Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Qupperneq 7
7 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989. Fréttir Karmelítaklaustrið 1 Hafnarfirði: U ng kona vinnur heit sitt Systir Teresa af barni Jesú, 22 ára gömul pólsk kona, vann síðastliðinn fostudag nunnuheit til þriggja ára í Karmelítaklaustrinu í Hafnarfirði. Að sögn systur Agnesar, einnar systurinnar, er eitt og hálft ár síðan Teresa gekk til liðs við regluna. Heit- ið sem hún vann núna er til þriggja ára en að þeim tíma loknum mun hún vinna lokaheit sitt. Eið sinn vann Teresa við messu á fóstudaginn og var athöfnin fjöl- menn. Meðal viðstaddra var biskup kaþólska safnaðarins, Alfreð Jolson. Og það var hann sem byrjaði á því að spyrja Teresu þriggja spuminga, áður hún vann heit sitt; hvort það væri einlægur vilji hennar að gerast nunna, hvort hún vaéri reiðubúin að lifa í fátækt og hvort hún væri reiðu- búin að lifa algjöru skírlífi. Þegar Teresa hafði svarað þessum spurn- ingum játandi kraup hún og fór meö eiðstafinn. Nunnum í klaustrinu hefur farið fjölgandi, þann 6. desember síðastlið- inn fluttist 25 ára gömul kona frá Póllandi hingað til lands til að ganga til hðs við regluna. Karmelítasystur í Hafnarfirði eru því orðnar 22. -J.Mar Systir Teresa af barni Jesú vann nýlega nunnuheiti til þriggja ára í Karmelítaklaustrinu í Hafnarfirði að þeim tíma loknum mun hún vinna lokaheit sitt. DV-mynd GVA Dé Longhi djúp- steikingarpotturinn er byltingarkennd nfjung Hallandi karfa, sem snýst meðan á steikingu stendur: * jafnari steiking 'notar aðeins 1,2 Itr. afolíu í stað 3ja Itr. í "venjulegum" pottum *styttri steikingartími *50% orkusparnaður Potturinn er lokaður meðan á steikingu stendur. Fitu- og kolsía tryggja hreinlæti og eyða lykt. Hægt er að fylgjast með steikingunni gegnum sjálf- hreinsandi glugga. Hitaval 140 -190 C. - 20 mín. tímarofi með hljóðmerki. .KflOA (DeLonghi) Dé Longhi erfallegur fyrirferðarlítill ogfljótur /FOnix HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 ÍSLENZK ÁSTALJÓÐ Snorri Hjartarson valdi Ijóðin. ( bókinni eru 70 Ijóð eftir 50 íslensk skáld, öll Ijóðin eru listaverk. Snorri Hjartarson var einn af öndvegishöfundum íslenskrar Ijóðlistar á þessari öld. Nafn hans tryggir vandað Ijóðaval. Verð: 1950 kr. HALLGRÍMUR PÉTURSSON Sálmar og kvæði - úrval Fyrra bindið er Passíusálmarnir í útgáfu Helga Skúla Kjart- anssonar, en síðara bindið er safn sálma og kvæða, úrval, tekið saman af Páli Bjarnasyni cand. mag. Hallgrímur Péturs- son er eitt mesta trúarskáld okkar fyrr og síðar, en hann orti einnig gamankvæði, stökur, lausavísur og rímur. Einstaklega fallegt og eigulegt ritsafn sem á erindi inn á hvert heimili. Verð: 4975 kr. AFLAKÓNGAR OG ATHAFNAMENN III í þessu síðasta bindi ritsafnsins eru stór- fróðleg viðtöl Hjartar Gíslasonar við útvegsmenn og skipstjóra úr öllum lands- fjórðungum. Viðmælendur eru: Guðrún Lárusdóttir, Háfnarfirði, Ólafur Örn Jónsson, Reykjavík, Ingvi Rafn Alberts- son, Eskifirði, Runólfur Hallfreðsson, Akranesi, Örn Erlingsson, Keflavík og Guðbjartur Ásgeirsson, ísafirði. Þetta er bók sem fjallar í máli og myndum um það sem efst er á baugi í íslenskum sjávarút- vegi og gefur raunsanna mynd af lífi sjó- manna. Verð: 2980 kr. BÆNDURÁ HVUNNDAGSFÖTUM Samtalsbók Helga Bjarnasonar um nútíma bændur, líf þeirra, búskap og áhugamál, félagsstörf og skoðanir. Þau sem segja frá eru: Aðalsteinn Aðalsteins- son á Vaðbrekku, Guðrún Egilsdóttir í Holtsseli, Pálmi Jónsson á Akri, Ólafur Eggertsson á Þorvaldseyri, Jóhannes Kristjánsson á Höfðabrekku og Þórólfur Sveinsson á Ferjubakka. 120 Ijósmyndir prýða bókina. Hún er fróðleiksnáma um líf og störf bænda. Verð: 3280 kr. SsL t>ínVuv«i aík. ^uivm » LÍFSREYNSLA III I þessu lokabindi safnsins er sem fyrr skyggnst inn í margþætta reynslu fólks úr öllum landshlutum. Meðal efnis erfrásögn Sigríðar Guðmundsdóttur af hjúkrunar- störfum hennar í Eþíópíu, sagt frá ótrúlegri björgun íslendings úr námuslysi á Sval- barða, frásögn Ágústu Guðmundsdóttur sem lamaðist í mótorhjólaslysi og lýsing Einars Sigurfinnssonar á martröð alkóhól- istans. Einnig frásagnir af björgun úr lífs- háska á sjó og landi. Ógleymanleg og áhrifamikil bók. Verð: 2980 kr. HÖRPUÚTGÁFAN Stekkjarholti 8-10, 300 Akranes Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.