Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1989, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1989.
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1989.
17
íþróttir
Stúfar frá Englandi
Guntiar Sveinbjdmason, DV, Englandi:
£
Derby County á nú í
miklum flárhagserfið-
leikum og tapaði félag-
ið meira en milljón
pundum á síðasta reikningsári.
Ian Maxwell, varastjórnarfor-
maður félagsins, segir að ekki
séu margar leiðir til úrbóta. Ann-
aðhvort taki íbúar Derby við sér
og ölmenni á vðliinn, þ ví félagiö
þurfi að minnsta kosti 20 þúsund
manns á heimaleiki liðsins, eða
félagið verði að seija bestu leik-
menn sína, þar á meðal Mark
Wright og Ðean Saunders.
Nigel Spackman óhress
Nigel Spackman hjá QPR var settur
út úr liðinu fyrir heimsókn Li-
verpool á laugardaginn. Spackman
gagnrýndi Trevor Francis, fram-
kvæmdastjóra liðsins, í biaðagrein
og þaö féll þeim síðarnefhda ekki í
geö. Spackman mun ræða við
Francis í vikunni um framtíð sxna
hjá félaginu.
Cottee líka óánægöur
Tony Cottee var tekinn út af í leik
Everton og Chelsea um helgina.
Cottee sagði eftir leikinn aö hann
væri mjög óánægður meö skipt-
inguna en hefði ekki óskað eftir
sölu og ætlaði sér að bíða og sjá til.
Talbot mun hætta
Brian Talbot, leikmaður og fram-
kvæmdasljóri WBA, hefux; ákveðið
að leggja skóna á hilluna í íok þessa
keppnistímabils. Taibot, sem er
orðinn 36 ára, tilkynnti þessa
ákvörðun sina eftir stórsigur sinna
manna á Barnsley, 7-0, og bætti við
að álagið væri of mikið til aö sinna
báðum störfunum.
Jones aftur heím
Andy Jones, framherji Clxarlton,
hefur ákveðið að snúa á heimaslóð-
ir á ný og ganga til liös við Port
Vale.
Atkinson spreðar
Ron Atkinson, stjóri Sheffield Wed-
nesday, er enn með tékkheftið á
loftí. Ávisunin er að þessu sinni
ætluð Norwich fyrir 21 árs kant-
maxm, Ruel Fox.
Enn ósamið um Ford
Newcastle og Crystal Palace eiga
enn eftir að komast að samkomu-
lagi um kaupverðið á Andy Ford.
Þegar það er í höfn ætlar New-
castle aö nota peningana til að
kaupa Gavin Maguire frá Ports-
mouth.
Ólætin halda áfram
Ólæti í enska boltanum virðast
seint ætia að deyja út. Tugir lög-
regluþjóna máttu hafe sig alla viö
tíi að hafa herail á áhangendum
West Ham x leik liösins við New-
castle um síðustu helgi. Enginn
slasaðist á leiknum sem var stöðv-
aður um stxmdarsakir á rneðan lög-
regian kom stjóm á skrílinn.
Dalglish styrkir hópinn
Kenny Ðalglish, stjóri Liverpool,
hefur ákveðlð að styrkja leik-
maxmahóp sirm í kjölfar fjögurra
ósigra x síðustu fimm leikjum.
Dalglish er með Mark Ward hjá
West Ham í sigtinu en hann er
metinn á eina milljón punda. Ward
er 27 ára og hóf feril sinn hjá Ever-
ton. Þaðan iá leiðin til Oldham en
siðustu fimm árin hefur Ward ver-
ið í herbúðum West Hara.
Enn kaupir Souness
Graerae Souness, stjóri Glasgow
Rangers, er enn að sanka að sér
leikmönnum. Souness hefur í tví-
gang fylgst með Scott Sellars, mið-
vailarspilara Blackburn Rovers.
Souness sér Sellars sem heppilegan
arftaka Ray Wilkins.
Bitist um Bryan Gale
Chelsea og Crystal Palace eru nú á
höttunum eftir Bryan Gale, varn-
arraanni Manchester City, Gale er
á lausu eftir að City keypti Colin
Hendry frá Blackburn Rovers.
