Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Qupperneq 26
42
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989.
Afmæli
Ólafur Skúlason
Ólafur Skúlason biskup, til heimilis
aö Biskupsgarði, Bergstaðastræti
75, Reykjavík, er sextugur í dag.
Ólafur fæddist í Birtingaholti í
Hrunamannahreppi og ólst upp í
foreldrahúsum, lengst af í Keflavík.
Hann lauk stúdentspófi frá VI1952
og embættisprófi í guðfræði frá HÍ
1955. Ólafur stundaði framhalds-
nám og sótti ýmis námskeið við
bandaríska háskóla fyrir starfandi
sóknarpresta á staiísárum sínum
þar vestra en auk þess stundaði
hann guðfræðinám í skóla alkirkju-
ráðsins í Bossey í Sviss 1960. •
Ólafur var prestur íslenska safn-
aðarins í Montain í Norður-Dakota
1955- 59 og í Keflavík 1959-60. Hann
varð fyrsti æskulýðsfulltrúi þjóð-
kirkjunnar 1960-64 og var prestur í
Bústaðaprestakalli í Reykjavík
1964-89. Hann var í stjórn Hins ís-
lenska kirkjufélags í Ameriku
1956- 59, í stjórn Prestafélags íslands
1970-79 og formaður þess 1974-79.
Ólafur var formaður æskulýðs-
nefndar þjóðkirkjunnar 1964-67 og
í barnaverndarráði íslands 1975-78.
Hann var dómprófastur 1976-83 og
vígslubiskup 1983-89.
Ólafur kvæntist 18.6.1955 Ebbu
Guðrúnu Brynhildi Sigurðardóttur,
f. 5.12.1935. Foreldrar hennar eru
Sigurður Þ. Tómasson, forstjóri í
Reykjavík, og kona hans, Maggý
Flóventsdóttir.
Ólafur og Ebba eiga þrjú börn. Þau
eru: Guðrún Ebba, f. 1.2.1956, kenn-
ari í Reykjavík, gift Stefáni Halli
Ellertssyni stýrimanni og eiga þau
tvær dætur, Hrafnhildi, f. 1981, og
Brynhildi, f. 1987; Sigríður, f. 9.8.
1958, húsmóðir og háskólanemi, gift
Höskuldi Hrafni Ólafssyni, við-
jskiptafræðingi og deildarstjóra hjá
|Eimskipafélagi íslands í Reykjavík,
jog eiga þau tvö börn, Ólaf Hrafn, f.
1981, og Ásgerði, f. 1987; Skúli Sig-
urður, f. 20.8.1968, laganemi við HÍ.
Systkini Ólafs eru Helgi, f. 4.9.
1933, leikari og leikstjóri, kvæntur
Helgu Bachmann leikkonu; Móeið-
ur, f. 10.2.1938, ökukennari, gift
Birni Björnssyni, lögregluþjóni í
Keflavík; Ragnheiður, f. 12.3.1943,
píanókennari, gift Sævari Helga-
syni, málara í Keflavík. Systir Ólafs,
samfeðra, er Kristrún, f. 9.2.1927,
gift Þóri Geirmundssyni, verka-
manni í Reykjavík.
Foreldrar Ólafs voru Skúli Odd-
leifsson, f. 10.6.1900, d. 3.1.1989,
umsjónarmaður í Keflavík, og kona
hans, SigríðurÁgústsdóttir, f. 11.4.
1902, d. 16.11.1961.
Faðir Skúla var Oddleifur, b. í
Langholtskoti í Hrunamanna-
hreppi, Jónsson, b. á Hellishólum,
Jónssonar, b. og dbrm. á Kópsvatni,
Einarssonar, b. í Berghyl, Jónsson-
ar, b. í Skipholti, Jónssonar, bróður
Fjalla-Eyvindar. Móðir Skúla var
Helga, systir Önnu, ömmu Jóns
Skúlasonar póst- og símamálastjóra.
Anna var dóttir Skúla, alþingis-
manns í Berghyl, bróður Jósefs,
langafa Ólafs ísleifssonar, fyrrv.
efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinn-
ar. Annar bróðir Skúla var Þorvarð-
ur, afi Sigurgeirs Jónssonar ráðu-
neytisstjóra. Þriðji bróðir Skúla var
Hannes, langafi Ástu, móður Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar.
Hannes var einnig langafi Ástu,
móður Hólmfríðar Karlsdóttur.
Fjórði bróðir Skúla var Jón, langafi
Önnu, móður Hjartar Torfasonar
hrl. Systir Skúla var Margrét, lang-
amma Björgvins Vilmundarsonar
bankastjóra og Gunnars Arnar list-
málara og Þórðar Steinars hrl.
Gunnarssona. Önnur systir Skúla
var Helga, amma Ólafs Halldórsson-
ar handritafræðings.
Sigríöur var dóttir Ágústs, al-
þingismanns í Birtingaholti í
Hrunamannahreppi, bróður Guö-
mundar, fóður Ásmundar biskups.
