Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 3. MARS 1990.
Fréttir
ísland - Júgóslavía í dag:
Hvorugt lið
má við tapi
Jón Kristján Sigurösson, DV, Zlín:
Leikur íslands og Júgóslavíu í loka-
umferö C-riöils heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik, sem
fram fer í dag klukkan 16 að íslensk-
um tíma, hefur gífurlega þýöingu
fyrir bæði hðin.
Hvorugt liö má viö ósigri, það Uð
sem tapar á htla möguleika á aö
blanda sér í baráttuna um efstu sæt-
in í keppninni. Tapi annað liðiö með
nokkurra marka mun getur það lent
í neðsta sæti riðilsins og fcdliö þar
með alla leið niður í C-keppni ef
Kúba tekur upp á því að sigra Spán
í kvöld.
Línur eru farnar að skýrast í öðr-
um forriölum heimsmeistarakeppn-
innar í Tékkóslóvakíu. Heimamenn,
Tékkar, sem leika í B-riðli keppninn-
ar, eru svo gott sem fallnir í C-
keppni. En sú keppni hefur reyndar
fengið nýtt nafn og heitir hér eftir
Álfukeppni.
Tékkar standa nú í þeim sporum
að þurfa aö vinna Suður-Kóreu 1 síð-
asta leiknum í dag með sjö marka
mun og verður að telja það langsótt-
an möguleika. Ef þetta verður niður-
staðan ætla Tékkar að byggja upp
nýtt lið en þeir munu leika, ef þetta
gengur eftir, í Álfukeppni sem fer
fram eftir tvö ár.
Þetta er mikið reiðarslag fyrir
Tékka, sem voru bjartsýnir um gengi
sinna manna fyrir keppnina, og ekki
skemmdi fyiir að liðið haföi heima-
völhnn að baki sér. Svíar og Ungverj-
ar eru með góða stöðu í A-riðli eftir
tvo sigra og það sama er að segja um
Sovétmenn og Austur-Þjóðverja, sem
leika í D-riðli.
Kristján Arason hefur verið í sérstakri meðferð vegna meiðslanna sem hann hiaut í leiknum við Spánverja og ætti
að geta leikið gegn Júgóslövum í dag.
Kristján ætti að geta leikið
- allir aðrir heilir fyrir leikinn 1 dag
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Zlín:
„Kristján Arason tognaði á ökkla en
ég reikna með því að hann verði orð-
inn góður fyrir leikinn gegn Júgó-
slövum. Við látum hann jafnvel leika
í sérstökum skóm sem við tókum
með að heiman en þeir eiga að hlífa
ökklanum vel,“ sagði Stefán Carls-
son, læknir íslenska handboltalands-
liösins, í samtali við DV í gær.
„Kristján mun ennfremur fara í
hljóðbylgjur en við tókum einnig
með okkur að heiman slíkt tæki og
einnig munum við ganga vel frá
ökklanum áður en hann gengur til
náöa í kvöld. Að öðru leyti ganga
alhr landshðsmennimir héihr til
skógar,“ sagði Stefán.
f
Júlíus og Jakob með í dag?
- Bogdan hyggur á breytingar
Jón Kristján Sigurðssan, DV, Zlín:
Bogdan Kowalczyck, landshösþjálf-
ari íslands í handknattleik, hefur
teflt fram óbreyttu liði í fyrstu tveim-
ur leikjunum hér í Tékkóslóvakíu,
en fyrir leikinn í dag er búist við aö
hann geri breytingar.
Jafnvel er tahö að Júhus Jónasson
verði kallaður inn 1 hðið fyrir Sigurð
Sveinsson en Bogdan vill helst af öllu
hafa Héðin Gilsson vegna varnar-
leiksins. Á mönnum hér er að heyra
að einnig megi búast við að Jakob
Sigurðsson fái aö spreyta sig og komi
þá líklega inn fyrir Guðmund Guö-
mundsson. -
Ljóst verður þó um hádegisbilið í
dag hvemig liði Bogdan stilhr upp
gegn Júgóslövum en það verður
vandasamt verk því mikið er í húfi.
Bogdan lá í gær yfir ýmsum hug-
myndum um hvernig best væri að
stilla upp sterkasta hðinu í þessum
mhdlvæga leik.
íslenska landshðið tók gærdaginn
rólega en gaf sér þó tíma til að
skreppa í glerverksmiðju rétt fyrir
utan Zlín. í gærkvöldi tók liðið síðan
létta æfingu í íþróttahphinni í Zlín.
Andrúmsloftið er gott í íslensku her-
búðunum og eru strákamir stað-
ráðnir í að sigra Júgóslava í dag.
Jón Hjaltalín Magnússon, formað-
ur HSÍ, notaði hins vegar tækifærið
og afhenti leikhússtjóranum í Zlín
leikskrá Þjóðleikhússins að Endur-
byggingunni eftir Vaclav Havel, for-
seta Tékkóslóvakíu.
Fjórburarnir í Mosfellsbæ voru skírðir í Lágafellskirkju rétt fyrir jólin
1988. Hér sést presturinn, séra Birgir Ásgeirsson, skíra systurnar Alex-
öndru, Brynhildi, Elínu og Diljá. Nú er ætlunin að setja á stofn nafna-
nefnd sem tekur til umfjöllunar nöfn barna áður en þau eru skirð. Það
er reyndar bundið því að nöfnin séu eitthvað óvenjuleg.
Menntamálaráöherra með nýtt frumvarp til nafnalaga:
Tillaga um sex milljón
króna nafnanefnd
- aðeins verði heimilt að skíra viðurkenndum nöfnum
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn-
inni nýtt frumvarp um nafnalög og
hefur hann fengið heimild til að
leggja frumvarpið fyrir þingflokk-
ana. Fmmvarpið er afrakstur af
starfi nefndar er menntamálaráð-
herra skipaði í október síðastliðn-
um. í nefndinni sátu dr. Guðrún
Kvaran orðabókaritstjóri, formað-
ur, dr. Ármann Snævarr, fyrrver-
andi hæstaréttardómari og há-
skólaprófessor, Hahgrímur
Snorrason hagstofustjóri og Svav-
ar Sigmundsson dósent.
í frumvarpinu eru ýmis nýmæh
sem án efa eiga eftir að valda deil-
um. Má þar fyrst nefna að skýrt
verður kveðið á um að fólk megi
ekki bera fleiri en tvö nöfn en það
er reyndar bundið í núgildandi lög-
um þótt það hafi verið þverbrotið.
Hefur veriö töluverð ásókn í að
skíra börn þrem og jafnvel fjórum
nöfnum.
Þá verður fólki veitt rýmri heim-
ild til að skipta um nöfn ef rökstudd
ástæða er fyrir því. Dugar þá að
koma með persónulegar ástæður
th þess.
Ný ættarnöfn bönnuð
Helsta breytingin í þessum nýju
nafnalögum lýtur aö ættarnöfnum.
Samkvæmt núgildandi nafnalög-
um áttu ættarnöfn að deyja út en
því hefur aldrei verið framfylgt.
Nú er ætlunin að hverfa frá því en
leyfa hins vegar viðgang þeirra
ættarnafna sem fyrir eru um leið
og koma á í veg fyrir að ný ættar-
nöfn festi rætur. Upptaka nýrra
ættarnafna verður ekki leyfð.
Þau ættarnöfn, sem fyrir eru,
munu erfast jafnt í karl- og kven-
legg sem er breyting sem á að vera
í anda jafnréttislaganna. Að sögn
Guðrúnar Kvaran hefur ekki verið
mikil ásókn í ný ættarnöfn á und-
anfórnum árum en þó mun einn
og einn aðhi sækjast eftir því. Ef
þessi lög verða samþykkt er ljóst
að fólk getur ekki fengið ættarnöfn
nema gifta sig inn í ætt með ættar-
nafni.
