Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 1989. Fréttir Fárviðri og rafmagnsleysi undir Eyjafjöllum um jólin Fárviöri og rafmagnsleysi settu með eftirminnilegum hætti svip sinn á jólahald undir Eyjafjöllum þessi jólin. Óvenju djúp lægð fór yfir suð- urströndina aðfaranótf aðfangadags með þeim afleiðingum að vindhraö- inn óx stöðugt undir Fjöllunum og náði hámarki milli klukkan sex og sjö á aðfangadagsmorgun. Þá var löngu orðið ófært aö vera á ferli utan dvra og því ekki um annaö að ræða en að bíða eftir að veðrinu slotaði. Reyndar telja bændur það mestu mildi að ekki var bílaumferð um sveitina um þetta leyti enda ólíklegt að fólksbílar hefðu haldist á þjóðveg- inum. Rafmagn fór af ílestum bæjum Feðgarnir á Hlið, Sigurgeir Ingólfsson og Ingólfur Birgir, við heyvinnuvél sem fauk eins og annað lauslegf. DV-myndir Ólafur Eggertsson. Þessi gamli og þungi hertrukkur flaug hundruð metra í fárviðrinu undir Eyjafjöllum. Hann var heima við hús á bænum hlíð óg fauk niður undir veg. undir Eyjafjöllum milh klukkan fjög- ur og fimm um morguninn enda brotnuðu um fimmtán rafmagns- staurar undir Útfjöllum og Austur- fjöllum og sex staurar brotnuðu frá aðallínu á Suðurlandi og að Seljavöll- um. Þá fauk spennistöð í Núpakoti. „Ég er ansi hræddur um að þessir staurar séu gallagripir," sagði Eggert Ólafsson, bóndi á Þorvaldseyri. „Ég hef skoðaö staura sem brotnað hafa á þessum slóðum og þó þeir líti vel út að utan eru innviðir þeirra yfir- leitt fúnir.“ Bæirnir frá Hrútafelh og þar fyrir austan fengu rafmagn upp úr hádegi á aöfangadag en Fjallsbæimir voru rafmagnslausir í tæpan sólarhring eða þar til klukkan fimm á jóladags- morgun. Síöan varð þar aftur raf- magnslaust um sexleytið á jóladags- kvöld og meira og minna allt kvöldiö. Fjölmennur flokkur viðgerðar- manna frá Hvolsvelli vann sleitu- laust að viðgerðum frá því snemma á aðfangadagsmorgun, allan daginn og jólanóttina. Á aðfangadagsmorg- un lægði og hlýnaði í veðri. Tölu- verður snjór var á jörðu er veðrið skall á en með hlýindum rigndi og gerði asahláku á aðfangadag. Að- stæður til viögerða voru því þokka- legar. KGK Ólafur Ingi Jónsson. Ólafur Ingi Jónsson látinn Ólafur Ingi Jónsson, prentsmiðju- stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, lést á jóladag eftir erfiða sjúkdómslegu. Ólafur fæddist 29. október árið 1945 á Patreksfirði. Hann hóf nám í prent- smiðju Vísis 1. maí 1963 og tók sveinspróf árið 1967. Hann vann þar til ársins 1972 er fjögur dagblöð sam- einuðust um rekstur Blaðaprents. Ólafur var verkstjóri í Blaðaprenti um árabil en varð svo kennari við Iðnskólann. Eftir að hafa starfað um hríð við innflutning á tölvubúnaði hjá fyrirtækinu ACO varð hann prentsmiðjustjóri Frjálsrar fjöímiðl- unar árið 1984. í því starfi sínu hafði Ólafur forystu um þá miklu tækni- byltingu sem átt hefur sér stað hjá DV á undanfömum árum. Ólafur kvæntist Sigríði Siguijóns- dóttur árið 1968 og eignuöust þau þijú böm. Samstarfsfólk Ólafs á DV vottar þeim dýpstu samúð sína við fráfallhans. -ESJ Kosning Kvennalistans í Landsbankann: Verið að gera nýtt bankaráð vanhæft - segir Sverrir Hermannsson bankastjóri „Ég tel að með þessari kosningu sé verið að-gera nýtt bankaráð van- hæft. Það em allir hneykslaðir á þessari kosningu og furðu lostnir. Mér hefur skilist að minn gamli flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, hafl samiö við aöra stjómarand- stööuflokka um kosningar í þetta ráð. Ég skil ekkert hvað hann er að hugsa. Annars er þaö Alþingi allt sem ber ábyrgð á þessu og maður hlýtur að spyrja sig hvemig Alþingi kunni því að hafa orðið það á í messunni að velja fulltrúa Pét- urs Blöndals í Kaupþingi inn í bankaráð Landsbanka íslands sem á að hafa með ákvarðanir um vaxtamál og önnur stærstu trúnað- armál bankans að gera,“ sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, um kosningu Al- þingis á fulltrúa Kvennalistans, Kristínu Sigurðardóttur, í bankar- áð Landsbankans. Sverrir segir að sú staðreynd að Kristín vinni hjá Kaupþingi geri það að verkum að hún sé vanhæf til að seljast í bankaráð Lands- bankans. Sverrir sagðist ekki hafa trú á öðm en að þessi kosning yrði