Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1989, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1989. 9 DV Gróusögur um Gro ollu t sprengingu Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló: Fyrrum formaöur norska Verka- mannaflokksins, Reiulf Steen, dylgj- ar um'ástarsamband milli sín og Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi for- sætisráðherra, í nýútkominni bók. „Gro er hættulegur óvinur vegna þess hve hún er hörð og ómanneskju- leg,“ segir Steen. I bók sinni, Valdatafl, sem kom út fyrir helgi, segist höfundurinn af- hjúpa hið innra líf Verkamanna- ílokksins sem er stærsti stjórnmála- flokkur Noregs. „Baktal og brenni- vín, kynlíf og khkuskapur hafa ráðið miklu um hverjir komust til mestra valda innan flokksins. Mikilvægar ákvarðanir voru teknar bak við tjöldin og einskis var svifist til að sigrast á keppinautum sínum,“ segir Steen. „Og af öllum var Gro Harlem Brundtland verst.“ Bók Steens olli sprengingu í norsk- um fjölmiölum um helgina. Víðast hvar veldur bókin hneykslun, meðal annars vegna þess að Steen gefur í skyn kynferðislegt samband miUi sín og Gro á þann hátt að hann nýtir orðróminn sem var á kreiki í hans eigin fjölskyldu. Orðróminn vUl hann þó hvorki sanna né afsanna en telur réttast að hann komi hinum almenna Norðmanni til eyrna. Leiðarahöfundar norsku fjölmiðl- anna eru nánast alUr á bandi Gro og þykir höfundurinn hafa lagst lágt með gróusögum sínum. Konur innan Verkamannaflokksins vilja að Steen hætti samstundis og hverfi frá norska stórþinginu. Þær segjast ekki lengur bera neitt traust tU hans. Gro Harlem Brundtland sagði í við- tali viö norska sjónvarpið um helg- ina að bókin væri dæmi um hörmu- leg örlög höfundarins og sagðist hvorki nú né seinna hafa afskipti af Gro Harlem Brundtland, fyrrum for- sætisráðherra Noregs, segist ekki ætla að hafa afskipti af sögusögnun- um. slíkum sögusögnum. Reiulf Steen er sjálfur búinn að vera sem stjórnmálamaður vegna hneykslis sem afhjúpað var í sumar um leyndardómsfuUt samsæri gegn Gro og öðrum forystumönnum Verkamannaflokksins þar sem Steen ásamt áður óþekktum húsgagnasala voru aðalpersónurnar. Margt var þá tínt til um fortíð Steens sjálfs og þá kom í ljós að hann hafði sjálfur átt við mikla ofdrykkju að stríða auk þess sem ástarlíf hans var fjölskrúö- ugt með afbrigðum. Og nú segist hann leggja öll spiUn á borðin. Hvort sannleikurinn kemur nokk- um tíma í ljós er óvíst þvi er maður- inn eingöngu að hefna sín á smekk- lausan hátt eða er valdabaráttan í norskri pólitík svipuð því sem gerist í sápuóperum af lélegasta tagi? Wallenberg sagð- ir hafa lánað nasistum stórfé Fjármálamennirnir og bræðurnir Jacob og Marcus Wallenberg, sem nú eru látnir, og banki þeirra, Stock- holms Enskilda Bank, veittu nasist- um í Noregi fjárhagslegan stuðning í formi mUljónaláns til þess að endur- reisa þungavatnsverksmiðjuna í Rjukan sem norskir og breskir her- menn eyðilögðu í stríðinu. Þetta stað- hæfa tveir Hollendingar, Gerald Aalders og Cees Wiebes, í bókinni „Viðskipti umfram allt“ sem kom út á sænsku í gær. Bók Hollendinganna er árangur tíu ára rannsóknar á þrjátíu skjalasöfn- um í sjö löndum. Með bók sinni vilja þeir sýna fram á hvernig græðgi og klókindi leiddu tU ýmissa löglegra en siðlausra viðskipta milli hlut- lausra landa og þeirra sem áttu í stríði í seinni heimsstyrjöldinni. Bók Hollendinganna þykir einhliða og bent hefur verið á að Wallenberg- bræðurnir hafi einnig gert banda- mönnum greiða. í bókinni er banki bræðranna sak- aður um að hafa tekið þátt í viöskipt- um með gull, demanta og verðbréf sem nasistar tóku af hollenskum gyðingum. Fullyrða höfundarnir að svissneskir bankar, Stockholms En- sldlda Bank og