Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Side 13
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989. 13 Lesendur Um aðild að EB: Er herskylda innifalin? Jóhann Guðmundsson skrifar: Þegar hæst ber umræðuna um hugsanlega aðild okkar íslendinga að Evrópubandalaginu minnist ég þess aö hafa séð í lesendabréfi í DV fyrir nokkru bollaleggingar eða jafn- vel fullyrðingu einhvers sem skrifaði um að herskylda væri á meðal þeirra skuldbindinga, sem við íslendingar hlytum að gangast undir ef við gerð- umst aðilar að bandalaginu. Ég hef ekki enn séð eða heyrt nein svör við þessari fullyrðingu sem sett var fram í bréfmu. Þetta þykir mér með ólíkindum vegna þess að hingað til hefur ekki staðið á umræðum þeg- ar minnst er á hermál og ekki síst ef þau tengjast okkur með einhverj- um hætti, Ég hlýt nú að áhta að ef þetta at- riði tengist ekki umræðunni um þátt- töku okkar í Evrópubandalaginu eins og önnur sem hljóta að falla undir sameiginlega stjórn sé ekki nauðsyn að ræða annað sem minna vegur. Varla getum við öll verið svo barnaleg að halda að fiskur og frí- verslun með fiskafurðir sé það eina sem komi okkur við í tengslum við bandalagið! - Það er meira að segja svo að varla er minnst á óhefta fjár- magnsflutninga milh landa eða hvernig hægt sé að semja um aö stemma stigu við óheftu vinnuafli frá öörum löndum. Það er vitaö að í öhum löndum Evrópubandalagsins eru karlmenn skyldaðir til að gegna herþjónustu einhvem hluta ævi sinnar, venjulega nokkra mánuði á yngri árum (á frið- artímum, sjálfskipað á styrjaldartím- um). Má ekki telja líklegt að sam- einginleg stjórn verði á þessum mál- um fyrir öll ríkin þegar þau hafa sameinast að mestu leyti? Og hvers vegna ættum viö íslendingar þá að vera undanskildir ef við höfum sam- einast bandalaginu að öðru leyti? Er yfirleitt nokkur athugun í gangi um eitt eöa annað en frjálsan fisk- markað eða einhverjar undanþágur á því sviði? Ég hefi ekki heyrt það. - En hvað sem líður umræðum um fiskverslun (þótt þær séu mikilváeg- ar) hefur ekkert verið gert uppskátt um það atriði sem snýr aö varnar- málum, þátttöku í þeim á sameigin- legum vettvangi bandalagsins og hvort þátttaka leggur okkur þær skyldur á herðar að koma á her- skyldu eins og gerist í hinum ríkjun- um. Hvernig væri nú að einhver eða einhverjir, sem hafa þekkingu á mál- unum, greindu okkur frá þessu? !'*'................. Ruglum ekki börnin. Þeir rauðu skulu blífa! ímynd jólasveinanna: Enga breytingu Gauja hringdi: Kona ein hringdi í þáttinn Þjóöar- sál í útvarpinu nýlega og spurði: Hver er kona jólasveinsins? - Hún var að visa tíl skemmtilegs jólalags sem leikið er alloft á útvarpsstöðvun- um og ber þetta nafn. Sagðist hún ekki vita til þess að jólasveinninn ætti neina konu og taldi, að því er virtist, þetta vera einhverja rang- túlkun á ímynd jólasveina þeirra sem við þekkjum. - Eða svo fannst mér á tah hennar. Viömælandi hennar og stjórnandi Þjóðarsálar gaf lítið út á spurningu konunnar og kvaddi svo konan. - En þetta leiðir huga minn að þvi að nú um stundir er eins og sumir hér séu að reyna að koma einhverri annarri ímynd jólasveina að, annarri en hingað til hefur þekkst. Maður sá t.d. að verið var að kynna einhverjar fígúrur í Þjóöminjasafn- inu og áttu sennilega að vera ímynd þeirra „íslensku“ jólasveina sem sumir vilja endilega koma á fram- færi af „þjóðlegu" hugarfari. - Þessar fígúrur voru klæddar lörfum (lopa- peysum m.a. að sjálfsögðu) og voru hinar álappalegustu ásýndar. Þarna mátti sjá blessuð börnin sem boðin voru til kynningarinnar til að reyna að heilaþvo þau með þessari ímynd. Jólasveinninn með hvíta skeggið í rauða búningnum er sennilega ekki lengur nógu góður fyrir bókmennta- þjóðina! Mér fannst þetta vera hin afkára- legasta kynning og ekki þjóna nein- um tilgangi öðrum en þeim að rugla börnin í ríminu og koma því inn hjá þeim að hinn venjulegi jólasveinn (í rauða búningnum) væri ekki sá „eini sanni“. - Einnig er farið að kynna jólasveina með einhverjum afkára- legum heitum og var eitt þeirra kynnt í sjónvarpinu nýlega, „skyrj- armur“! - Hvað á vitleysan að ganga langt? Ég segi hins vegar; enga breyt- ingu á jólasveinunum, þeir hafa þeg- ar fengið fasta ímynd í hugum ungra sem aldinna. Um úrslit leikja „NBA Vifta“ skrifar: Ég vil þakka DV og Mogganum fyr- ir umfjöllun um NBA deildina í körfubolta. Það sem mér finnst þó vanta þegar úrslit úr leikjum eru birt að það kemur ekki fram hvort liöiö er á heimavelli. - Það hefur nefnilega mikið að segja að þetta sé gert. Ég legg einnig áherslu á að þið fylg- ist vel með „Golden State Warriors" á leið þeirra í úrslit. - Ég þakka svo birtinguna. pað finnst mörgum kjötið gott frá okkur! 'ötið Heil læri Frampartar Frampartar heilir úrbeinaðir 889æ 2 iítrar Mjúkís frá Kjörís 00 581 Svta« Og nýtt úrvau íiútou slátruðu ný 885.1? Revktur svínahnakki 890'°° Pepsi 2 Itr. 109 389 JólaSlið - Vínber - frá Sanitas: UJVSS Pepsí m llr- 99 2V4 lítr. frá New Vorlk! Rautt Gevalia Kóngakaffi 5 lítrar 448- 238 14! ■oo Lageröl rn V4 Itr. 39 • 00 Malt 4900 Malt 49;”kan flaskan - Sykurlaust Sanitas Grape 1V2 lítr. 1 29-00 Sanitas 7-up . 2 lítr. 1 49 00 kaffi Vi kg. 199.00 Þýskt gæðakaffi V4 kg. 199.oo - Margt smátt gerir stórt! 1V2 lítr. 129-0" Móttökuvélar fyrir dósir og _ flöskur eru í versluninni. Qgfjg ylddJI* mat úr umbúðunum! Opið í Garðabæ á morgun laugardag frá kl. 10-18 á Gamlársdag frá kl. 9-13 og 2. jan. frá kl. 13-19 Hafir þú gleymt einhverju, þá er opið í Garðabæ! KJOTMIÐSTOÐIN GARÐAT0RG11 GARÐABÆ - LAUGALÆK 2 Ath. á Laugalæk er opið á laugardag frá kl. 9-16.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.