Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1989, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
.1 Ritstfórn - Auglýsingai|- Ái skrift - Drelfing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989.
Loðnuveiöamar:
Bátar með
fullfermi
" Loks virðast loðnuveiðarnar hafn-
ar fyrir alvöru. Bátar eru á leið til
lands með fullfermi og aðrir langt
komnir með að fylla sig eftir nóttina.
Þeir bátár sem voru á miðunum í
gærkveldi og í nótt fundu þriggja
mílna langa loðnutorfu og voru allir
að veiða úr henni.
Torfan stóð mjög djúpt og aðeins
þeir bátar sem eru með stærstu næt-
umar náðu umtalsverðum köstum.
Hinir kroppuðu ofan af og fengu
minna.
Ástæðan fyrir því hve djúpt loðnan
stendur er að fullt tungl er um þess-
ar mundir og heiðskírt á miðunum.
Bæði síld og loðna fara dýpra þegar
tunglsljós er.
^ Þeir þátar sem eru á leið til lands
með fullfermi eftir nóttina eru Sjáv-
arborg með 750 lestir, Þórshamar
með 550 lestir og Víkurbergið meö
580 lestir.
Þeir bátar sem snem til heima-
hafna í lok síðustu viku vegna afla-
leysis era nú ýmist að komast aftur
á miðin eða eru nýlagðir af stað þang-
að. -S.dór
Dularfuílt hvarf gáms:
'Vörubílsjóri gaf
sig fram í gær
Blár tuttugu feta gámur, sem sakn-
að var í gærmorgun frá geymslu-
svæði Landflutninga við Skútuvog,
kom í leitimar síðdegis í gær. Vöra-
bílstjóri gaf sig fram eftir að hafa
hlustað á útvarpsfréttir í hádeginu.
Sagðist hann hÉifa verið beðinn að
flytja gáminn inn í Engihjalla í Kópa-
vogi um helgina, ónafngreindur
maður úr Borgarfirði hefði hringt til
sín og beðið sig þess - hann myndi
síðan koma og greiða fyrir flutning-
inn.
Eins og fram kom í DV í gær urðu
^atarfsmenn fyrirtækis, sem annast
öryggisgæslu á svæðinu, ekki varir
við aö gámurinn væri tekinn. Komið
hefur í ljós aö hann var fluttur í
burtu á þeim tíma sem starfsmenn
íyrirtækisins taka sér sex tíma hlé.
-ÓTT
Lindalax gjaldþrota
Fiskeldisfyrirtækið Lindalax hf.
óskaði í gær eftir gjaldþrotaskiptum
hjá Bæjarfógetanum í Keflavík.
Lindalax hefur rekið umfangsmikla
fiskeldisstöð á Vatnsleysuströnd,
Vogum. Fyrirtækið hefur verið með
greiðslustöðvun sem átti að renna
út 27. desember. Heildarskuldir
jfcindalax nema um einum milljarði
króna. -JGH
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra um niðurfærsluleiðina:
Ein flóknasta leið
sem hægter aðfara
- en hún er fær ef allir landsmenn eru sammála um að fara hana
Forystumenn Vinnuveitenda- En hveraig list Steingrími Her- hjá okkur. Flestir viðurkenna að voru skoðaöar nokkuð vel þegar
sambandsins og verkalýðshreyf- mannssyni forsætisráðherra á staðaútflutningsatvinnugreinanna þær komu íram sumarið 1988. Tel-
ingarinnar hafa verið aö reifa hug- þessa hugmynd nú? er komin í jafnvægi. Því tel ég aö ur þú að þessi leiö sé yfir höfuð fær?
