Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1990, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1990. Fréttir Óvíst hversu lengi nýi Homafiarðarósinn endist: Nýir ósar lokast oftast fljótleqa Júlía Imsland, DV, Höftu Það mun hcifa gerst nokkrum sinn- um á þessari öld að stórbrim hafa rofið skarð í suðurfjörur vestan Hvanneyjar og þar með myndast annar ós. Oftast hafa þessir ósar lok- ast fljótlega og íjörukamburinn hlað- ist upp á ný. Þó varð undantekning á því veturinn 1948^49. Þá varð ósinn 200 metrar á breidd og hægt að fara um hann á litlum bátum. Sá ós var þarna í nærri því eitt ár. . Dýpi Hornafjarðaróss var á þessum tíma 30 fet en með tilkomu nýja óss- ins minnkaði dýpið í 13 fet. Við þess- ar breytingar varð innsiglingin oft mjög erfið vegna grunnbrota. A þess- um árum komu Austfirðingar með báta sína á vertíð til Hafnar og þenn- an vetur voru um 20 bátar, sex til 25 tonn á stærð, sem reru frá Höfn. Jóhann Albertsson, fyrrverandi hafnsögumaður, fór margar ferðir á hafnsögubátnum Stíganda um nýja ósinn og sagði að það hefði verið betri leiö fyrir smábáta, þegar aust- anátt var. Jóhann segist aöeins vita um einn bát af þeim stærri, sem fór þarna inn og bara einu sinni. Það var Auðbjörg frá Norðfirði sem Jakob Jakobsson átti. Að sögn Jóhanns var þessi vertíð mjög erfið þeim sem reru frá Höfn þennan vetur og höfðu sumir á orði að búið væri með útgerð frá Höfn. Svo reyndist þó ekki og fyrir næstu vetrarvertíð var innsiglingin komin í sitt fyrra horf. Lóðsbáturinn í fjörunni á Hvanney og menn að kanna nýja ósinn á miðri myndinni - myndaður frá austurfjörutanga. DV-mynd Ragnar Imsland Eru viðbúnir neyðarástandi Júlia Imsland, DV, Htfe Mjög vel er fylgst með öllum breyt- ingum sem verða við Homafiaröarós og innsiglinguna til Hafnar eftir að nýi ósinn kom vestan Hvanneyjar í síðustu viku. Hallgrímur Guð- mundsson bæjarstjóri sagði að búið væri að gera ráðstafanir ef neyðar- ástand skapaðist vegna innsiglingar- innar og dæluskip væri til taks með mjög skömmum fyrirvara. Á næstunni er von á mönnum frá Hafrannsóknastofnun til mælinga og rannsókna á þessum miklu efnis- hreyfingum sem í firðinum og ósnum eru. Hafrannsóknastofnun hefur fangið danska stofnun til liðs við sig við þessar rannsóknir og er ætlunin að nú verði kannað ítarlega hvaö hægt er að gera til úrbóta til langtíma. Hallgrímur segir að ýmsar lausnir hafi verið hugsaðar í sambandi við ósinn, m.a. að hlaða leiðigarða líka þeim sem notaðir hafa veriö hér viö brúargerðir með góöum árangri. En slíkar framkvæmdir eru dýrar og svo er spurning um hvort óhemja nátt- úruaflanna þarna gæti gert slíkar framkvæmdir að engu á einni nóttu og það er það sem þessar athuganir beinast að. Egilsstaðir: Slökkviliðið aldrei kallað útffyrra Sigiún Björgvinsd., DV, Egílsstöðum; Slökkviliðið á Héraði var aldrei kallað út á siðasta ári. „Það voru tvö útköll árið 1988, átta útköll árið þar áður, svo að þetta stefnir allt í rétta átt,“ sagði Sigfús Árna- son, slökkviliðsstjóri á Egilsstöð- um, í samtali við fréttamann DV. „Það er sýnilegt að viö bætum okkur ekki úr þessu hvað þetta snertir," bætti hann við. Þaö er líka eins gott aö ekki er mikið um eldsvoða hér. Slökkvi- liðið hefur yfir að ráða tveimur afgöralum bflum og hús á að heita til yfir þá. En nú er verið að byggja yfir starfseraina. Slökkvi- Iiðinu er ætlaður staður í áhalda- húsi sem Egilsstaðabær er að byggja og sagöi Sigfús aö það yrði tilbúið í vor. En stundum munar litlu hvað eldinn snertir. Á milli hátíöanna kviknaði í borðskreytingu í Hótel Valaskjálf um miðja nótt en eld- varnakerfi hússins gerði viðvart og næturverði tókst að slökkva áður en eldur varö mikfll. Sigrún Björgvmsd., DV, Egflsstööum; Nú eru tíu ár síðan hitaveita Kgilsstaða og Fella tók til starfa. Fyrir tveimur árum var skiptyfir í vatnsmæla í stað hemla. Viö það minnkaði notkun á vatni um tæp 30% og hitastig vatnsins hækkaði um eina gráðu og er nú 75,6 stiga heítt. Svo til allt húsnæði á Egils- stööum og í Fellabæ er hitað með vatni frá veitunni. Þó sumum finnist heita vatnið dýrt er það iwsnöggtum ódýraraen