leiðrétt. Kristín Siguröardóttir sagðist telja að gagnrým Sverris byggðist á misskilningi. í Landsbankanum væri ekki verðbréfafyrirtæki held- ur hefði bankinn orðið að stofna sér fyrirtæki til þess og lyti það sérstakri stjórn. Því hefði hún eng- in bein áhrif þar með setu í banka- ráði. Kristín vinnur sem innheimtu- stjóri hjá Kaupþingi og sagði hún að starf sitt þar væri óskylt því sem hún myndi fást við í Landsbankan- um en starf hennar myndi hins vegar nýtast henni vel í bankaráði. „Ef ástæða þykir til finnst mér rétt að Alþingi kanni þetta mál og fái þá úr því skorið hverjir séu hæfir til að gegna slíkum störfum. Það var auðvitað ekki ætlun okkar að gera bankaráðið óstarfhæft með þessari kosningu en með tilvísun í lög um viðskiptabanka, sem sam- þykkt voru í vor, tel ég þessa kosn- ingu ekki stangast á við þau lög,“ sagöi Kristín Einarsdóttir, þing- flokksformaður Kvennalistans. Kristín sagði að Kvennalistinn hefði lagt sig almennt fram um að tryggja aö ekki yrði um hags- munaárekstra að ræða og því þættu þeim þetta alvarlegar ásak- anir. -SMJ Veðurofsinn undir Fjöllunum: Rúða brotnaði „Rokið var skollið á strax um nótt- ina og klukkan fjögur vorum við flest vöknuð við veðurofsann. Ég fór þá yfir í norðurherbergiö og sótti son minn sem þar svaf og fór með hann niður en u.þ.b. hálftíma síðar heyrð- ist mikill hvellur og þegar að var gáð hafði stór rúða í glugga yfir rúmi drengsins splundrast yfir rúmið. Ég þakka því mínum sæla fyrir að hafa sótt drenginn áður en rúðan brotn- aði,“ - sagði Vigfús Andrésson, kenn- ari og bóndi í Beijanesi undir Eyja- fjöllum, en verðurofsinn og raf- magnsleysið setti þar og annars stað- ar undir Fjöllunum svip sinn á jóla- haldið. „Þetta hafa ekki verið nein jól hjá okkur,“ - sagði Vigfús. „Viö höfum yfir barnarúm verið hér átta manns í heimili yfir jólin og krakkamir lágu í flatsæng í stofunni mestallan tímann. Fyrsta jólamatinn borðuðum við klukkan sex á jóladagsmorgun en síðan fór rafmagnið aftur á jóladagskvöld. Vigfús sagði það mestu mildi hve hlýtt hafi verið í veðri á aðfangadag og jóladag. Að öðrum kosti hefðu þau þurft að flýja húsið enda væru íbúð- arhús fljót að kólna í rafmangsleysi þar sem hitað er upp með rafmagni. í rafmagnsleysinu undir Eyjaíjöll- um urðu menn að halda jólin hátíð- leg við kertaljósin og luktir en víða var búið að sjóða hangikjöt svo fæst- ir voru matarlausir á aðfangadags- kvöld. KGK Tjón vegna Veðurofsinn undir Eyjafjöllum olh umtalsverðu tjóni á mannvirkjum, ökutækjum og heyvinnuvélum á bæjum þar aðfaranótt aðfangadags. Auk þess sem rafmagnsstaurar brotnuðu í fárviðrinu, varð umtals- vert tjón á nokkrum bæjum í sveit- inni. Mest hefúr tjónið orðið á bæn- um Hlíð, en þar fuku dráttarvélar og heyvinnuvélar, jafnvel langar leiðir. Þá fauk þar gamall tíu hjóla hertrukkur. Að Steinum fauk járn af fjósþaki og áíöstu mjaltarhúsi. í Beijanesi fuku jámplötur af fjárhúsi. Þá má geta þess að steinsteyptir útveggir gamla íbúðarhússins í Berjanesi sem ekki hefur verið búið í lengi, fuku til grunna. Þá urðu skemmdir á öku- tækjum við Vélaverkstæðið Faxa en þar fuku um koll jeppi og dráttarvél. Auk þess brotnuðu víöa rúður í íbúð- arhúsum og fjárhúsum undan grjót- foki. Veðurstofan hafði spáð tíu vind- veðurofsans stigum á og við Suðurland áður en lægðarskilin gengu yfir. „Við gerð- um ráð fyrir miklum vindhraða og vorum með stormaðvaranir á mið- um, enda var hér um að ræða óvenju djúpa lægð,“ sagði Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur. „En þó vindurinn fari í ellefu til tólf vindstig, getur vindhraðinn oröið mun meiri í vind- hrinum undir Eyjaíjöllum enda myndast þar staðbundnir strengir sem eru háðir landslagi á hveijum stað.“ Bændur undir Eyjafjöllum eru yf- irleitt sammála um það aö veöriö hafi verið verra fyrir sjö árum en þá urðu umtalsverðar skemmdir af völdum verðurofsa undir Eyjafjöll- um. „Veðrið núna, fyrir sjö árum og árið 1926 eru þau verstu sein ég man eftir hér um slóðir," sagði Eggert ÓMsson á Þorvaldseyri, en hann sagðist hins vegar ekki muna eftir mannskaða af völdum veðurs þar í sveitinni. KGK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.