Harvey sagöi nei
Howard Wilkinson, stjóri Leeds
United, teiur Graeme Sharp, fram-
herja Everton, heppilegan leik-
mann til að styrkja Leeds í topp-
baráttu 2. deildar. Colin Harvey,
stjóri Everton, sagði hins vegar við
WilMnson að Sharp væri ekki til
sölu
Seaman hæfti við
David Seaman, markvörður QPR,
hefur dregið sig út úr landsliðshópi
Englendinga gegn ítölum vegna
raeiðsla. Seanxan átti að verja raark
Englendinga í leik B-liðanna sem
fram fer í Brighton.
Tranmere hafnaöi boði
Tranmere Rovers hefur hafnaö 100
þúsund punda boði Nottingham
Forest í varnarleikmannmn Shaun
Garnett sem er 19 ára.
Porterfield til Reading?
lan Porterfield, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Chelsea, er nú talínn
líklegastur til að taka við stjórnmni
hjá Reading. Porterfield var áður
hjá Aberdeen, Sheffield United og
Rotherham. Porterfield var enn-
fremur leikmaður og markaskorari
Sunderland árið 1973 þegar liðið
sigraöi Leeds United, 1-0, í eftir-
minnilegum bikarúrslitaleik.
Wilson vilifund
Clive Wilson, úthexji Chelsea, er
óánægður hjá félaginu eftir að hafe
misst stöðu sína í byrjunarliðinu.
Wilson hefur óskað eftir fundi með
Bobby Campell, stjóra liðsins, eftir
að hafa ekki einu sinni komist á
varamannabekkinn gegn Everton
á laugardag. Peter Nicholas, félagi
Wilsons hjá Chelsea, hélt upp á
þrítugsafmæli sitt með sigri í áður-
nefndum leik.
Everton spáír í „Úlf“
Everton hefur augastað á Mark
yenus, vamarleikmanm Úlfenna.
Áhugi Everton á hinum 22 ára Ven-
us er tilkominn vegna meiðsla lyk-
ilmaxma liðsins. Ratcliffe, Watson,
Snodin og Whitesido eiga allir við
meiösli að stríöa.
Stoke vill ekki Ball
Stoke City hefur ekki áhuga á Alan
Bali sem framkvæmdastjóra liðs-
ins til frambúðar. Stjómarraenn
Stoke renna hýru auga til Peter
Reid, QPR, Mark Lawrenson, Pet-
erboro, og Bryan Horton hjá Qx-
ford Urnted.
B-landsliö Engiendinga
Enska B-landsliðið, sem mætir B-
liði ítala í kvöld i Biighton, verður
þannig skipað: Markvörður er
Dave Beasant, Chelsea, aðrir leik-
menn: Parker, QPR, Dorigo,
Chelsea, Adams, Arsenal, verður
fyrirlíði, Pallister, Man. Utd, Batty,
Leeds United, Thomas, Arsenal,
Gascoigne, Tottenham, Wise,
Wimbledon, Bull, Wolves, og New-
ell, Everton. V
Kúba mótherji Islands
- 1 A-keppnirmi í handknattlelk
Kúbumenn sigmðu um helgina í
handknattleikskeppni PanAm-leik-
anna sem haldnir vora á heimavelli
þeirra og hafa þar með tryggt sér
þátttökurétt í A-heimsmeistara-
keppninni í Tékkóslóvakíu á næsta
ári. Brasilía varð í öðra sæti og
Bandaríkjamenn máttu sætta sig við
• Frá leik Los Angeles Lakers og Dallas Mavericks í fyrrinótt. Adrian
Dantley í liði Dallas reynir að finna leið framhjá Mycal Thompson.
Símamynd/Reuter
Fimmti sigurinn
hjá Lakers í röð
- Indiana Pacers kemur mest á óvart
Los Angeles Lakers vann sinn
fimmta sigur í NB A-deildinni í körfu-
knattleik í fyrrinótt er liðið sigraði
Dallas Mavericks með 107 stigum
gegn 98 en leikurinn fór fram á
heimavelh Los Angeles Lakers, For-
um. Lakers hefur leikið sex leiki til
þessa og aðeins tapað einum.
