Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1989. Útlönd Krafðir skýrínga Eftiilitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna að störfum í Namibíu. Símamynd Reuter UtanriMsráðherra Noregs, Kjell Magne Bondevik, hefur beðið eftirlits- sveitir Sameinuðu þjóöanna í Namibíu um útskýringu í kjölfar skrifa norska blaðsins Dagens Náringsliv um að eftirlitssveitirnar-geri um 90 prósent innkaupa sinna í Suður-Afríku. Samkvæmt blaðinu auglýsa sveitirnar tilboð sín eingöngu i suður-afrí sk- um blöðum og hefur það kallað á viðbrögð í nágrannalöndunum. Um er að ræða viðskipti upp á 200 milljónir dollara og eru það tjöld, farartæki, fatnaður, matvæli, fjarskiptatæki, tilbúin hús, skrifstofuhúsgögn og meira að segja vopn sem keypt eru frá Suður-Afríku, að því er blaðið segir. Eftirlitssveitirnar hafa ekki sett neinar auglýsingar í blöðin í Zimbab- we, aö þvi er fullyrt er. Eitt atkvæði tryggði meirihluta Við endurtalningu í héraðinu Murcia á Spáni kom í Ijós að Sósíalista- flokkur Fehpe González forsætisráðherra náði meirihluta á þingi landsins og ultu úrshtin á einu atkvæði. Kommúnistar og bandamenn þeirra höfðu krafist endurtalningar þegar i ljós kom að sósíalistar höfðu unnið sæti í Múrcia meö 125 atkvæöa mun í kosningunum 29. október síðastliðinn. Niðurstaða endurtalningarínnar var kunngerðí gær, 50.512 greiddu sósíalistum atkvæði en 50.511 kommún- istum og bandamönnum þeirra. Þar með fékkst staðfest að sósíalistar hafa 176 sæti í neðri deild þings- ins en stjórnarandstaðan 174. Maradona kvænist Maradona ésamt föður sinum í Ðuenos Aires í Argentínu i gær. Símamynd Reuler Diego Maradona, sem af mörgum er talinn besti knattspymumaður í heími, flaug til Argentínu í gær í þotu sem hann hafði tekíð á leigu. Um borð voru 280 gestir sem boðnir voru í brúðkaup hans og Claudiu Villaf- ane sem haldið veröur í dag. Hundruð fféttamanna, ljósmyndara og aðdá- enda voru mættir á flugvöllinn í Bueonos Aires til þess að taka á móti hetjunni sem eitt sítt átti heima i fátækrahverfi. Meðal veislugesta, sem verða um tólf hundruð, verður Carlos Menem, forseti Argentínu. Veislan verður haldin í stærstu hnefaleikahölhnni í BuenosAires. Maradona þarf að vera kominn aftur til Napóh á fimmtudag vegna fót- boltans. Dóntarar enn i verkfalli Fjórir biðu bana og sex særðust er bíiasprengja sprakk í Bogota i Kól- umbiu um helgina. Símamynd Reuter Dómarar í Kólumbíu hafa ítrekað kröfur sínar um lögregluvemd og í gær kváðust þeir ekki binda enda á verkfall sitt nema Virgiho Barco for- seti tæki á móti þeim. Dómsmálaráðherrann, Roberto Salazar, sagði hins vegar aö forsetinn vhdi ekki taka á móti fulltrúum dómaranna fyrr en þeir heíðu snúið aftur til vinnu. Rúmlega þúsund dómarar sem fjalla um fíkniefnamál hafa fengið morð- hótanir að undanförnu. Hafa fikniefnasalar hótað að myrða tíu dómara fyrir hvero grunaöan fíkniefnasala sem framseldur er tíl Bandarikjanna. Nokkur sprengjutilræöi hafa veriö í Kólumbíu undanfama daga og þeim meðal annars beint aö tveimur dagblöðum. Rúmlega tuttugu þúsund Austur-Þjóðverjar hafa farið yfir landamærin við Tékkóslóvakíu áleiðis til Bæjaralands í Vestur-Þýskalandi síðustu þrjá daga. Hér má sjá einn Austur-Þjóðverja fagna komunni til