Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1989, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Rftstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 MIÐVIKUDAGUR 27. DESEMBER 1989. Þrjú umferð- aróhöpp ^ á Reykjanes- braut Þrjú umferðaróhöpp urðu á Reykjanesbraut í gær en allnokkur hálka var þar auk éljagangs og slæms skyggnis. í gærmorgun ók bifreið út af vegin- um við Vogaafleggjarann og skömmu síðar ók bifreið út af við Kúagerði. Enginn slasaðist í þessum óhöppumn. Um hádegisbilið ók bifreið á ljósa- staur við Ramma í Njarðvík. Öku- maður hennar var íluttur á sjúkra- húsið í Njarövík en meiðsli hans munu ekki hafa verið alvarleg. -J.Mar Vestfirðir raf- magnslausir á aðfangadag Vegna bilunar í einangrara í að- veitustöðinni í Geiradal, Geiradals- hreppi í Austur-Barðastrandarsýslu urðu allir Vestfirðirnir að meðtaldri v Hólmavík og Strandasýslu raf- magnslausir um klukkan 14 á að- fangadag. Mjög mishratt gekk að koma raf- magninu á aftur, sumstaðar varð ekki rafmagnslaust nema í um 15 mínútur en verst gekk að koma raf- magninu á í nokkrum hverfum á ísafirði. Máttu því margir bæjarbúar þola aö vera rafmagnslausir í allt að þrjá tíma en þá tókst að gera við ein- angrarann. -J.Mar Maður fannst ^ látinn * á Þingvöllum Björgunarsveitin á Selfossi var kölluð út um miðnæturleytiö að- faranótt jóladags til að leita manns sem saknað hafði verið síðan á Þor- láksmessu. Bifreið mannsins fannst tljótlega skammt fyrir vestan brúna á Öxará. Leituðu björgunarsveitarmenn alla nóttina án árangurs en á jóla- dagsmorgun voru allar björgunar- sveitir í Árnessýslu ásamt stóru þyrlu Landhelgisgæslunnar kallaðar út til leitar. Maðurinn fannst síðan látinn í gjá skammt frá þar sem bif- reið hans fannst um klukkan 13.00 á —jóladag. -J.Mar LOKl Rúmenskir dómstólar láta smáatriðin ekki tefja sig! Þríburafæðing á aðfangadag: Þetta var y nd- isleg jólagjöf „Þetta var yndisleg jólagjöf og feðingin gekk í alla staði vel,“ seg- ir Guðbjörg Gunnarsdóttir úr Kópavogi, en henni og eiginmanni hennar, Ölafi Guðjónssyni, fædd- ust á aðfangadagsmorgun þríbur- ar. Þríburarnir, tvær stulkur og einn drengur fæddust tjórum vikum fyr- ir tímann og samtals vógu þau um sjö kíló. Stærsta barnið, stúlka, vó tæpar 11 merkur og er hún 49 cm að lengd, miöbarnið, sem einnig er stúlka, vó 9 merkur og er 47 cm að lengd en minnstur var drengurinn sem var 8 Vi mörk og 47 cm. Þríburamir komu í heiminn um klukkan 9 á aðfangadagsmorgun og voru teknir með keisaraskuröi. „Það má segja að þeim hafi legiö dálítið á því það hafði verið ráðgert að taka þau með keisaraskurði í dag. Þau komu þvi öllum að óvör- um,“ segir mamman. Stelpunum og mér heilsast nyög vel en strákurinn er ennþá 1 súr- efniskassa en hann viröist ætla að dafna ágætlega. Það er auðvitaö heilmikið aö fá þijú böm á einu bretti en það var alveg dásamlegt að fá þau í jóla- gjöf. Þetta er besta jólagjöf sem ég hef fengið. Við höfðum ákveðið að bíða með allan lokaundirbúning undir fæð- ingu barnanna þangað tH þau væra fædd ef eitthvað færi úrskeiðis en þetta virðist aUt ætla að ganga vel,“ sagði Guðbjörg, Fyrir eiga þau hjón 15 ára gamala dóttur svo það hefur fjölgað hressi- legaífjölskyldunni. -J.Mar Það var tilhlökkun hjá yngstu kynslóðinni þegar stóra stundin rann upp á aðfangadagskvöld. Eftir að hafa velt vöngum yfir gjöfunum voru þær komnar undir jólatréð. Hann Arnór Ingi var alsæll og glaður þegar pabbi og mamma leyfðu honum loksins að byrja að taka upp pakkana. Þessi fini blái pakki var fyrstur fyrir valinu. DV-mynd BG Veðrið á morgun: Rignir þegar líður á daginn Á morgun verður suðlæg átt á landinu, víðast strekkingsvindur. Rigning um sunnan- og vestan- vert landið þegar líður á daginn, en úrkomulítið norðanlands og austan. Hlýnandi veður í bili. Tvær ekkjur: Safnaðist mjög vel Söfnun sú, sem hrundiö var af stað á Akureyri til styrktar konu með þrjú börn sem missti eiginmann sinn í vinnuslysi fyrr í mánuöinum og varð síðar fyrir því að heimili hennar stórskemmdist í eldsvoða, hefur gengið framar öllum vonum. Önnur söfnun á Skagaströnd til handa konu, sem missti eiginmann sinn í bruna á heimili þeirra aðfaranótt 14. desember, hefur einnig gengið vel. „Þetta hefur gengið framar vonum og vU ég skUa þakklæti tíl allra sem lagt hafa málinu lið,“ sagði Þorbjörg Ingvadóttir í SjúkraUðafélagi Akur- eyrar og ein af forsvarsmönnum söfnunarinnar á Akureyri. Ekki lá fyrir í morgun hve mikið hafði safnast en þess má geta að skát- ar söfnuði hátt í eina milljón króna í göngugötunni á Akureyri á Þor- láksmessu. Eftirtektarvert þótti hve margir unglingar og jafnaldrar barna ekkjunnar lögðu málinu lið. Oftar en ekki munu þeir hafa klárað að kaupa jólagjafir og síðar gefið af- ganginn í söfnunina. Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, sókn- arprestur á Skagaströnd, sagði í morgun að söfnun sú sem þar hefði verið í gangi hefði gengið mjög vel. Hann kvaðst ekki vita nákvæmlega um upphæðir sem safnast hefðu. Báðar safnanimar eru enn í gangi. -JGH Skemmdarvargar gripnir: Slóðin rakin í snjónum Tveir piltar voru gripnir af lögregl- unni eftir að hafa framiö nokkur skemmdarverk á bílum og mann- virkjum í nótt. Þeir byrjuðu á að vinna skemmdir á bíl við bensínstöð viö Laugaveg og síðan á öðrum skammt frá. Því næst brutu þeir bíl- skúrshurð við Skipholt og komst lög- reglan á sporið á eftir þeim með því á rekja slóð þeirra í snjónum. Voru þeir síðan búnir að brjótast mn í þriðja bílinn og voru að gera tilraun til að tengja beint þegar lögreglu- mönnum tókst að handtaka þá. -ÓTT Fimm fengu tólfu á jólunum Þrefaldur pottur í getraunum gekk út á annan í jólum. Úrslit voru ekki mjög óvænt og komu fram fimm tólf- ur. Hver tólfa fær 602.244 krónur. Ellefurnar eru 75 og fær hver ellefa 7.434 krónur. -EJ Kgntucky Fried Chicken m . Faxafeni 2, Reykjarík Hjallahrauni 15, Hafnaríirdi Kjúklingar sem bragð er að Opiú alla daga frá 11-22 BHALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.