Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1989, Blaðsíða 20
20
MÁftUDÁGtÍR 9. OKTÓBÉR 1989.
DV
Iþróttir
Úrvalsdeildin í körfu:
í“ ingar
á toppinn
- eftir sigur á Val, 81-79
ÍR-ingar eru á toppnum í sínum
riðli í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik. ÍR-ingar sigruðu Valsmenn
81-79 í Seljaskóla í gær en í hálfleik
var staðan 47-38, ÍR-ingum í hag.
ÍR-ingar höföu framan af leiknum
mikla yfirburöi, náðu um tíma tutt-
ugu stiga forskoti, 26-6, og sýndu á
köflum mjög góöan leik. Valsmönn-
um tókst að saxa á forskotið fyrir
leikhlé. í síðari hálfleik hrukku ÍR-
ingar á nýjan leik í gang og náðu
átján stiga forystu, 62-44.
Valsmenn nálægt því
að jafna metin
Bandaríski leikmaðurinn í liði ÍR,
Tommy Lee, varð að vikja af lei-
kvelli vegna villuvandræða og í kjöl-
farið dró úr krafti þeirra. Smám sam-
an voru Valsmenn komnir alveg upp
að TR-liðinu en tíminn reyndist of
stuttur til að þeir næðu að jafna
metin. Valsmenn höfðu knöttinn síð-
ustu fimm sekúndurnar en sá tími
nægði ekki til að koma skoti á körf-
una. ÍR-ingar voru eins og höfuðlaus
her eftir að Tommy Lee fór út af.
Valsmenn án
sigurs í deildinni
ÍR-ingar fógnuðu öörum sigurleik
sínum í röð í úrvalsdeildinni en Vals-
menn hafa tapað báðum sínum leikj-
um til þessa. Björn Steffensen átti
mjög góðan leik fyrir ÍR og skoraði
grimmt. Tommy Lee var einnig
drjúgur og tók fjöldann allan af frá-
köstum. Björn Leósson skoraði sína
fyrstu þriggja stiga körfu í úrvals-
deildinni og vakti það mikla kátínu
meðal leikmanna hðsins.
Chris Behrends var yfirburðamað-
ur í liði Valsmanna, hann var seinn
í gang en óx ásmegin þegar á leikinn
leið. Guðni Hafsteinsson vakti mikla
athygli og átti stóran þátt í að Vals-
menn söxuðu á forskot ÍR-inga. Svaii
Björgvinsson komst einnig ágætlega
frá leiknum.
• Þokkalegir dómarar leiksins
voru Jón Otti Ólafsson og Leifur
Garðarsson.
• Stig ÍR: Björn Steffensen 30,
Tommy Lee 19, Jóhannes Sveinsson
18, Bragi Reynisson 8, Björn Leósson
3, Karl Guðlaugsson 2, Eggert Garð-
arsson 1.
• Stig Vals: Chris Behrends 36,
Svah Björgvinsson 15, Guðni Haf-
steinsson 10, Einar Ólafsson 7, Bjöm
Zoega 4, Ragnar Jónsson 4, Bjarni
Össurarson 3.
-JKS
• Björn Steffensen var drjúgur í leiknum gegn Valsmönnum I gær og skoraði 30 stig. Á myndinni er Björn að
láta skot riða af og andartaki síðar lá knötturinn í körfunni. DV-mynd Brynjar Gauti
Sport-
stúfar
Austur-Þjóðverjar
1 ÍÍS I serðu sér lítið fyrir
I /?t j og sigruðu Sovét-
menn, 2-1, í undan-
keppni HM í knattspymu í
gær. Sovétmenn þurftu á jafh-
tefli að halda til að tryggja sig
endanlega til Ítalíu 1990. Þetta
var flórði sigur Austur-Þjóð-
vetja á Sovétmönnum í síðustu
17 leikjum þjóðanna. Með þess-
um sigii aukast Jíkur Austur-
Þjóðverja á að fylgja Sovét-
mönnum verulega. Þeir eiga
einn leik eftir gegn Austurrík-
ismönnum. Sovétmenn eru
efistir í riðlinum með 9 stig en
Austur-Þjóðverjar og Austtnr-
ríkismenn eru með 7 stig og
hafá Austur-Þjóðveyjar leikið
leik meira. Leiknum í gær lauk
með miklum látum. Gennady
Utovchenko kom Sovétmönn-
um yfír þegar 12 mínútur voru
tíl leiksloka en þeir Andreas
Thom og Matthias Saammer
tryggðu . Austur-Þjóðvetjum
sigur á lokamínútunum. Það
þarf varla að taka þaö fram að
Islendingar leika f þessum riðli.