Ágúst var sonur Helga, b. í Birtinga-
holti, bróður Andrésar, hreppstjóra
í Syðra-Langholti, fóður Magnúsar,
prófasts og alþingismanns á Gils-
bakka, föður Péturs, ráðherra, al-
þingismanns og bankastjóra, föður
Guðmundar hrl., Ásgeirs, bæjarfó-
geta í Kópavogi, Stefáns, aðstoðar-
bankastjóra Landsbankans, og Pét-
urs, forstjóra Fiskafurða. Systir Pét-
urs ráðherra var Ragnheiður,
amma Jakobs Frímanns Magnús-
sonar hljómlistarmanns. Þá var
Andrés hreppstjóri afi Þórðar
hæstaréttardómara, föður Magnús-
ar, framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins á íslandi, föður Andr-
ésar blaðamanns. Loks var Andrés
hreppstjóri langafi Guðmundar í
Guðmundssonar, ráðherra og
sendiherra.
Helgi var sonur Magnúsar, al-
þingismanns í Syðra-Langholti,
Andréssonar. Móðir Magnúsar var
Margrét Ólafsdóttir, b. í Efra-Seli,
Magnússonar, og konu hans, Malín-
ar Guðmundsdóttur, b. á Kópsvatni,
Þorsteinssonar, ættfóður Kóps-
vatnsættarinnar.
Móðir Helga var Katrín Eiríks-
dóttir, b. ogdbrm. á Reykjum, Vig-
fússonar, ættfoður Reykjaættarinn-
ar, langafa Sigurgeirs Sigurössonar
biskups, föður Péturs biskups. Móð-
ir Sigríðar var Móeiður Skúladóttir
Thorarensen, læknis og alþingis-
manns á Móeiðarhvoli, bróður
Bjarna amtmanns og skálds. Skúli
var sonur Vigfúsar, sýslumanns á ■
Hlíðarenda í Fljótshlíð, Þórarins-
sonar, sýslumanns á Grund í Eyja-
firði, Jónssonar, ættföðurThorar-
Olafur Skulason.
ensenættarinnar. Móðir Skúla var
Steinunn Bjarnadóttir landlæknis
Pálssonar og konu hans, Rannveig-
ar Skúladóttur landfógeta Magnús-
sonar. Móðir Móeiðar var Sigríður
Helgadóttir, konrektors í Skálholti,
Sigurðssonar og konu hans, Ragn-
heiðar Jónsdóttur, systur Valgerð-
ar, konu biskupanna Hannesar
Finnssonar og Steingríms Jónsson-
ar, ömmu Steingríms Thorsteins-
sonar, skálds og rektors, og
langömmu Níelsar Finsen, nóbels-
verðlaunahafa í læknisfræði.
Biskupshjónin taka á móti gestum
í Biskupsgarði, Bergstaðastræti 75,
Reykjavík, milli klukkan 15 og 19 á
afmælisdaginn.
Theódóra Guðlaugsdóttir
Frú Theódóra Guðlaugsdóttir,
Snorrabraut 40, Reykjavík, áður
húsfreyja á Hóli í Hvammssveit í
Dalasýslu og á Vatni í Skagafirði,
er níutíu ára í dag.
Theódóra hefur tekið mikinn þátt
í félagsmálum. Hún stofnaði Kven-
félagið Guðrúnu Ósvífursdóttur í
Hvammssveit í Dölum og var for-
maður þess í 20 ár. Formaður Breið-
firska kvenfélagasambandsins var
hún í nokkur ár og hún átti lengi
sæti í skólanefnd Kvennaskólans á
Staðarfelli. Hún var einnig í full-
trúaráði Kvenréttindafélagsins um
margra ára skeið. Eftir að Theódóra
hætti sveitabúskap starfaði hún sem
matráðskona á Skálatúni í þrjá vet-
ur. í þrjú ár starfaði hún í fata-
geymslunni á Hótel Borg. í kjöt-
búðinni Borg hefur hún unnið frá
árinu 1972 og allt fram til þessa.
Eiginmaður Theódóru var Óskar
Kristjánsson frá Breiðabólstaö á
Fellsströnd. Hann lést árið 1980.
Óskar var búfræðingur að mennt;
eftir að hann hætti búskap starfaði
hann um árabii hjá Samvinnutrygg-
ingum.
Börn Theódóru og Óskars eru:
Hulda, starfsmaöur í samgöngu-
ráðuneytinu, og á hún tvo syni: Þor-
steinogóskar.
Marinó, trésmiður, kvæntur Ingi-
ríði Örnólfsdóttur, útibússtjóra í
Samvinnubankanum, og eiga þau
tvær dætur: Örnu og Theódóru.
Gréta, gift í Ohio í Bandaríkjurt-
um, og á hún eina dóttur, Lísu.
Uppeldisbörn Theódóru og Óskars
eru Agnar Breiðfjörð Kristjánsson
og María Kristjánsdóttir.
