Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Page 27
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1989.
43
Lífestm
Friðarljós í stjaka sem eykur öryggi og kemur í veg fyrir íkveikju.
DV-mynd GVA
Kertastjakar úr
smídajámi
Margir kjósa að láta stór kerti,
svokölluð friðarljós, loga úti á tröpp-
um um hátíðamar. Eiríkur Magnús-
son og Hörður Sigurðsson reka
Smíðagallerí í Mjóstræti 2 b. Þar eru
seldir stjakar úr smíðajárni sem þeir
hafa hannað og smíðað.
Mikið öryggi er að slíkum stjökum
sem koma í veg fyrir að kertið geti
fokið og valdið íkveikju. Auk þess er
skjól í stjökunum og logar því lengur
á kertinu við erfiðar aðstæður.
Stjakamir eru hinir laglegustu
gripir og kosta 1.500 krónur stykkið.
-Pá
Hagstofa íslands:
Strikar nöfn út af
happdrættisskrám
Vilji menn láta má nafn sitt út af
nafnaskrám sem Hagstofa íslands
sendir út til happdrætta og félaga-
samtaka nægir eitt símtal til Hagstof-
unnar eða ferð þangað til að útfylla
sérstakt skjal.
Við þetta hætta menn að fá heim-
senda happdrættismiða, dreifibréf,
auglýsingar og fleira sem flýtur inn
með póstinum. Þetta gildir þó ekki
um símnúmerahappdrætti.
„Það er talsvert um að fólk notfæri
sér þessa þjónustu," sagði starfs-
stúlka á Hagstofu íslands í samtali
við DV. „Þó er það mest merkjanlegt
í desember þegar mesta hrinan af
svona aukapósti dynur yfir.“
Þess munu dæmi að fólk fái áfram
happdrættismiða þrátt fyrir að nafn
þess hafi verið máð út af viðkomandi
skrá. Það er þá vegna þess að sá sem
sendir út happdrættismiðana eða
dreifibréfin styðst við gamla og úr-
elta skrá.
Síminn á Hagstofu íslands er 26699
og gefa þarf upp nafn, heimilisfang
og kennitölu.
-Pá
Flugbjörgunarsveitir:
Bátur og tveir bílar
Dregið hefur verið í happdrætti miða nr. 4241 og miða nr. 41457.
Landssambands Flugbjörgunar- Númer annarra og smærri vinn-
sveitanna. Fyrsti vinningur, Sóma inga verða auglýst nánar síðar.
sportbátur, kom á miða nr. 42479. -Pá
Tveir Toyota 4-Runner bílar komu á
S í mahappdrætti
Dregið var í símahappdrætti Saab 900, kom á miða nr. 97-11389,
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra á 3. vinningur, Citroen BX, kom á núða
aðfangadag. Eftirtahn númer hlutu nr. 91-641309. Fjórir Citroen AX bílar
vinning: 1. vinningur, Saab 9000, kom komu á miða nr. 91-21636, 91-615601,
á miða nr. 95-36725, 2. vinningur, 91-30446,98-33844 og 98-11730. -Pá
Styrktarfélag vangefinna:
Vinningsnúmer
Dregið var í happdrætti Styrktar-
félags vangefinna á aðfangadag. 1.
vinningur, Volvo 740 GLi, kom á
miða nr. 75096. 2. vinningur, Suzuki
Fox Samurai, kom á miða nr. 33404.
3.-10. vinningur, sem var bifreið að
eigin vali fyrir kr. 700.000, féll á miða
nr. 1906, 14582, 19881, 37019, 43848,
60766, 75455 og 99410.
-Pá
Ellingsen flugeldar
- leiðrétting
í umijöllun DV um flugelda í gær eins og hermt var í fréttinni.
var rangt farið með verð á fjölskyldu- Einnig var ranglega staðhæft að
pökkum frá Ellingsen. Birtur var opið væri hjá Ellingsen á gamlársdag
listi yfir innihald eins pakka. Sá átti en svo er ekki. Beðist er velvirðingar
að kosta 2.000 krónur en ekki 3.000 áþessummistökum. -Pá
Af hverju ekki fisk-
mánuður á fslandi?
Lagt er til að febrúar verði sérstakur fiskmánuður á íslandi.
Er einhver sérstakur fiskmánuður
hjá okkur á íslandi? Ég spyr vegna
þess að október var fiskmánuður hér
í Bandaríkjunum. Það er að tilhlutan
samtaka fiskiðnaðarins í Washing-
ton DC að október hefur verið opin-
ber fiskmánuður hér í landi sl. 34 ár.
