Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989.
Viðskápti
Það f reyddi alls ekki upp
úr á fyrstu bjórjólunum
- enginn rosalegur jólakippur í bjórsölu
Nær bjórsalan 1 milljón
IHra í jólamánuðinum?
Fréttaljóa
Jón G. Hauksson
FréAkgt vvrður tuns v«gar að s}i
hvort bjómtan rýkur upp nún» frim
«A Möfiunuœ - tyrgtu optaberu tijör
jólunum 4 tslandl i yfir W 4r.
vtrðibjór. MiAan cr við i iuim meó
HnAtkum i. IJAurrtAvtrA á bjóni-
um rokkar ookkuð. Smiíus pUmut
tan tr UngðdýríMur tn kasMnn iT
- honum kostar Í2JO krtaur. AA AAru
lcytl rvriQut vrrACtatn tagundá frá
2800 013 400 kronurUísmn.
Cutnnm björtan tr dvrasti fc)ðr
IwUnlU KÍuinn af honum. í4
Oðtkur. kosur 4 0« krónor. bað
muior t»i itataun 2 þúsund któo
um 4 Sanltas pOsner flg Guinnnt.
MíAoArujnotóum. þtðlrrhiniþtA
áð hcgt té «ð káupt tvo katu af
fynr tsm Gutnnts.
Pemnqamarltaðui
2800 krúnur, hvart snu um cr aA
rsAa dflsir rAa fioakor Kantan af
Hmntkm, Krontnhoorg og Prtjjpa tr
1 krtacum .XAOO krónur
saldi bjðrtan á tslandi.
ir 2910 krómir.
hvoct hddur tr um dflsb-tða fiflskur
að raöa. LAwtnbráu «r m*A um M
dl 38 próacol af bjórmarkaðtuun.
taNLAátSVfXTlB (%)
I«n5rl»i3»3ú<»«»
UTtANSVtXTm (V
Margir spáðu þvi að bjórsalan næði einni milljón lítra i desember. Það
hefur hins vegar ekki orðið. Það var minni bjórsalan en menn bjuggust við.
Það freyddi alls ekki upp úr
bjórglösum á fyrstu bjórjólunum
sem íslendingar héldu að þessu
sinni. Sala bjórs var minni en búist
var við og ljóst að bjórinn leysti ekki
rauðvín af hólmi sem hátíðardrykk
með steikinni. Þá virðist vínsala hafa
verið með svipuðu móti og fyrir jólin
í fyrra. ^
Að sögn Sævars Skaptasonar, út-
sölustjóra ÁTVR í Kringlunni, var
sala bjórs dágóð fyrir jólin og um
mikla aukningu að ræða frá þvi í
nóvember.
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
Það freyddi ekki upp úr
„Ég get þó ekki sagt að um neinn
rosalegan jólakipp í bjórsölu hafi
verið að raeða eins og sumir bjuggust
við. Ætli sé ekki best að orða þaö
þannig að það hafi orðið hefðbundin
aukning í vínsölu fyrir þessi jól og
sömu sögu sé að segja um bjórinn."
Verslun ÁTVR í Kringlunni selur
mest allra áfengisverslana landsins
og er með um 40 prósent af allri vín-
sölu í Reykjavík. Hhitfallið er hærra
í léttu vínunum. Með öðrum orðum
léttu vínin streyma mest út úr
Kringlunni.
Rauðvínið hélt velli
„Sala á rauðvíni var mjög svipuð
og fyrir jólin í fyrra. Hingað kom
fólk og keypti sína rauðvínstegund
fyrir jólin. Bjórinn leysti því léttu
vínin ekki af hólmi um þessi jól hafi
einhverjir átt von á því,“ segir Sævar
ennfremur.
Einar Jónatansson, útsölustjóri í
Heiðrúnu, bjór-búð ATVR uppi við
Stuðlaháls, segir að hann hafi búist
við meiri bjórsölu um þessi jól.
„Þetta voru ekki bjóijól eins og sum-
ir bjuggust við.“
Einar segir að fyrstu tölur bendi til
að bjórsalan hjá honum í desember
verði ívið meiri en í ágúst í sumar
og næstum helmingi meiri en í nóv-
ember en mánuðirnir október og
nóvember, ásamt janúar, séu yfirleitt
lægstu mánuðir í vínsölu hérlendis.
Yfir milljón í mars
Langmest var selt af bjór í mars,
fyrsta mánuðinn eftir að bjórsala var
leyfð hérlendis, og seldist þá yfir ein
milljón lítra.
Eftir fyrstu fjóra mánuðina í bjór-
sölu hérlendis, mars, aprfi, maí og
júní, datt salan nokkuð niður næstu
mánuði þar á eftir og virðist. sem
jafnvægispunkturinn sé í kringum
700 þúsund lítrar á mánuði.
