mjög vel. Knattspyrnunámskeiðin eru hald- in í samvinriu við 1. deildar félögin Lokeren og Beveren. Beri einhver einstaklingur af á þeim er honum boðið til Belgíu á kostnað félaganna til æfinga í tvær vikur. Yfirkennari er Wlodek Lubanski, fyrrum leik- maður Lokeren og núverandi þjálfari hjá félaginu. Hann er fyrrum pólskur landsliðsmaður og þótti einn snjall- asti knattspyrnumaður í Evrópu á sínum tíma. Stefnt er að því í framtíðinni að vera með 10-15 unga knattspyrnu- menn á hverju námskeiði til að betur verði hægt að sinna hverjum og ein- um. Þá er áætlað að flokka nám- skeiðin niður, annars vegar í mjög sterk námskeið og svo í opin nám- skeið fyrir alla. Það er íþróttadeild Samvinnu- ferða-Landsýnar sem er umboðsaðili fyrir skólann hér á landi og gefur nánari upplýsingar um hann. -VS Jóhann setti tvö íslands- met á kastmóti Víðis - Valbjöm Þorláksson setti einnig met á mótinu Hinn 71 árs gamli Jóhann Jónsson úr Víði í Garði setti tvö íslandsmet í 70 ára flokki á kastmóti Víðis sem fram fór um síðustu helgi þar syöra. Hann kastaði kringlu 36,58 metra og kúlu 11,06 metra. Jóhann er mjög íjölhæfur og varð í sumar heims- meistari í sínum aldursflokki. Valbjörn Þorláksson, KR, setti is- landsmet í 55 ára flokki á sama móti, kastaði kringlu 44,70 metra og kúlu 12,60 metra. Þá kastaði Ólafur Unn- steinsson, HSK, kringlunni 46,58 metra sem er árangur á heimsmæli- kvarða í 50 ára flokki. Ólafur á þriðja besta heimsárangurinn i þessum flokki í ár, 49,10 metra, sem er jafn- framt íslandsmet. Elías Sveinsson, IR, kastaði kringlu 45,26 metra í 35 ára flokki á mótinu og meðal keppenda í 60 ára flokki voru Hallgrímur Jónsson, HSÞ, sem setti íslandsmet í kringlukasti á þessu ári, 46,80 metra, og Marteinn Guöjónsson, ÍR, sem hefur kastað 40,72 metra í ár. -VS • Kristján Bernburg i hópi þeirra sem hlutu viöurkenningar á námskeiði númer tvö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.