vesturs. Símamynd Reuter Austur-Þýskaland: Stöðugur straumur vestur á bóginn Fjórfalt fleiri Austur-Þjóðverjar hafa farið yfir landamærin við Tékkóslóvakíu áleiðis til Vestur- landa síðustu þrjá daga en gert haföi verið ráð fyrir. Búist hafði verið við því að sex þúsund færu yfir frá Aust- ur-Þýskalandi th Vestur-Þýskalands. En þegar stjómvöld í Austur-Berlín heimhuðu tékkneskum yfirvöldum að hleypa öllum í gegn varð raunin önnur. I gærkvöldi höföu tuttugu og þrjú þúsund Austur-Þjóðverjar kom- ið til Bæjaralands og ekkert lát virt- ist á straumnum þrátt fyrir loforð um aukið ferðafrelsi og lýðræðisleg- ar umbætur austur-þýskra ráða- manna. Það sem af er ári hafa rúm- lega 180 þúsund Austur-Þjóðverjar farið vestur. í Vestur-Þýskalandi er farið aö bera á kvíða landsmanna um hvern- ig bregðast eigi við hinum gífurlega mikla straumi fólks inn i landið. Stór hluti Austur-Þjóðverjanna er ungt fólk sem bætist við vinnuaflið í Vestri. í V-Þýskalandi er atvinnu- leysi 7,3 prósent og húsnæðisskort má þegar finna fyrir víða. Hálf milljón manns gekk um götur átta austur-þýskra borga í gær. Fólk- ið krafðist aukins lýðræðis, frjálsra kosninga og fordæmdi nýju lagabálk- ana um ferðaheimildir þegna Þýska alþýðulýðveldisins. Samkvæmt þeim eiga allir A-Þjóðverjar rétt á vega- bréfi og vegabréfsáritun til Vestur- landa og geta dvahst erlendis í allt að þijátíu daga. Vantrú og efasemda gætti meðal mótmælenda á götunum bæði vegna loforðanna um ferða- frelsi og umbætur í lýðræðisátt. Margir þeir sem þegar hafa náð til vesturs kveðast efast um að hinn nýi leiðtogi austur-þýskra kommúnista, Egon Krenz, munu efna loforð sín. Sumir fréttaskýrendur telja að ein milljón Austur-Þjóðverja muni reyna að grípa tækifærið og fá feröa- leyfi vestur á bóginn. Vestur-þýskir embættismenn hvetja nú ráðamenn í austri til að hrinda í framkvæmd raunverulegum umbótum til að koma í veg fyrir slíka búferlaflutn- inga. Reuter og Ritzau Stjórnarmyndunarviðræður hafnar í Líbanon Hinn nýkjörni forseti Líbanons, Rene Muawad, hefur hafið samn- ingaviöræður um myndun nýrrar stjómar. Búist er við að Muawad haldi til Beirút innan tveggja sólar- hringa frá bænum Ehden þar sem hann dvelur nú. Muawad mun í þessari viku mynda stjóm sem koma á í stað tveggja stjóma, kristinna og múhameðstrú- armanna, sem barist hafa um völdin síðan þinginu mistókst að kjósa þjóö- höföingja í fyrra. En stúðningsmenn harðlínu- mannsins Aouns, yfirmanns herafla kristinna, hafa þegar látið í ljós and- úö sína á forsetakjörinu. í gær gengu þúsundir þeirra í annað sinn að að- albækisföðvum patríarkans Butros Sfeir sem þeir saka um að hafa svik- ið málstaðinn með því að lýsa ekki yfir samstöðu með Aoun þegar hann fordæmdi forsetakjörið. Veifuðu mótmælendumir fánum og myndum af Aoun. Sfeir var ekki heima í gær þar sem hann haföi flúið til sumar- húss síns eftir að mótmælendur höföu ráöist aö bústað hans á sunnu- dagskvöld og neytt hann til að kyssa mynd af Aoun. Sjálfur hefur Aoun fordæmt að- gerðir stuðningsmanna sinna og beð- iðþáumaðsýnasthlingu. Reuter Harðlinumenn setja upp mynd af Aoun hershöfðingja utan á glugga aðal- bækistöðva patríarkans í austurhluta Beirút. Simannynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.