Wallenbergbræðum- ir hafi verið reiðubúnir að hjálpa SS og Gestapo með þvi að taka við stolnu Marcus Wallenberg. verðbréfunum. Hollendingamir velta hvarfi Rao- uls Wallenberg fyrir sér í bókinni. Eru þeir þeirrar skoðunar að Sovét- menn hafi vitað um viðskipti bræðr- anna, sem voru fjarskyldir ættingjar Raouls, og að þeir hafi eyðilagt við- skiptasamning við Svíþjóð. Eigi Sov- étmenn því aö hafa hefnt sín á Raoul Wallenberg. Á fundi með frétta- mönnum í gær viðurkenndi Wiebes, annar höfundanna, að um vangavelt- ur væri að ræða. Hann benti þó á að Bandaríkjamenn og Bretar hefðu lokað skjalasöfnum þar sem sé að finna gögn um Raoul WaUenberg. TT Útlönd Douglas Wilder, frambjóðandi demókrata til fylkisstjóra í Virginíu i Bandaríkjunum. Símamynd Reuter H Iffplll : 1 % jy míTwM 1 jCB | Fylkisstjórakosningar í Virginíu-fylki í Bandaríkjunum: Blökkumaður talinn sigurstranglegur Birgir Þórisson, DV, New York: Fyrir utan borgarstjórakosningar í New York-borg í Bandaríkjunum beinist athygU manna þar í landi nú mest að baráttunni um embætti fylk- isstjóra í Virginíu. Fyrir því liggja tvær ástæður. Sú fyrri er að taldar eru verulegar Ukur á að frambjóð- andi demókrata, Douglas WUder, verði fyrsti blökkumaðurinn til að ná kjöri sem fylkisstjóri í Bandaríkj- unum en hann heldur nú allt að níu prósenta forystu á keppinaut sinn, Marshall Coleman, samkvæmt nið- urstöðum skoðanakönnunar Rich- mond Times Dispatch. Árið 1985 varð WUder fyrsti kjömi svarti varafylk- isstjórinn. Hin ástæðan er að vel- gengni WUders stafar af flokkadrátt- um út af fóstureyðingum. Virginía var kjárninn í bandalagi Suöurríkjanna í þrælastríðinu og blökkumenn era aðeins um fimmti hluti kjósenda. Því var tahð að Wild- er myndi eiga erfitt uppdráttar vegna litarháttar síns. Framan af hafði Coleman, frambjóðariSi repúblikana, forskot í skoðanakönnunum en eftir að fóstureyðingar urðu aðalmál kosninganna hefur dæmið snúist við. Wilder er eindreginn stuðnings- maður frjálsra fóstureyðinga en and- stæðingur hans eindreginn andstæð- ingur þeirra. WUder hamraði á þessu sem varð til að fjöldi milhstéttar- kvenna, sem var meginstoðin í fylgi repúblikana í fylkinu, hefur snúist til fylgis við hann. Coleman hefur reynt að snúa dæminu við á síðustu stundu með óvæginni skítkastsher- ferð í sjónvarpi en það virðist enn sem komið er hafa gagnstæð áhrif miðað við baráttuna það sem af er. Ef Coleman hefnist fyrir getur það orðið til að draga úr trú áróðurs- manna á skítkastsáróöursherferð- um. Coleman hefur goldið þess að úr- skurður hæstaréttar Bandaríkjanna um að einstök fylki geti takmarkað rétt til fóstureyðinga hefur breytt stjórnmálaástandinu vestra. Áður voru andstæðingar fóstureyðinga einn öflugasti málefnishópurinn í bandarískum stjórnmálum. Cole- man vann prófkjör repúblikana með stuðningi þeirra. Coleman hefur reynt að draga í land í þessum mál- um. Það getur reyndar reynst hættulegt að draga í land eins og frambjóðandi repúblikana til fylkisstjóra í New Jersey hefur komist að raun um. Vel skipulagðir hópar andstæðinga fóstureyðinga hafa fyrir vikið afneit- að honum en stuðningsmenn fóstur- eyðinga styðja eftir sem áöur and- stæðing hans. Hann mun því verða fyrstur Bandaríkjamanna til að læra þá lexíu að í þessu máh er enginn millivegur. SLAUM A er lykkjuteppi í þrem litum, uósgrá, grá og beige, meðan birgðir endast á aðeins staði Euro Visa raðgreiðslur: Engin útborgun 1. afborgun í janúar 1990 Útsölustaður í Keflavík: Járn og skip Dæmi um verð: A (miðað við staðgreiðslu) kr. 5.950,- 30 m2 kr. J 7.850 kr. 11.900,- 40 m2 kr. 23.800 BYGGINGAMARKAÐUR VESTURBÆJAR Hringbraut 120, sími 28600. Teppadeild s. 28605

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.