rafmagn til hitunar. Björn Sveinsson hitaveitustjóri segir að næstu ár verði rekstur hitaveitunnar erfiður en síðan fari afborganir og vaxtagreiðslur minnkandi og muni hitaveitan verða skuldlaus um aldamót. I dag mælir Dagfari Ósannindamenn Landsbankans Mikið skilur Dagfari það vel að Sverrir bankastjóri sé reiður út í Eyjólfbankaráðsformann. Ogmaö- ur skilur það ennþá betur að Ey- jólfur bankaráðsformaður sé reið- urút í Sverri bankastjóra. Bankar- áðsformaðurinn leyfir sér að halda því fram í blaðaviðtali aö það hafi ekkert verið að marka það sem bankastjórinn sagði um kaup Landsbankans á Samvinnubank- anum. Hann benti ennfremur á það að samningurinn sem bankastjór- mn gerði um Samvinnubankaka- upin í september hefði verið ómark. í rauninni var bankaráðsformað- urinn að segja að bankastjórinn hefði hlaupið á sig og væri alls ekki hæfur til að vera bankastjóri. Það er náttúrulega ferlegt fyrir nýjan bankaráðsformann að þurfa að taka við þeirri ábyrgðarstöðu, með bankastjóra í bankanum sem semja af sér og tala af sér og kaupa aðra banka, án þess að hafa nokk- urt vit á því. Það verður auðvitað að setja ofan í við svona menn og vara almenning og viðskiptavini bankans við þessu óráðshjali. Það er von aö maðurinn sé reiður. En Sverrir bankastjóri er líka reiður. Hvað er bankaráðsformað- urinn að segja honum fyrir verk- um? Hvað kemur bankaráðsform- anni það við þegar bankastjóri kaupir annan banka fyrir slikk? Ef honum kemur það eitthvað við á annað borð, þá á hann að vera ánægður með það. Og svo bætir bankaráðsformaðurinn gráu ofan á svart með því að láta hafa eftir sér einhverja vitleysu í blöðum um mál sem hann hefur ekki hundsvit á. Veit ekki bankaráðsformaðurinn að bankastjórinn samdi alls ekki um kaupin á Samvinnubankanum? Veit hann ekki að hann var allan tímann að plata þá í Samvinnu- bankanum og tilboðið sem banka- stjórinn gerði í Samvinnubankann var miklu lægra heldur en það var í raun og veru? Það er óneitanlega mikiö böl fyrir bankastjóra að þurfa að sitja uppi með bankaráð og formann í banka- ráði sem er að skipta sér af störfum bankastjórans. Bankaráð eru kosin til aö gegna bankastjórunum og þeir bankaráðsformenn eru á villi- götum, sem halda að þeir geti haft viðtöl við blöðin og haft skoðanir á því sem þeir hafa ekki skoðajýrá. Bankastjórinrtjþefhr upplýsa að báhkaFáðsforn^ú^iM^' f er ósannindaniaður. Baft$aí&OS":- formaöurinn hefur þurft að setja ofan í við bankastjórann sem er starfsmaður ósannindamannsins. Bankaráðsformaðurinn segir að bankastjórinn fari með rangt mál sem á mæltu máli þýðir að banka- stjórinn er líka ósannindamaður. Það er sem sagt hver ósanninda- maðurinn ofan á öðrum í Lands- bankanum. Það er huggulegt til þess að vita. Og Dagfari sem hélt að þetta væru allt valinkunnir heiðursmenn, sem stjórnuöu þess- um aðalbanka landsins og sem er nýbúinn að kaupa annan banka. Ekki er gott að vita til þess aö bankaráösfundirnir fari þannig fram að, bankáráðsformaðurinn ljúgi í báiilðstöýórahn og baríka- stjórinn ljúgi a rnóti. Verður ekki að hafa vitni á þessum fundum, eða lygamæli? Ef ábyrgir menn eru komnir í þær stellingar að ljúga upp í opið geðið hver á öðrum, vaða í villu og misskilning og skilja ekki hvenær þeir eru búnir að gera til- boð í aðra banka og hvenær ekki, þá mega venjulegir kúnnar í Landsbankanum fara að vara sig. í bankaráðinu með þessum mönnum situr Lúðvík Jósefsson, sem var frægur í pólitíkinni í eina tíð fyilr það að þegar hann þurfti um það að velja að segja satt eða ósatt, þá sagði hann alltaf ósatt. Ekki batnar bankaráðið við það, þegar ósannindamennirnir eru orðnir þrír! Þetta er kannski allt saman lygi að Landsbankinn hafi keypt Samvinnubankann? Það skyldi þó aldrei vera að þetta sé allt misskilningur hjá bahkaráös- formanninum að halda að banka- stjórinn hafi keypt banka, sem hann keypti aldrei en sagðist bara hafa keypt til að villa um fyrir bankaráðinu? Ef bankaráðsformaðurinn trúir ekki bankastjóranum og banka- stjórinn trúir ekki bankaráðsformr. anninum, hvað þá með aumji eins og mig? Dag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.