Lika austur-þýskur
sigurhjá þeim yngri
Austur-Þjóðveijar sigruöu Sovét-
menn í landsleik þjóðanna skip-
uðum leikmönnum undir 21 árs
um helgina. Lokatölur urðu 3-2
en leikurinn fór fram f í Grimma
f Austur-Þýskalandi. Sovétmenn
voru yfir, 1-2, þegar þijár mínút-
ur voru eftir en heimamenn skor-
uöu tvö mörk fram til leiksloka.
Sovétmenn eru efstir í þriöga riðh
Evrópukeppninnar með 7 stig en
Austur-Þjóðveijar eru næstir
með S stig.
íslandsmótið í handknattleik kvenna:
Nýliðarnir lögðu
KR-inga á Nesinu
- Valsstúlkur unnu Stjömuna og FH vann Hauka
Þrír leikir fóru fram í 1. deild
kvenna um helgina. FH-Haukar átt-
ust við í Hafnarfirði og sigruðu FH
stúlkur með einu marki, 15-14. Ný-
höarnir í deildinni, Grótta og KR,
áttust við á Nesinu og sigruðu heima-
menn, 25-21. Valsstúlkur unnu svo
nauman sigur á Stjömunni, 17-16.
FH-Haukar
Hafnarfjarðarliðin börðust hart í
Firðinum á laugardaginn er FH vann
nauman sigur á Haukum. Haukaliðið
var mun hressara í leiknum og hefði
átt skihð annað stigið. Jafnt var á
flestum tölum en Haukahðið þó yfir-
leitt fyrra til að skora. Það var ekki
fyrr en undir lok leiksins að FH náði
forystunni og var staðan þá 14-13,
en Haukar náðu að skora og staðan
varð 14-14. Þegar lítið var eftir tókst
FH-höinu að skora sigurmarkið og
leiknum lauk 15-14 eftir að staðan í
hálfleik hafði veriö jöfn, 9-9.
Mikill léttleiki var yfir Haukalið-
inu og var sóknarleikur þess einfald-
ur en skemmtilegur. Var Hrafnhiid-
ur mjög drjúg og gerði mikinn usla
í vöm FH. Eins og tölumar benda til
var vamarleikur beggja hða góöur.
Hjá FH var meðalmennskan ríkjandi
og þurfa þær aö gera betur ef þær
ætla að vera í toppbaráttunni í vetur.
• Mörk FH: Kristín Pétursdóttir
og María Siguröardóttir, 4 hvor, Rut
Baldursdóttir 3, Helga Gilsdóttir 2,
Berglind Hreinsdóttir og Sigurborg
Eyjólfsdóttir, 1 mark hver.
• Mörk Hauka: Ragnheiður Guö-
mundsdóttir 5, Ragnheiður Júlíus-
dóttir og Hrafnhildur Pálsdóttir, 3
hvor, Elva Guðmundsdóttir 2 og
Margrét Guðmundsdóttir, 1 mark.
Grótta-KR
Erkifjendumir í vesturbænum áttust
við á laugardaginn og lauk þeirri viö-
ureign með sigri Gróttu. Fyrri hálf-
leikur var frekar jafn en Grótta náði
upp góðum leik rétt fyrir hálfleik og
haiði fimm marka forystu þegar
flautað var til hálfleiks, 13-8. KR-hðið
náði að minnka muninn í tvö mörk
um miðjan síðari hálfleik en sigur
Gróttu var aldrei í hættu og vann
hún örugglega, 25-21.
Bæöi hðin spiluðu langar sóknir
og ekki var mikið um hraða í leikn-
um. KR khppti þær Þurý og Laufey
til skiptis úr sóknarleik Gróttu en
það dugöi skammt því þá losnaði
bara um aðra sóknarmenn liðsins.
