Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1989, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1989.
Utlönd
íbúar þorps í norðurhluta Japans búa sig undir að yfirgefa heimili sín vegna hættu á flóðbylgju í kjölfar öflugs jarðskjálfta undan ströndinni snemma I morgun.
Simamynd Reuter
Boma-
kuUasHgvél
2 litir Kr. 1.695,-
/MIKUG4RÐUR
MARKADURVIDSUND
Öf lugur jarðskjálfti
við strönd Japans
Öflugs jarðskjálfta varð vart í
Kyrrahafi úti fyrir norðurströnd
Japans snemma í morgun. Vegna
jarðskjálftans voru íbúar sex þorpa
við ströndina fluttir á brott. Ekki er
vitað um manntjón né skemmdir en
viðvaranir voru sendar út vegna
flóðahættu af völdum skjálftans sem
er sá öflugasti sem gengið hefur yflr
norðausturströnd Japans í fimmtíu
ár.
Skjálftinn mældist 7,1 á Richters-
kvarða eða svipað og jarðskjálftinn
er reið yfir San Francisco í Banda-
ríkjunum nýlega með þeim afleiðing-
um að 63 biðu bana.
Nákvæm upptök skjálftans hafa
ekki fundist en sérfæðingar segja að
hann hafi átt sér stað í Kyrrahafi um
130 kílómetra noröur af Japan og á
um 30 kílómetra dýpi. Yfirvöld gáfu
út viðvaranir til íbúa þorpa á norður-
ströndinni, allt frá Aomori nyrst á
Honshu-eyju til Chiba, sem er
skammt noröur af Tokýo, vegna mik-
illar flóðahættu. íbúar að minnsta
kosti sex þorpa voru fluttir á brott.
Skjálfta varö vart i borgum á Hons-
hu-eyju og Hokkaido-eyju sagði í
fréttum NHK, hinnar opinberu
fréttastofu. Bandaríska jarðskjálfta-
stofnunin hafði áður gefið út tilkynn-
ingu um að jarðskjálftinn hefði
mælst 7,3 á Richterskvarða og átt sér
stað um 510 kílómetra norður af
Tokýo.
Jarðskjálfti er mæltist 7,7 á Rich-
terskvarða gekk yfir þetta svæði í
mars árið 1931. Árið 1933 varð vart
annars öflugs jarðskjálíta þarna, 8,1
á Richterskvarða, og létust þrjú þús-
und í kjölfar mikilla flóðbylgja.
Reuter
NY SENDING
KJÓLAR - DRESS - BLÚSSUR - TOPPAR
H.S. FASHION
Fréttaskýrendur um ástandið í Bretlandi:
Staða Thatchers veikst
Fréttaskýrendur segja að í kjölfar
uppstokkunar í ríkisstjórninni nú
sem og uppstokkunar þeirrar sem
átti sér stað í ágúst sé forsætisráð-
herrann nú umkringdur ráðherrum
kem hann geti ekki látið flakka nema
eiga á hættu að ríkisstjórnin falli. í
dagblaðinu The Independent sagði
að ef til vill væri svo komið að forsæt-
isráðherratíð Thatcher væri lokið.
Skoðanakannanir sýna að vinsæld-
ir forsætisráðherrans meðal bresks
almennings hefðu aldrei verið lægri
og meirihluti kjósenda telur að
Thatcher eigi að segja af sér tafar-
laUSt. . Reuter
Astand það sem skapast hefur í
breskum stjómmálum í kjölfar af-
sagnar fjármálaráðherrans, Nigel
Lawsons, í síðustu viku hefur veikt
stöðu Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra, að mati fréttaskýrenda.
Háttsettir embættismenn innan
íhaldsflokks Thatcher hafa farið
fram á að forsætisráðherrann breyti
persónulegum stíl sínum sem og rík-
isstjórnarinnar en víða hefur mátt
heyra gagnrýni á Thatcher. Aðstoð-
armenn forsætisráðherrans segja að
hún hafi ekki í hyggju að hlíta slíkum
óskum en fréttaskýrendur segja lík-
legt að raunveruleikinn verði annar.
n Ultra
Pampers
m
Stráka Sti
BLEIUR
Olöglegt að greiða
konum lægri laun
Konur í Evropubandalagslöndun-
um geta reiknað með hærri launum
framvegis. Dómstóll Evrópubanda-
lagsins, EB, hefur úrskurðað að fyr-
irtæki verði að sanna að konum sé
ekki mismunað í launum.
Það var danska fyrirtækið Danfoss
sem hafði verið kært fyrir að hafa
greitt konum lægri laun en körlum.
Fengu konurnar, sem störfuðu hjá
Danfoss, sjö prósentum lægri laun
en karlamir. Útskýring fyrirtækis-
ins var sú að karlamir væru sveigj-
anlegri þegar um væri að ræða
vinnutíma.
EB-dómstóllinn sætti sig ekki við
þessar ástæður og skerpti í staðinn
túlkun laganna.
Frá 1975 hafa verið lög í gildi sem
kveðiö hafa á um jafnrétti í launa-
pólitík innan EB. En þar sem það
hefur hingað til verið sá sem hefur
kvartað sem hpfur þurft að sanna
mál sitt hafa lögin verið frekar kraft-
laus. Framvegis verða það fyrirtæk-
in sem verða að sanna að öðru hvom
kyninu sé ekki mismunað.
Taliö er að úrskurður dómstólsins
geti komið til með að valda öngþveiti
í fyrirtækjum í aðildarríkjum EB.
Þúsundir kvenna og jafnvel nokkrir
karlmenn geta nú krafist athugunar
á launum sínum.
Rakadrægur kjarni Rakadrægur kjarni
aðframan í miðju
Stórkostleg nýjung
fyrir litla
Stráka og Stelpur
Þægilegri - passa betur
en nokkru sinni fyrr.
þó bleian sé vot
eru þau þurr
Einkaumboð
íslensEV////
AmBríiika
Tunguháls U. Sími 82700.