Washington Bullets hefur sama
vinningshlutfall og Lakers en í fyrri-
nótt vann liðið Portland Trail Blazers
með 104 stigum gegn 95. Þá sigraði
Seattle Supersonics nýliðana Minne-
sota Timberwolves með 108-97.
Það lið sem hvað mest hefur komið
á óvart í deildinni er Indiana Pacers,
liðið hefur unnið allar fjórar viður-
eignir sínar fram þessu og er eina
taplausa liðið. Chicago Bulls, sem
leikur eins og Pacers í miðríkja-riðl-
inum, hefur tapað tveimur leikjum
en liðið lék til úrslita í fyrra.
Staðan í deildinrú, fyrst unrúr leik-
ir, síðan tapaðir leikir og loks vinn-
ingshlutfall í prósentum.
Atlantshafsriðill:
Washington...............5 1 83,3%
NewYorkKnicks............3 2 60%
New JerseyNets...........3 2 60%
BostonCeltics..........3
Philadelphia 76ers.....2
MiamiHeat..............2
Miöríkjariðill:
IndianaPacers..........4
ChicagoBulls...........4
Milwaukee Bucks........3
DetroitPistons.........3
Orlando Magic..........2
AtlantaHawks...........1
Cleveland Cavaliers....1
Miðvesturriðill:
UtahJazz................3
Denver Nuggets..........3
Houston Rockets.........3
San Antonio Spurs.......2
Dallas Mavericks........1
MinnesotaTimberwolves. 1
Charlotte Homets........0
Kyrrahafsriðill:
Los Angeles Lakers.....5
Portland Trail Blazers.4
Seattle Supersomcs.....3
Phoenix Stms...........2
Sacramento Kings.......2
Golden State Warrios...2
Los Angeles Clippers...1
50%
50%
33%
100%
66,7%
60%
50%
40%
25%
20%
75%
60%
60%
50%
20%
20%
0,0%
83,3%
66,6%
50%
50%
40%
40%
25%
-JKS
„Læknarnir hjá Spurs
voru miklir fúskarar“
- segir Pétur Guðmundsson sem fer til Evrópu eða í CBA-deildina
„Það er að koma betur og betur í ljós
hve miklir fúskarar læknarxúr voru
hjá San Antorúo Spurs þegar ég var
þar.
Lækxúrinn sem hefur annast mig að
undanfórnu á varla til orð yfir þá með-
ferð sem ég var beittur hjá Spurs,“ sagði
körfuknattleiksmaðurinn Pétur Guð-
mundsson í samtali við DV í gær. Pétur
hefur átt erfitt uppdráttar síðustu
mánuðina og átt við erfið meiðsli að
stríða.
Fyrir tveimur vikum gekkst Pétur enn
á ný undir uppskurð vegna meiðsla í
hné, sem hann varð fyrir þegar hann
lék með SA Spurs, og er nú á batavegi.
„Ég er að vísu að ganga í gegnum endur-
hæfingartímabil en því lýkur brátt og
þá taka erfiðar æfingar við,“ sagði Pétur
í gær.
• Pétur Guðmundsson stefnir á að
komast að hjá evrópsku liði.
„Skynsamlegast að
fara til liðs í Evrópu“
Hvað tekur við hjá þér þegar þú verður
orðinn góður og kominn í æfingu á ný?
„Þetta er erfið spurning. Ég er ekki
samningsbundinn hjá neinu liði sem
stendur. Skynsamlegast væri ef til vill
að reyna að komast að hjá liði í Evrópu.
Þar eru leikimir færri og álagið ekki
eins mikið og í NBA-deildinni.“
- Þér tókst ekki að komast að hjá
Milwaukee Bucks og Minnesota?
