Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1989. 11 útlönd Sprenging í strætisvagni Sjö manns biöu bana í gær í Bogota í Kólumbíu þegar sprenging varö í strætisvagni. Kannar lögreglan nú hvort um hafi verið að ræða sprengjutjlræði á vegum fíkniefna- baróna landsins. Sprengingin varð aðeins klukku- stundu eftir að þrír nýir ráðherrar sóru embættiseið sinn en legið hefur við stjómarkreppu vegna stríðsins við fíkniefnasalana eftir að Monica de Greiff dómsmálaráðherra sagði af sér fyrir tveimur vikum. Borgarstjórinn í Bogota sagði í út- varpsviðtali í gær að eldur hefði komið upp í strætisvagninum vegna bilunar. En talsmaður lögreglunnar sagði að fyrstu fréttir gæfu til kynna að sprengja hafi valdið slysinu. Starfsmaður slökkviliðsins hefur það eftir strætisvagnsstjóranum að hann hafi heyrt sprengingu áður en Lögreglumaður í Bogota við strætis- vagninn sem sprenging varð í í gær. Símamynd Reuter eldtungur læstu sig um allan vagn- inn. Þijú böm, fjögurra til sex ára, vom meðal þeirra sem létust. Nýr dómsmálaráðherra, Roberto Salazar Manrigue, var settur í emb- ætti í gær ásamt nýjum innanríkis- ráðherra, Carlos Lemos Simmonds. Roberto Danies er nýr samgöngu- málaráðherra. Lemos Simmonds sagði eftir eið- tökuna í gær að stjómin útilokaði viðræður við fikniefnasala. Hann staðfesti að stjórnin hefði fengið til- boð þar að lútandi frá fíkniefnasöl- um. Hefðu þeir boðist til að láta af viðskiptum með fíkniefni með því skilyrði að þeir yrðu ekki framseldir til annarra landa. Haft er eftir fíkni- efnasölunum að þeir þurfi ekki að selja meir af fíioúefnum þar sem þeirséunóguríkir. Reuter Baskneskir biskupar taka afstöðu í stjórnmálum Pétur L. Pétursson, DV, Barcelona: Baskneskir kirkjuleiðtogar hafa hvatt sóknarböm til að kjósa ekki stjómmálaarm ETA, Herri Batas- una, í kosningunum þann 29. þessa mánaðar. Þar með hefur kirkjan tek- ið beina afstöðu í spænsku stjóm- málalífi í fyrsta sinn frá því lýðræði var endurreist. Frá þessu er skýrt í fréttatilkynningu baskneskra bisk- upa sem þeir sendu frá sér um helg- ina. Þetta er enn eitt rothöggið fyrir Herri Batasuna en það fyrsta var er í ljós kom að ETA hefur ekki fjár- hagslegt bolmagn til að standa straum af kosningabaráttu flokksins. Þá fær flokkurinn lítið fylgi í skoð- anakönnunum. Tilkynning biskupanna er afdrátt- arlaus þótt flokkurinn sé ekki nefnd- ur á nafn. Þar stendur að ekki beri að stuðla aö auknu ofbeldi af hálfu ETA með því að gefa stuðningsöflum hryðjuverkamannanna atkvæði sitt Slíkt samræmist ekki kristilegu sið- gæði. Sósíalistum spáð meirihluta Pétur L. Pétuisson, DV, Barcelana: Spænskir sósíalistar munu vinna meirihluta í báðum deildum þingsins samkvæmt skoðanakönnun sem spænska dagblaðið E1 País birti í gær. Þingkosningarnar fara fram 29. október. Könnunin leiðir í ljós litlar breytingar frá síðustu kosningum ef undan er skilið stóraukið fylgi sam- einaðra vinstri manna. Samkvæmt könnuninni munu sós- íalistar fá rúm 42 prósent atkvæða og milli 178 og 187 þingsæti og 128 til 133 menn í öldungadeild. Sósíalistar hafa nú 184 menn á þingi og 124 í öldungadeild. Sameinaðir vinstri menn munu hins vegar stórauka þingmannafjölda sinn og er þeim spáð 16 til 18 þingsætum en í síðustu kosningum íilutu þeir sex. Þetta aukna fylgi sækja þeir til hægri og miöflokka. Þá leiddi könnunin í ljós að aðeins 68 prósent ætluðu að kjósa og yrði það minnsta kosningaþátt- taka frá því lýðræði var endurreist. Samkvæmt könnuninni hefur ný ímynd hægri manna ekki haft tilætl- uð áhrif. Þeir gætu tapað tíu þingsæt- um í hvorri deild þingsins og fengið 23,8 prósent atkvæða. Svipuð örlög gætu beðið miðflokks Adolfo Suárez en flokkurinn gæti tapað fimm þing- mönnum. Hann hefur nú 21 mann á þingi. Könnunin leiðir einnig í ljós minnkandi vinsældir baskneskra öfgasinna en stjómmálaarmur ETA, Herri Batasuna, á það nú á hættu að þurrkast út. Flokknum er spáð minnkandi fylgi og gæti svo farið að hann missti þrjá menn á þingi en hann hefur nú