Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 3. MARS 1990.
Skák
E>V
Karpov iókst að snúa á tölvuna „Deep Thought" eftir að hún hatði í þrígang misst af einfaldri jafnteflisleið í endatafli.
Kf7 51. h5 gxh5+ 52. Kf5 Kg7 53.
Ha7+ KfB 54. e6 He4 55. Hd7 Hc4 56.
Hxd5 h4 57. Hd3 Ke7 58. Hd7+ Kf8
59. Hh7 h5 60. Ke5 h3 61. f5 Kg8 62.
Hxh5 a3 63. Hxh3 a2 64. Ha3 Hc5 +
65. Kf6
og „Deep Thought" gafst upp.
Skákþing
Norðlendinga
Rúnar Sigurpálsson, nýoröinn
Skákmeistari Akureyrar 1990,
bætti enn einni rósinni í hnappa-
gatiö meö því að sigra á 55. Skák-
þingi Norðlendinga, sem haldið var
á Sauðárkróki um síðustu helgi.
Rúnar hlaut 6 v. af 7 mögulegum,
Páll Leó Jónsson, Skagaströnd, og
Sigurður G. Daníelsson, Blönduósi,
deildu 2. - 3. sæti með 5 v. Jakob
Þór Kristjánsson, Akureyri, Þór
Valtýsson, Akureyri og Sigurður
Gunnarsson, Siglufirði, fengu 4,5
v. og Haraldur Hermannsson,
Sauðárkróki, Smári Ólafsson og
Siguijón Sigurbjörnsson, báðir
Akureyri, fengu 4 v. Keppendur
voru 22 og var teflt eftir Monrad-
kerfi.
Hlutskarpastur unglinga varð
Örvar Amgrímsson, Akureyri,
með 6,5 v. af 7 mögulegum, eftir
harða keppni við Þórleif Karlsson,
Akureyri, sem hlaut 6 v. Efstur í
drengjaflokki varð Björn Margeirs-
son, Skagafirði, með 4 v. og fleiri
stig en Páll Þórsson, Akureyri, sem
fékk jafnmarga vinninga. í kvenna-
flokki sigraöi Þorbjörg Þórsdóttir,
Akureyri, með 4 v. Átján keppend-
ur tefldu saman í þessum þremur
flokkum.
Hvitt: Friðgeir Kristjánsson
Svart: Rúnar Sigurpálsson
Norræna bragðið.
1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. c4 e6 4. Rf3
Tölvan djúpvitra hafði
í fullu tré við Karpov
Nú eru allmörg ár síðan skoski
alþjóðameistarinn David Levy
skoraði hvaða tölvu sem er á hólm
og setti upp tíu þúsund sterlings-
punda verðlaun. Fyrir rúmum fjór-
um árum lá viö nærri að hann
þyrfti að reiða féð af hendi er hann
tefldi við tölvuna „Hitech“. Levy
hafði þó betur en lét hafa eftir sér
að í fyrsta skipti hefði forrit teflt
eins og maöur.
„Áður fyrr komu skákmenn til
þess að hlæja. Næsta ár koma þeir
til þess að fylgjast með. Bráðum
koma þeir til að læra,“ sagði Levy.
í desember sl. var svo stundin
runnin upp. Þá tefldi Levy fjögurra
skáka einvígi í London við tölvu-
forritið „Deep Thought" frá
Camegie-Mellon háskólanum í
BandariKjunum. Svo fór að tölvan
djúpvitra gerði sér lítið fyrir og
vann allar skákirnar! Levy tók
ósigrinum ekki illa. „Ég var að tefla
við andstæðing sem var miklu,
miklu sterkari en ég,“ sagði hann.
„Ég skildi leikina hennar en það
nægði ekki til aö vinna á móti
slakri taflmennsku minni,“ bætti
hann við.
Tölvan „Deep Thought" er
Bandaríkjameistari tölva í skák og
hefur nýlega tekið miklum fram-
forum, sem væntanlega er forritur-
unum aö þakka. Einn þeirra sem
starfar við Camegie-Mellon skól-
ann er Hans Berliner, fyrrverandi
heimsmeistari í bréfskák og sér-
fræðingur á sviöi gervigreindar.
Árangur tölvunnar byggist m.a. á
sérstöku stefnumótunarforriti sem
- en lék af sér í jafnteflisstöðu og tapaði
tölvan byggir langtímaáætlun sína
á. í ljósi hennar velur tölvan milli
leikja og þannig tekst að sleppa
þeim greinum á sundurgreiningat-
rénu sem lenda utan við áætlunina.
Tölvan þarf þvi ekki að sólunda
tíma sínum í að reikna út einskis
nýta leiki, eins og tölvumar gera
jafnan.
Nú í febrúar fékk tölvan djúp-
vitra sitt erfiöasta verkefni til
þessa. Þá settist sjálfur Anatoly
Karpov gegnt henni í Harvard-
háskóla í Bandaríkjunum. Ekki
fylgir sögunni hvort tölvan hafi
verið taugaóstyrk en meðal áhorf-
enda var mikil spenna, enda hefði
sigur tölvunnar vissulega markaö
tímamót í veraldarsögunni.
Skákin varð geysispennandi en
fljótlega varð ljóst að Karpov átti
ekki í höggi við neinn vesaling.
Tölvan hirti meira að segja „eitr-
aða peðið“ á b2 með drottningu
sinni án þess að depla auga og var
greinilega búin að reikna út að
drottningin slyppi aftur heim.
