Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Side 8
FOS'TUMGTJR 29. DESÉMBÉR 1989. Utlönd Rúmenía: Ættingjar Ceausescu hjónanna handteknir Á þessari mynd má sjá skópar sem var í eigu Elenu Ceausescu, fyrrum forsetafrúr Rúmeniu. Skórnir eru skreyttir demöntum. Símamynd Reuter Miklu átaki til hjálpar Rúmenum hefur veriö lileypt af stokkunum víös vegar um heim og háfa al- þjóðlegar hjálparstofnanir brugðist skjótt viö. Evrópubandalagið, sem þegar hefur heitið 7,6 milljóna doll- ara matvæla- og lyfjaaðstoð, mun senda lið sérfræðinga til landsins til að kanna hversu mikla aðstoð Rúmenar þarfnist í framtíðinni. Reuter Rúmenskur hermaður stendur vakt í svefnherbergi fyrrum forsetahjóna Rúmeníu. Almenningur fékk í gær að skoða hýbýli þeirra hjóna en þau bjuggu í vellystingum. Símamynd Reuter Nýir valdhafar í Rúmeníu styrktu í gær stöðu sína á valda- stóli með því að tilnefna fleiri ráð- herra í bráðabirgðastjórn sína og heita því að afnema eins flokks stjómkerfl sem ríkti í landinu á tímum harðstjórans Ceausescus. í bráðabirgðastjórninni eiga nú sæti níu menn. Og í gær voru þrír nánir ættingj- ar Ceausescu-fjölskyldunnar hand- teknir. Systir harðstjórans fyrrver- andi, Elena Barbulescu, var hand- tekin með mikla fjármuni á sér. Þá var sonur hennar einnig tekinn í vörslu yfirvalda. Eldri bróðir Nic- olae Ceausescus, Marin Ceausescu, fannst látinn í Vín í gær og er talið að hann hafi svipt sig lífi. Þjóðfrelsishreyfíngin, sem hefur í raun stjórnað landinu frá því að byltingin sem leiddi til falls Ceau- sescus og síðar aftöku hans hófst í síðustu viku, tilnefndi í gær sjö nýja ráðherra í stjórn sína. Andrei Plesu, einn helsti andstæðingur stjómar Ceausescu, tók við emb- ætti menningarmálaráðherra og Matanasie Stanculescu embætti efnahagsráðherra. Þá tilkynnti Þjóðfrelsishreyfingin að eins flokks kerfið yrði afnumið. Ekki em allir ánægðir með hin nýju stjómvöld í Rúmeníu og hafa andstæðingar kommúnismans staðið fyrir mótmælum á götum höfuðborgarinnar. Margir hæst settu embættismennirnir í bráða- birgðasfjóminni em kommúnistar sem Ceausescu rak frá völdum. Svo til engin stjórnarandstaða var til staðar í Rúmeníu þegar Ceausescu var velt úr stóh. Hann og fjölskylda hans voru einráð í landinu, komm- únistaflokkurinn var eini löglegi stjómmálaflokkurinn og ekkert andóf leyft. Stjórnvöld hafa lagt að lands- mönnum að hafa hemil á reiði sinni gegn kommúnistum og stuðnings- mönnum harðstjórans fyrrverandi en heyrst hefur að hðsmenn örygg- issveita Ceausescus, Securitate, hafi verið teknir af lífi. Um miðjan dag í gær rann út sá frestur sem stjómin gaf hðsmönnum Securit- ate til að leggja niður vopn eða deyja eha. Öryggissveitir hafa stað- ið fyrir skyndiárásum og bardög- um æ síðan Ceausescu var steypt af stóli. Vestrænir stjómarerind- rekar vara þó við því að enn sé hætta á bardögum. Langþráð þögn ríkti í Búkarest í gær eftir að borgarbúar urðu vitni að hörðustu götubardögum sem átt hafa sér stað í Evrópu frá síðari heimsstyijöldinni. Víðs vegar á götum borgarinnar má sjá logandi kerti og blómsveiga til minningar um þá sem létu lífið í bardögum öryggissveita og hersins. Mikil örtröð var í matvöruversl- unum í borgum og bæjum í gær því að Rúmenar neyttu færis og fóra í verslunarleiöangur. Hillur verslana fylltust allt í einu af áður ófáanlegum matvælum; kaffl, ávöxtum og grænmeti. Á valdatíma Ceausescus var mikill matarskort- ur í landinu því að harðstjórinn varði mestöhum fjármunum þjóð- arinnar til að borga erlendar skuld- ir landsins. Til þess að ná því tak- marki lagði hann efnahag landsins og iðnað þess í rúst. Erfitt verk bíð- ur þvi hinnar nýju stjórnar. Landbúnaðarsérfræðingar bráðabirgðastjórnarinnar skýrðu frá því í gær að Ceausescu-stjórnin hefði gróflega falsað framleiðslu- tölur. Uppskera og framleiðsla í landbúnaði væri mun minni en áður hefði verið haldið fram. 11 rfl FLUGELDAMARKAÐUR I FJÖLBREYTT ÚRVAL AF FLUGELDUM, KÖKUM O.FL. Á HAGSTÆDU VERDI. VINSÆLU FJÖLSKYLDUPAKKARNIR FÁANLEGIR í FJÓRUM STÆRÐUM: mm3 Barnapakki Kx. 1.200,- a ll' SS Kr. 1.400,- Kr. 2.300,- Iir. 3.200, AÐALÚTSÖLUSTAÐUR HJALLAHRAUNI 9. EINNIG STRANDGATA 28, FJARÐAR GÖTUMEGIN OG FORNUBÚDIR V/SMÁBÁ TAHÖFNINA. Flugeldasýning í kvöld, 29. des., kl. 20.30 að Hjallahrauni 9 B J ORGUNARS VEIT FISKAKLETTS HJALLAHRAUNI 9, HAFNARFIRÐI - SÍMI 651500 Opið kl. 10-22 og á gamlársdag til kl. 16.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.