Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 1989. 3 Fréttir Þóra Jóhannsdóttir í verslun sinni við Aðalgötuna á Sauðárkróki. DV-mynd Þórhallur Að hætta eftir 52 ár við búðar- borðið Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: „Maður lafir við þetta enn aðallega til að sjá fólk og hafa félagsskap. Þetta hefur verið að dragast saman hjá mér síðustu árin og ætli það stefni ekki í að ég hætti um áramót- in,“ sagði Þóra Jóhannsdóttir, 86 ára verslunareigandi við Aðalgötuna á Króknum, en hún hefur nú í rúmlega 50 ár afgreitt við búðarborðið - sam- fleytt frá 1938. Þá byrjaði hún að af- greiða í verslun Árna Daníelssonar og hafði áður unnið við verslunar- störf í eitt sumar. „Ég vann í 17 ár í versluninni hjá Árna Dan. sem var að Aðalgötu 14, þar sem fatahreinsunin er núna. Þeg- ar hann hætti tók ég verslunina á leigu og var þar í tíu ár. 1962 keypti ég þetta hús, Aðalgötu 9, og flutti verslunina hingað 1965. Lengi vel fór ég tvisvar á ári til Reykjavíkur til að kaupa inn, bæði vor og haust,“ sagði Þóra og gleðibjarmi endurminning- anna kom í Ijós á andhti hennar. „Eg fór líka til Akureyrar í innkaupaferð- ir og hélt því lengur en suðurferðun- um. Það eru orðin 10 ár frá því ég fór síðast til Reykjavíkur". Þó vöruflokkum hafi farið fækk- andi í búðinni hjá Þóru býr hún að löngum og ánægjulegum samskipt- um við viðskiptavini sína. Þeir halda tryggð við gömlu verslunarkonuna, sem nú er á 87. aldursárinu. Vöru- verðinu er haldið í skefjum og félags- skapinn fær hún í kaupbæti. Það þykja henni góð býtti. Óbreytt útsvar í Borgarnesi Garöar Guöjónsson, DV, Akranesi: Bæjarráð Borgamess hefur sam- þykkt óbreytt útsvar fyrir næsta ár, eða 7,5 prósent, en útlit er fyrir að fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði hækki nokkuð. Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri sagði í samtali við DV að bæjarráð hefði samþykkt að fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði yrðu 0,4 prósent og væri þar um að ræða raunlækkun frá því sem nú er. Hins vegar yrðu fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði 1,2 prósent og það á aö jafna lækkun á íbúðarhúsnæði út. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um aðstöðugjaldið fyrir næsta ár. Hvergi í heiminum er jafnhátt vinningshlutfall og hjá Happdrætti Háskólans, því 70% af veltunni renna beint til vinningshafa! Þar með er vmningsvonin hvergi jafnmikil og hjá Happdrættinu. í ár eru yfir 2000 milljónir króna í pottinum. í raun gæti annar hver íslendingur hlotið vinning því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 45 milljónir á eitt númer - allt skattfrjálst. Með trompmiða er hægt að vinna 10 milljónir króna í hverjum mánuði og 25 milljónir í desember. Tryggðu þér happamiða strax - þú mátt hara til! HAPPDRÆTTI HASKÓLA ISLANDS vænlegast til vinnings ARGUS/SlA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.