Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR MARS 1990. 51 Afmæ]i Björg Ólöf Helgadóttir húsmóðir, Blómsturvöllum 47, Neskaupstað, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Björg fæddist í Neskaupstað og ólst þar upp en þar hefur hún búið alla tíð. Hún var tíu ára er hún missti móður sína og þurfti þá strax að taka á sig töluverða ábyrgð. Eig- inmaður hennar átti við vanheilsu að stríða í nokkur ár og vann Björg flest almenn verkakvennastörf jafn- framt því að sjá um stórt heimili. Þá tók hún að sér sauma fyrir fólk. Björg starfaði mikið að félagsmál- um, bæði í Kvennadeild Slysavarna- félagsins og Kvenfélaginu Nönnu í fjöldamörg ár. Síðustu tólf árin hef- ur hún verið virkur félagi í Sjálfs- björgáNorðfirði. Björggiftist 13.1.1941 Einari Aðal- steini Jónssyni vélstjóra, f. 15.2. 1914, en hann lést af slysforum 20.12. 1974. Foreldrar Aðalsteins: Guðný Björg Sigurðardóttir og Jón Einars- son, en þau bjuggu í Breiðdal, Loð- mundarfirði og síðast á Seyðisfirði. Böm Bjargar og Aðalsteins Einars eru Helga Soffía, f. 28.2.1939, starfs- maður í brauðgerð, búsett á Reyðar- firði, gift Marteini Elíassyni og eiga þau fjögur börn; Jenný, f. 10.6.1941, starfsmaður á Garðvangi í Garði, gift Þorsteini Torfasyni og eiga þau þrjú börn; Guðný, f. 10.5.1941, bú sett að Jarðbrú í Svarfaðardal, starfsmaður í brauðgerð, gift Stefáni Hólm Þorsteinssyni og eiga þau fimm böm; Jón Hlífar, f. 13.11.1943, stýrimaður í Neskaupstað, kvæntur Kristínu Björgu Jónsdóttur og eiga þau sex börn; Steinunn Lilja, f. 15.6. 1945, yfirkennari í Neskaupstað, gift Kristni ívarssyni og eiga þau þrjú börn; Kristján, f. 31.7.1954, kennari og sölumaður á Dalvík, kvæntur Lilju Kristinsdóttur og eiga þau þijú börn. Langömmubörnin eru nú orð- inþrettán talsins. Systkini Bjargar Ólafar: Guð- mundur, f. 12.2.1913, léstaf slys- förum 20.12.1974, vélstjóri í Nes- kaupstað, var kvæntur Aðalheiði Ámadóttur frá Akureyri; Ólafía, f. 16.5.1918, húsmóðir í Garði, gift Öl- afi Sigurðssyni í Garði; Bjarni, f. 27.10.1919, sjómaður í Garði, kvænt- ur Elísabetu Þórhallsdóttur frá Hofsósi, og Soffía, f, 23.1.1925, mat- ráðskona í Neskaupstað, gift Jó- hanni Jónssyni, bróður Áðalsteins. Foreldrar Bjargar vora Jón Helgi Bjarnason, f. á Sveinsstöðum í Hell- isfirði, 27.5.1888, d. 6.9.1953, sjómað- ur á Mel í Neskaupstað, og kona Björg Ólöf Helgadóttir. hans, Soffía Guðmundsdóttir, f. á Mel í Fljótsdal, 30.11.1894, d. 29.1. 