Jólaglöggin heldur velli
Þegar í byrjun desember jókst
rauðvínssalan eins og hún gerir jafn-
an í jólamánuðinum. Þar ræður
eflaust mestu að fyrir nokkrum
árum tóku íslendingar upp þann sið
að drekka jólaglögg. Nú er svo komið
að nánast hvert fyrirtæki í landinu
heldur starfsmönnum sínum jóla-
glögg.
Miðað við bjórsöluna á tímabfiinu
1. mars tfi 30. september má gera ráð
fyrir þvi að bjórsala hvers árs verði
framvegis í kringum 9 til 10 milljónir
lítra og aö það sé hinn raunverulegi
bjórmarkaöur á íslandi. Áður en sala
Samherjamenn á Akureyri:
Menn ársins í atvinnulífinu
Tímaritið Frjáls verslun og Stöð 2
útnefndu í gær eigendur útgerðar-
fyrirtækisins Samherja á Akureyri
menn ársins í atvinnulífinu. Þetta
eru bræðumir Þorsteinn og Kristján
Vilhelmssynir og frændi þeirra, Þor-
steinn Már Baldvinsson.
Ekki er hægt að segja annað en
þeir frændur séu vel að þessu kjöri
komnir. DV hefur margoft fjallað um
afrek þeirra þremenninga í íslensku
atvinnulífi á síðustu árum. Þeir byij-
uðu með tvær hendur tómar fyrir sex
árum en eiga nú og reka fimm togara.
í ágúst keyptu þeir Samherjamenn
togarann Arinbjöm RE og Álftafellið
frá Stöðvarfirði í vor. Auk þess hafa
þeir keypt nokkra báta á árinu. Loks
má geta þess að þeir em með togara
í smíðum á Spáni.
Til viðbótar við þá fimm togara sem
þeir reka núna eiga Samherjamenn
hluta í togaranum Víði, gamla Apríl,
sem gerður er út frá Hafnarfirði á
vegum Hvaleyrarinnar.
Ævintýri Samheijamanna hófst
árið 1983 þegar þeir tæplega þritugir
keyptu togarann Guðstein þar sem
hann lá ryðgaður og í reiðileysi í
höfninni í Hafnarfirði. Þeir breyttu
Guðsteini í frystitogara. Sá hlaut
nafnið Akureyrin og hefur síðan
malaö gull fyrir þá frændur. Mikifi
mettogari það.
Eftir að Samheijamennimir bættu
frystitogaranum Arinbimi í safn sitt
síðastliðið sumar var frekar rætt um
þá sem galdramenn en útgeröar-
menn. Útgerðarmenn sem DV ræddi
þá við sögðu að saga þeirra félaga
væri frekar eins og bíómynd enn
raunveruleikinn.
Það var Magnús Hreggviðsson,
stjómarformaður Fijáls framtaks,
sem afhenti félögunum verðlaunin í
gær. En dómnefndin, sem yaldi þá,
var annars þannig skipuð: Ámi Vfi-
hjálmsson prófessor, Sigurður
Helgason, stjómarformaður Flug-
leiða, Erlendur Einarsson, fyirum
forstjóri SÍS, Bima Einarsdóttir,
markaðsstjóri Stöðvar 2, Helgi
Magnússon, ritstjóri Fijálsrar versl-
unar, og Magnús Hreggviðsson en
hann var jafnframt formaður dóm-
nefndar. -JGH
Menn ársins í islensku atvinnulífi árið 1989, Samherjamennirnir á Akureyri
eru Þorsteinn Már Baldvinsson, Þorsteinn Vilhelmsson og Kristján Vil-
helmsson.
hertir GKS hf.
Risinn
Húsgagnafyrirtækin Gamla komp-
aníið og Kristján Siggeirsson hafa
sameinast með stofnun nýs hlutafé-
lags undir nafninu GKS hf. Lengi vel
stóð til að Axis færi í eina sæng með
þessum tveimur fyrirtækjum en ekk-
ert varð úr því og sameinaðist Axis
öðm húsgagnafyrirtæki.
Gamla kompaníiið og Kristján Sig-
geirsson vom bæði íjölskyldufyrir-
tæki. Þau vom stofnuð 1908 og 1919
og em því rótgróin á íslenskum hús-
gagnamarkaði.
Þróunarfélag íslands mun eiga hlut
í hinu nýja fyrirtæki GKS sem tekur
til starfa um áramótin. GKS mun
yfirtaka alla framleiðslu Gamla
kompanísins og Kristjáns Siggeirs-
sonar.
Velta GKS á næsta ári er áætluð
um 250 milljónir króna. Allir starfs-
menn i framleiðslustörfum fyrir-
tækjanna tveggja, sem að hinu nýja
fyrirtæki standa, hafa verið endur-
ráðnir og era starfsmenn rúmlega
50 í byijun.
