Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989; 17 Lesendur . og það sem mig undraði mest, um starfsemi ÁTVR!“ Inngangan 1 Evrópubandalagið: Allt ákveðið nú þegar Þorsteinn Einarsson skrifar: Þegar maður fer að lesa útdrátt úr skýrslu viðræðna EFTA-ríkjanna við Evrópubandalagið (EB) kemst mað- ur ekki hjá því aö álykta sem svo aö nú þegar sé ákveðiö að ganga í bandalagið - og hafi jafnvel verið ákveðið fyrir löngu. Það myndi einn- ig hjálpa íslenskum stjórnmála- mönnum að losna auðveldlega frá því öngþveiti sem þeir hafa komið hér á í gegnum tíðina. Óvíst er að öðru vísi yrðu leyst okkar efnahags- og atvinnumál, þegar á allt er litið. í Morgunblaðinu hinn 5. des. sl. er einmitt pistill um EB-EFTA málið og greint frá umræðum á Alþingi varð- andi fyrirspurnir til viðskiptaráð- herra um þetta yfirgripsmikla mál. - Þarna koma fram svör um mál eins og heilbrigði og hollustu, lífeyrisrétt- indi, niðurgreiðslur, samræmda toll- skrá, samgöngur, ökukennslu óg lög- fræði - og það sem mig undraði mest, um starfsemi ÁTVR! Um ÁTVR segir aö starfseminni verði eflaust haldið áfram og gæta verði þess aö mismuna ekki fram- leiöendum. Áfram veröi heimilt að leggja svipuð ríkisgjöld á vörusölu ÁTVR. - Það, að viðskiptaráðherra skuli nú þegar hafa svör við öllum þessum málaflokkum til taks, segir mér ekkert annaö en það að búið er að hugsa fyrir öllu - inngangan í EB sé þegar ákveðin. Hvort það skref verður til góðs fyr- ir þjóðina er svo önnur saga. En mér sýnist á öllu að hér séum við komin að ákveðnum endapunkti í sögu þessa lýðveldis og ráðamenn hér séu fegnir að henni skuh ljúka svona auðveldlega og að þeir skuli komast svona létt frá öOu kraðakinu. - En er þetta nokkuð annað en fólk gat búist við eftir aOt sem á undan er gengið? Gátum við nokkurn tíma búist við að halda út sem fullvalda þjóð (250 þúsund manns) með kröf- um um þá velsæld, sem hér hefur ríkt, án þess að þurfa að greiða fyrr eða síðar? Nú er komið að skuidadög- um og í stað þess að greiða göngum við í EB. Óréttlæti gagnvart reykingafólki Er ekki nóg komið? Nafnlaus skrifar: Ég verð aö segja að mér þykir ríkis- stjómin ætlast til of mikós af okkur reykingafólki. Nú er svo komið að sá sem reykir tvo pakka á dag greið- ir um 150 þúsund krónur fyrir á ári. Stór hluti þessara peninga fer beint til ríkisins. Þar njóta þeir þess sem ekki reykja. Að reykingafólk sé baggi á heilbrigðiskerfmu, eru einhver þau veikustu rök sem sett hafa verið fram. Gefum okkur að einhver hafl reykt tvo pakka á dag í 50 ár og vei- kist þá vegna reykinga, þá er degin- um ljósara að sá einstaklingur hefur marggreitt fyrir þá þjónustu sem hann fær vegna veikindanna. Það lætur nærri að „reykingaskattur- inn“ sem þessi maöur hefur greitt sé um 6 mOljónir króna. Ég endur- tek, 6 mOljónir. Þess vegna er sjálfsagt ef reykinga- maður deyr af orsökum sem ekki er hægt að rekja til reykinga að erf- ingjar hans fái „reykingaskattinn" endurgreiddan samdægurs. Já, hvers eiga reykingamenn að gjalda? Það er vitað að feitt kjöt - þá sér- staklega lambakjöt getur verið bráð- drepandi. MOljörðum króna er eytt í niðurgreiðslu á þessum matvælum. Þeir sem veikjast vegna ofneyslu á feitu kjöti - fá ekki aðeins ókeyp- is læknisþjónustu - heldur einnig fengu þeir sjúkdóminn niðurgreidd- an. - Hvar er réttlætið? Annað og ekki síður alvarlegt er að daglega eru alvarleg mannrétt- indabrot framin á okkur reykingar- fólki. Við getum einfaldlega ekki far- ið til læknis þar sem ekki má reykja á biðstofum. Sama má segja um al- menningsfarartæki, sah kvikmynda- húsa og leikhúsa, við sundlaugar, í kirkjum, í bönkum og viðar og víðar. - Það er meira en nóg komið af órétt- lætinu gagnvart okkur sem reiðum hvað hæstar flárhæðir af höndum tíl ríkisins. Þekkir þú einhvern sem heyrir illa í sjónvarpi eða útvarpi? Kíktu i smáauglysinga- dálkinn „TIL SÖLU“, „Einkahlustarinn“. I 4. leikvika - 9.desember 1989 Vinningsröðin: 1X2-X22-1X1-1XX HVEB VANN 1.026.805- kr. 0 voru með 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð 3 voru með 11 rétta - og fær hver: 102.673- kr. á röð TVÖFALDUR POTTUR - um næstu helgi!!! A gæðavara Úrval handverkfæra S§@Il(@® gl Skeifunni 11 c, sími 686466 Vinningstölur laugardaginn 9. des. ’89_ VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 2.438.224 2. 5 84.769 3. 4af5 124 5.896 4. 3af 5 4.069 419 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.298.084 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 í jólaönnunum getur þú komið viö hjá okkur og slappaö af í vistlegum húsakynnum eða fengið afgreitt meö hraöi beint í bílinn. Einnig er hœgt aö hringja og panta fyrir minni og stœrri hópa og viö afgreiöum kjúklingana í þœgilegum umbúöum. Opið alla daga kl. 11-22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.