Systkini Theódóru voru ellefu en
þau eru öll látin: Jónas, skáld; Elín-
borg og Þórdís, dóu kornungar;
Guðrún, bæjarfulltrúi í Reykjavík,
gift Einari Kristjánssyni húsa-
smíðameistara; Jóhanna, bókavörö-
ur á Borgarbókasafninu, var gift
Kristni Sigurðssyni bryta; Lára, gift
Tryggva Siggeirssyni verslunar-
manni; Ingibjörg, dó ung; Ólöf, fyrst
gift Thorkel Hansen, síðar Hannesi
Merði Þórðarsyni íþróttakennara;
Kristín, dó ung; Guðmundur Skúli,
forstjóri Kaffibrennslu KEA á Ak-
ureyri, kvæntur Guðríði Aðal-
steinsdóttur; Kristján, hæstaréttar-
lögmaður, ritstjóri Vísis og síöast
stjórnarformaður Loftleiða, kvænt-
Theódóra Guðlaugsdóttir.
ur Bergþóru Brynjólfsdóttur.
Foreldrar Theódóru voru séra
Guðlaugur Guðmundsson, f. 20.4.
1853, d. 20.3.1931, síðast prestur á
Stað í Steingrímsfiröi, og Margrét
Jónasdóttir, f. 16.12.1867, d. 12.3.
1954.
Baldur Kristjónsson
Til hami afmælið 2í ngju með ). desember
80 ára 60ára
Anna Guðrún Bjarnadóttir, Ökmm, Seltjarnarnesi. Jenný Kristófersdóttir, Aðalstræti 17, Akureyri. Þóra R. Stefánsdóttir, Suðurhólum 16, Reykjavík. Andrés Einarsson, Hmna2, Hörgslandshreppi. Erla Sigurðardóttir, Urðarstekk 9, Reykjavík. Guðríður Hansdóttir, Vatnsstíg 11, Reykjavík. Þorgerður Halldórsdóttir, Stigahlíð 4, Reykjavík.
75 ára 50 ára
Anna Friðriksdóttir, Þómnnarstræti 127, Akureyri. Björgvin Jón Pálsson, Suðurgötu 36, Sandgerði. Guðlaug Margrét Bjömsdóttir, Heiðmörk 13, Hveragerði. Arabella Eymundsdóttir, Dvergabakka 20, Reykjavík.
40 ára
Árni Andersen,
70 ára Dvergholti 22, Mosfellsbæ. Bergljót Pétursdóttir, Kvíholti 4, Hafnarfirði. Elisabet Þórdís Guðmundsdóttir, Fífuseli 37, Reykjavik. Hrafnhildur Pálmadóttir, Merkjateigi 8, Mosfellsbæ. Þorgeir Jón Pétursson, Langholtsvegi 183, Reykjavík.
Einar Júlíussson, Túngötu 14, Sandgerði, Guðbjörg Runólfsdóttir, Efri-Ey 1, Leiðvallahreppi. Ögmundur Ingvar Þorsteinsson, Fannarfelli 10, Reykjavík.
Baldur Kristjónsson.
Baldur Kristjónsson íþróttakenn-
ari, Kópavogsbraut 69, Kópavogi, er
áttatiuáraídag.
Baldur er fæddur í Útey í Laugar-
dal. Hann gerðist íþróttakennari í
Reykjavík áriö 1934, fyrst hjá ýms-
um íþróttafélögum, lengst hjá ÍR.
Hann kenndi einnig í nokkrum skól-
um. Baldur var íþróttakennari við
Miðbæjarskólann frá árinu 1942 þar
til skólinn breytti um starfsemi. Frá
þeim tíma kenndi hann við Austur-
bæjarskólann til ársins 1973. Eftir
það var hann prófdómari í skyldu-
sundi skólanna á Reykjavíkursvæð-
inutil ársinsl988.
Baldurkvæntistþann 21.12.1940
Vilborgu Halldórjdóttur húsmóður,
f. 13.5.1920. Hún ér dóttir Halldórs
Teitssonar sjómanns og Ingibjargar
Jónsdóttur húsmóður í Hafnarfirði.
Foreldrar Baldurs voru Kristjón
Ásmundsson, bóndi og búfræðing-
ur, og kona hans, Sigríður Berg-
steinsdóttir.
Bjami Kristinsson
Bjami Kristinsson framkvæmda-
stjóri, Langagerði 7, Reykjavík, er
fimmtugurídag.
Hann er sonur Bjameyjar Helga-
dóttur, sem er búsett á Húsavík, og
Kristins Bjamasonar sem er látinn.
Eiginkona Bjarna er Guðrún
Garðarsdóttir og eiga þau fjögur
börn.
Bjami og eiginkona hans taka á
móti gestum á heimili sínu í dag frá
kl. 20.
Auður
Ásgeirs-
dóttir
Auöur Ásgeirsdóttir, Colorado
Spring í Coloradofylki í Bandaríkj-
unum, er fertug í dag.
Auöur er fædd og uppalin í Kefla-
vík, dóttir Ásgeirs Hálfdánar Ein-
arssonar skrifstofustjóra, f. 5.5.1923,
og Guðrúnar Ólafsdóttur húsmóð-
ur, f. 9.10.1926. Eiginmaður Auðar
er Gerald Tallaly.
Auður Ásgeirsdóttir.
Bjarni Kristinsson.