1925, húsmóðir. Björg dvelur á afmælisdaginn á bæklunardeildLandspítalans, 12G. Jón Magnússon Jón Magnússon, skipstjóri og út- gerðarmaður, Aðalstræti 124, Pat- reksfirði, er sextugur í dag. Jón fæddist á Hlaðseyri í Rauða- sandshreppi og ólst þar upp. Hann byijaði kornungur tíl sjós og var aðeins fimmtán ára er hann eignað- ist ásamt bræðram sínum sinn fyrstabát. Jón tók stýrimannapróf1954 og hefur verið með fjölda báta og skipa frá þeim tíma og þar til hann kom í land árið 1980 en Jón er þekkt aflakló um árabii. Meðal þeirra báta sem Jón hefur verið með má nefna Andra, Sæborgu, Dofra, Hannes Hafstein, Garðar, Vestra og Patrek. Auk þess varhann eina vertíð með Þorstein frá Ólafsvík og með Víking fráBolungarvík. Jón stofnaði útgerðarfélagið Odda 1966 og hefur starfrækt það síðan. Hann hefur setið fiskiþing í fimmtán ár. Kona Jóns er Lilja Jónsdóttir, f. 1931, húsmóðir, dóttir Jóns Torfa- sonar, formanns í Kollsvík, og Berg- þóru Egilsdóttur húsfreyju, en þau erabæðilátin. Jón og Lilja eiga sex börn. Þau eru: Magnús, f. 1957, stýrimaður á Patreki, en sambýliskona hans er Halldóra Jónsdóttir húsmóðir og á Magnús eina dóttur; Þormar, f. 1959, sjómaður á Patreksfirði; Arnheiður, f. 1961, húsmóðir á Patreksfirði, gift Þresti Reynissyni, verkstjóra í Odda, og eiga þau þijú börn; Hafþór Gylfi, f. 1967, iðnskólanemi á Pat- reksfirði; Lilja Valgerður, f. 1969, búsett í Reykjavík, og Bergþóra, f. 1971, nemi í foreldrahúsum. Jón á einn hálfbróður og átti fjóra albræður en tveir þeirra eru látnir. Bræður Jóns: Leifur Jónsson, skip- stjóri og nú hafnarstjóri á Rifi; Finn- bogi Magnússon sem er látinn en var skipstjóri á Patreksfirði; Ríkarð Magnússon, skipstjóri í Ólafsvík; Pálmi Magnússon sem er látinn, var bifreiðastjóri, og Ólafur Magnússon skipstjóri. Foreldrar Jóns: Magnús Jónsson, f. 1889, en hann er látinn, var for- maður og útgerðarmaður á Patreks- firði, og kona hans, Kristín Finn- Jón Magnússon. bogadóttir, f. 1909, húsmóðir. Magnús var sonur Jóns Magnús- sonar, b. á Hlaðseyri, og Pálínu Ein- arsdóttur. Kristín var dóttir Finnboga Guð- mundssonar, b. í Krossadal, og Helgu Guðmundsdóttur. Jón verður ekki heima á afmælis- daginn. Svanfríður Ömólfsdóttir Svanfríður Örnólfsdóttir hús- móðir, Blesugróf 8, Reykjavík, verður sjötug á morgun. Svanfríður fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð og ólst þar upp í foreldrahúsum. Eftir barnaskóla- nám stundaði hún ýmis almenn störf en hún flutti til Reykj avíkur með foreldrum sínum árið 1943. Svanfríður giftíst 19.12.1945, Óskari Þórðarsyni, f. 5.6.1920, raf- virkja og verslunarmanni. Foreldr- ar Óskars eru Þórður Runólfsson, b. í Haga, í Skorradal, og Halldóra Guðjónsdóttir húsmóðir. Böm Svanfríðar og Óskars era Arnþór, f. 1947, skrifvélavirki í Reykjavík, kvæntur Hrönn Páls- dóttur, f. 1948 en þau eiga fjögur börn, Dagnýju, f. 1970, Berglindi, f. 1973, Lilju Dögg, f. 1975 og Arnþór, f. 1979; Svandís, £ 1954, bankamað- ur í Reykjavík, gift Steinari Jakobi Krisljánssyni, f. 1950, verslunar- manni hjá Húsasmiðjunni og