Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Síða 16
16
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989.
íþróttir______________________________________
Leikur númer eitt
þúsund hjá Clough
Einn þekktasti framkvæmdastjórinn í ensku knattspyrnunni, Brian Clough,
sem stjórnar liði Nottingham Forest, nær merkum áfanga á laugardag er
hann stjórnar Uði í 1000. skipti í ensku knattspyrnunni sem framkvæmda-
stjóri.
Clough, sem þekktur er fyrir að segja sína skoðun á hlutunum umbúða-
laust, hefur verið framkvæmdastjóri í ensku knattspyrnunni síðustu 25 árin
og starfað hjá fimm liðum. Hann hefur verið hjá Nottingham Forest síðustu
tíu árin og ekkert fararsnið er á kappanum. Clough stjómar liði sínu á morg-
un gegn Tottenham en í þeim 999 leikjum, sem hann á að baki, hefur lið
undir hans stjóm sigrað í 456 leikjum, jafntefli hefur orðið niðurstaðan í 260
leikjum og í 283 leikjum hefur Clough mátt bíða ósigur. -SK
Hver verður íþrótta-
maður ársins hjá DV?
í desembermánuði hefur lesendum
DV gefist kostur á að kjósa íþrótta-
mann ársins 1989. Hafa atkvæðaseðl-
ar, sem birst hafa á íþróttasíðum
blaðsins, streymt til DV og greinilegt
að áhugi fyrir þessu kjöri er mikill á
meðal lesenda blaðsins. Frestur til
að skila inn atkvæðaseðlum rann út
klukkan eitt í dag.
Sá íþróttamaður, sem hlutskarp-
astur verður í kjörinu, fær glæsileg
verðlaun sem eru tvöfalt kássettu-
segulband af Elta-gerð frá OPUS,
Skipholti 7. Úrslit í kjörinu verða til-
kynnt í þriðjudagsblaði DV 2. janúar.
íþróttamaður ársins í fyrra, að mati
lesenda DV, var Haukur Gunnars-
son.
-SK
Góður sigur hjá
unglingalandsliðinu
- vann Kýpurbúa, 2-1, í gær
ísland sigraði Kýpur, 2-1, í annarri
umferð á alþjóðlegu móti unglinga-
landsliða í knattspymu í ísrael í
gær. íslendingar skomðu eina mark
fyrri hálfleiksins þegar Bjarki Gunn-
laugsson frá Akranesi skoraði á síö-
ustu mínútu fyrri hálfleiksins.
Á 67. mínútu bætti svo Ríkharður
Daðason, Fram, við öðru marki fyrir
ísland og staðan því 2-0. Eftir þetta
mark gáfu íslensku leikmennimir
aðeins eftir og leikmenn Kýpur sóttu
fast aö marki íslands. Sókn þeirra
bar loks árangur þegar um 9 mínútur
voru til leiksloka en fleiri urðu mörk-
in ekki þrátt fyrir þungar sóknir
Kýpurbúanna.
„Við erum ánægðir með stigin tvö
en eftir að þeir náðu að minnka
muninn var maður orðinn ansi
hræddur. Liðsheildin var sterk í
leiknum en Sigurður Sigsteinsson
frá Akranesi var besti leikmaöur ís-
lenska liðsins ásamt Ólafi Péturssyni
markverði frá Keflavík. Tveir leik-
menn íslenska liðsins léku sinn
fyrsta landsleik í gær en það vom
þeir Bjarki Pétursson, ÍA, og Finnur
Kolbeinsson, Fylki,“ sagði Sveinn
Sveinsson, fararstjóri íslenska liðs-
ins, í samtali við DV í gær.
-GH
Ætla að setja gervi-
efni á Laugavöllinn
Miklar líkur eru taldar á því að
gerviefni verði sett á frjálsíþrótta-
völlinn að Laugum í Suður-Þingeyj-
arsýslu á næstunni. Þetta kemur
fram í nýjasta hefti Skinfaxa sem
Ungmennafélag íslands gefur út.
Blaðið er óvenjuglæsilegt að þessu
sinni, enda 80 ára þessa dagana.
í Skinfaxa er rætt við Gunnar Jó-
hannesson, formann HSÞ, og hann
segir að máhð sé komið vel á veg.
Og hann heldur áfram: „Það er kom-
ið svo vel á veg að sveitarstjórnar-
menn þeir sem málið snertir eru all-
ir sammála um að þetta sé mál sem
beri að stefna á og það á allra næstu
misserum. Máhð er nú í ríkiskerfinu
og unnið er að því að fá jáyrði frá
ráðuneyti um að ríkið leggi sinn lög-
bundna skerf til þessa máls úr
íþróttasjóði." Loks segir formaður
HSÞ: „Eins og ég sagði eru ahir sveit-
arstjómarmenn gahharöir á að það
beri að leggja í þessa framkvæmd."
í viðtahnu við Skinfaxa leggur
Gunnaráherslu á að hér sé um mikil-
væg byggðasjónarmið' að ræða sem
snerti aha byggð í Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Það yrði mik'il lyftistöng fyrir
íþróttir í Þingeyjarsýslum ef af þess-
um framkvæmdum verður og raun-
ar er ekki spurning hvort heldur
hvenær gerviefni verður lagt á völl-
inn.
Ritstjóraskipti á Skinfaxa
Eins og áður segir er Skinfaxi 80 ára
um þessar mundir og veglegt af-
mæhsblað nýkomið út. Rekstur
blaðsins hefur þó gengið nokkuð erf-
iðlega undanfarið, að sögn Þóris Har-
aldssonar, varaformanns UMFÍ, og
vinnur nefnd að thlögum varðandi
áframhaldandi útgáfu blaðsins. Þá
má geta þess að Ingólfur Hjörleifs-
son, sem verið hefur ritstjóri blaðs-
ins, lætur af störfum um áramótin
vegna náms og er óráðið hver tekur
við af honum. Ingólfur hefur ritstýrt
Skinfaxa síðustu þrjú árin.
-SK
Jólagjöf kylfingsins
Kylfingur af Suðumesjum, Bjarni Kristjánsson, náði draumahöggi allra
kylfinga skömmu áður en jólahátíðin gekk í garð er hann fór holu í höggi á
HólmsveUi í Leiru. Afrekið vann Bjarni á 16. braut vaharins.
Árstíminn, sem Bjarni valdi fyrir draumahöggið, er undarlegur, svo ekki
sé meira sagt, en afrekið er án efa hin besta jólagjöf. Þess má geta að fjöldi
kylfinga fór holu í höggi á árinu og verða þeim sem það gerðu veittar viður-
kenningar í dag, föstudag, klukkan 17 að Síðumúla 35 í Reykjavík.
-SK
• Jakob Sigurðsson er hér kominn fram hjá norsku varnarmönnunum og skorar eitt af mörkum íslenska landsliðsins.
46. sigur Islendinga á Norðmönnun
ísland sýndi c
- og sigraði sterkt lið Norðmanna, 25-22,1 gærkvö]
ísland sigraði Noreg í
landsleik í handknattleik í
LaugardalshöUinni í gær-
■'kvöldi með 25 mörkum gegn
22. Staðan í hálfleik var 13-11, íslend-
ingum í hag. íslendingar höfðu forystu
aUan leiktímann, mest sex mörk yfir í
fyrri hálfleik, 11—5.
Byijunarlið íslands í leiknum var
þannig skipað að Einar Þorvarðarson
stóð í markinu, homamenn voru þeir
Jakob Sigurðsson og Valdimar Grims-
son, skyttur Kristján Arason og Alfreð
Gíslason, leikstjórnandi Siguröur
Gunnarsson og inni á línunni var Þorg-
Us Óttar Mathiesen. Þannig var Uðið
skipað nær allan leiktímann nema
hvað Héðinn Gilsson skipti við Alfreð.
Kristján Arason skoraði tvö fyrstu
mörk íslands með þrumuskotum og
hann kom einnig við sögu með tveimur
glæshegum línusendingum á ÞorgUs
Óttar Mathiesen sem gáfu mörk á
fyrstu 10 mínútunum. Þegar 12 mínút-
ur voru liðnar af leiknum var staðan
7-5. Þá komu mikU kaflaskipti í leikn-
um, fyrst skoruðu íslendingar fjögur
mörk í röð og breyttu stöðunni í 11-5.
Héldu þá margir að íslendingar myndu
kafsigla Norðmenn. Norska hðið gafst
ekki upp og skoraði fjögur mörk í röö
og breytti stöðunni í 11-9. Staðan í hálf-
leik var 13-11.
í síðari hálfleik höfðu íslendingar
frumkvæðiö og náðu tvisvar að komast
fimm mörkum yfir. ÞorgUs Óttar var
þá látinn fara vel út á móti stórskyt-
tunni Östyn Havang, sem skoraði 6
mörk í fyrri hálfleik, og við það riðlað-
ist mjög sóknarleikur norska hðsins.
Sigur íslands var aldrei í hættu, liðið
hafði þetta þijú tU fimm mörk yfir allan
hálfleikinn og lokatölumar í leiknum
urðu 25-22.
Margt gott sást í leik íslenska liðsins
í gærkvöldi og með meiri samæfingu
og fleiri landsleikjum á næstu misser-
um ætti það að geta gert góða hluti í
Tékkóslóvakíu á næsta ári. Þorgils Ótt-
ar Mathiesen, fyrirliði íslenska lands-
liðsins, var besti maður liðsins og nýtti
færi sín á línunni geysUega vel, skoraði
7 mörk. Kristján Arason átti einnig
góðan leik og samvinna hans og Þorg-
Us Óttars í leiknum var frábær. Héðinn
GUsson var frekar seinn í gang en þeg-
ar á leikinn leið átti hann góða spretti