í framleiðslunni verður lögð
áhersla á skrifstofu- og stofnanahús-
gögn. Lögð verður rík áhersla á
hönnun og vöraþróun, sem og á
heildarlausnir í innréttingum skrif-
stofu- og stofnanahúsnæðis.
Starfsemi hins nýja fyrirtækis
verður á næstu tveimur mánuðum
öll flutt að Bíldshöfða 18, húsnæði
Gamla kompanísins hf. en meðan
breytingar standa yfir fer starfsemin
einnig fram að Hesthálsi 2 til 4, hús-
næði Kristjáns Siggeirssonar.
Stjómarformaður GKS er Hjalti
Geir Krisljánsson, Jón P. Jónsson er
varaformaður og Gumfiaugur Sig-
mundsson er meðstjómandi. For-
stjóri hefur verið ráðinn Davíð Lúð-
víksson rekstrarverkfræðingur.
-JGH
Borðum 150 tonn
af konfekti
íslendingar borða um 150 tonn af
konfekti í jólamánuðinum, sam-
kvæmt lauslegu mati Kristins
Bjömssonar, framkvæmdastjóra
Nóa-Síríusar, fyrir DV í gær.
Hér er um konfekt í gjafaöskjum
aö ræða, bæði innlent og erlent. Þar
fyrir utan er neysla á öllu öðm sæl-
gæti í jólamánuðinum.
Að sögn Kristins neyta íslendingar
um 3.500 tonna af sælgæti á ári sem
era um 14 kíló á mann.
Þrátt fyrir að mörgum þyki þetta
mikil sælgætisneysla em íslendingar
nokkuð fyrir neðan sumar aörar
þjóðir í sælgætisáti. Þannig boröar
hver Svisslendingur, Þjóðveiji og
Bandaríkjamaður yfir 20 kíló af sæl-
gæti á ári. -JGH
bjórs var leyfð gerðu hinir bjartsýn-
ustu ráð fyrir því að bjórmarkaður-
inn yrði ekki undir 15 mfiljónum lítra
á ári. Sumir gældu meira að segja
við þá hugmynd að markaðurinn
yrði 20 milljónir lítra og tóku þá mið
af sölu bjórs í nágrannalöndunum.
Þá vitum við það
En niðurstaðan af fyrstu opinberu
bjórjólunum er sú að salan jókst en
sú aukning varð miklu minni en
menn reiknuðu með. íslendingar
drekka greinilega enn rauðvín með
jólasteikinni.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 11-12 Bb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 11,5-13 Úb,V-
6 mán. uppsögn 13-14 b.Ab Úb.V-
b,Ab
12mán.uppsögn 12-15 Lb
18mán.uppsögn 26 Ib
Tékkareikningar.alm. 2-4 Sp
Sértékkareikningar 10-12 Bb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-1,5 Allir
6mán. uppsögn 2,5-3,0 nema Sp Lb.Bb,-
Innlán með sérkjörum 21 Sb Allir
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,5 Sb
Sterlingspund 13-13,75 Úb.Bb,-
Vestur-þýskmörk 6,75-7 lb,V- b.Ab. Úb.lb,-
Danskar krónur 10,5-11,0 Vb.Ab Úb.lb,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) Vb.Ab lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 27,5 Allir
Viðskiptayíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 31,5-32,75 Lb.Bb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-35 Lb.Bb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,25-8,25 Úb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 28,5-33 Lb.Bb,
SDR 10,75 Allir
Bandarikjadalir 10,25-10,5 Allir
Sterlingspund 16,75 nema Úb.Vb Allir
Vestur-þýsk mörk 9,75-10 Allir
Húsnæðislán 3,5 nema Lb
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 40,4
MEÐALVEXTIR
överðtr. des. 89 31,6
Verðtr. des. 89 7,7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajan. 2771 stig
Lánskjaravísitala des. 2722 stig
Byggingavísitala des. 505stig
Byggingavísitala des. 157,9 stig
Húsaleiguvísitala 3,5%hækkaöi 1. okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa
Einingabréf 1 4,508
Einingabréf 2 2,481
Einingabréf 3 2,971
Skammtímabréf 1,539
Lífeyrisbréf 2,267
Gengisbréf 1,993
Kjarabréf 4,460
Markbréf 2,368
Tekjubréf 1,898
Skyndibréf 1,346
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 2.169
Sjóðsbréf 2 1,662
Sjóðsbréf 3 1.523
Sjóðsbréf 4 1,281
Vaxtasjóösbréf 1,5225
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 400 kr.
Eimskip 400 kr.
Flugleiöir 162 kr.
Hampiðjan 172 kr.
Hlutabréfasjóður 166 kr.
Iðnaóarbankinn 180 kr.
Skagstrendingur hf. 300 kr.
Útvegsbankinn hf. 155 kr.
Verslunarbankinn 153 kr.
Olíufélagið hf. 318 kr.
Grandi hf. 157 kr.
Tollvörugeymslan hf. 114 kr. '
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóöirnir.