Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 3. MARS 1990. 3í ið njóta sín Sólveigar Leifsdóttur á hárgreiðslu- Fjóla Hermannsdóttir greiðir hér hár stofunni og hér úðar hún hárvökva Bryndísar Ólafsdóttur. nsdóttur. DV-myndir Brynjar Gauti á hár Tinnu Traustadóttur. Drífa Gunnarsdóttir er búsett í Vestmannaeyjum og það var hennar heima- fólk sem tók að sér að farða hana og greiða. Drífa er hér ásamt Anítu Vignisdóttur og Hrönn Gunnarsdóttur. DV-mynd Ómar Garðarsson Tinna Traustadóttir er í niunda bekk Hlíðaskóla. DV-mynd Brynjar Gauti " Tinna Traustadóttir: Langar að læra fatahönnun Tinna Traustadóttir er fædd í Reykjavík 3. apríl 1974 og er því á sextánda ári. Hún er í níunda bekk Hlíðaskóla og stefnir á nám í Verslunarskóla íslands næsta ár. Hún aetlar sér að taka stúdentspróf en fara síðan út í fatahönnun. „Ég hef mjög gaman af að sauma og pijóna,“ segir hún. Foreldrar Tinnu eru Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur og Trausti Valsson arkitekt. Tinna bjó með móður sinni í Svíþjóð frá sex til átta ára aldurs og segist hafa kunnað því vel. Hún flutti í Vogahverfið þegar þær mæðgur sneru heim og hún var í fyrstu í Vogaskóla. Nú búa þær í Hlíðunum. Áhugamál Tinnu, fyrir utan saumaskap, er hestamennska, skíðaiþróttin, eróbikk og ný tónlist. „Ég á marga skemmtilega vini sem ég hef gaman af að hitta og svo finnst mér aiveg frábært að fara í útilegur," segir hún. Tinna var í sveit í flög- ur sumur á Flúðum og þar fékk hún mikið dálæti á hrossum. „Ég er mikil sveitamanneskja í mér,“ segir hún. Fótbolta hefur hún einnig stundað þannig að áhugamál hennar eru margvísleg. „Ég var tólf ára þegar ég byrjaði að sauma á mig fót. Iðu- lega geng ég í fötum eftir mig,“ segir hún. Tinna hefur ferð- ast mjög mikið. „Ég hef ferðast um Norðurlöndin, einnig bjó ég um tíma í Bandaríkjunum þegar mamma var á rithöfunda- þingi og þar gekk ég í skóla. Einnig hef ég dvahst á Flórída, í New York, Jamaica, Mexíkó, Spáni, ítahu og Belgíu,“ segir Tinna en segja má að hún sé vel sigld, aðeins fimmtán ára gömul. Fyrirsætustörf og tískusýningar heilla hana mikið. Hún er í Módel 79 og hefur oft setið fyrir hjá Ijósmyndurum. „Ég sendi mynd af mér í Fordkeppnina því ég hef alltaf haft áhuga á ljósmyndafyrirsætustörfum," segir hún. Tinna er 174 sm á hæð. -ELA Bryndís Ólafsdóttir: Innanhússarkitektúr á óskalistanum Bryndís Ólafsdóttir er fædd 22. febrúar 1971 og er því nýorð- in nítján ára. Hún er nemandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ þar sem hún er á þriðja ári á félagsfræðibraut. Hugurinn stefnir í arkitektúr eða auglýsingateiknun en Bryndís segist hafa mikinn áhuga á innanhússarkitektúr. „Æth ég fari ekki í nám til Bandaríkjanna eða Þýskalands eftir stúdentspróf," segir hún. „Ég get vel hugsað mér að læra arkitektúr í sex ár,“ segir hún. Bryndís hefur teiknað hús utan sem innan allt frá barns- aldri svo æfingin er þegar komin að einhveiju leyti. „Þetta er mitt aðaláhugamál." Foreldrar Bryndísar eru Rósa Þorleifsdóttir sjúkraliði og Ólafur Torfason verktaki en fjölskyldan hefur búið í Garða- bænum undanfarin sjö ár. Áhugamál Bryndísar, fyrir utan teikninguna, er eróbikk, sem hún hefur stundað reglulega, og ferðalög en hún reynir að komast til útlanda einu sinni á ári. Til að láta þann draum rætast hefur hún starfað í auka- vinnu og á sumrin í Hagkaupi í Kringlunni en þar afgreiðir hún í sérvörudeild. „Ég hef nú ekki hugsað mér að gera það að ævistarfi," segir Bryndís. Hún er í Módel 79 en það voru einmitt samtökin sem sendu myndir af henni í Fordkeppnina, með hennar samþykki auð- vitað. „Ég hef mikinn áhuga á fyrirsætustörfum og öhu í kringum þau,“ segir hún. Bryndis hefur einu sinni sýnt á tískusýningu með Módel 79 en hún segir að frekar erfitt sé að fá eitthvað að gera því margir séu um hituna. Bryndís tók þátt í Hollywoodkeppninni fyrir stuttu og var þar kjörin ljós- myndafyrirsæta þannig að byijunin er að minnsta kosti hafin hjá henni á þessari braut. Bryndís er 175 sm á hæð. -ELA Drífa Gunnarsdóttir er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og það voru hennar menn sem snyrtu hana og greiddu fyr- ir myndatökuna. DV-mynd Ómar Garðarsson, Vestmannaeyjum Drífa Gunnarsdóttir: Pólitíkin heillar [ Drífa Gunnarsdóttir er fædd í Vestmannaeyjum 7. maí 1970. Hún hefur aha tíð búið í Eyjum, utan þess tfma þegar gosið stóð yfir en þá var hún þriggja ára. Þá bjó Drífa ásamt foreldr- : um sínum, Gunnari Tryggvasyni vélstjóra og Huldu Sigurðar- dóttur, á Selfossi. Drífa tók stúdentspróf frá Framhaldsskól- I anum í Eyjum sl. haust og í desember hóf hún störf sem rit- | ari hjá bæjarfógetanum. Hugur hennar stefnir á nám í Kenn- araháskólanum en hún er ekki viss hvort hún fer næsta vet- ' ur eða þamæsta. „Það fer eftir því hvað ég verð dugleg að safna mér peningum," segir hún. Áhugamál Drífu eru aðallega dýr. Hún segist vera mikill dýravinur og sjálf á hún labradorhund sem heitir Tobías. Ég geng með hann fimm kílómetra á dag. Viö löbbum úr austur- • bænum, þar sem ég bý, yfir í vesturbæinn og fórum þannig hring hér um,“ segir hún. Drífa er auk þess mikil fótboltakona. Hún hefur æft og keppt í fótbolta undanfarin íjögur ár og mun leika með meistaraflokki Týs í sumar. „Ég er reyndar Þórsari en þar sem þeir hafa ekki meistaraflokk í kvennafótboltanum verð ég að flytja mig yfir. En Drífa á fleiri áhugamál. Hún hefur mikinn áhuga á pólitík og hefur gefið kost á sér í fimmta sæti á framboðslista Al- þýðubandalagsins í Eyjum fyrir næstu sveitarstj órnarkosning- ar. „Ég hef alltaf haft áhuga á pólitík og ákvað að reyna fyrir . mér nú.“ Eins og aðrir Eyjamenn hefur Drífa starfað í fiski á sumrin en einnig hefur hún starfað sem gjaldkeri á pósthúsinu og unnið á veitingahúsi. Drífa hefur aldrei ferðast út fyrir land- steinana en segist langa til að heimsækja bróður sinn sem býr í Sviþjóð. Hún sendi mynd af sér í Fordkeppnina til að prófa eins og hún segir. „Ætli ég sé ekki, eins og aðrar stúlkur, með fyrir- sætustarfið í maganum." Drífa er 176 sm á hæð. -ELA |

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.