Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 44
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1989.
44
Jarðarfarir Tónleikar
Sigríður Ingimundardóttir frá Læk,
er lést á Elliheimilinu Grund hinn
3. október sl., verður jarðsungin mið-
vikudaginn 11. október kl. 13.30 frá
Aðventukirkjunni við Ingólfsstræti.
Útfbr Sigfúsínu Halldóru Benedikts-
dóttur frá Hesteyri, verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag, 9. október, kl.
15.
Oddný Pétursdóttir hjúkrunarkona,
til heimilis í Dvaiarheimilinu Selja-
hhð, verður jarðsungin í dag, 9. okt-'
óber, kl. 13.30 frá Seljakirkju.
Útfór Einars Stefáns Einarssonar fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudag-
inn 10. október kl. 13.30.
Pétur Þorvaldsson lést 1. október sl.
Hann fæddist í Reykjavík 17. janúar
1936, sonur hjónanna Láru Péturs-
dóttur og Þorvalds Sigurðssonar.
Pétur lauk námi í sellóleik frá Tón-
hstarháskólanum í Kaupmannahöfn
1960. í nokkur ár starfáði hann með
Borgarhijómsveitinni í Árósum.
Árið 1965 kom hann th íslands og
starfaði eftir þaö með Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Pétur kenndi við Nýja
tónhstarskólann í Reykjavík og víð-
ar. Eftirlifandi eiginkona hans er
Björg Erla Steingrímsdóttir. Þeim
hjónunum varð fjögurra bama auð-
ið. Útfor Péturs verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
' Svanhvít Þorgrímsdóttir lést 1. okt-
óber. Hún fæddist hinn 21. september
1930 í Vestmannaeyjum. Foreldrar
hennar voru Ágúst Þorgrímur Guð-
mundsson og Guðný Pálsdóttir.
Svanhvít fluttist til Reykjavíkur árið
1950 og vann um árabh í Sælgætis-
gerðinni Opal, einnig vann hún lengi
hjá Reykjavíkurborg. Unnusti henn-
ar var Pétur Þorfinsson, en hann lést
eftir þriggja ára sambúð. Svanhvít
lætur eftir sig tvo syni. Útfor hennar
verður gerð frá Háteigskirkju í dag
1- 15.
Tónleikar í Norræna húsinu
Nk. þriðjudag, 10. október, munu þjónin
Almita og Roland Vamos halda tónleika
í Norræna húsinu. Tónleikarnir hefjast
kl. 20.30. Þar munu þau leika verk fyrir
fiðlu og lágfiðlu, eftir Hándel, A. Rolla
og W. A. Mozart. Einnig mun Guðný
Guðmundsdóttir konsertmeistari leika
með í einu verki, Terzetto op. 74 fyrir
tvær fiðlur, og lágfiölu eftir A. Dzorak.
Tónleikarnir eru nokkurs konar lokaat-
riði á námskeiði fyrir strengjakennara
og nemendur, sem íslandsdeild ESTA
stendur fyrir og Vamos-hjónin leiðbeina
á. ESTA er skammstöfun fyrir Evrópu-
samband strengjakennara (European
String Teachers' Asscociation) og hefur
íslandsdeild þessara samtaka verið til í
rúman áratug.
Ti3kyimingar
Flóamarkaður
verður í sal Hjálpræðishersins, Kirkju-
stræti 2, nk. þriðjudag og miðvikudag.
Opið frá kl. 10-17 báða dagana. Mikið
úrval af góðum fatnaði á góðu verði.
Friðarömmur
halda fund á Hótel Sögu í dag, 9. októb-
er, kl. 20.30. Á dagskrá er m.a.: Ragna
Steinunn Eyjólfsdóttir les úr nýrri bama-
bók sinni sem hún hefur tileinkað frið-
arömmum. Vetrarstarfið rætt. Allar
ömmur velkomnar.
Félagsráð Hauka
Aðalfundur félagsráðs Hauka, Hafnar-
firði, verður haldinn í félagsheimilinu,
Haukahúsinu, Flatahrauni, laugardag-
inn 14. október nk. kl. 14. Dagskrá: 1.
Venjuleg aðalfundarmál. 2. Önnur mál.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, sonur og tengdasonur
Ásgeir Gunnarsson
Garðaflöt 21, Garðabæ
lést á heimili sínu föstudaginn 6. október.
Guðlaug Konráðsdóttir Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir
Gunnar Ásgeirsson Valgerður Stefánsdóttir
Konráð Gíslason Guðrún Svava Guðmundsdóttir
KULDASTIGVEL
Loðfóðruð kuldastígvél „moon-boots“. Stærðir
23-34. Litir: blár, rauður og grænn. Verð 1.880.
Stærðir 35-41. Litur: grár. Verð 2.790.
Stærðir 41-46. Litur: svartur. Verð 2.790.
Ath. Spariskór karlmanna í stæröum 41-47.