fimm þingsæti. Aðrir þjóðemissinnar standa svip- að að vígi og áður. Þannig kemur Convergéncia i Unió, flokkur kata- lónskra þjóðernissinna, 17 mönnum á þing og 8 í öldungadeild, sem er svipað og í síðustu kosningum, og flokkur baskneskra þjóðernissinna fær einnig svipaða útkomu og áður. / Bifhjólamenn \ hafa enga heimild til að aka hraðar en aðrir! lluÆ FERÐAR Bush Bandaríkjaforseti hefur ákveðiö aö halda framleiöslu eftiavopna áfram, jafnvel eftir að alþjóölegur sáttmáli um hugsanlega útrýmingu þeirra tekur gildi, aö þvi er segir í forsíöufrétt bandariska dagblaðsins Washington Post í morgun. Blaðið styðst við nokkra ónafngreinda bandaríska embættismenn í frétt sinni Talsmaður Bandaríkjaforseta haföi ekkert um málið að segja að svo stöddu. Bush sagði í ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinúðu þjóðanna nýveriö aö Bandaríkin væru reiðubúin að eyðileggja þegar um áttatíu prósent birgöa sinna af efnavopnum væru Sovétríkin reiðubúin til hins sama. Utanxikisráðherra Sovétríkjanna svaraði að bragði og lagði til að bæði stórveldin eyðilegðu þegar allar birgðir sínar af efiiavopnum. Nú eiga sér stað í Genf viðræður fulltrúa ftöratiu ríkja um samninga um efnavopn. Þeir hafa þegar komið sér saman um að framleíðslu efna- vopna skuli hætt þegar samningarnir taki gildi. Vongóður um Bandaríski utanríkisráöherrann, James Baker, kvaöst í gær fullviss um að enn væri vonarglæta um friö í Miöausturlöndum þrátt fyrir að ísraelar hafi á föstudag hafnaö tillögu Egypta um að halda friðar- ráðstefnu ísraela og Palestínu- manna. Baker kvaöst telja aö viðbótartil- lögur Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, viö kosningaáætlun Shamirs, forsætisráðherra ísraels, væra skref í rétta átt. Áætlun Shamirs gerir ráð fyrir að Palest- ínumenn velji sér fulltrúa til \ið- ræðna við Israelsmenn um tak- israelskur hermaður kannar skit markaða sjálfsstjórn. I viðbótartil- riki ökumanna. simamynd Reuter lögum Egypta er gert ráð fyrir að PLO, Frelsissamtök Palestinu, séu einu viðurkenndu fulltrúar Palestínumanna en Shamir hefiu- ætíð neitað aö ræöa við þá. ísraelskir embættismenn kveðast vonast til aö Baker leggi fram form- lega tillögu um viöræður um samsetningu nefndar Palestínumanna. Gasleki á oh'palli Allir starfsmenn á olíupalli einum á Norðursjó voru fluttir á brott í gær þegar ljóst var að leki hafði koraið að einum boipallanna. Talsmaður systurfyrirtækis Conoco, olíuvinnslunnar bresku, sagði aö lekans hefði orðið vart í einum oliubranni Vulcan-svæðisins. Brannurinn var lokaður vegna viðgerða þegar lekinn átti sér stað. Um sjötíu menn á nærliggjandi olíuborpalli voru þó fluttir á brott í öryggisskyni. Vulcan-svæðið er eitt fimm svæða sem áætlað er að fullnægi allt að Papandreou undirbýr kosningar Tzannis Tzannetakis, forsætteráðherra Grikklands, afhenti atsagnarbréf rikisstjórnar sinnar fyrir helgl. Simamynd Reuter Andreas Papandreou, fyrrum forsætisráöherra Grikklands og leiðtogi gríska sósíálistaflokksins, reyndi á sunnudag aö mynda stjórn eftir að forsætisráðherra samsteypustjómar kommúnista og hægri manna af- henti uppsagnarbréf á föstudag. Næsta vonlaust er talið fyrir Papandre- ou, sem á yfir höfði sér réttarhald vegna meintra glæpsamlegra laga- brota, aö mynda stjórn og er búist við kosningum snemma í næsta mánuöi. Papandreou, sem hlaut þriggja daga umboð á laugardag, mun reyna að fá bandalag kommúnista og vinstri manna í sfjóm en mjög ólíklegt er talið að honum takist það. Bandalagið greiddi atkvæði með þingtillögu sem aðfldar aö fjánnálahneyksli. Sósíalistaflokki Felipe González, forsætisráðherra Spánar, er spáð meirihluta í þingkosningunum i lok mánaðarins. Simamynd Reuter José Maria Aznar, frambjóðandi hægri manna. Samkvæmt skoðana- könnunum gætu þeir tapað tiu þing- sætum i hvorri deild þingsins. I Símamynd Reuter á |x HESTAMEl ff\ MEÐ EIIMU SÍMTALI [ ) ER ÁSKRIFT TRYGGÐ r EIÐFAXI SÍMI 685316 og 687681

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.