Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÖVEMBER 1989.
ll
Utlönd
Kosningamar 1 Namibíu:
Swapo-samtök-
t
unum spáð sigri
Þegar sjö hundruö þúsund Namib-
íubúar greiöa atkvæöi í fyrstu fijálsu
þingko6ningunum j landinu, sem
hefjast í dag og standa út vikuna, er
þaö í fyrsta skipti sem margir þeirra
taka sér blýant í hönd. Sextíu til sjö-
tíu prósent íbúanna eru ólæs og
óskrifandi og eru því tákn flokkanna
viö hbð venjulegra bókstafsmerk-
inga þeirra á atkvæðaseölunum.
Búist er viö að flestir kjósenda setji
kross viö táknið „veldi til svartra"
(reiddur hnefi), það er greiði Swapo,
Frelsishreyfmgu Namibíu, atkvæöi
sitt. Vafi leikur þó enn á því hvort
eftirlitssveitir Sameinuðu þjóöanna
geti viöurkennt niðurstöður kosn-
inganna. Eftiriitsmenn víös vegar úr
heiminum lögöu af staö um helgina
til afskekktra héraöa í Namibíu þar
■ sem þeir eiga aö aöstoða viö kosning-
arnar og hafa eftirlit með því að allt
fari rétt fram.
Óaldarflokkar
Það getur reynst erfitt á ýmsum
stööum, sérstaklega í noröurhluta
landsins. Þar hafa gamhr meðlimir
alræmdra öryggissveita, sem opin-
berlega hafa sagðar verið uppleystar,
herjaö í þorpunum. Hafa þeir ekiö
um í brynvörðum bifreiöum með
skotvopn og hnífá á lofti. Sérstaklega
hafa þeir látið til sína taka í Ovambo
þar sem aðalbækistöðvar Swapo og
flestir stuöningsmenn samtakanna
eru. Þar býr einnig um helmingurinn
af 1,3 milljónum íbúa landsins.
Óaldarflokkarnir eru stuönings-
menn helstu andstæöinga Swapo í
kosningunum, DTA-bandalaginu.
Þeir sýna sigurtáknið, tákn DTA, og
ganga um í treyjum merktum banda-
laginu.
Á nýjum hjólum
í Windhoek, höfuðborg landsins,
hefur mest borið á kosningaspjöldum
DTA-bandalagsins og í blökku-
mannahverfinu Katutura hjóla
margir strákar um á splunkunýjum
reiöhjólum meö oddveifum DTA.
Vegna margra ára samvinnu DTA
viö suður-afrísk yfirvöld er banda-
lagiö óvinsælt í Namibíu og þaö
hversu mikið ber á því í kosninga-
baráttunni þykir ekki endilega bera
vott um pólítískan stuöning viö þaö.
„Fólk þiggur gjafir bandalagsins en
greiðir Swapo atkvæöi sitt,“ er haft
eftir kirkjuleiðtoga nokkrum í
Nambíu.
Mótbyr
Swapo hefur samt mátt þola mót-
byr. Margir af áköfustu stuðnings-
mönnum samtakanna fylltust reiöi
þegar þeir heyröu hvern Swapofélag-
ann af öörum segja frá því við heim-
komuna hvemig þeir heföu árum
saman veriö látnir dúsa í neðanjarð-
arfangageymslum viö húöir Swapo í
suðurhluta Angóla. Lítih vafi þykir
leika á því aö einhvers konar ofsókn-
arbrjálæöi hafi gripið öryggissveitir
Swapo í upphafi þessa áratugar og
alveg þar til í ár þegar síðustu fang-
amir voru látnir lausir í samræmi
viö friðarsamkomulagið um Namib-
íu. Jafnvel háttsettir félagar samtak-
anna, sem verið höfðu í þeim í mörg
ár, voru teknir til fanga og þeim mis-
þyrmt í fangaholunum. Mörg hundr-
uö er enn saknað og tahð er að marg-
ir hafi verið myrtir.
Hjálp stöðvuð
Swapo segir flestar ásakanirnar
staðlausar og aö þær hafi veriö ein-
ungis veriö bornar fram í tilefni
kosninganna. Hins vegar muni sam-
tökin eftir kosningamar kanna hvort
einhver „mistök“ hafi átt sér stað.
Frásagnirnar um fangabúöimar og
þögn Swapo hafa án efa skaðað sam-
tökin, ekki bara í kosningabarátt-
unni heldur einnig út á við.
Hollensk hjálparstofnun tilkynnti
fyrir fáeinum dögum aö hún hygðist
stöðva hjálparáætlun sína varðandi
Namibíu um óákveðinn tíma vegna
málsins og margar vestur-þýskar
hjálparstofnanir íhuga nú hvernig
þær eigi að bregðast við.
Ný stjórnarskrá
Hlutverk þingmannanna 72, sem
kosið verður um,' verður að semja
nýja stjómarskrá og þurfa tveir-
þriðjuhlutar þeirra að samþykkja
hana. Þingið kemur saman viku eftir
að atkvæðatalning hefur farið fram
og Sameinuðu þjóðimar hafa lýst því
yfir að kosningarnar hafi farið rétt
fram. Ekki er búist við niðurstöðum
úr kosningunum fyrr um miðjan
mánuðinn.
Flestir stjómmálafræðingar búast
við að þingið láti sér ekki nægja að
semja nýja stjórnarskrá heldur muni
það einnig reyna að mynda stjórn.
Það er einnig óvíst hvort þingmenn-
irnir, sem semja stjórnarskrána, sitji
áfram eða hvort boðað verður til
þingkosninga á ný. Stjómarerind-
Olfi ÍW
rekar benda reyndar á að fátæk þjóð
eins og Namibía hafl ekki efni á
tvennum kosningum í röð, auk þess
sem hinir nýkjörnu þingmenn geti
líklega komist að samkomulagi um
að nýjar kosningar séu ekki nauð-
synlegar.
Oaldarflokkar hafa herjað á stuðningsmenn Swapo í norðurhluta Namibiu
að undanförnu.
Vinningstölur laugardaginn
4. nóv. ’89
Stuðningsmenn Swapo þegar þeir buðu eftirlitssveitir á vegum Sameinuðu
þjóðanna velkomnar til landsins í febrúar siðastliðnum. Simamynd Reuter
í kjölfar ásakana Piks Botha, utanríkisráðherra Suður-Afríku, i siðustu viku um innrás Swapo í Namibíu óttuðust
menn blóðbað svipað þvi sem átti sér stað i apríl í vor þegar suður-afrískir hermenn myrtu fjölda Swapofélaga.
Botha dró siðan í land og sagði að vel gæti hafa verið um sögusagnir að ræða. Simamynd Reuter
Formlega er það fulltrúi suður-
afrísku stjórnarinnar, Louis Pienar,
sem fer með völdin í Namibíu þar til
landið öðlast sjálfstæði á næsta ári
eftir að hafa verið undir stjórn Suð-
ur-Afríku í yfir sjötíu ár. Pienar hef-
ur hins vegar geíið í skyn að hann
muni láta lítið fyrir sér fara.
Ásakanir um innrás
Reyndar fór talsvert mikið fyrir
öðrum fulltrúa Suður-Afríku á mið-
vikudaginn í síðustu viku, sjálfum
Pik Botha utanríkisráðherrá. Hann
sagði þá á fundi með fréttamönnum
í Pretoríu að þeir fimmtán hundruð
suður-afrísku hermenn sem enn
væru eftir í Namibíu hefðu fengið
skipun um að vera viðbúnir í kjölfar
frétta um að fimm hundruð vopnaðir
félagar í Swaposamtökunum hefðu í
trássi við friðarsamkomulagið farið
yfir landamærin við Angóla. Botha
gaf í skyn að upplýsingamar um
innrásina hefðu komið frá suður-
afrísku leyniþjónustunnl í Windhoek
sem hefði hlerað samtöl eftirhts-
sveita Sameinuðu þjóðanna.
Yfirlýsing utanríkisráðherrans
hleypti strax af stað vangaveltum um
að kosningunum yrði frestað. í
versta falli óttuðust menn að at-
burðimir frá því í apríl endurtækju
sig. Þá slátmðu nánast suður-afrísk-
ir og namibískir hermenn innrásar-
mönnum úr Swapo.
Talsmaður eftirhtssveita Samein-
uðu þjóðanna vísaði á bug ásökunum
Botha og á föstudaginn viðurkenndi
svo suður-afríski utanríkisráðherr-
ann að verið gæti að um heföi verið
að ræða sögusagnir. Ritzau
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 3 791.392
2. 2 206.442
3. 4af5 307 2.319
4. 3af 5 6.758 245
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.154.703 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - lukkulIna 991002