PÓSTSEftDUM
OPIÐ LAUGARDAGA 10-14
É »MIH UlUt
Laugaveg 95 S. 624590
Kvenfélag Breiðholts
Fyrsti fundur vetrarins verður þriðju-
daginn 10. október kl. 20.30 í kirkjunni.
Rætt verður um vetrarstarfið.
ITC deildin Kvistur
heldur 223. deildarfund sinn í kvöld,
mánudag 9. október, kl. 20 í Holiday Inn
hótelinu. Stef fundar: í lygnu vatni er
lengst til botns.
2. félagsfundur
JC Súlna
verður haldinn að Aðalstræti 54 þriðju-
daginn 10. október 1989 kl. 20.30.
Nauðungaruppboð
3ja og síðasta á jörðinni Hruna II A, Hörgslandshreppi, þingl. eign Einars
Þórðar Andréssonar, fer fram á eininni sjálfri þriðjud. 10. okt. '89 kl. 18.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Byggingarsjóður ríkisins og Jón Eiríksson hdl.
Sýslumaður Vestur-Skaftafellssýslu
Nauðungaruppboð
3ja og síðasta á fasteigninni Víkurbraut 21 A, Vík í Mýrdal, þingl. eign
Sláturhússins Vík hf„ fer fram á eigninni sjálfri þriðud. 10. okt. '89 kl. 17.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Ingólfur Friðjónsson hdl., Ingimundur Einarsson
hdl. og Innheimt. ríkissjóðs.
Sýslumaður Vestur-Skaftafellssýslu
Merming
Mjúkur marmari
- um sýningu Þóris Barðdal í Galleríi Sævars Karls
Trúin er ekki áberandi þáttur í nútímalistum, í það
minnsta ekkert í líkingu við það sem tíðkaðist á mið-
öldum. Þó virðist hlutur trúarinnar fara vaxandi með
þeirri auknu áherslu á andarækt og heilunarlíferni
sem gætt hefur á undanfömum árum. Skyggnigáfa
hefur alltaf átt athvarf innan listarinnar og margir
dulspekingar era fremur viðurkenndir sem myndlist-
armenn heldur en vísindamenn á andlega sviðinu.
Einn þeirra er Austin Osman Spare (1888-1956). Hann
gaf þá yfirlýsingu að gildi listarinnar væri ekki síst
fólgiö í því að með hennar hjálp mætti andmæla hvaða
vísindalögmáli sem væri. Jafnvægi í listum væri af-
stætt hugtak því slæm list væri einnig góð að því leyti
að hún gæfi frumleikanum aukið svigrúm. Raun-
verulega slæm list væri þó fyrst og fremst tilkomin
af utanaðlærðum lögmálum í myndbyggingu sem
gerðu oft ekki annað en að hefta framrás hinnar sjálf-
ráðu teikningar. Raunveruleikinn kæmi ekki í ljós
fyrr en lögmálamúrinn væri brotinn og hverjum og
einum yrði ljóst að allir væru gæddir sköpunargáfu
sem ætti að fá að njóta sín. Austin Osman Spare auðg-
aði sköpunarmátt sinn með „sjálfráðri teikningu" þar
sem aldrei er hægt að afskrifa að skyggnigáfa búi að
baki, þó Spare hafi ekki gengið út frá þeim forsendum.
Það gerði hins vegar Hilma av Khnt sem á síðasta ári
átti verk í sölum Listasafns íslands. Hennar list var
byggð á skyggnigáfunni og leiddi til einhvers sem
nefna mætti andlega strangflatarlist.
Sjálfsafneitun
Þórir Barðdal, sem til þriðjudagsins 11. október sýn-
ir verk sín í Galleríi Sævars Karls við Bankastræti,
telur sig að vísu ekki búa yfir skyggnigáfu en verk
hans minna samt sem áður í mörgu á hin andlegu
tákn Hilmu av Klint. Þetta eru spíralar og symmetrísk
form sem hríslast gjaman upp á við og enda í spíss.
Þórir virðist að miklu leyti líta á list sína sem ákveðna
sjálfsafneitun. Líkt og búddamunkur slípar vilja sinn
slípar Þórir marmarann þar til engan hnökra er að
finna. Marmaraskúlptúrar Þóris eru ekki síst snerti-
list; vitnisbúrður um þá „gullgerðarlist“ sem er í
mannlegu valdi - að breyta efniseigindum hins harða
og kalda í mýkt sem yljar. Sé þetta meginmarkmið
Þóris hefur hann haft erindi sem erfiði í myndum eins
og „Óm“, „Hún“, „Samband" og „Prana“.
„Lilja", verk eftir Þóri Barðdal.