„Nei, það gekk ekki. Ég féll á læknis-
skoðun hjá Bucks og þegar ég kom tii
Minnesota kom í ljós að forráðamenn
liðsins vildu umfram allt byggja hðið
sitt upp á litlum og snöggum leikmönn-
um. Þó að ég sé snöggur passaði ég ein-
faldlega ekki inn í þá mynd. Eins og ég
sagði áðan er Evrópa efst á blaði hjá
mér sem stendur en það kemur líka til
greina að ég leiki með liði í CBA-deild-
inni sem er eins konar undirbúnings-
deild fyrir NBA-deildina.“
Lakers tók þotu
á leigu í vetur
Um keppnina í NBA-deildinni í vetur
og hugsanlega meistara sagði Pétur í
gær: „Það er erfitt að spá í þessi spil
en þeir eru margir sem halda því fram
að gömlu erkifjendurnir, Lakers og Bos-
ton, muni berjast um meistaratitilinn.
Enginn afskrifar þó Detroit Pistons,
meistarana frá í fyrra, en þeir hafa byrj-
að illa. Það verður allt gert til að Lakers
nái titlinum á ný. Eigendur liðsins hafa
tekið stórglæsilega þotu á leigu í vetur
sem mun flytja leikmenn Lakers-liðsins
í útileiki," sagði Pétur. -SK
Alþjóðlegt handknattleiksmót í Tékkóslóvakíu:
Góður sóknarleikur en
vandræði með vömina
- þegar ísland sigraði úrvalslið frá Austur-Þýskalandi, 25-23
Islenska landsliðið í handknattleik
sigraði úrvalslið norðurhéraða Aust-
ur-Þýskalands, 25-23, í fyrstu um-
ferðinni á alþjóðlegu móti sem hófst
í Tékkóslóvakíu í gær. ísland var
tveimur til fjórum mörkum yfir nær
allan leikinn og leiddi 10-7 í hálf-
leik.
„Sóknarleikurinn var góður en við
vorum í vandræðum með vömina.
Annars eru þetta góð úrslit því það
voru margir landshðsmenn í austur-
þýska liðinu og þetta er skráður A-
landsleikur hjá þeim. Geir Sveinsson
átti stórgóðan leik, bæði í vörn og
sókn, og Héðinn Gilsson, sem var
valinn maður leiksins, skoraði mörg
glæsileg mörk. Guðmundur Hrafn-
kelsson varði markið vel en annars
stóðu allir vel fyrir sínu og ekki rétt
að gera mikið upp á milli manna,"
sagði Guðjón Guðmundsson, liðs-
stjóri íslenska hðsins, í samtali við
DV í gærkvöldi.
Mörk Islands skoruðu: Héðinn
Gilsson 6, Óskar Ármannsson 6/3,
Geir Sveinsson 4, Júlíus Jónasson
4/1, Bjarki Sigurðsson 3 og Sigurður
Gunnarsson 2.
ísland mætir Túnis í dag, Hvíta-
Rússlandi á morgun, B-hði Tékka á
fimmtudag, og B-hði Tékka á föstu-
dag, en heimamenn hafa greinilega
sett það upp sem úrslitaleik mótsins.
-VS
• Geir Sveinsson var besti leikmaður íslenska
landsliðsins i gærkvöldi.
Varnarmenn Anderlecht skástir
- Amór í myndatöku í gær vegna meiðsla í baki
Arnór meiddist í leiknum og fór í
myndatöku í gær en ekkert alvarlegt
kom í ljós. í spjalli við DV í gær sagð-
ist hann væntanlega geta farið að
æfa á miðvikudag og ætti aö vera
leikfær um næstu helgi.
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Varnarmenn Anderlecht þóttu
skástir í liði Anderlecht er það tapaði
svo óvænt fyrir Gent í 1. deildinni í
knattspymu um síðustu helgi og
fengu hagstæðustu einkunnir í blöð-
um. Het Nieuwsblad gaf Van Tigge-
len 3, Amór Guðjohnsen, De Wilde
og Keshi fengu aÚir 2 en aðrir leik-
menn hðsins lægstu einkunnina, eða
1.
Samningur HSÍ og Landsbanka íslands kynntur í gær:
Tuga milljóna virði
- HSÍ sækir um að fá að halda HM piltalandsliða árið 1993
þriðja sætið.
Kúba verður því í riðli með íslandi
í lokakeppninni og verður án efa
mjög erfiöur mótherji. Liðið er að
mestu skipað sömu leikmönnum og
kepptu í úrslitum HM í Sviss árið
1986 en þá þótti þaö mjög efnilegt.
