Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989. Viðskipti_____________________ Búnaðarbanki lánar Landsbanka grimmt - Landsbanki með um 900 milljóna króna lán í Búnaðarbanka Landsbanki íslands, langstærsti banki þjóðarinnar og með næstum um helming allra útlána bankanna, er með svo lélega lausaíjárstöðu aö hann fær að jafnaði lán hjá öðrum bönkum. Þannig hefur Landsbank- inn nú fengið í kringum 900 milljóna króna lán í Búnaðarbanka, sam- kvæmt heimildum DV. Þetta 'gerir bankinn til að þurfa ekki að yfir- draga hjá Seðlabanka á mun hærri vöxtum. Lán Landsbanka hjá öðrum bönk- um teljast til millibankaviðskipta. í ársskýrslu Seðlabanka má sjá að í fyrra skuldaði Landsbankinn að jafnaði rúman 1 milljarð á þessum markaði. Hann er langumsvifamesti bankinn í millibankaviðskiptum. Árið 1987 skuldaði bankinn um 553 milljónir króna að jafnaði á milli- bankamarkaðnum. Búnaðarbankinn er sá banki sem lánar öðrum bönkum flest og mest lán. Hann er veitandi á millibanka- markaðnum. Svo mun einnig vera Verslun á landsbyggðinni jókst mun meira en verslun í Reykjavík fyrstu átta mánuði ársins. Smásölu- verslunin úti á landi er því að rétta úr kútnum og margt bendir til að hún sé komin aftur heim í hérað en mjög hefur borið á því undanfarin tvö ár að fólk utan af landi hafi brunað til Reykjavíkur í innkaupaleiðangra. Það er hins vegar að minnka, sam- kvæmt gögnum frá Þjóðhagsstofnun. Smásöluverslun í Reykjavík jókst Butler íhug- ar að reisa verksmiðju í Helguvík Breska stórfyrirtækið Butler íhugar nú alvarlega að reisa þilplötuverksmiðju hér á landi sem veita mun nokkrum tugum íslendinga atvinnu. Forráöamenn Butler hafa meðal annars skoðað aðstæður í Þorlákshöfn, Grundartanga, Helguvík og Reykjavík. Það sem skiptir þá mestu máli er hafnaraöstaðan en verksmiðj- an veröur reist við höfn verði á annaö borð ákveðið að byggja hana. Samkvæmt upplýsingum DV mun forráðamönnum Butler fyrirtækisins lítast mjög vel á aðstæður við Helguvík. Sveinn Halldórsson, umboðs- maður Butler á íslandi, segir að þess sé fljótlega að vænta aö fyrirtækið taki ákvörðun um verksmiðjuna. Að öðru leyti vill hann ekki tjá sig um máliö. Butler er mjög þekkt fyrir stálgrindahús. Stálgrindahúsið, sem Trésmiðjan Víðir reisti í Kópavogi á sínum tíma, er ein- mitt hús frá Butler í Bretlandi. -JGH Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans. Landsbankinn fær grimmt lánað hjá Búnaðarbankan- um. um sparisjóðina. Aðrir bankar leita oftast út á markaðinn og fá lánað, Landsbankinn þó mest. fyrstu 8 mánuði ársins um 13,8 pró- sent á meðan smásöluverslun á Reykjanesi jókst um 13,7 prósent, samkvæmt Þjóðhagsstofnun. Smá- söluverslun annars staðar á landinu jókst hins vegar um tæp 17 prósent. Veröbólga, hækkun framfærsluvísi- tölunnar, fyrstu átta mánuðina var hins vegar rúm 16 prósent. Það er því samdráttur á höfuðborgarsvæð- inu en þensla á landsbyggðinni, magnaukning í viöskiptum. Bátagerðin Samtak í Hafnarfirði er nú að smíða 36 manna ferju fyrir Pál Helgason í Vestmannaeyjum. Páll rekur ferðaskrifstofu í Eyjum og er umsvifamikill í skoðunarferð- um með útlendinga um eyjarnar á sumrin. Að sögn Hauks Sveinbjarnarsonar, eiganda Bátagerðarinnar Samtaks, mun ferjan verða notuð til að sigla með ferðamenn í skoðunarferðir í kringum eyjamar. Ferjan er úr Á millibankamarkaðnum semja bankarnir sín á milli um upphæð lána og kjör. Engar reglur eða tak- markanir eru á því hvað einn banki getur lánað öðrum. Lánskjör eru yf- irleitt þau sömu og gilda í almennum útlánum bankanna þegar lánað er til minna en tveggja ára, lánin eru óverðtryggð en bera háa nafnvexti í takt við verðbólguna. Eiríkur Guðnason, aðstoöarbanka- stjóri Seðlabankans, segir að Seðla- bankinn hvetji bankana mjög til að sækja á millibankamarkaðinn í stað þess aö yfirdraga í Seðlabankanum, komi sú staða upp. „Seðlabankinn hefur hvatt til að þessi markaður sé notaður." Eiríkur segir ennfremur að milli- bankamarkaðurinn sé hugsaður sem skammtímamarkaður fyrir bank- ana, lánin séu til skamms tíma og uppgjör með skömmum fyrirvara. Um það hvort krónísk þörf Lands- bankans á að sækja út á þennan markað sé ekki ofnotkun á milli- Matvöruverslun í Reykjavík jókst um 20 prósent fyrstu átta mánuðina. Á Reykjanesi jókst hún um 25,3 pró- sent. Annars staðar á landinu jókst hún um 38,6 prósent. Af þessu sést að matarinnkaupin eru greinilega komin aftur heim í hérað. Utan- bæjarmenn hafa