Gróttu-liðið var jafnt og engin ein
sem skaraöi fram úr heldur sigur
hðsheildarinnar. Hjá KR var það Sig-
urbjörg að venju sem gerði mikið af
mörkum.
• Mörk Gróttu: Þurý Reynisdóttir
og Laufey Sigvaldadóttir, 6 hvor, El-
ísabet Þorgeirsdóttir og Sigríður
Snorradóttir, 4 hvor, Brynhildur
Þorgeirsdóttir og Helena Ólafsdóttir,
2 hvor og Sara Haraldsdóttir, 1 mark.
• Mörk KR: Sigurbjörg Sigþórs-
dóttir 9, Snjólaug Benjamínsdóttir 4,
Bryndís Harðardóttir 3, Katrín Harð-
ardóttir og Ama Garðarsdóttir, 2
hvor og Aslaug Friðriksdóttir 1
mark.
Valur-Stjarnan
Þaö var hörkuleikur í Valsheimilinu
þegar Valur og Stjaman áttust við.
Leikurinn var mjög jafn og spenn-
andi, liðin skiptust á að skora og var
staðan í hálfleik 10-8 Sjömunni í vil.
í síðari hálfleik náðu Valsstúlkur að
jafna 11-11 og eftir þaö var Valur
yfir til leiksloka og vann nauman
sigur, 17-16.
Það var mikil harka í leiknum og
var varnarleikur beggja höa góður.
Sigrún í Valsmarkinu varði mjög vel
og áttu homamenn Stjömunnar í
erfiðleikum með að koma boltanum
fram hjá henni. Hjá Val var það hðs-
heildin sem skóp sigurinn og engin
ein sem á hrós skilið.
Stjömuhðið missti Erlu Rafnsdótt-
ir út af í fyrri hálfleik er hún þurfti
að yfirgefa leikvöhinn vegna meiðsla
í hné, óvíst er hvort hún verður
meira með í vetur. Ragnheiður var
iðin við að skora en annars var Uðið
frekar jafnt.
• Mörk Vals: Katrín Friðriksen og
Una Steinsdóttir, 5 hvor, Ásta Björk
Sveinsdóttir 3, Berghnd Ómarsdóttir
2, Margrét Theodórsdóttir og Kristín
Pétursdóttir, 1 mark hvor.
• Mörk Stjömunnar: Ragnheiður
Stephensen 7, Erla Rafnsdóttir og
Herdís Sigurbergsdóttir, 3 hvor,
Helga Sigmundsdóttir, Drifa Gunn-
arsdóttir og Kristín Björnsdóttir 1
mark hver.
inni eftir leiki helg-
arinnar er þessi:
IR-Valur.....81-79
Haukar-Þór..........120-61
Njarðvík - TindastóB.94-89
Grindavík - Reynir...91-66
A-riðill:
ÍR..........2 2 0 180-156 4
Keflavík 1 1 0 107-64 2
Grindavík... 2 2 0 166-134 2
Valur.......2 0 2 147-156 0
Reynir......3 0 3 207-289 0
B-riðill:
KR..........1 1 0 87-66 2
Tindastóh...2 1 1 181-174 2
Njarðvík....2 2 0 166-157 4
Haukar......2 1 1 188-133 2
Þór.........3 0 3 207-299 0
• Stigahæstu leikmenn í úrvals-
deildinni:
1. David Grissom, Reyni......75
2. ValurIngimundars., UMFT..70
3. BoHeiden.UMFT.........58
4. ChrisBerhend9, Val....57
5. KonráðÓskarsson,Þór...54
6. Jonathan Bow, Haukum..54
7. TommyLee.ÍR...........49
8. Teitur Örlygsson, UMFN.47
• Þess má geta að þeir Grissom
í Reyni, Sandgeröi og Konráö
Óskarsson, Þór Akureyri, hafa
leikið þijá leiki, aörir leikmenn
tvo.
Þrír leikir
annað kvöld
• Næstu leikir í úrvalsdeild-
inni fara fram á morgun, þriðju-
dag. Þá era þrír leikir á dagskrá.
Grindavík og Keflavík í Grinda-
vík, KR og Haukar leika í Haga-
skóla og loks mætast Reynir og
Valur í S mdgerði. Allir leikimir
hefjast kl ikkan átta.