Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989.
11
Sviðsljós
Tatum
ber
ljósmyndara
Það fór heldur betur í skapið á
henni Tatum O’Neal þegar ljós-
myndari nokkur rakst á hana á
Heathrowflugvellinum í London.
Ljósmyndarinn smellti myndum af
henni og börnum hennar, Kevin
og Sean, í gríð og erg. Tatum reidd-
ist mjög ljósmyndaranum og skip-
aði honum að hafa sig á brott en
hann lét sig ekki. Tók þá Tatum
tösku sem hún var með og barði
ljósmyndarann svo að stórsá á
honum. Þegar Tatum hafði barið
hann eins og hana lysti öskraði hún
á hann að hann skyldi láta hana í
friði hér eftir. Hins vegar herma
fregnir að ljósmyndarinn hyggist
kæra Tatum fyrir grófa líkamsár-
ás.
Tatum með sonum sínum, Kevin og Sean,
Jin Li er tveggja ára en vegur 50 kíló.
Risabamið
Jin ti
Þeirfræguogríku...
Carolina prinsessa skandalíseraði heldur
betur í samkvæmi nú fyrir skömmu. Hún
sá sinn ektamann, Stefano, á tali við
huggulega stúlku. Það fór víst eitthvað í
taugamar á henni því allt í einu klæddi
hún sig úr skónum og dreif sig upp á
borð þar sem hún fór aö dansa, viðstödd-
um til mikillar ánægju. Það leið hins
vegar ekki á löngu að Stefano sá til konu
sinnar og brást reiður við. Hann skellti
henni á öxlina og skundaði með hana út.
Diana Ross hefur ákveðið að dóttir henn-
ar skuli líkjast henni eins og nokkur kost-
ur er. Aumingja bamið þarf vist að læra
öll þau lög sem mamman syngur og þeg-
ar hún heldur hljómleika þarf barnið að
koma með henni klætt í sams konar föt
og hún og með eins greiðslu. Til að halda
dótturinrú betur við efnið fær hún ríflega
vasapeninga ef hún stendur sig í stykk-
inu. Þá vitið þið það.
Loksins brosir Marianna Borg, en hún
er best þekkt fyrir að hafa eitt sinn verið
gift tenniskappanum Birrú Borg. Ástæð-
an fyrir ánægju Mariönnu er víst sú að
hún á von á barni innan skamms. En hún
hefur reynt í mörg ár að eignast barn án
árangurs þar til nú.
Bamið borðar allt sem að kjafti
kemur og biður stöðugt um mat, seg-
ir mamma hans Jins Li litla. Dreng-
urinn er einungis tveggja ára en veg-
ur heil 50 kíló.
Sá litli, stóri á heima í Chikan í
Kína og er að verða jafnþungur og
faðir hans enda pabbinn smávaxinn.
Fái hann ekki að borða nagar hann
allt sem hönd á festir, segir mamma
hans.
Jin Li var stór nýfæddur en ekki
er vitað nákvæmlega hversu stór
hann var þar sem ungbamaeftirliti
er mjög áfátt á heimaslóðum hans.
Konumar í þorpinu þar sem hann
býr segjast aldrei hafa séð jafnstórt
og digurt ungbarn og hann.
Allt frá fyrstu stundu hefur Jin Li
grenjað eftir mat; þegar hann var sex
mánaða borðaði hann 15 fullar skál-
ar af núðlum yfir daginn.
„í dag borðar hann heilan fisk í
mál og þar á eftir borðar hann fulla
skál af hrísgijónum með grænmeti.
Við höfum ekki ráð á að kaupa allan
þann mat sem hann þarf svo faðir
hans fer út á hverri nóttu til að veiöa
fisk handa honum," segir mamma
hans.
Ef matseðill barnsins er skoðaður
kemur í ljós að í morgunmat borðar
hann fimm skálar af núðlum, tvær
skálar af hrísgrjónum og eitt kíló af
fiski.
í hádeginu borðar hann fimm skál-
ar af núðlum, fjórar skálar af hrís-
gijónum og eitt og hálft kíló af fiski.
A kvöldin borðar hann svo eitt
stykki kjúkling, eitt og hálft kíló af
fiski, fimm skálar af núðlum og eina
skál af hrísgijónum og í eftirrétt
borðar hann svo ávexti.
Jin Li nýtur þess svo sannarlega
að borða, hann grýtir ekki matnum
í kringum sig heldur fer hann beina
leið upp í munninn á honum og það-
an ofan í maga.
Læknar, sem hafa skoðað þetta
risabarn, segja að það verði að
skammta ofan í hann mat því með
sama áframhaldi muni Jin Li vega
150 kíló þegar hann veröur 7 ára
gamall. Ef hann verður ekki dáinn
þá því þessi mikh líkamsþungi reyn-
ir mjög á hjartað.
JASMIN VIÐ BARÓNSSTÍG
VERSLUNIN HÆTTIR EFTIR JÓL
Fata- og gjafavörulager,
búðarborð (2) og kassi, fataslár og hengi, verslunarinnréttingar
og hillur, flúrljós o.m.fl. Selst á mjög sanngjörnu verði. Vinsamleg-
ast hafiðsamband I s. 11625 (á daginn) eða 23958 (á kvöldin).
Hattar, húfur,
knöll
í ÁRAMÓTAVEISLUNA
Opið laugardag,
Hallarmúla og Austurstræti, kl. 10-13,
Kringlunni 10-16
AÐAL-
FUNDUR
í samræmi við ákvarðanir hluthafafundar 26. júlí sl.
er nú boðað til aðalfundar Iðnaðarbanka íslands hf.
árið 1990. Verður fundurinn haldinn í Súlnasal Hótel
Sögu, Reykjavík, miðvikudaginn 17. janúar 1990
oghefstkl. 16:00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. ákvæðum 35. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um nýjar samþykktir fyrir félagið.
Breytingar frá núverandi samþykktum felast
aðallega í breytingum á tilgangi og starfsemi
s félagsins, sem lúta að því að félagið hætti
bankastarfsemi og verði m.a. eignarhaldsfélag um
hlutabréf í íslandsbanka hf., sbr. samþykkt
hluthafafundar 26. júli sl. varðandi kaup á
hlutabréfum ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf.
og samruna rekstrar Iðnaðarbankans við rekstur
þriggja annarra viðskiptabanka.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
4 Tillaga um frestun fundarins. Bankaráð boði
til framhaldsfundar sem haldinn vetði í síðasta lagi
fyrir lok aprilmánaðar nk.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
eða umboðsmönnum þekra í Iðnaðarbankanum,
Lækjargötu 12,2. hæð frá 10. janúar nk.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fundinn,
þurfa að hafa borist bankaráðinu skriflega
í síðasta lagi 10. janúar nk.
Reykjavík, 20. desember 1989
Bankaráð Iðnaðarbanka íslands hf.
tðnaöarbankinn