eiga þau tvö böm, Auöi, f. 1974 og Björg- vin, f. 1980; Ársæll, f. 1960, verslun- armaður hjá Filtertækni, kvæntur Eugeniu Björk Jósefsdóttur, starfs- manni hjá kortagerðarfyrirtæki. Svanfríður var níunda í aldurs- röð þrettán systkina en hún á nú þijú systkini á lífi. Systkini henn- ar: Kristrún Þórlaug Örnólfsdóttir, f. 1902, d. 1978, húsmóðir á Súg- andafirði, var gift Birni Guðbjörns- syni verkamanni sem einnig er lát- inn, en þau eignuðust fimm börn; Ríkey Örnólfsdóttir, f. 1903, látin, húsmóðir á Súgandafirði og síðar í Reykjavík, var gift Einari Jóhanns- syni, verkamanni og sjómanni sem einnig er látinn en þau eignuðust fimm böm; Þorleifur Þorkelsson Ömólfsson, f. 1905, d. 1963, sjómað- ur á ísafirði, kvæntur Ástrúnu Þórðardóttur húsmóður sem einn- ig er látin en þau eignuðust íjögur böm; Sigríður Guðmunda Örnólfs- dóttir, f. 1907, látin, húsmóðir á Akranesi, var gift Ölafi Jónssyni verkamanni sem einnig er látinn og eignuðust þau þrjú börn; Kristj- ana Júlía Ömólfsdóttir, f. 1909, d. 1969, húsmóðir í Reykjavík, var gift Þorláki Jónssyni, f. 1907, en þau eignuðust þijú böm; Jóna Ingi- björg Ömólfsdóttir, f. 1911, d. 1985, verkakona og húsmóðir á Isafirði, gift Magnúsi Kristjáni Guðjóns- syni, f. 1907, d. 1946, verslunar- manni en þau eignuðust þijú börn; Guðrún Þórey Ömólfsdóttir, f. 1917, húsmóðir á Akranesi, er gift Sveini Kristjáni Guðmundssyni, f. 1911, kaupfélagsstjóra og banka- stjóra en þau eiga fjögur börn; Öm- ólfur Magnús Ömólfsson, f. 1917, látinn, rafvirkjameistari í Reykja- vík og á Húsavík, var kvæntur Ste- faníu Ósk Guðmundsdóttur, f. 1915, húsmóður og verkakonu en þau eignuðust sjö böm; Ámi Ömólfs- Svanfríður Örnólfsdóttir. son, f. 1921, rafvirki og verslunar- maður, kvæntur Guðrúnu Jör- undsdóttur, f. 1916, húsmóður og verslunarkonu; Ólafur Ágúst Öm- ólfsson, f. 1923, látinn, útvarpsvirki í Reykjavík, var kvæntur Kristínu Ingvarsdóttur húsmóður og eign- uöust þau þijú börn; Helga Sigur- björg Ömólfsdóttir, f. 1924, d. 1965, húsmóðir í Reykjavík, var gift Baldri Jónassyni, starfsmanni við Áburðarverksmiðjuna og eignuö- ust þau átta börn, og Aðalsteinn Finnur Ömólfsson, f. 1927, vélstjóri og sjómaður og síðar húsvörður, kvæntur Elínu Eiríksdóttur, f. 1927, húsmóður og verkakonu en þau eigafimmböm. Foreldrar Svanfríðar voru Öm- ólfur Jóhannesson, f. 22.8.1879, d. 5.7.1955, verkamaður, sjómaður og fiskmatsmaður á Suðureyri við Súgandafjörð, og kona hans, Margrét Guðnadóttir, f. 11.11.1883, d.31.1.1960. Svanfríður tekur á móti gestum á heimili sínu á afmælisdaginn eft- irklukkan 15.00. Til hamingju með afmælið 4. mars Margrét ívarsdóttir, Hraunbæ 78, Reykjavík. GuðjónK. Guðbrandsson, ; Bjargi I, Hrunamamiahreppi. 