-VS
„Þessi samningur er að mínu mati
mjög áhugaverður fyrir HSÍ og ánægju-
legt til þess að vita að Landsbanki ís-
lands skuli sýna landshðum HSÍ svo
mikinn stuðning. Sámningurinn er mjög
stór og gildir til næstu sjö árasagði Jón
Hjaltalín Magnússon, formaður HSI, í
gær en þá var kynntur samningur á milli
HSÍ og Landsbanka íslands sem felur í
sér margvíslegan stuðning bankans við
HSÍ. Að sögn Jóns Hjaltalín gerir þessi
samningur HSÍ kleift að undirbúa lands-
lið okkar á þann veg fyrir HM 1995 hér
á landi að til sóma verði landi og þjóð.
Aðilar samningsins stefna að eflingu
handknattleiksíþróttarinnar á íslandi og
undirbúningi og kynningu á A-heims-
meistarakeppni karla á íslandi árið 1995
og kynningu á þjónustu og starfssemi
Landsbanka íslands. Auglýsingasamn-
ingur þessi gildir til 31. desember 1995
með forgangsrétti Landsbanka Islands á
sviði fjármálastofnana til að nota lands-
liðsmenn í handknattleik í auglýsingum
sínum. Þá mun Landsbankinn aðstoða
HSÍ við framkvæmd landssafnana svo
og landshappdrætta til stuðnings lands-
liðinu
HSÍ hefur rekið þá stefnu að gera fáa
en stóra samninga við bakhjarla. Samn-
ingurinn við Landsbankann er fimmti
stóri samningurinn en forráðamenn HSÍ
og Landsbankans fengust ekki til að
nefna neinar krónutölur. Sverrir Her-
mannsson, bankastjóri Landsbankans,
sagði þó í gær á blaðamannafundi að
samningurinn væri HSÍ tugmilljóna
virði.
Mikið er framundan hjá HSÍ. Næsta
stórverkefni er vitanlega HM í Tékkósló-
vakíu í byijun næsta árs og síðan tekur
HM liða undir 21 árs við í Grikklandi
árið 1991. Síðan er HM karlaliða í Svíþjóð
1993 og HM hér á landi 1995. DV skýrði
frá því sl. sumar að HSÍ hygðist sækja
um að fá að halda HM piltalandsliða
undir 21 árs hér á landi árið 1993. í gær
sagði Jón Hjaltalín: „HSÍ hefur ákveðið
að sækja um þessa keppni. Ég kynnti
málið á fundi Evrópusambanda á Kýpur
fyrir skömmu og fékk þessi umsókn HSÍ
mjög góðan byr á fundinum. Ég tel mjög
raunhæfa möguleika á því að okkur verði
falið að halda keppnina 1993 og yrði það
kærkominn undirbúningur fyrir móts-
haidið 1995.“
Þess má geta að vegna HM hér á landi
1995 mun HSÍ gangast fyrir samkeppni
um merki keppninnar og geta alhr tekið
þátt. Gögn og upplýsingar varðandi
merkið er hægt að fá hjá Olafi Jenssyni
í Byggingaþjónustunni en hann er trún-
aðarmaðurdómnefndar. -SK
• Fulltrúar Landsbanka Islands og HSI við undirritunina í gær. Frá vinstri: Brynjólfur Heigason, Landsbankanum,
Jón Hjaltalin Magnússon, formaður HSÍ, Sverrir Hermannsson, Landsbankanum, Valur Arnþórsson, Landsbankan-
um, og Ólafur Jónsson, HSÍ. DV-mynd S
íþróttir
• Þorgils Öttar Mathiesen komst ekki út með landsliðinu á sunnudag
og var veðurtepptur í Englandi í gaer ásamt þremur Valsmönnum.
Prófkjor
og þoka
~ veiktu landsliö íslands 1 gær
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirhöi íslenska landsliðsins í handknattleik,
gat ekki leikið með gegn Austur-Þjóðverjum í Tékkóslóvakíu í gær-
kvöldi. Haim var veðurtepptur í Manchester á Englandi ásamt Valsmönn-
unum Jakobi Sigurðssyni, Valdimari Grímssyni og Einari Þorvarðar-
syni, en þeir fóra að heiman í gærmorgun, sólarhring á eftir hinum lands-
liðsmönnunum.
