Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989. Spumingin Hvað finnst þér um auglýsingar inni í dagskráriiðum sjónvarps? Ólafur Gústafsson: Þær eru mjög hvimleiðar en ekki rétt að banna þær. Kjartan Brynjólfsson: Ekki nógu góðar en óþarfi að banna þær. Rut Valgarðsdóttir: Ég horfl nú aldr- ei á sjónvarp en það mætti alveg sleppa þessum auglýsingum. Finnur Júlíusson: Mér fínnast þær leiðinlegar. Maður nennir ekkert að bíða eftir að þeim ljúki. Það ætti skil- yrðislaust aö banna þær. Högni Einarsson: Þær eru hundleiö- inlegar og ætti að banna þær. Dagbjört Pálmadóttir: Óþolandi. Það mætti gjaman banna þær. Lesendur i>v Ofbeldi meðal unglinga: Ahrifamáttur kvikmynda? Bréfritari hefur efasemdir um að fjölgun í lögregluliði iétti róðurinn gegn ofbeldinu. Elías Björn Kárason skrifar: í umræðunni um ofbeldi meðal unglinga hefur að undanförnu verið vakin upp sú gamla lumma að þar sé ofbeldiskvikmyndum og mynd- böndum um aö kenna. Hér er greini- lega verið að undirbúa ritskoðunar- herferö að skandinavískri fyrir- mynd, þar sem láta á eftir „kerling- um“ af báðum kynjum að ákveða hvað fólki sé óhætt að sjá. Svipað fjaðrafok átti sér staö fyrir nokkrum árum og hafði í för með sér að margar merkilegar kvikmyndir hurfu af markaðnum hér (ásamt ýmsu rusli að vísu). - Nokkrir tönnl- uðust þá mest á mynd sem hét „Cannibal Holocaust" og fjallaði m.a. um mannát. Þetta vakti gríðarat- hygli á þessari ómerkilegu mynd sem haföi fengið almenna kvikmynda- húsadreifmgu á meginlandi Evrópu án þess að nokkur yrði var við aukið mannát í kjölfarið meðal almenn- ings. Staðreyndin er sú að enginn hefur sýnt fram á, svo óyggjandi sé, að of- beldiskvikmyndir hvetji til ofbeldis- verka. Það væri að ætla kvikmynd- um meiri áhrifamátt en dáleiðslu, en sannað er að ekki er hægt að dáleiða mann til að fremja verknað er stríðir gegn siðferðisvitund hans. Raunar er óvíða meira um ofbeldis- verk en í miklu fásinni, t.d. á Græn- landi og í A-Evrópu, þar sem hrein leiðindi leiða menn á villigötur, en ekki það að óhollu myndefni sé hald- ið að þeim. - Þar er e.t.v. að leita skýringa á ofbeldinu á íslandi. Samtimis verð ég að lýsa undrun minni á því hvernig lögreglumenn hafa fylkt liði í fjölmiðlum til að út- mála skelk sinn við unglinga í mið- borginni. Þeim finnst þetta kannski nauðsynlegt til að kría út hærri fjár- veitingu og til að breyta ímynd sinni í fjölmiðlum, sem til skamms tíma voru iðnari við að útmála lögregluna sem ofbeldisseggi en fórnardýr. Það er hins vegar grundvallar- tækni í allri hertækni og löggæslu að láta ekki andstæðinginn vita af vanmætti sínum, heldur að freista þess að koma á óvart og vera þá fastari fyrir en hinn á von á. - Lög- regíumenn áttu að benda á vandræði sín á öðrum vettvangi en í fjölmiðl- um. Mér segir svo hugur að jafnvel þótt fjölgað verði í lögreglunni, verði hér eftir þyngri róður fyrir lögregl- una að láta taka mark á sér eftir að lögreglukórinn breyttist í „grátkór", sem syngur um sjálfan sig sem héra- skinn og unglinga sem veiðimenn. Ofeldi og orðbragð - á Alþingi Guðrún Sigurðardóttir skrifar: Ofanrituð hefur yfirleitt ekki lagt það á sig að hlýða á útvarpsumræö- ur frá Alþingi en gerði það þó hinn 30. nóvember sl. Heldur var lítið á þeim umræðum að græða. Þó brá þar fyrir stöku ræðum sem veittu nokkra yfirsýn um gang mála. - Nefna má snjalla ræðu Jóns Bald- vins Hannibalssonar sem annars vinnur að mestu utanlands um sinn og hefur raunar staðið sig mjög vel á þeim vettvangi, sbr. álit þýska ráðherrans sem hér var á ferð nýlega. Mega Svíar líklega fara að endur- skoða það álit sitt að þetta verkefni yrði íslendingum ofviða. - Það er mjög ólíklegt að þeir hefðu gert betur - og geri betur - þegar röðin kemur að þeim. Annars er vafasamt hvort flutn- ingur vantrauststillögunnar var ekki misráðinn hjá sjálfstæðis- mönnum. Ef ekki hefði komið til afar slök frammistaða stjórnarliða flestra í umræðunum hefði a.m.k. orkað tvímælis hvort nokkur ávinningur hefði náðst hjá stjórn- arandstöðunni. Einkum voru borgaraflokks- menn afspyrnu lélegir. Framganga þeirra einkenndist mest af yfirlæti og drýldni. Þeir slepptu þó að þessu sinni að senda Albert Guðmunds- syni tóninn. Það' óvandaða orð- bragð, sem þeir hafa viðhaft í garð Alberts, er mjög óviðeigandi, svo að ekki sé meira sagt, því að hann einn megnaöi að koma þessum mönnum á þing. - En báðir ráð- herrar Borgaraflokksins höföu árum saman gert tilraunir til þing- mennsku - en án árangurs. Um það að launa hjálpsemi á þann hátt