- En af hverju verða ný ættarnöfn
bönnuð?
„Við viljum endilega verja þann
íslenska sið að kenna barn við for-
eldri,“ sagði Gúðrún.
Nafnanefnd upp á 6 milljónir
króna
í frumvarpinu er kveðið á um að
stofnuð verði nafnanefnd sem verði
skipuðu nefndarmönnum sérfróð-
um um mannanöfn og íslenskt
mál. Er lagt til að hún verði skipuö
þremur mönnum, tveimur eftir
tilnefningu heimspekidehdar Há-
skóla ísland og einum tilnefndum
af lagadeild Háskólans. Er gert ráð
fyrir að kostnaður viö nefndina
verði greiddur úr ríkissjóði.
Nefndin á aö semja skrá um leyfö
mannanöfn, vera th ráðuneytis um
nafngjafir og skera úr ágreinings-
efnum um nöfn og nafngjafir.
Er gert ráð fyrir að þessi nafna-
listi verði langur en Guðrún sagði
að ekki væri hægt að ætlast til þess
að hann yrði tæmandi. „Ef einhver
óskar eftir nafni, sem er ekki á list-
anum, ber viðkomandi að leita
samþykkis nefndarinnar sem á að
skera úr um hvort nafnið getið fall-
ið að lögum. Ef það gerir það þá
veröur það tekið inn á listann og
verður þar áfram. Ef nafnið er hins
vegar ekki samþykkt verður það
ekki notað,“ sagði Guðrún.
Er gert ráð fyrir að nefndin starfi
mikið fyrstu þijú misserin og að
hún verði að hafa skrifstofu sem
verði opin hluta úr degi. Er því tal-
ið að töluverður kostnaður hljótist
af starfl nefndarinnar og er lagt til
að fyrsta heila starfsár hennar
verði kostnaöur af starfi hennar
um fimm milljónir og sjö hundruð
þúsund krónur.
Er hugmyndin að nefndin starfi
hratt og vel og geti fellt úrskurði
innan mjög skamms tíma.
Ef nafn, sem á að gefa barni, er
ekki á þessari nafnaskrá á prestur
að bíöa með skírnina þar til nefnd-
in hefur fjallað um málið.
Nafn verður að vera komið
innan sex mánaða
Þá er gert ráð fyrir að skylt verði
aö gefa börnum nafn innan sex
mánaða frá fæðingu með skírn eða
tilkynningu um nafngjöf til Hag-
stofu íslands. Svipuð ákvæði munu
vera í norrænni mannanafnalög-
gjöf en töluvert mun vera um það
að það dragist í langan tíma að
veita börnum nöfn. Ekki er þó
kveðið á um nein refsiákvæði ef
þetta er brotið.
Lagafrumvarp um mannanöfn
var áður samið árið 1971 en þá varð
ekki samkomulag um frumvarpið
þannig að það fékk aldrei samþykki
Alþingis.
-SMJ
Gerðum engin mistök
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Zlm:
„Ég skil vel að það hafi verið von-
brigði hjá íslenska liðinu að ná ekki
að minnsta kosti öðru stiginu í leikn-
um gegn Spánveijum. Við gerðum
engin mistök þegar brotið var á Guð-
mundi en ég hef litið yfir myndband
frá leiknum. Við dæmdum aukakast
sem var það eina sem kom th greina
í stöðunni," sagði Manfred Prause,
annar vestur-þýsku dómaranna sem
dæmdu leik Islendinga og Spánverja
í Zlín í fyrrakvöld, í samtali við DV
yfir morgunverðarborði á Hótel
Moskvu í gærmorgun.
Prause staðfesti í samtalinu við DV
aö búið væri að ákveða að hann og
félagi hans, Erhardt Hoffmann
myndu dæma leik íslands og Júgó-’
slavíu í Zlín í dag.