Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989.
5
DV
Davíð Scheving Thorsteinsson:
Fréttir
Sagði af sér sem
varamaður í bankaráði
TM’rrT'l
Starfsmaöur Þ&E vinnur við að setja
saman lóðs fyrir Akraneshöfn. DV-
mynd Garðar
Akranes:
Nýr lóðs
afhentur
Garðar Guöjónsson, DV, Akranesi:
Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts
á Akranesi hefur aíhent landshöfn-
inni í Njarðvík og Keflavík nýjan
lóðsbát en samsetning á öðrum er
hafin fyrir Akraneshöfn. Bátarnir
kosta hvor um sig um það bil 15 millj-
ónir króna.
Lóðsarnir eru ekki smíðaðir heldur
settir saman hjá Þ&E. Allt efni í þá
kemur tilsniðið frá Hollandi, allt nið-
ur í pensla og önnur áhöld sem nota
þarf við samsetninguna.
Selfoss:
28 stúdentar
útskrifaðir
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Fimmtíu nemendur voru braut-
skráðir úr Fjölbrautaskóla Suður-
lands, þar af 28 nýstúdentar, 2. í jól-
um, að viðstöddu fjölmenni við hátíð-
lega athöfn. Þór Vigfússon er skóla-
meistari.
Skólahald á þessari haustönn fór
hið besta fram, áfalla- og tafarlaust.
Nemendur í dagsskóla voru 594 þeg-
ar flest var og um 170 í öldungadeild.
Eru þá ótalin ýms námskeið sem fóru
fram hér í skólanum og einnig í hér-
aðinu á vegum Farskóla Suðurlands
sem er deild úr Fjölbrautaskóla Suð-
urlands.
„Eftir að ég var kosinn íbankaráð
Iðnaðarbankans ákvað ég hætta sem
varamaður í bankaráði Landsbank-
ans. Ég endursendi öll gögn sem mér
voru send þaðan óopnuð og fór síðan
fram á að verða ekki endurkosinn.
Mér þótti einfaldlega ekki sæmandi
að vera á báðum stöðum í einu,“
sagði Davíð Scheving Thorsteinsson,
forstjóri Sólar hf.
Davíð var fyrir nokkrum árum
kosinn varamaður í bankaráð
Landsbankans af Sjálfstæðisflokkn-
um. Síðan var hann kosinn í banka-
ráð Iðnaðarbankans af hluthafafundi
þar sem hann gegndi meðal annars
formennsku. Hann sagðist hafa gert
upp við sig að þarna gæti orðið hætta
á hagsmunaárekstri og því hefði
hann ákveðið aö hætta í Lands-
bankanum. Það var hins vegar hans
ákvörðun og sagðist Davíð aldrei
hafa heyrt neitt um það frá sjálfstæð-
ismönnum sem þó kusu hann - með-
al annars Sverrir Hermannsson sem
sat í þingflokki sjálfstæðismanna.
Síðar var Davíð kosinn varamaður
í stjóm Seðlabankans og sagðist
hann ekki hafa óttast hagsmunaá-
rekstur á milli þess starfa og stöðu
hans í Iðnaðarbankanum. Seðla-
bankinn væri það ólíkur viöskipta-
bönkunum að ekki þyrfti að óttast
hagsmunaárekstur.
in mest og veroio oesi
5 eigin innflutningi á
öllum okkar vörum stórum sem smáum
Sjón er sögu ríkari
- það fer enginn tómhentur frá okkur.
f t fffgH
SÖLUSTAÐIR
KR-FLUGELDA í REYKJAVÍK:
Flugeldastórmarkaður
KR-heimilinu Frostaskjóii
Flugeldastórmarkaður
Faxafeni 11
(gegnt Hagkaupi Skeifunni)
Tryggvagötu 18
(gegnt bílastæði Akraborgar)
Sími 27181
UMBOÐS- OG SÖLUAÐILAR
UTAN REYKJAVÍKUR
Akureyri:
Þór — i félagsheimilinu
KA — í félagsheimilinu
Keflavík:
Knattspyrnuráð ÍBK —
íþróttavallarhúsinu,
Hafnargötu 6 (gamla Ungó), og
söluskúrinn við Hæðarhvamm
Selfoss:
UMF Selfoss, knattspyrnu- '
deild — íþróttavallarhúsinu
Hafnarfjörður:
Haukar — handknattleiksdeild
Vinnuskólinn v/Flatahraun
og Vörubíiast. Hafnarfjarðar.