myndir um að farin verðí einhvers „Ég hef ekki kynnt mér þær hug- upp sé komin staða sem býður upp „Hún er framkvæmanleg ef það
konar niðurfærsluleið í komandi myndir sem aöilar vinnumarkað- á það að aðilar vinnumarkaðarins er breið samstaða í þjóðfélaginu
kjarasamningum í stað kauphækk- arins eru að ræða, hef aðeins heyrt geti samið sín í milli. Þess vegna um hana. Hitt held é'g að sé staö-
ana. Eftilþess kemur verður ríkis- um þær á fórnum vegi og get því er mér ekki alveg ljóst hvernig á reynd að í niðurfærslu verða alltaf
stjórnin að koma inn í málið að heldur lítið um þær sagt. Niöur- aðfaraniðurfærsluleiðinaíþessari einhver slys ef ekki eru allir með.
fullu. Hugmyndin er ekki ný. Einar færsluleiðin er að minum dómi ein- stööu og ég þori ekkert um þessar Ég held að það sé ekki hægt að
Oddur Kristjánsson, formaður hver flóknasta leið sem hægt er að hugmyndir að segja fyrr en ég hef kornast hjá því vegna þess aö hún
Vinnuveitendasambandsins, lagöi fara og því aíar vandfarin. Ég tel fengiðaðsjáþær,“sagðiSteingrím- verður að ganga yfir alla línuna í
til sumarið 1988 aö niðurfærslu- hins vegar aö um þessar mundir urHermannssonforsætisráðhorra. þjóðfélaginu,“ sagði Steingrímur.
leiðin yrði farin. séu hlutimir aö komast í jaíhvægi - Hugmyndir-um niðurfærsluleið -S.dór
Mikii hátíðarstemmning rikti í Breiðagerðisskóla þegar kór skólans söng nokkur jólalög fyrir starfs-
menn og nemendur skólans. DV-mynd GVA
EFTA-fundur í Genf:
Tekist á um
ákvörðunarrétt
Mikilvægasta hlutverk tveggja
daga fundar viðskiptaráðherra
EFTA-ríkjanna í Genf, sem hófst í
gær undir forsæti Jóns Baldvins
Hannibalssonar utanríkisráherra, er
að undirbúa fund utanríksráðherra
EFTA- og EB-ríkjanna í Brussel
næsta þriðjudag. Þar verður væntan-
lega tekin ákvörðun um formlegar
samningaviðræður milli EFTA og
EB er hæfust í vor.
Erfiðasta hindrunin í viðræðunum
mun vera spurningin um ákvörðun-
arrétt. EFTA-ríkin óttast að þurfa
alveg að fylgja reglum EB þegar að-
gangur að markaði EB verður ákveð-
inn án þess að hafa nein áhrif á til-
urð þeirra. EB-ríkin setja hins vegar
sem skilyrði að samvinnan við
EFTA-ríkin takmarki ekki ákvörð-
unarrétt EB-ríkjanna sjálfra.
Á leiðtogafundi EB-ríkjanna fyrir
helgi kom fram sterkur vilji til að
auka samvinnu við EFTA-ríkin. Kom
einnig fram að því fylgdu skyldur af
hálfu EFTA-ríkjanna, ekki aðeins
ávinningar.
Er tcdið að EB-ríkin krefjist aukins
aðgangs landbúnaðarafurða aö
mörkuðum EFTA-ríkjanna og auk-
ins aðgangs að fiskimiðum við ísland
og Noreg. Eru EB-ríkin þar með að
greiða götu landbúnaðarafurða frá
Miðjarðarhafslöndum EB og opna
leið fyrir Spánverja að norrænum
fiksimiðum. -hlh
LOKI
Það var þá tungls/ki sem hrjáði
loðnuna eftiralltsaman!
Veðrið á morgun:
Bjart
og kalt
Á morgun veröur norðaustan-
átt um land allt, víðast kaldi.
Dálitil él við norður- og austur-
ströndina en annars þurrt og víða
bjart veður. Frost er á öllu
landinu, 1-4 stig.
K^ntucky
Fried
Chicken
vm
m
Faxafeni 2, Reykjayík
Hjallahrauni 15, Hafnariirói
Kjúklingar sem bragö er að
Opið alla daga frá 11-22
BÍLALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00