snarminnkað það að rúlla tO Reykjavíkur til að kaupa í matinn. Magnús Finnsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtakanna, sagði trefjaplasti, hönnuð af syni Hauks, Snorra Haukssyni. Sigurður Karls- son arkitekt teiknaði hins vegar far- þegarýmið. „Þetta er úthafsskip. Snekkjur af svona stærð fara heimshornanna á milli,“ segir Haukur. Ferjan er 13,6 metrar á lengd og um 4 metrar á breidd. Ganghraöi er allt að 28 sjó- mílur. „Okkur miðar mjög vel með verk- ið. Skrokkurinn, með ísetningu glers Stefán Pálsson, bankastjóri Búnað- arbanka. Búnaðarbanki er sá banki sem mest lánar öðrum bönkum. Sparisjóðirnir eru einnig lánveitend- ur á þessum markaði, eins og Bún- aðarbankinn. bankamarkaðnum segir Eiríkur: „Það að sækja mikið og stöðugt út á í gær að það væri sama ástandið í verslun og öðrum atvinnugreinum þjóðfélagsins, það væri mikill sam- dráttur. „Jólasala virðist þó vera að færast í aukana. Það var mikið að gera bæði í Kringlunni og við Laugaveg- inn síðastliðinn laugardag. Það er nú líka einu sinni þannig að þjóðin hefur alltaf leyft sér að halda jól þó illa ári. -JGH og öörum frágangi, er að verða bú- inn. Þá á eftir að innrétta ferjuna. En ég reikna með að geta afhent skip- iö á tilskildum tíma sem er 15. apríl,“ segir Haukur. Þess má geta að Bátagerðin Samtak afhenti á dögunum tæplega 10 tonna fiskibát til Eskifjarðar. Báturinn var úr trefjaplasti og hannaður hjá Sam- taki. -JGH millibankamarkaðinn eru einkenni á lélegri lausafjárstööu. Lausafjár- staða Landsbankans hefur verið mönnum áhyggjuefni. Það er ekki hollt fyrir banka að vera með lélega lausafjárstöðu til lengri tíma.“ Stefán Pálsson, bankastjóri Búnað- arbanka, sagðist í gær alls ekki tjá sig um útlán bankans til einstakra lántaka. „Ég vil aðeins segja að við erum veitendur á þessum markaði. Það endurspeglar vel sterka stöðu bankans. Lausafjárstaða okkar er mjög sterk.“ Ekki tókst að ná í bankastjóra Landsbankans í gær. - JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 9-12 Bb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 11.5-13 Úb.Vb 6mán. uppsögn 12,5-15 Vb 12mán.uppsögn 12-13 Lb 18mán. uppsögn 25 Ib Tékkareikningar, alm. 2-4 Sp.Vb Sértékkareikningar 4-12 Bb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 0.75-2 Vb 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2.Ö-3.5 Ib 21 Lb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 7,25-7,75 Ab Sterlingspund 13.25-14 Bb.lb,- Ab. Vestur-þýskmörk 6,5-7 Ib Danskarkrónur •9-10.5 Bb.lb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 27,5 Allir Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 28 32.25 Vb Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgenqi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-35 Lb.lb Utlán verðtryggð . Skuldabréf 7,25-8.25 Úb Útlántilframleiðslu ísl. krónur 25-31,75 Úb SDR 10,5 Allir Bandarikjadalir 10-10,5 Allir nema Úb.Vb Sterlingspund 16.25-16.75 Úb Vestur-þýsk mörk 9,25-9,75 Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 38,4 MEÐALVEXTIR Óverötr. nóv. 89 29.3 Verðtr. nóv. 89 7.7 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala nóv. 2693 stig Byggingavísitala nóv. 497 stig Byggingavisitala nóv. 155,5stig Húsaleiguvísitala 3,5% hækkaði 1. okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4.463 Einingabréf 2 2.459 Einingabréf 3 2,941 Skammtímabréf 1,527 Lífeyrisbréf 2,244 Gengisbréf 1,977 Kjarabréf 4.427 Markbréf 2,346 Tekjubréf 1.883 Skyndibréf 1,335 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 2.146 Sjóðsbréf 2 1.643 • Sjóðsbréf 3 1.507 Sjóðsbréf 4 1.267 Vaxtasjóðsbréf 1,5165 HLUTABREF Söluverð að lokinni jófnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 400 kr. Eimskip 400 kr. Flugleiðir 162 kr. Hampiöjan 172 kr. Hlutabréfasjóður 164 kr. lönaöarbankinn 178 kr. Skagstrendingur hf. 300 kr. Útvegsbankinn hf. 153 kr. Verslunarbankinn 153 kr. Oliufélagiö hf. 312 kr. Grandi hf. 157 kr. Tollvörugeymslan hf. 110 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab~ Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. Verslun á landsbyggðinni að braggast: Þjóðin alHaf leyft sér að halda jól - segir Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna Svona lítur hún út á teikniborðinu, hin nýja, 36 manna ferja sem er í smíðum fyrir Pál Helgason í Vestmannaeyjum. Ferja í smíðum fyrir Pál Helgason í Eyjum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.