Karpov náði þó undirtökunum í
framhaldi taflsins en tölvan varðist
vel og þar kom að skákin leystist
upp í hróksendatafl sem hefði átt
að vera auðvelt jafntefli. En „Deep
Thought" missti í þrígang af ein-
faldri jafnteflisleið og um síðir
tókst Karpov að snúa á hana. Eftir
65 leiki gafst tölvan svo upp en öll
um kom saman um aö hún hefði
unnið „móralskan sigur“ með því
að standa meistaranum svo á
sporði.
Tölvan djúpvitra getur nú „séð“
mifljón mismunandi stöður á einni
Skák
Jón L. Árnason
sekúndu og geri aörir betur. Forrit-
arar við Carnegie-Mellon skólann
reikna með að geta lagað sjón tölv-
unnar enn, þannig að innan árs
verði stöðurnar orðnar milljaröur
(!) sem hún sér á einni sekúndu.
Þá held ég að Karpov hætti að lít-
ast á blikuna.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Deep Thought
Caro-Kann vörn
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 g6 4. c3 Bg7
5. e5 f6 6. f4 Rh6 7. Rgf3 (M) '8. Be2
fxe5 9. fxe5 c5 10. Rb3 cxd4 11. cxd4
Rc6 12. 0-0 Db6 13. Khl a5 14. a4 Bf5
15. Bg5 Be4
Eftir að hafa fengið þrengri stöðu
eftir byijunina hefur tölvan teflt
skynsamlega. Langtímaáætlun
hennar virðist vera að þrýsta aö
drottningarpeði hvíts. Með síðasta
leik undirbýr hún jarðveginn fyrir
16. - Rf5. Karpov afræður að taka
af skarið en með næsta leik upp-
hefjast miklar flækjur.
16. Rc5!? Dxb2! 17. Rxe4 dxe418. Hbl
Da3 19. Bcl Dc3 20. Bd2 Da3 21. Bcl
Dc3 22. Hb3 Dal
Eini reiturinn sem drottningunni
stendur til boöa! Karpov hefur ekki
hug á jafntefli með þráleik en nú
finnur hann leið sem gefur honum
ívið betri færi í endatafli.
23. Bc4+ Kh8 24. Bxh6 Dxdl 25.
Bxg7 + Kxg7 26. Hxdl exf3 27. gxf3
Ha7 28. Bd5 Hd8 29. Hb5 Ha6! 30. Bc4
Tölvan hótaði að losa um stöðuna
með 30. - Ra7! 31. Bxb7 Rxb5 32.
Bxa6 Hxd4 o.s.frv.
30. - Ha7 31. Bd5 Ha6 32. Hc5 Hd7
33. Kg2 Hb6 34. Bxc6 bxc6 35. Kf2
Hd5 36. Hxd5 cxd5 37. Hcl Hb4 38.
Ke3 Hxa4
Fram að þessu hefur Deep Tho-
ught varist vel en nú er eins og hún
fari að lýjast. Textaleikurinn er í
lagi en einfaldara jafntefli var aö
hafa með 38. - Hb3+ 39. Ke2 Hb4
o.s.frv.
39. Hc5 e6 40. Hc7+ Kg8 41. He7
Ha3+ 42. Kf4 Hd3 43. Hxe6 Hxd4 +
44. Kg5 Kf7 45. Ha6
45. - a4(?)
Eftir þennan leik er taflið enn
jafntefli en einfaldara er 45. — h6 +!
46. Kxh6 Hh4+ 47. Kg5 Hh5+ 48.
Kf4 Hf5+ og næst 49. - Hxe5 og
jafnteflið blasir við.
46. f4 h6+ 47. Kg4 Hc4?
Nú var 47. - g5 síðasta jafnteflis-
leiðin. Nú vinnur Karpov.
48. h4! Hd4 49. HÍ6+ Kg7 50. Ha6
exd5 5. d4 Be7 6. Rc3 04) 7. Bf4 He8
8. Be2 dxc4 9. 0-0 Rd5 10. Bg3 Rxc3
11. bxc3 Be6 12. Da4 c6 13. Hfbl b5
14. Ddl Bf5 15. Hb2 Ba3 16. Hd2 b4
17. Bxc4 bxc3 18. Db3 cxd219. Bxf7+
Kh8 20. Bxe8 Bcl 21. Bh5 Ra6 22.
Re5 Dd5 23. Db7 Hc8 24. Rf7+ Kg8
25. Be5
I &
^ igf ðii
£lJl é.
& A fiSá
a í II SÉ?
ABCDEFGH
25. -Dd7 26. Dxa6 Bg4 27. Bxg4 Dxg4
28. Rh6+ gxh6 29. Dc4+ Kf8 30.
Bd6+ Ke8 31. Hxcl dl = D 32. Hxdl
Dxdl 33. Dfl Dxfl + 34. Kxfl Kd7 35.
Bc5 a6 36. g4 He8 37. Kg2 Ke6 38. f4
h5 39. h3 hxg4 40. hxg4 h5 41. gxh5
Kf5 42. Kf3 Hh8 43. a3 Hxh5 44. Kg3
Hhl 45. Kg2 Hbl 46. Kf3 Hb3+ 47. ’
Ke2 Kxf4 48. Kd2 Ke4 49. Kc2 Hh3
50. Kd2 Hd3+ 51. Kc2 Hxd4 52. Bxd4
Kxd4 53. Kd2 Kc4 54. Kc2 c5 55. Kb2
Kd3
og hvítur gaf.
-JLÁ