80ára Súsanna Baldvinsdóttir, Austurbyggð 19, Akureyri. Svanberg Einarsson, Jórunnarstöðum, Saurbæjar- hreppi. Egill Jónsson, Haukanesi 11, Garðabæ. Valgerður Kristjánsdóttir, Garðarsbraut 32, Húsavík. Hilmar Hafstein Svavursson, Stekkjarseli 5, Reykjavík. Guðrún Traustadóttir, Norðurbraut26, Hafnarfirðl. 40 ára Guðlaug Guðmundsdóttir, Mýrarholti 14, Ólafsvík. 60 ára Svanlaug Auðunsdóttir, Stóru-Borg, Grimsneshreppi. Jón ísleifsson, Þverholti 10, Keflavík. 50ára Bjarney Kristjánsdóttir, Miðvangi 157, Hafnarfirði. Birgir J.Halldórsson, Sogavegi 26, Reykjavík. Jóna G. Þórðardóttir, Arnartanga 26, Mosfellsbæ. Pauline Jean Haftka, Fagurhóh 10, Grundarfirði. Jóhanna Siggeirsdóttir, Hábergi 3, Reykjavík. Hermann Bragason, Bakkahlíö 11, Akure>tí. Arnþór Árni Ström, Hraunbæ 158, Reykjavík. Haraldur Haraldsson, Stangarholti36, Reykjavík. Rúnar Haukur Friðjónsson, Kirkjuvegi32, Keflavík. Halldór Sverrisson, Dunliaga 20, Reykjavik. Gizur Gottskálksson Gizur Gottskálksson læknir, Ægisgrund 20, Garðabæ, er fertugur ídag. Gizur fæddist á Hvoh í Ölfusi og ólst upp í Ölfusinu. Hann lauk stúd- entsprófi við ML1970, embættis- prófi í læknisfræði 1976 og stundaði sémám í lyflæknisfræði í Örebro í Svíþjóð 1978-82. Þá stundaði hann sémám í hjartalækningum við Sahl- grenska sjúkrahúsið í Gautaborg í Svíþjóð 1983-85. Gizur var héraðslæknir á Seyðis- firði 1976-77 og hefur verið starfandi sérfræðingur á Borgarspítalanum frá 1985. Gizur sat í stjóm Félags lækna- nema 1974-76, var varamaður í há- skólaráði fyrir Verðandi 1974-75, í stjóm Félags ungra lækna 1978 og í stjóm Félags íslenskra lækna í Sví- þjóð 1982-35. Hann situr í stjórn Álþýðuflokksfélags Garðabæjar og Bessastaðahrepps frá 1988 og er varaformaöur læknaráðs Borgar- spítalans frá 1989. Gizur hefur skrif- að greinar um læknisfræði í innlend ogerlendtímarit. Gizur kvæntist 1.1.1974, Ehnu Kristjönu Sigfúsdóttur bankastarfs- manni, f. 16.5.1951, dóttur Sigfúsar Einarssonar, sjómanns á Neskaup- stað, og Ragnhildar Þorgeirsdóttur húsmóður. Böm Gizurar og EUnar Kristjönu era Sigfús, f. 8.1.1973, nemi í MR; Gottskálk, f. 24.5.1974, nemi í Garða- Gizur Gottskálksson. skóla og Jóhann Grétar, f. 10.6.1986. Gizur á fjögur systkini. Þau eru Guðmundur, f. 16.4.1931, verslunar- maður og organisti í Hveragerði; Jórunn, f. 16.4.1933, húsmóðir, gift Friðgeiri Kristjánssyni, f. 11.12.1927, trésmíðameistara; Salvör, f. 2.7. 1939, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Vilhelm Adolfssyni vélvirkja, og Guðrún Ásta, f. 16.5.1946, húsmóðir á Selfossi, gift Kristjáni Jónssyni trésmíðameistara. Foreldrar Gizurar: Gottskálk Gissurarson, f. 4.7.1902, d. 16.9.1964, bóndi á Hvoh í Ölfusi, og kona hans Gróa Jónsdóttir, f. 8.9.1907, hús- móðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.