Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 24
24
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1989.
íþróttir
- fjórir leikmenn fengu rautt spjald þegar FH vann HK, 29-24
„Þetta á eftir að verða mjög spennandi
og jöfn deildarkeppni. Það er ekki mikill
munur á liðunum í 1. deildinni eins og
kom í ljós í þessum leik,“ sagði Þorgils
Óttar Mathiesen, þjálfari FH-inga, eftir
að lið hans hafði sigrað nýliða HK, 29-
24,í fyrsta leik 1. deildar keppninnar á
laugardag.
Áhorfendur, sem troðfylltu íþrótta-'
húsið í Hafnarfirði, sáu geysilega harðan
leik og höfðu dómaramir í nógu að snú-
ast. Fjögur rauð spjöld voru á lofti og
flöldi brottvísana. Á lokamínútunum
sauð upp úr hjá leikmönnum og tveimur
FH-ingum, þeim Héðni Gilssyni og Jóni
E. Ragnarssyni, var vildð af leikvelli
ásamt HK-manninnum Ásmundi Guð-
mundssyni fyrir slagsmál. Auk þess fékk
Eyþór Guðjónsson, HK, einnig rautt
spjald.
FH-ingar, sem margir hafa spáð titlin-
um, áttu í nokkrum vandræðum með
Kópavogsliðið sem barðist gífurlega vel
allan leikinn. Jafnt var á fyrstu mínút-
unum en síðan náðu FH-ingar öruggri
forystu. Staðan í leikhléi var 16-8 og allt
stefndi í öruggan sigur FH-inga.
HK-menn tóku hins vegar hressilega á
móti Hafnfirðingum í síðari hálfleik og
náðu að minnka muninn í þrjú mörk,
27-24. Þá var allt á suðupunkti og þrem-
ur leikmönnum var vísað til búnings-
herbergjanna eins og áður sagði. Þá voru
tvær mínútur eftir og geröu FH-ingar
út um leikinn með tveimur síðustu
mörkunum.
FH-ingar léku mjög vel í fyrri hálfleik
og þá sérstaklega í vöminni en í þeim
síðari misstu þeir einbeitinguna. Guð-
mundur Hrafnkelsson varði mjög vel í
markinu og það gerði einnig Bergsveinn
Bergsveinsson eftir að hann kom inn á.
Aðrir bestu menn liðsins voru þeir
Óskar Ármannsson og Gunnar Bein-
teinsson.
HK-liðið barðist mjög vel í leiknum en
það vantar tilfinnanlega fleiri skyttur í
liðið. Markvörðurinn, Bjami Frostason,
var besti maður liðsins. Gunnar Gísla-
son og Eyþór Guðjónsson stóðu einnig
vel fyrir sínu. Hins vegar setur Ásmund-
ur Guðmundsson svartan blett á lið sitt
með óíþróttamannslegri framkomu.
Dómarar vora Egill Markússon og
Kristján Sveinsson og dæmdu af mikilli
ákveðni.
Mörk FH: Óskar Ármannsson 8 (3 v.),
Gunnar Beinteinsson 6, Þorgils Mathie-
sen 5, Héðinn Gilsson 4 (1 v.), Jón E.
Ragnarsson 3, Halfdán Þórðarson 2 og
Magnús Einarsson 1.
Mörk HK: Óskar Elvarsson 7 (5 v.),
Gunnar Gíslason 5, Eyþór Guðjónsson
4, Róbert Haraldsson 3, Ásmundur Guð-
mundsson 2, Magnús Sigurðsson 2,
Kristján Gunnarsson 1.
-RR