Valsmennimir komust ekki fyrr vegna Evrópuleiksins gegn Raba ETO
á sunnudagskvöldið en Þorgils Óttar komst ekki utan á sunnudag af öðr-
um ástæðum. Harrn tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjar-
stjómarkosningarnar í Hfenarfirði næsfe vor og gat af þeim sökum ekki
farið fyrr en í gærmorgun.
Fjórmenningarnir eru væntanlegir til Tékkóslóvakíu í dag, svo framar-
lega sem þokunni sem grúfði yfir Norður- ög Mið- Evrópu léttir en hún
lék ílugsamgöngur mjög grátt í gær.
NM drengja í fLmleikum:
Guðmundur náði
5. sæti í stökki
íslendingar áttu tvo keppendur á
Noröurlandamóti drengja í fimleik-
um sem fram fór um liðna helgi á
Laugarvatni.
í enstaklingskeppni varð Guð-
mundur Brynjólfsson í 23. sæti af 29
keppendum og hlaut samanlagt 42,90.
stig. Jón Finnbogason varð í 27. sæti
með 39,05 stig. Norðurlandameistari
varð Finninn Jari Mönkkönen og
hlaut hann 51,90 stig.
í liðakeppni urðu Finnar Norður-
landameistarar og hlutu samtals
248,45 stig. Svíar urðu í öðru sæti
með 241,50 stig og Norðmenn þriðju
í röðinni með 233,70 stig. Danir urðu
í íjórða sæti með 226,30 stig og íslend-
ingar fimmtu með 81,95 stig en í ís-
lenska hðinu voru aðeins tveir kepp-
endur.
• í keppni á einstökum áhöldum
varð Jón Finnbogason í sjöunda sæti
í gólfæfingum og hlaut fyrir æfmgar
sínar 8,35 stig. Magnus Rosengren frá
Svíþjóð varð meistari og hlaut 9,35
stig.
• Guðmundur Brynjólfsson varð í
fimmta sæti í stökki og hlaut 8,325
stig. Meistari varð Magnus Rosen-
gren frá Svíþjóð með 9,025 stig.
-SK
Pálmar og Guð-
mundur frábærir
- þegar landsliöiö vann öflugt háskólalið
íslenska landsliðið í körfuknatt-
leik er nú á æfinga- og keppnis-
ferðalagi í Bandaríkjunum. Liðið
verður um hálfan mánuð í ferðinni
og leikur níu leiki við sterk há-
skólalið. íslenska hðið hefur leikið
tvo leiki, sá fyrsti tapaðist en annar
leikurinn vannst á glæsilegan hátt.
Á fóstudagskvöldið tapaði ís-
lenska landsliðið fyrir University
of New Hampshire með tíu stiga
mun. íslenska liðið lék langt undir
getu og átti háskólaliðið ekki í
vandræðum með að vinna sigur.
Virtist sem einhver ferðaþreyta
hefði komið niður á leik liðsins.
Á laugardeginum gekk íslenska
liðinu hins vegar allt í haginn og
sigraði hið sterka háskólalið Nort-
heastem University, 92-89. Að sögn
Kolbeins Pálssonar, formanns
körfuknattleikssambandsins, sem
er í íor með liðinu vestra, var þetta
einn besti leikur íslenska landsliðs-
ins um langan tíma. Allt lagðist á
eitt, vamar- og sóknarleikur var
mjög góður. Pálmar Sigurðsson og
Guðmundur Bragason áttu báðir
stórleik, Guðmundur hirti fjölda
frákasta og skoraði auk þess
grimmt. Northeastem University
er sterkt á háskólamælikvarða, lið-
ið komst í úrslitakeppnina í fyrra
og í háskólakeppninni 1985 afrek-
aði liðið að komast alla leið í und-
anúrslitin.
í dag leikur íslenska liðið gegn
Iona College sem lék til úrslita í
keppninni í fyrra. Síðan rekur hver
leikurinn annan og síðasti leikur
hðsins verður 20. nóvember. Heim
til íslands kemur liðið síðan 23.
nóvember.
-JKS