sem hér var getið var áður fyrr notað það orðalag að sjaldan launaði kálf- ur ofeldi. Við hverju getum við búist í kjarasamningum? Opinber starfsmaður skrifar: Eins og flestir sem fylgjast með þjóðmálum vita eru nú hafnar könn- unarviðræður milli BSRB og ríkis- stjómarinnar um nýjan kjarasamn- ing. Lítið er enn aö frétta og vart verður neitt marktækt komið fram fyrir áramótin. Það markar maöur af reynslu undangenginna árá. Nú er kannski ekki mikið til að semja um í sjálfu sér og því eins gott að allir kjarasamningar bíði fram til þess tíma að samningar hefjist á hin- um almenna vinnumarkaði, eins og hann er oft kallaður. - Þetta teldi ég bestu lausnina. Ég tel það hins vegar mjög slæman K.S. hringdi: í fyrirspurnatíma á Alþingi spurði Stefán Valgeirsson hvers vegna mál fyrrverandi hæstaréttardómara vegna vínkaupa hefði ekki verið rannsakað að hætti opinberra mála eins og boðið væri í lögum um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins. - Einnig spurði Stefán hvers vegna ekki væri höfðað mál á hendur öðr- um handhöfum forsetavalds þar sem þeir heföu með sambærilegum hætti keypt áfengi. leik ef brugðið verður á það ráö að ota hverju félagi fyrir sig, innan BSRB, í samningaviðræður. Með því móti er fyrst farið að teygja og toga samningaumleitanir með neikvæðri niðurstöðu. Að mínu mati má auðveldlega setja fasta þá tölu eöa tölur sem samþykkt verður aö kvika ekki frá varðandi leiðréttingu á launamisrétti innan okkar raða í BSRB. Síðan má geyma alhliða samningagerð þar til kemur að þeim tíma er allir samningar eru lausir og ekki verður komist hjá að táka til endurskoöunar meö viðræð- um við alla aðila. Við skulum alla vega ekki láta Það varð fátt um svör hjá núver- andi dómsmálaráðherra annað en það að Alþingi yrði sjálft að ákveða málshöfðun gegn öðrum handhöfum forsetavalds og vitnaði svo til fyrrv. dómsmálaráðherra vegna svipaðra fyrirspurna áður. Niðurstaðan virð- ist því vera sú að Alþingi vill ekki leggja út í þá „eldraun" að láta hið sama ganga yfir alla heldur láta þaö gott heita að hegna einum manni fyrir aðra þá sem hafa brotið af sér á nákvæmlega sama hátt. blekkjast af þeirri fullyrðingu að við- ræður hvers og eins félags innan BSRB skili einhverjum árangri. Hitt er svo annað mál að ég teldi það ekki skynsamlegt að setja nú fram of haröa kröfugerð um launahækkanir, því það verður einungis til þess að hér verður enn meira atvinnuleysi eftir uppsagnir hjá hinu opinbera að samningum loknum. - En er yfirleitt hægt að búast við launahækkunum eins og hér árar nú? Ég tel að leiðrétt- ing launamisréttis eigi að hafa for- gang í öllum greinum komandi kjarasamninga - ekki alhliöa launa-' hækkanir. Ég veit ekki betur en allar stað- reyndir séu ljósar um aðra aðila sem hafa keypt áfengi á sérkjörum og voru síðast birtar um það tölur í fréttatíma Stövar 2 sl. fimmtudags- kvöld eftir fyrirspurn Stefáns Val- geirssonar. Þetta mál viröist ætla aö verða enn einn ávirðingarstimpillinn á Alþingi, og kannski ekki síður dóm- skerfið í landinu, með því að ákæra og láta dæma einn en sleppa öörum fyrir nákvæmlega sama brotið. Hrikalegur smekkur Björg Árnadóttir hringdi: Égþurfti að fara á heilsugæslu- stöðina i mínu hveríi nýlega og beið nokkurn tíma á biðstofu eins og gengur. Á meðan virti ég fyrir mér myndverkin sem þöktu veggina. Þar gaf aö líta myndir af öllum gerðum, ekki vantaði það, en guð minn góður, smekk- urinn er hrikalegur. Skyldi þetta vera einhver opinber listasmekk- ur sem er svo gott sem leiðandi í flestum opinberum húsakynnum nú orðið? Og þetta á að sjálfsögðu ekki bara við þessa einu heilsugæslu- stöð. I fiestum opinbenim bygg- ingum er þessi sami smekkur ráðandi. Þetta eru mest einhvers konar grafíkmyndir og langt út í abstraktform, mestmeghis óskilj- anlegt þeim sem á þetta horfa. - Hvers vegna ekki að hafa þama góðar landslagsmyndir úr ís- lensku landslagi, úr hrauni, við vatnsbakkann, við hafið, eða hvað annað sem róar húgann og er hvílandi að horfa á? - Já, eftir okkar góðu listamenn. Á flestum hótelanna er sami smekkurinn ráöandi, yfirþyrm- andi „hamborgarasmckkur“ sem á engan veginn heima innan um fólk sem er aö njóta þjónustu eða hvíldar. Undanskilið er auðvitað Hótel Holt sem er orðiö viðfrægt fyrir góðar myndir, Þessu þarf aö koraa í menning- arlegra og viðfelldnara horf, a.m.k. hvað hina opinberu staöi varðar. Ég vona að fleiri geti tek- iö undir þetta. Áfengiskaup á kostnaðarverði: Hvflíkt siðferði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.