Neytendur eru óspart hvattir til
þess að borða meiri fisk í fiskmánuð-
inum. Auglýsingar um hollustu fisk-
metis í blöðum og sjónvarpi eru áber-
andi og í fiskborðum stórmarkað-
anna mátti sjá alls konar kostatilboð
á fiski.
Gífurlegt úrval er hér af alls konar
frystum fiskréttum sem aðeins þarf
að hita í örbylgjuofni. En okkur,
harðsvíruðum ýsuætum ofan af ís-
landi, finnst frekar lítið til slikra
rétta koma.
Við viljum hafa matreiðsluna á
fiskinum sem allra einfaldasta og
Neytendur
satt se'gja borðum við nú orðið ýsuna
okkar bara soðna í vatni með nýjum
soðnum kartöflum og bræddu smjöri
(sem er auðvitað best að sé íslenskt,
eins og ýsan). Steiktur fiskur hefur
því nærri algerlega vikið af okkar
borði eftir nærri tveggja ára dvöl hér
ytra.
Febrúar tilvalinn fiskmánuður
á íslandi
En víkjum að fiskmánuðinum. Það
væri ekki úr vegi að gera einhvern
mánuðinn að sérstökum fiskmánuði
á íslandi. Mér fyndist þá við hæfi að
það væri febrúar, þegar meira úrval
er af fiskmeti alls konar á íslandi en
aðra mánuði, þ.e. þegar vetrarvertíð-
in stendur sem hæst og hrogn og glæ-
nýr fiskur eru fáanleg upp á nærri
hvem dag.
Þeir hafa ekkert slíkt á boðstólum
hér, í það minnsta hef ég aldrei orðið
vör við hrogn eða lifur í fiskborðum
stórmarkaðanna.
Hér í Florida er yfirleitt gott úrval
af nýjum fiski en það eru allt aðrar
tegundir en við eigum að venjast á
íslandi. Hér er hægt að fá nýjan tún-
fisk, steinbítur er afar vinsæll og
sverðfiskur er til í miklu úrvali, einn-
ig makríll, grouper og snapper sem
eru sjávarfiskar sem veiðast í hlýjum
sjónum hér í grenndinni.
Einnig eru til þorskur og ýsa,
greinilega þídd flök og oft svo illa
útlítandi að maður gæti ekki hugsað
sér að matreiða fiskinn, hvað þá
leggja sér hann til munns. Oft má sjá
fól og hreisturslaus flök af smáýsu
sem er lítið stærri en murta úr Þing-
vallavatni. Það er óskemmtileg sjón.
Mér hefur stundum dottið í hug að
bjóðast til að útvega þeim almenni-
lega ýsu eins og við eigum jafnan
heima hjá okkur í frysti. Hins vegar
má oft sjá sæmilega úthtandi lúðu
en við höfum ekki lagt í að kaupa
hana.
Mjög gott úrval er hér af alls konar
skel- og krabbafiski, að ógleymdum
laxinum sem hefur reynst okkur vel
þegar við höfum keypt hann. Laxinn
er mikið grillaður hér og oftast boð-
inn þannig á fiskveitingastöðunum.
Við höfum þó fengið hann soöinn
(gufusoðinn) hjá Red Lobster sam-
kvæmt sérstakri beiðni. Hér höfum
við fengið norskan lax sem er hrein-
asta lostæti. Og ef borið er fram brætt
smjör með matnum á veitingahúsum
hér er hægt að vera alveg hundrað
prósent viss um að það er smjör en
ekki smjörlíki eins og því miður ger-
ist á veitingahúsum í ónefndu landi
í norðri.
Anna Bjarnason, St. Cloud Florida
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓEiS
(1.FLB1985
Hinn 10. janúar 1990 ertíundi fasti gjalddagi vaxtamiða verötryggöra
spariskírteina ríkissjóðs meö vaxtamiðum í 1. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 10 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiðimeð 5.000,-kr. skírteini kr. 454,50
Vaxtamiðimeð 10.000,-kr. skírteini kr. 909,00
___________Vaxtamiði með 100.000,- kr. skírteini_kr. 9.090,00_
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10-júlí 1989 til 10.janúar1990aðviðbættumverðbótum semfylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985
til 2771 hinn 1. janúar 1990.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 10 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1990.
Reykjavík, 29. desember 1989
SEÐLAB ANKIÍSLANDS