MyncUist
Ólafur Engilbertsson
Friöur og jafnvægi
Þaö er þó miklu frekar í verkinu „Lilja“ sem reynir
eitthvað á þátt frumleikans í listamanninum Þóri
Barðdal. Þar teflir hann saman tré og marmara á út-
sjónarsaman hátt. Friður og jafnvægi eru afstæð hug-
tök í listum eins og Austin Osman Spare benti á. Lista-
verk á sýningu er friðsemdin uppmáluð hvort sem það
inniheldur fjaðrafok eða dúnalogn. Listamaðurinn
heyr styijöld við efnið og niðurstaðan verður alltaf
hvort tveggja; friður og ný styxjöld. Það er nefnilega
undir áhorfandanum komið hvort hann getur myndað
þau symmetrísku tengsl við myndefnið sem þarf til
þess að jafnvægi náist. Listaverkið sjálft hlýtur aö
vera aðeins hálfsögö saga því það er einskis virði án
áhorfandans. Þóri Barðdal er því alveg óhætt að veita
meiri andstæöum inn í verk sín án þess að eiga það á
hættu að koma róti á eitthvað annað en sköpunar-
kraft sýningargesta sinna.
Fjölmidlar
Seinastir með fréttimar
Ef maður fylgist með fleiri fjöl-
miðlum en bara þeim íslensku fer
ekki hjá því að sumar fréttir verði
leiðigjamar þegar þær komast loks
á sjónvarpsskjáinn. Seinustu þijár
vikur hefur getið að líta öðruvísi
fréttir frá Sovétríkjunum. Þar hafa
veriö á ferli hundruö ungmenna frá
Norðurlöndunum og hvekkt þar-
lend yfirvöld með ábyrgöarlausu
atferli.
í því mikla landi eiga menn ekki
að venjast kærulausum athöfnum
eins og mótmælaaðgerðum fýrir
framan kjamorkuverið í Tsémóbyl
eða rokktónleikum á Rauða torg-
inu. Enda fór svo að upphafleg lof-
orð stjómvalda um opna tónleika
á torginu enduöu í garði annars
staðar í borginm, einungis um 2000
útvöldum áhorfendum var hleypt
inn á svæðið og komust ekki nær
sviöinu en í 20 metra fjarlægð því
þar tók við mannlegur múr um
5000 hermanna.
Þama var hægt að fylgjast með
hlutunum frá fyrstu hendi þvf að
tugir íslendinga tóku þátt í þessu
öllu. En það er fyrst núna, þegar
fóHtíð er komið heilu og höldnu til
baka, sem talað er við það, Frétta-
skotið frá Café Krasnapolsky í
Kaupmannahöfn sýndi að þetta
fólk hefur frá mörgu að segja.
Kannski á að bíða nokkur ár svo
að hægt sé að fá fólkið í stúdíó og
það geti sagt: „Sko, þegar ég var
úti í Sovétríkjunum... “
Sem minnir svo aftur á rússnesk-
ar kosningar. í uppgjöri sinu eftir
landsfundinn var ekki annað séö
en aö Ingimar Ingimarsson færi
óvenju mjúkum höndum um Þor-
stein Pálsson enda nýtur formaö-
urinn óvenju mikils stuðnings í
eigin flokki. Sjálfötæðisflokkurinn
hafði lofaö stórhuga langtímaáætl-
unum í landbúnaöi og sjávarútvegi
en þaö hefur greinilega koðnaö niö-
ur í málamiðlunum á fundinum.
Það er ekki hægt að sjá neinar nýj-
ar hugmyndir.
Það sem fékk mig til aö finnast
ég virkilega gamall í gær var frétt-
in um kaup Sony á Columbia,
risanum á brauðfótum sem Coca-
Cola kéypti fyrir tveimur árum en
vildi fýrir alla muni losna við. LiO
ég svona hratt eða voru þetta ekki
fréttir fyrir tveimur vikum?
Fyrir um 20 áram vakti það ftirðu
dreifingaraðila i Bandaríkjunum
að íslenskir kvikmyndahúsaeig-
endur keyptu til landsins vestra,
sem hvergi gengu, og sýndu viö
góða aðsókn. Svarið við þessu var
að á íslandi voru menn ánægðír
þó að söguþráðurinn væri ójafn,
klippingin slök, hljóðrásin í ólagi,
textunin slæm, hvaö sem var, ef
hrossin voru falleg. Þegar fólk gekk
út úr bíó sagði kannski einhver við
annan: „Jón Væni var nú betri í
síðustu mynd," og hinn jánkaöi því
og bætti við: „En hrossin voru nú
falleg." Þetta fólk ætti að hafa haft
gaman af Blágresinu frá Kentucky;
fallegt fólk og fallegir hestar, mer-
arnar í aukahlutverki, fullt af tví-
ræðum bendingum og'augnagot-
um.
Talandi um slæma textun þá
gekk eitthvaö mikið á 1 sjónvarpinu
í gær. Þaö er sennilega best fyrir
landslýöinn að fara aö læra öll
heimsins tungumál og fá sér síöan
bara disk á þakið.
Gísli Friðrik Gíslason