Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR, 3, MARS 1990,
Ofátogaukakíló
Allt grænmeti er hollt.
- og hömlulausar ofætur fengu leyfl til að nota fræðin í starfi OA
Fram til ársins 1935 átti hömlulaust
fólk um fáa kosti aö velja til að ná
árangri gegn sjúkdómi sínum. En
það ár komu tveir menn saman og
náðu að rísa upp gegn heldrykkj-
unni. Fjórum árum seinna safnaðist
saman hópur fólks sem hafði líka náð
þessum árangri á sama hátt. Bar
saman bækur sínar og spurði hvert
annað: Hvernig fórum við að þessu?
Áður höfðu milljónir alkóhólista
látiö undan síga inn í myrkrið og
annaðhvort látið lífið strax eða endað
það á hælum fyrir geðbilað fólk. Eng-
Umsjón:
Ásgeir H. Eiríksson
inn náði bata enda er sjúkdómurinn
hömluleysi ólæknandi meö öllu og
því aðeins hægt að halda honum í
skefjum. En fólkið sem bar saman
bækur sínar komst að einni niður-
stöðu: Alcoholics Anonymous eða
AA.
Síðar fengu hömlulausar ofætur
leyfi til að nota þessi fræði og
Rósanna S. í Kaliforníu stofnaði
Overeaters Anonymous eða OA-
samtökin. I næsta þætti byrjum við
að pæla í tólf þrepum OA-samtak-
anna.
Hvað eru kaloríur?
Kaloríur heita raunar hitaeiningar
á betri íslensku en hér er samt hald-
ið fast við kaloríunafnið vegna þess
að ofátið er alþjóðlegt og þekkir eng-
in landamæri. En kaloría er sú orka
sem þarf til að hita eitt kíló af vatni
um eina gráðu á Celsíus.
Meðalþörf fólks fyrir orku er nú
um 2400 kaloríur á dag og það þýðir
að líkaminn brennir um 2400 kalor-
íum. Ef maður liggur út af brennir
líkaminn um 1 kaloríu á mínútu en
hlaupandi upp stiga brennir maður
hins vegar um 20 kaloríum. Aðrar
hreyfingar brenna kaloríum þar á
milli.
Ef maður borðar mat með fleiri
hitaeiningum en 2400 á dag fitnar lík-
aminn og þyngist. Ef maður borðar
aftur á móti mat með færri en 2400
hitaeiningum á dag gengur líkaminn
á forða sinn og léttist. Allar líkams-
æfingar og hreyfingar auka svo
brunann. Þannig er líkamsþyngdin
bein afleiðing af átinu og engu öðru.
Að lokinni máltíð eru maður og mat-
ur eitt og hið sama.
Líkaminn er því eins og öfugt tékk-
hefti frá banka. Ef við tékkum meira
út af venjulegum bankareikningi en
viö leggjum inn lendum við í vand-
ræðum og fáum gulan miða. Ef við
leggjum aftur á móti meiri mat inn
á líkamann en við brennum lendum
við líka í vandræðum og fáum gula
fitu. Svona er nú lögmálið einfalt;
borða aldrei meira en maður brenn-
ir.
Þess vegna er nauðsynlegt að læra
strax að telja kaloríur í mat. Jafn-
nauðsynlegt og að telja krónur við
innkaupin. Að öðrum kosti verður
ekki unnt að finna jafnvægið. Hvorki
í buddunni eða maganum.
í næstu köflum birtum við valdar
uppskriftir af hollum mat með fáar
kaloríur fyrir þá sem vilja grennast
og ná af sér aukakílóunum á raun-
hæfan hátt.
Áttatíu og þrjú þúsund
átta hundruð níutíu
og sjö fslendingar
- eru góðfúslega beðnir að taka eftir!
í greininni Offita eftir Nikulás er of feitur og þannig erum við því
Sigfússon, yfirlækni Hjartavernd- 83.897 sem höfum gott af að lesa
ar, í 3. tölublaði Heilbrigðismála þessa pistla. Þá eru ekki taldir með
nú i ár segir; - Rannsóknir Hjarta- þeir íslendingar sem teljast ennþá
vemdar sýna að þriðji hver íslend- kannski með holdafarið í sæmílegu
ingur er of feitur. lagi en safna stöðugt óhreinindum
Þama höfum við það á hreinu. í innan á æðamar meö röngu matar-
síðasta manntali voru landsmenn æði. Þeim er alveg óhætt að taka
251.690 taisins. Þriöjungur okkar eftir líka.
Kaloríutal I. hluti
í fyrsta hluta tökum við fyrir ýms-
ar kartöflur, baunir, rófur og gulræt-
ur. Fjjöldi kaloría er tekinn saman í
hverjum 100 grömmum og eins kó-
lesteról og kolvetni. Talið er samið
upp úr næringarefnatöflu eftir dr.
Jón Óttar Ragnarsson í bókinni Nær-
ing og vinnsla sem Helgafell gaf út
árið 1984.
lOOgrömm:
Hitaeiningar Kólesteról Kolvetni
kcal.: milligrömm: grömm:
Kartöflur, soðnar ' 80 0 19,7
Kartöflumús 119 0 18,0
Franskarkartöflur 291 0 29,0
Saltaðar flögur 533 0 49,3
Grænar baunir, soðnar 103 0 19,1
Grænar baunir, nsoðnar 47 0 7,0
Bakaðarbaunir, ns. 64 o 10,3
Rófur 20 0 3,8
Rófur. soðnar 18 o 3,8
Blaðsalat 12 0 1,2
Gulrætur 23 * 0 5,4
Gulrætur, soðnar 19 0 4,3
Gulrætur, niðursoönar 19 0 4,4
Husgagnaverslun
sem kemur á óvart
‘BólsturgGrðin
i Suðurhlíð 35, Garðshorni við Fossvogskirkjugarð, sími 165411
Fómarlömb heldrykkjunn-
ar stofnuðu AA-samtökin